Morgunblaðið - 23.03.1983, Síða 1
80 SÍÐUR
68. tbl. 70. árg.
MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Áfall fyrir Begin:
Forsetinn úr röðum
stjórnarandstöðunnar
Jerúsalem, 22. mars. AP.
MENACHEM Begin, forsætisráð-
herra ísraels, og stjórn hans biðu
Báru kennsl á
lík sonarins
— en hann kom svo
sprelllifandi heirn
Inverness, 22. mars. AP.
ANGUS Clunas og eiginkona
hans Ethel, hnigu næstum í öngvit
af undrun og skelfingu er þau sáu
hinn 24 ára gamla son sinn,
Stephen, ganga inn um húsdyrnar,
aðeins fáum klukkustundum eftir
að þau höfðu borið kennsl á hann
á líkbörum líkhússins í Inverness
í gær. „Mér leið eins og ég væri
að horfa á draug,“ sagði Clunas.
Lík ungs manns fannst í
Caingorm-fjöllunum og töldu
kunnugir manninn líkjast
Stephen Clunas. Síðast er frétt-
ist var lögreglan í Inverness í
hinum mestu vandræðum, því
enn liggur tvífari Stephen Clun-
as á líkbörum hjá þeim og eng-
inn veit hver hann er.
hnekki í gær, er þingið kaus Haim
Herzog til forsetaembættisins í land-
inu. Herzog var fulltrúi stjórnar-
andstöðunnar og kom kjör hans því
mjög á óvart. Fékk Herzog 61 at-
kvæði gegn 57 atkvæðum Menach-
em Elons, sem var frambjóðandi
stjórnarinnar. Tveir atkvæðaseðlar
voru auðir.
Herzog er 64 ára gamall fyrr-
verandi hershöfðingi og diplómati.
Hann er þingmaður fyrir Verka-
mannaflokkinn. Hann var ekki
staddur í þingsalnum er úrslit
voru lesin upp. Sjá mátti
Begin gretta sig vonskulega og
ráðherrar hans flykktust að hon-
um mikið niðri fyrir, enda úrslitin
áfall fyrir stjórnina.
Haim Herzog, t.v., skálar fyrir sigrinum við Shimon Peres, foringja stjórnarandstöðunnar. Lengst til hægri er
Menachem Savindor. símamvnd APjsj
Ný stjórn í
Frakklandi
París, 22. mars. AP.
Pierre Mauroy, forsætisráðherra
Frakklands, gekk í gærkvöldi á fund
Mitterands, forseta landsins, og
baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti
sitt. Veitti Mitterand stjórninni
lausn, en fól Mauroy hins vegar að
mynda nýja ríkisstjórn. Það gerði
hann svo seint í gærkvöldi. Hann
lagði fram ráðherralista og var emb-
ættum þar fækkað talsvert frá því
sem áður var.
Þessi tíðindi gerast aðeins níu
dögum eftir sveitarstjórnakosn-
ingarnar þar sem stjórnarflokkarnir
fóru halloka og í beinu framhaldi af
gengislækkun franska gjaldmiðils-
ins. Uppstokkun í stjórnarliðinu hef-
ur legið í loftinu í margar vikur, en
eftir úrslitin í kosningunum á dög-
unum var ljóst að aðgerðirnar voru
óumflýjanlegar.
Mitterand kemur fram í franska
sjónvarpinu í kvöld og greinir þjóð-
inni frá stöðu mála, stjórnarmyndun
og efnahagsaðgerðum sem á döfinni
eru.
Dró Strauss sig í hlé
til að halda friðinn?
Bonn, 22. mars. AP.
Fregnir í gærkvöldi hermdu, að Franz Josef Strauss, formaður Kristilega
Sósíalsambandsins í Bæjaralandi, hafi ákveðið að gefa ekki kost á sér til
ráðherraembættis í samsteypustjórninni vestur-þýsku undir stjórn Helmuts
Kohl, til þess að koma í veg fyrir að flokkur Frjálsra Demókrata gengi úr
stjórnarsamstarfinu.
Seint í gærkvöldi var stjórn-
armyndunarviðræðum sigurflokk-
anna úr kosningunum ekki end-
anlega lokið og ráðherralisti því
ekki fyrirliggjandi. Ljóst var þó,
að Hans Dietrich Genscher myndi
halda sæti sínu sem utanríkis-
ráðherra og varakanslari. Það
voru embætti sem Strauss hafði
gert kröfu til, en það er mál
manna að Kohl hafi synjað
Strauss þegar í upphafi viðræð-
anna.
Skoðanaágreiningur milli flokks
Strauss og flokks Genschers er
fyrir hendi í ýmsum málum, til
dæmis vill flokkur Strauss skerða
réttindi innflytjenda til Vestur
Þýskalands og setja reglugerðir
um hömlur á mótmælaaðgerðir af
hvers kyns tagi. Frjálsir demó-
kratar eru mótfallnir skoðunum
Kristilega Sósíalsambandsins í
þessum málum og fleirum. Tals-
menn Frjálsra Demókrata, sem
létu nafna ekki getið, fullyrtu í
gær, að flokkurinn hefði ekki hik-
að við að slíta stjórnarsamstarfið
ef Strauss hefði velt Genscher úr
sæti utanríkisráðherra. Strauss
sagði í gær að ráðherrastóll skipti
ekki höfuðmáli, hann hefði skilið
svo við stjórnarmyndunarviðræð-
urnar, að Kristilegi Demókrata-
flokkurinn myndi halda á lofti
ýmsum veigamiklum kröfum og
stefnum Kristilega Sósíalsam-
bandsins.
Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, fordæmir stefnu fsraels, á leið-
togafundi EBE. Til hægri er Hans Dietrich Genscher, utanríkisráðherra
Vestur-Þýskalands. símamrnd ap.
EBE-leiðtogarnir
fordæmdu ísrael
Brussel, 22. mars. AP.
LEIÐTOGAR landanna tíu sem aðild
eiga að Efnahagsbandalagi Evrópu,
luku tveggja daga fundi í Brussel í
Belgíu í gær og var það samdóma álit
þeirra að mikið áhyggjuefni væri
hversu stirðlega friðarviðræður fyrir
botni Miðjarðarhafs ganga um þessar
mundir.
Svíþjóð:
Enn eltingaleikur við
kafbát í skerjagarðinum
Stokkhólmi, 22. mars. AP.
SÆNSKA varnarmálaráðuneytið greindi frá því í gær, að leit standi
yfir í sænska skerjagarðinum, að óþekktum erlendum kafbáti sem
sást I gærmorgun.
Það voru verktakar á smá-
eynni Malsten sem sáu kafbát-
inn. Eyjan er 60 kílómetrum
fyrir sunnan Stokkhólm. Að-
skilur eyjan tvö sund sem sigla
má um til Mysingflóa, en þar
er að finna Musko-flotastöðina
stóru. Sáu verktakarnir sjón-
pípu og ólgu bátsins þar sem
hann var á suðurleið, að því er
virtist á leið út úr Mysing-flóa.
Var sænska hernum strax
gert viðvart, en varnarmála-
ráðuneytið opinberaði ekki í
gær hversu umfangsmikil leit-
in væri. Síðast í október spurð-
ist til ferða óþekktra kafbáta
og var það einnig á þessum
slóðum. Öruggt var talið að um
austur-evrópska kafbáta væri
að ræða og það er talið nær
öruggt í þessu tilviki.
Þá fór fram viðamikil leit og
vörpuðu tundurspillar og þyrl-
ur miklu magni djúpsprengja í
hafið, kafbátunum til viðvör-
unar. Þeir náðust ekki, en talið
var að að minnsta kosti annar
þeirra hefði laskast. Eftir leit-
ina tilkynnti sænska ríkis-
stjórnin að stórveldin skyldu
ekki freista þess að njósna við
strendur Svíþjóðar. Gaf
stjórnin í skyn að sprengjum
yrði varpað á óboðna gesti og
væru líf og limir áhafnarmeð-
lima þá á ábyrgð viðkomandi
þjóða.
Leiðtogarnir fordæmdu allir
ísraelsmenn fyrir þá stefnu þeirra
að stuðla að búferlaflutningum gyð-
inga til vesturbakkans og búsetu
þeirra þar. „Það stríðir gegn alþjóð-
legum lögum og spillir fyrir raun-
hæfum friðarviðræðum," sagði í
sameiginlegri yfirlýsingu foringj-
anna. Þeir hvöttu einnig til þess að
ísraelskar, sýrlenskar og palestínsk-
ar hersveitir yrðu á brott frá Líban-
on eins fljótt og auðið væri og ísra-
elsmenn og Palestínumenn tækju
upp ákveðnar friðarviðræður. Mar-
grét Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands, sagði við fréttamenn:
„Við verðum að gera okkur ljóst, að
tíminn er að verða naumur ef endar
eiga að nást við samningaborðin."
Þessar yfirlýsingar EBE-leiðtog-
anna komu á sama tíma og Philip
Habib, sérlegur sendifulltrúi
Bandarikjanna í Miðausturlöndum,
fór á fund Amin Gemayels, forseta
Líbanon, með nýjar tillögur um
friðargrundvöll.
Ef yfirlýsingar ráðherranna um
málefni Miðausturlanda eru undan-
skildar, var fundurinn fremur tíð-
indalítill. Þó voru teknar til með-
ferðar beiðnir Spánar og Portúgals
að ganga í bandalagið. í tilkynningu
sem gefin var út í fundarlok, sagði
að málið væri í athugun, en nefndir
væru að athuga hvaða hagur væri í
að stækka bandalagið og hvaða af-
leiðingar það kynni að hafa t för
með sér.