Morgunblaðið - 23.03.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.03.1983, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983 ÞORARINN RAGNARSSON AFINNLENDUM VETTVANGI íþróttafólkið vinnur mikið landkynningarstarf Undanfarnar vikur hafa borist góðar fréttir af íslensku íþróttafólki sem dvalið hefur erlendis við æfingar, keppni og ýmis störf. Atvinnuknattspyrnumenn okkar standa sig með miklum ágætum og frjálsíþróttafólk okkar vinnur góð afrek í Bandaríkjunum og okkur berast fréttir um íslandsmet og sigra í stórum mótum. Við megum ekki gleyma því að íbúatala íslands er á við íbúatölu lítillar borgar í flestum þeim löndum sem við erum að etja kappi við og það er því með ólíkindum hversu marga góða íþróttamenn og -konur þessi fámenna þjóð eignast. Hér á landi er mjög almennur áhugi á íþróttum og útilífl og mikill áhugi er á afrekum íþróttafólks okkar, og fylgst er með þeim af athygli. Afreksmenn í íþróttum eru æskunni gott fordæmi og fyrirmynd. íslendingar hafa átt marga slíka sem veitt hafa okkur ómælda gleði og aukið hróður þjóðarinnar. Iþróttafólk okkar hefur unnið sigra sem hlýja þjóðinni um hjartarætur og eru okkur mikils virði. Og það sem meira er, íþrótta- fólkið er mikil og góð land- kynning. Nú leika þrettán knattspyrnumenn erlendis. Að undanförnu hefur Ásgeir Sigur- vinsson vakið mjög mikla athygli í V-Þýskalandi fyrir frammistöðu sína. Það er reyndar ekki í fyrsta sinn sem hann stendur sig vel í íþrótt sinni. Ásgeir er í fremstu röð í Evrópu og nú nýverið birtist opnugrein um hann í íþróttatíma- ritinu Kicker, einu virtasta íþróttablaði í Evrópu. Það segir meira en mörg orð. En Ásgeir vek- ur ekki aðeins athygli fyrir frammistöðu sína á knattspyrnu- vellinum. Hógværð hans, kurteisi og góð framkoma, jafnt innan sem utan vallar, vekur mikla athygli. óhætt er að fullyrða, að það sama gildir um annað íslenskt íþróttafólk, sem kynnir land sitt og þjóð á erlendri grund. Nafn fs- lands er sjálfsagt nefnt oftar í er- lendum blöðum vegna íþrótta- fólksins og afreka þeirra en vegna nokkurra annarra atburða og er framlag þeirra til landkynningar ómetanlegt. Ásamt Ásgeiri í V-Þýskalandi leikur Atli Eðvaldsson, sem nú er einn markahæsti leikmaður í þýsku deildinni. f Frakklandi leika Teitur Þórðarson og Karl Þórðar- son með liðum sem eru í fremstu röð. í Belgíu leika sex fslendingar. Þar hafa afrek Arnórs Guðjohn- sen og Lárusar Guðmundssonar verið mjög til umfjöllunar í blöð- um. Pétur Pétursson, sem nú leik- ur betur en nokkru sinni fyrr, var um tíma einn markahæsti leik- maðurinn í Evrópu og vakti mikla athygli í Hollandi sem og í Belgíu. Lið hans er nú í öðru sæti í deild- arkeppninni þar. Lárus Guð- mundsson varð bikarmeistari með liði sínu í fyrra, og nú er lið hans komið í undanúrslit í Evrópu- keppni bikarhafa. Svona mætti halda áfram. Nú nýverið vann Þórdís Gísla- dóttir það glæsilega afrek að sigra í hástökki á bandaríska há- skólameistaramótinu í frjálsum íþróttum. Þetta mót er eitt það stærsta sem haldið er þar í landi. Er þetta í annað sinn sem Þórdís vinnur þetta afrek. Ágúst Þor- steinsson sigraði í miklu maraþonhlaupi sem fram fór í Texas og fékk Islendingurinn mikla umfjöllun í blöðum þar. Óskar Jakobsson hefur verið í fremstu röð íþróttamanna f Há- skólanum í Austin í Texas þar sem hann stundar nám og hefur hann unnið góð afrek og fengið lofsam- lega dóma fyrir framkomu sína og afrek. Þar stunda líka nám Oddur Sigurðsson og Einar Vilhjálms- son, sem báðir hafa unnið góð af- rek og var Einar að setja stór- Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir nýtt íslenskt leik- rit um Gudrúnu Ósvífursdóttur á fimmtudagskvöldið frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur nýtt ís- lenskt leikrit, GUÐRÚNU, eftir Þórunni Sigurðardóttur, en hún er jafnframt leikstjóri. Leikritið bygg- ir á Laxdælasögu og fjallar einkum um Guðrúnu Osvffursdóttur, ævi hennar og ástir. Það gerist á ís- landi og í Noregi um og skömmu eftir kristnitöku. Hin fræga ástar- og harmsaga Guðrúnar og þeirra fóstbræðra Kjartans Ólafssonar og Bolla Þorleikssonar er að sjálf- sögðu meginhluti verksins en miili 20 og 30 persónur koma við sögu. Með hlutverk Guðrúnar fer Ragnheiður Arnardóttir, sem leik- ur nú í fyrsta skipti hjá Leikfé- laginu en hefur áður leikið ýmis hlutverk í Þjóðleikhúsinu, hjá Alþýðuleikhúsinu, Leikfélagi Akureyrar og Gránufjelaginu. Hún lauk prófi frá Leiklistar- skóla fslands 1978. í hlutverki Kjartans er Jóhann Sigurðarson, hann lauk prófi frá Leiklistar- skólanum 1981 og hefur leikið hjá Leikfélaginu m.a. titilhlut- verkið í JÓA og Arnald í Sölku Völku. Bolli Þorleiksson er leik- inn af Harald G. Haralds, sem hefur verið í hópi yngri leikara LR um árabil og farið með ýmis veigamikil hlutverk, meðal þeirra titilhlutverkið í Hemma og Natan Ketilsson í Skáld-Rósu. Sex aðrir leikarar leika önnur hlutverk. Þeir eru Jón Hjartarson (m.a. Ólafur konungur Tryggva- son), Soffía Jakobsdóttir (m.a. Ingibjörg konungssystir), Val- gerður Dan (m.a. Hrefna, kona Kjartans), Jón Júlíusson (m.a. ólafur, faðir Kjartans), Aðal- steinn Bergdal (m.a. Þorvaldur, fyrsti eiginmaður Guðrúnar) og Hanna María Karlsdóttir (m.a. Bróka-Auður). GUÐRÚN er fyrsta leikrit Þórunnar Sigurðardóttur, sem fram að þessu hefur einkum ver- ið þekkt sem leikari og leikstjóri. Hún hefur þó iðulega tekið þátt í samningu leiksýninga, hjá Litla leikfélaginu, Leikfélagi Reykja- víkur og Þjóðleikhúsinu. Þórunn lauk prófi frá Leiklistarskóla Leikfélags Reykjavíkur 1967 og tók fljótlega að leika hjá félag- inu. Hefur hún leikið þar ýmis hlutverk svo og í Þjóðleikhúsinu. Hún hefur á síðari árum snúið sér í æ ríkari mæli að leikstjórn og er Guðrún 10. leikstjórnar- verkefni hennar. Hún hefur áður sviðsett hjá LR Söguna um litla krítarhringinn, einnig sýningar hjá Leikfélagi Akureyrar, Al- þýðuleikhúsinu, Leiklistarskóla Islands og í sjónvarpi. Um leikritið sagði Þórunn: „Ég fylgi atburðarásinni í Lax- dælu að mestu leyti, en hef þó ekki komist hjá því að skera niður og geta í eyðurnar. Sam- tölin í sögunni eru víða það knöpp að nauðsynlegt var að auka við þau og jafnvel bæta við samtölum sem eiga sér enga stoð í bókinni. En ég hef reynt að breyta orðalagi sem minnst." Messíana Tómasdóttir gerir leikmynd og búninga. Hún hefur áður unnið nokkur verkefni fyrir LR, en hefur gert leikmynd og búninga við fjölmörg verkefni í Þjóðleikhúsinu, hjá Alþýðu- leikhúsinu og víðar. Má þar nefna Don Kíkóta, Við borgum ekki, söngleikinn Gust, Olíver Twist og Súkkulaði handa Silju. Messíana sagði að búningarnir væru frekar einfaldir og alls ekki sniðnir með það í huga að reyna að endurskapa klæðnað þessa tíma eins og hann raun- verulega var. „Enda er það varla hægt, þar sem Laxdæla lýsir at- burðum sem gerðust 200—300 árum áður en sagan er skráð. Allar klæðalýsingar í bókinni — og þær eru margar — eru því að miklu leyti getgátur," sagði Messíana. Höfundur tónlistar í Guðrúnu er Jón Ásgeirsson. Hann er löngu landskunnur fyrir tónsmíðar sínar og má þar m.a. nefna óper- una Þrymskviðu og ballettinn Blindisleik, hvort tveggja flutt í Þjóðleikhúsinu. „Þetta er músík fyrir strengjakvartett," sagði Jón, „að mörgu leyti ekki ólík Þarna eru Ragnheiður Arnardóttir og Harald G. Haralds í hlutverkum Guðrúnar og Bolla. Sviðsmynd á æfingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.