Morgunblaðið - 23.03.1983, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 23.03.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983 31 inni í Jerúsalem, er starfsmaður í dómsmálaráðuneytinu, en lang- flestir geta stundað vinnu hér. Shifra á fjögur börn, yngsti sonurinn Josuah er heima, 2ja ára, hin eru í skólanum. Húsin eru öll eins að utan, en síðan get- ur hver fjölskylda innréttað þau að vild. í þeim eru 2—3 rúmgóð herbergi og eldhús. Shifra segir okkur, að eftir að hún flutti til ísraels, hafi ýmsir úr fjölskyldu hennar í Bandaríkjunum tekið sig upp og komið þangað og tekið sér bólfestu í landinu. — Ég hef fund- ið mikla ánægju í að vera hér og finnst ég verulega fá eitthvað gott út úr lífinu, segir hún — sam- skipti okkar við Arabana í grenndinni? Þau eru ekki mikil. Þeir eru hérna allt í kring og framan af léku krakkarnir sér saman, en svo þurfti PLO auðvit- að að komast með puttann í það. Svo að nú reynum við bara að láta hvern annan í friði. Það fer kannski bezt á þvi. Jú, það kostaði vissulega átak á sínum tíma að setjast hér að. Sérstaklega af því að það gekk svo seint að fá löglega heimild til þess. Við komum hingað um helgar, höfðumst við í jórdönskum hermannabragga og unnum að því að reyna að brjóta upp landið, byggja yfir smáiðnað og fleira mætti telja. Oft og einatt vorum við fjarlægð með valdi. Það var ekki fyrr en stjórnvöld þótt- ust sjá að okkur væri alvara — þetta væri ekki nein grilla og sérvizka að hljóðið fór að breyt- ast. Börnin okkar verða ekki fyrir neinu teljandi aðkasti hér. Við ér- um að vísu í grennd við Ramallah þar sem oft hefur verið ákaflega ókyrrt, en við áreitum engan að fyrra bragði, viljum bara fá að lifa hér í friði og vera okkur þess þó vitandi, að við erum útverðir, ef til átaka kemur. En þá erum við líka reiðubúin. Snjórinn lá eins og kaldur feld- ur yfir hrjóstrugu landi Samaríu þegar við héldum áfram. Það var satt að segja heldur betur léttir að komast niður í Jórdandalinn, keyra meðfram Galileuvatni og borða Pétursfisk í Tiberias. Gafny segir mér að einhverju sinni hafi ferðamaður komið að þeim stað þar sem sagt er að Jesús hafi gengið á vatninu. Hafi hann beðið ferjumann að fara með sig yfir. Ferjumaðurinn tók því vel en setti upp mikið fé fyrir, svo að ferðamanninn rak í rogastanz og spurði, hvort það gæti verið að það kostaði þessi ósköp. — Þú verður að athuga, að það var hér sem Jesús gekk á vatninu, sagði ferjumaðurinn lymskulegur á svip. — Ég er ekki hissa á því, sagði ferðamaðurinn. — Það hefur eng- inn venjulegur maður efni á því að fara hér yfir á bát. Svo fékk ég mér vatn í krús, þar sem Jóhannes skírði Jesúm og síð- an héldum við til næturdvalar á kibbutizinum Ayelet Hashahar. Shifra Blass með Josuah Frá Ofra. texti: Jóhanna Kristjónsdóttir F| Hafnarfjöröur — kjörskrá Kjörskrá fyrir Hafnarfjörö vegna alþingiskosninga, sem fram eiga aö fara 23. apríl 1983 liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofunni, Strandgötu 6, Hafnarfirði, alla virka daga nema laugardaga frá 22. mars til 8. apríl nk. kl. 9.30—15.30. Kærur vegna kjörskrár skulu hafa borist skrifstofu minni fyrir 8. apríl nk. Hafnarfiröi, 18. mars 1983. Bæjarstjóri. Þrýstimælar Allar stærðir og gerðir ■LlLL SöyoUðQiygjQjKí1 Qj&OUSæOOT) & Vesturgötu 16, sími 13280 Wterkurog kl hagkvæmur auglýsingamiðill! Bladburóarfólk óskast! Vesturbær Austurbær Granaskjól Grettisgata 36—98 Seilugrandi Hverfisgata 63—120 • Þessa einstæöu samstæöu er nú hægt aö eignast meö aöeins 4.000 kr. útborgun og afganginn á næstu 6 mán. Verö kr. 18.500 . stgr. HLJOMBÆR HLJOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999 ÚTSÖLUSTAÐIR: Portiö, Akranesi — KF Borgf Borgarnesi — Verls. Inga. Hellissandi — Patróna, Patreksfiröi — Sería. Isafiröi — Sig. Pálmason, Hvarfimstanga — Alfhóll, Slgluflröi — Cesar. Akureyri — Radíóver, Húsavfk — Paloma. Vopnafiröi — Ennco. NeskaupsstaÖ — Stálbúöin. Seyöisfiröi — Skógar, Egilsstööum — Djúpiö, Djúpavogi — Hombær. Homafiröi — KF. Rang. Hvolsvelli — MM. Selfossi — Eyjabaer. Vestmannaeyjum — Rafeindavlrkinn. Grindavík — Fataval, Keflavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.