Morgunblaðið - 23.03.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.03.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983 5 Hreinn Loftsson einn af stofnendum „Samtaka lýðræðissinna“: Ekki hefðbundinn stjórnmálaflokkur — að minnsta kosti ekki enn sem komið er „ÉG TEL að ekki sé unnt að halda því frara, að nýstofnuð „Samtök lýðræð- issinna" séu stjórnmálaflokkur í hefðbundinni merkingu þess orðs, að minnsta kosti ekki enn sem komið er. Samtökin eru til orðin vegna megnrar óánægju með afgreiðslu þingmanna á kjördæmamálinu þar sem hagsmunir flokka voru settir ofar hagsmunum einstaklinga — sjálfsögðum rétti þeirra til sömu áhrifa á stjórn landsins, óháð búsetu," sagði Hreinn Loftsson einn af þeim er sæti eiga í bráðabirgðastjórn „Samtaka lýðræðissinna“ sem stofnuð voru nýverið, en Hreinn var að því spurður hvort samtökin væru sjálfstæð stjórnmálasamtök sem bjóða myndu fram til kosninga síðar, en fram hefur komið að samtökin bjóði ekki fram fyrir kosningarnar 23. apríl. Hreinn sagði einnig: „Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa tekið þátt í þessu og látið sér nægja að færa klukkuna til baka í stað þess að standa einarðlega um jafnrétti einstaklinganna — sem þeim ber þó að gera sem fulltrúum flokks er kennir sig við einstakling og frelsi hans. Það fer ekki hjá því þegar þetta gerist að menn athugi vel sinn gang. Ljóst er að óréttlætið í kjördæmamálinu á að viðgangast áfram á ábyrgð allra þingflokka — einnig Sjálfstæðisflokksins. Það kann þó að vera að ekki sé öll von úti enn um viðgang frjáls- hyggju innan Sjálfstæðisflokksins og því tel ég að rétt sé að flana ekki að neinu. Æskilegast er vita- skuld að Sjálfstæðisflokkurinn riðlist ekki og koðni niður í ein- hverri moðsuðu misskilins um- burðarlyndis. Ef sú raunin verður ofan á tel ég hins vegar rétt að ígrunda vel stofnun flokks, sem raunverulega berst fyrir einstakl- ingsfrelsi og framtaki í anda grundvallarstefnu Sjálfstæðis- flokksins. Allt veltur þetta á þróun næstu vikna og mánaða. Sem stendur tel ég þó „Samtök lýðræðissinna" fyrst og fremst vera einskonar hagsmunasamtök sem setja á oddinn ýmis mál, eink- um atkvæðisréttinn, er mega alls ekki verða undir á þeim óvissu- og upplausnartímum sem „hinir frjálslyndu og umburðarlyndu" í Sjálfstæðisflokknum hafa ekki hvað sízt átt þátt í að skapa síð- ustu misseri og ár.“ Hreinn, sem sæti á í stjórn Sambands ungra sjálfstæð- ismanna, sagði í lokin, að hann hefði alls ekki sagt skilið við Sjálfstæðisflokkinn, og að hann myndi styðja hann í komandi kosningum. Stjórn og framkvæmdastjóri Hárgreiðslumeistarafélags íslands. Talið frá vinstri: Jan Even Wiken, Guðrún Sverrisdóttir, Sólveig Leifsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, formaður, Guðrún Júlíusdóttir, Rannveig Guð- laugsdóttir og Kristjana Milla Thorsteinsson, framkvæmdastjóri félags- ins. Morgunblaðið/KEE Dagarhársins 1983 Hárgreiðslumeistarafélag íslands hefur í sambandi og samráði við Landssamband iðnaðarmanna ákveðið að ráðast í kynningarherferð vegna hárgreiðslugreinarinnar, vikuna 24,—30. mars, undir heitinu Dagar hársins 1983. Verður leitast við að ná til almennings með ýmsum hætti, t.d. í fjölmiðlum með auglýsingum og greinum, með veggspjöld- um og fleiru. Þá verður hárþvottur á hárgreiðslustofum ókeypis meðan á Dögum hársins stendur, meðal annars til að undirstrika mikilvægi hans fyrir alla hirðingu hársins. Kynningarherferðin beinist ekki ein- göngu að almenningi, heldur einnig að félagsmönnum og stjórnvöldum. „Þannig verður eftir því leitað að stjórnvöld reyni að takmarka svarta atvinnustarfsemi og fúsk í hárgreiðslu, eins og þeim raunar ber að gera lögum samkvæmt," segir meðal annars í fréttatilkynningu frá félaginu. í Hárgreiðslumeistarafélagi ís- Vinnuveitendasambandi íslands lands eru 96 félagar um allt land. Landsambandi iðnaðarmanna Árið 1981 voru ársverk í greininni ~ ^tntökum atvinnurekenda í talin 250 og er félagið aðili að *um ‘•'nt(r<‘inum. Bandalag jafnaðarmanna: Framboðslisti í Suðurlandskjördæmi Eftirtaldir skipa lista Bandalags jafnaðarmanna á Suðurlandi: 1. Sjöfn Halldórsdóttir, ráðskona, Hátúni, Ölfusi. 2. Hanna María Pétursdóttir, sóknarprestur, Kirkjubæjarklaustri. 3. Gylfi Harðarson, vélstjóri, Vestmanna- eyjum. 4. Magnús Halldórsson, ráðsmaður, Brekkum, Hvolhreppi. 5. Þór Hafdal Ágústsson, sjómað- ur, Eyrarbakka. 6. Bergljót Ara- dóttir, kennari, Selfossi. 7. Bolli Þóroddsson, vélvirki, Búrfelli. 8. Guðríður Valva Gísladóttir, tón- listarkennari, Mýrdal. 9. Þröstur Guðlaugsson, Vestmannaeyjum. 10. Sighvatur Eiríksson, tækni- fræðingur, Selfossi. 11. Jón Vigfússon, bóndi, Brúnavöllum, Skeiðum. 12. Bárður Guðmunds- son, kennari, Selfossi. Má bjóða þér í 10 ÁRA AFMÆLI ÚTSÝNAR í LIGNANO? ítölsk heloi í Reykjovík 25.-27morz á vegum Feröamálaráðs Lígnano og Útsýnar. H0LLYW00D föstudag 25. marz: Nýja Hollywood opnar formlega meö ítölsku kvöldi kl. 21.00. ítalíukynning meö Ijúffengri pizzu og rauðu Valpolicella á aðeins kr. 100. Happdrættismiöi handa öllum, sem koma fyrir kl. 22:00 — ferðavinningur. Tízkusýning: Model 79 Danssýning: Reynir og Kara frá dansskóla Siguröar Hákonarsonar. Hárgreiösla: Salon Ritz Kynnir: Þorgeir Ástvaldsson Aðgöngumiðar í Hollywood kl. 1—5 e.h. sími: 81585. RR0ADWAY sunnudag 27. marz kl. 14.00. Kynnir: Bryndís Schram, ritstjóri og fararstjóri. Kynning á hinum afburöavinsæla fjölskyldustaö LIGNANO meö glæsilegri aöstööu á „gullnu ströndinni" fyrir börnin, foreldrana og ótal tækifærum fyrir ungt fólk á öllum aldri til aö njóta lífsins í sumarleyfinu. Ströndin í Lignano sett upp á sviöi Broadway. Lína langsokkur kemur í heimsókn. Garðabæjarkórinn syngur, undir stjórn Guöfinnu D. Ólafsdóttur. Hin unga söngstjarna Ingunn Gylfadóttír, kynnir nýútkomna plötu sína. Danshópur frá Dansskóla Heiöars Ástvaldssonar, sýnir dans og margt fleira til skemmtunar en að lokum veröur stórfenglegt gjafa-happdrætti meö ítölskum leikföngum, og ítalskir vinir okkar leysa aö lokum öll börnin (sem aöeins fá aögang meö fullorðnum) út meö itölskum páskaeggjum. Stórbingó - aöalvinningur^“Erð,',U9nan<’ Aögöngumiðar á kr. 25.00 í Broadway í dag sími: 77500. Húsiö opnað kl. 13.30. BR0ADWAY sunnudag 27. marz kl. 19.00 Kynnir Þorgeir Astvaldsson. Fordrykkur í boöi Feröamálaráös Lignano. Gjafahappdrættismiöinn býöur upp á margs konar lukkuvinninga. Á boröum veröa kræsingar s.s. súpa og gratineraöir, gómsætir sjávarréttir á ítalska Lign- ano-vísu, meðan Big Band Birgis Sveinssonar innleiöir lauflétta suö- ræna stemmningu, því á þessu kvöldi er ekki dauður punktur. italska hátízkan er útfærö í sýningu Módelsamtakanna og hársnyrti- snyrti- og danssýning frá SALON RITZ er sannkallaö augnayndi. Og ekki vantar músíkina — „gulltenórinn,, Hjálmtýr Hjálmtýsson syngur vinsælustu itölsku lögin beint inn í hjörtu ykkar, frægur rokksöngvari tekur lagiö í Elvis-stíl á mini-rokkhátíö meö úrvalshljómsveit Björgvins Halldórssonar, sem heldur dunandi fjöri i dansin- um og spilar einnig meö nýju söngstjörnunni Ólöfu Ágústsdóttur. Hinar frábæru fimu og stæltu Jazz-sportstúlkur fá þig til aö grípa andann á lofti aö ógleymdri feguröarsamkeppninni — síðasta tækifæri aö bætast í keppnina Ungfrú og Herra Ótsýn '83, eina eftirsóttustu fyrirsætukeppni landsins, þar sem stór-ferðavinningar eru í boöi — freistiö gæfunnar í stórferða-bingói, meö glæsilegum vinningum fyrir alla fjölskylduna! ÞAÐ ER Á HREINU þetta er skemmtun í sérflokki — bæjarins bezta — sem þú hefur ekki ráð á að láta fara fram hjá þér. Boröapantanir og aögöngumiðar í Broadway sími: 77500. Verið velkomin^í^^ á ítalska helgi ^^ Feröaskrifstofan í Reykjavík \\ r Góða skemmtun!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.