Morgunblaðið - 23.03.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983
23
Ný tækni hjá lögreglunni í Daytona Beach í Flórída:
Afbrotamennirnir vistaðir
í lögreglustöð á hjólum
Davtona Beach, Klórída, 22. mars. AP.
FÆRANLEGT fangelsi með öllum nauðsynlegum búnaði hefur verið sett upp
steinsnar frá ströndinni í Daytona Beach og er það nú til reiðu fyrir þá, sem
gerast brotlegir við lögin á staðnum.
Þetta ferðafangelsi hefur á
fimmtán árum þróast úr því að
vera nánast ekkert annað en lítill
skúr ofan á tveimur ruslatunnum í
það að vera nú fullkomin lögreglu-
stöð í tveimur tengivögnum með
fimm fangaklefum og tveimur sal-
ernum, sem hægt er að færa til
innan vagnanna.
Lögreglumenn hafa allt til alls í
þessu litla fangelsi. Borð og stólar
eru fyrir hendi, ljósmyndabúnað-
ur svo og tæki til þess að rannsaka
fingraför manna. Séu menn grun-
aðir um brot á eiturlyfjalöggjöf-
inni er fullkominn tölvubúnaður í
tengslum við móðurtölvu ríkisins
til staðar og veitir upplýsingar um
afbrotaferil viðkomandi á því sviði
samstundis.
Átök í Afganistan
kostuðu 36 lífíð
í síðustu viku
Islamabad, Pakistan, 22. mars. AP.
AÐ MINNSTA kosti 36 hermenn og meðlimir frelsissveitanna létu lífið í
átökum á ýmsum stöðum í Afganistan í síðustu viku, að því er vestrænir
diplómatar í Islamabad hermdu í dag.
Þann 15. þessa mánaðar réðust
frelsissveitirnar til atlögu gegn
stjórnarhernum í borginni Kanda-
har og myrtu þar 12 menn úr röð-
um hans og tóku aðra 12 til fanga.
Nokkrir meðlimir frelsissveitanna
hlutu sár í þessari árás, en ekki
lágu fyrir nákvæmar tölur um
fjölda særðra. Átökin í Kandahar
eru þau alvarlegustu, sem vitað er
um á þeim slóðum í nokkurn tíma.
Frelsissveitirnar létu einnig til
skarar skríða gegn flutningalest-
um á vegum stjórnarhersins þann
16. mars við Tagao í Logar-héraði.
Þar létu ellefu stjórnarhermenn
lífið. Tveimur dögum áður höfðu
frelsissveitirnar ráðist að her-
flutningalest í sama héraði og
eyðilögðu þar tvo skriðdreka og
tvo flutningabíla.
Þá létust alls 12 manns úr röð-
um beggja þegar til átaka kom
þann 19. mars skammt frá Sal-
ang-jarðgöngunum, þar sem mik-
ill fjöldi manna kafnaði fyrr í vet-
ur þegar umferð var stöðvuð um
göngin. Voru átökin svo hörð, að
loka varð göngunum í nokkra daga
á eftur vegna viðgerða.
FBI vildi losna við
Lennon úr landinu
Los Angcles, 22. mars. AP.
í LJÓS hefur komið, að Edgar J.
Hoover, fyrrum yfirmaður banda-
rísku alrikislögreglunnar, hugðist
árið 1972 fá John Lennon fram-
seldan til Englands vegna brota á
eiturlyfjalöggjöf landsins. Ástæðan
var sögð sú, að hann taldi að Lenn-
on gæti haft áhrif á landsþing
repúblikana það ár.
Upplýsingar þessar koma
fram í bók sem Jon Wiener,
sögukennari við háskólann í
Kaliforníu, er að setja saman um
Lennon. Krafðist hann að fá af-
rit af skýrslu FBI um Lennon í
skjóli laga, sem heimila aðgang
almennings að opinberum gögn-
um.
FBI vonaðist til að geta hand-
tekið Lennon eftir að hafa fylgst
grannt með honum um skeið og
þá helst vegna misnotkunar
hans á eiturlyfjum. Hann hafði
sig mjög í frammi í ýmsum mót-
mælaaðgerðum, sem stjórnin
leit hornauga, og barðist einnig
á þessum tíma gegn því að verða
framseldur til Englands vegna
marijuhana-ákæru, sem hann
átti yfir höfði sér þar í landi.
Ný vopn í baráttunni viö skæruliöa á N-írlandi:
Fullkomnar tölv-
ur settar í alla
lögreglubfla
Bclfast, 22. tnars. AP.
LÖGREGLAN f Ulster-héraði á
Norður-írlandi hefur í hyggju að út-
búa allan bílaflota sinn með tölvu-
búnaði til þess að auðvelda barátt-
una gegn skæruliðum, að sögn yfir-
manns lögreglunnar, Jack Hermon.
Til þessa hefur 45 milljónum
punda verið varið til þess að und-
irbúa þessar framkvæmdir og 65
milljónir punda til þessa sérstaka
verkefnis eru á fjárlögum næstu
þriggja ára. Tilgangurinn með öllu
saman er að tengja alla lögreglu-
bílana saman með fullkomnum
búnaði til þess að auðveldara verði
að undirbúa skipulagðar skyndi-
aðgerðir gegn skæruliðum.
Að sögn Hermon er lögreglan á
Norður-trlandi nú einhver sú best
útbúna í heimi hvað þetta varðar.
Sagði hann það þakkarvert, á
þessum síðustu og verstu tímum
samdráttar í efnahagslífi um
heim allan, að tekist hefði að afla
nægilegs fjármagns til þessa sér-
staka verkefnis.
Tölvur þessar eru þannig útbún-
ar, að lögreglumenn á eftirlitsferð
í bílum sinum geta fyrirhafnarlít-
ið fengið greinargóða lýsingu á
öllum þeim mönnum, sem lögregl-
an hefur á skrá í móðurtölvunni.
Það er ekki svo lítill fjöldi því
alls mun tæpur helmingur hinna
1,5 milljón íbúa Norður-írlands
vera á skrá lögreglunnar.
Þessu litla fangelsi er sem fyrr
segir ætlað að hýsa þá, sem á ein-
hvern hátt komast í kast við lögin.
Sér í lagi er verið að hugsa til
þeirra, sem gerast full djarfir í
klæðaleysi og gæta ekki að siða-
vöndum áhorfendum og þeirra,
sem fá sér full hraustlega neðan í
því og gerast kærulausir um
stund. Allir þeir, sem á hinn
bóginn gera sig seka um alvarlegri
glæpi eiga yfir höfði sér gistingu í
fylkisfangelsinu.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL:
Jan .............. 5/4
Jan .............. 18/4
Jan .............. 3/5
ROTTERDAM:
Jan .............. 6/4
Jan .............. 19/4
Jan .............. 4/5
ANTWERPEN:
Jan .............. 23/3
Jan .............. 7/4
Jan .............. 20/4
Jan .............. 5/5
HAMBORG:
Jan .............. 24/3
Jan .............. 8/4
Jan .............. 22/4
Jan .............. 6/5
HELSINKI:
Helgafell ........ 15/4
Helgafell ........ 13/5
LARVIK:
Hvassafell ....... 28/3
Hvassafell ....... 11/4
Hvassafell ....... 25/4
Hvassafell ....... 9/5
GAUTABORG:
Hvassafell ....... 29/3
Hvassafell ....... 12/4
Hvassafell ....... 26/4
Hvassafell ....... 10/5
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell ....... 30/3
Hvassafell ....... 13/4
Hvassafell ....... 27/4
Hvassafell ....... 11/5
SVENDBORG:
Hvassafell ....... 31/3
Hvassafell ....... 14/4
Hvassafell ....... 27/4
Hvassafell ....... 28/4
Hvassafell ....... 12/5
Árhus:
Hvassafell ....... 31/3
Hvassafell ....... 14/4
Hvassafell ....... 27/4
Hvassafell ....... 28/4
Hvassafell ....... 12/5
GLOUCESTER MASS.:
Skaftafell ....... 23/4
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell ....... 24/3
Skaftafell ....... 25/4
^SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
Bambus-
borð
Stærð 46x46.
Kr. 1.057.00.
Stadgreitt
1.005.00.
Fleiri gerðir
fyrirliggjandi.
Sendum um land allt.
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1A. sími 86112.
BAMBUS-
HÚSGÖGN
2ja sæta sófi kr. 3.002 staögreiddur kr. 2.852.
Stóll kr. 1.915 staðgreiddur kr. 1.820.
Borð kr. 1.366 staðgreitt kr. 1.298.
Fleiri gerðir af stólum fyrirliggjandl.
Gólf-
hillur
2 geröir
Stærð: Breidd 58 cm,
hæð 115 cm, afborgun kr.
1.489, staðgreiddar kr.
1.415.00
Stærð: Breidd 5 cm, hæö
147 cm.
Afborgun kr. 2.122.
Staögreiðsla kr. 2.016.
Gólf-
hillur
Bogar 2 gerðir
Stærð: Breidd
65 cm, hæð 130
cm, afborgun
kr. 2.088, stað-
greiösla kr.
1.984.
Stærö: Breidd
80 cm, hæð 175
cm.
Afborgun kr.
3.524.
Staögreiösla kr.
3.348.