Morgunblaðið - 23.03.1983, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983
Aldís Arnardóttir óskar sigurvegaranum í kvennaflokki, Steinunni Agnars-
dóttur (t.h.), til hamingju með árangurinn.
Vaxtarræktarkeppni á Akureyri:
Jöfn keppni
Vaxtarræktarmenn héldu keppni í
vaxtarrækt í Sjallanum á Akureyri sl.
sunnudag. Keppt var í fjórum flokk-
um, unglingaflokki, tveimur flokkum
karla og kvennaflokki. íslandsmeist-
ararnir tveir, Guðmundur Sigurðsson
og Hrafnhildur Valbjörns, kepptu
ekki að þessu sinni.
Keppnin í Sjallanum var ekki
eins lífleg og íslandsmeistara-
keppnin, sem haldin var viku áður í
Reykjavík. Stemmningu vantaði
meðal áhorfenda sem er mikilvæg
fyrir keppendur og getur skipt
sköpum um velgengni þeirra. En
spennan var engu að síður mikil
meðal keppenda. í kvennaflokki
sigraði hin glæsilega Steinunn
Agnarsdóttir, en önnur varð Aldís
Arnardóttir. Rósa Ingólfsdóttir
varð þriðja og hreppti jafnframt
verðlaun fyrir bestu „posurnar",
þ.e. frjálsar æfingar við músík.
Mikil keppni var í kvennaflokknum
og má sem dæmi taka að Elín Við-
arsdóttir komst ekki í úrslit þrátt
fyrir góða frammistöðu. í ungl-
ingaflokki sigraði Sigurður Páls-
son, en hann hafði viku áður sigrað
þyngri unglingaflokkinn i Islands-
meistarakeppninni. Júlíus Á. Guö-
mundsson náði öðru sæti, en Einar
Guðmann varð þriðji. í karlaflokki
skiptust keppendur í tvo flokka,
undir og yfir áttatíu kg að þyngd. I
léttari flokknum sigraði Sigurður
Gestsson, Gísli Rafnsson varð ann-
í Sjallanum
Sigurður Gestsson sýnir hér vöðv-
ana, sem m.a. tryggðu honum sigur í
léttari karlaflokknum.
Ljósm. Mbl. Gunnlaugur R.
ar, en hann hlaut aukaverðlaun
fyrir bestu „posurnar" hjá körlum.
Þriðji varð Sævar Símonarson.
Þyngri karlaflokkinn vann Magnús
Óskarsson, Sigmar Knútsson nældi
í annað sætið og þriðji varð Sigurð-
ur Guðjohnsen. Islandsmeistararn-
ir, þau Guðmundur Sigurðsson og
Hrafnhildur Valbjörns, kepptu
ekki í mótinu. Að sögn forráðam-
anna þess var það til þess að gefa
öðrum vaxtarræktarmönnum tæk-
ifæri á að sigra. Er það örugglega
fátítt í íþróttum að sigurvegarar
íslandsmeistarakeppni sleppi
keppni til þess að aðrir eigi mögu-
leika á sigri. G.R.
„Upprisan
— blekking?“
Fundur á vegum Kristi-
legs stúdentafélags
KRISTILEGT stúdentafélag gengst
fyrir fundi í Félagsstofnun stúdenta
flmmtudaginn 24. mars klukkan
17.15. Yflrskrift fundarins er „Uppris-
an — blekking?"
Á fundinum mun Jónas Gfslason
dósent flytja erindi um upprisuna
og trú íslendinga. í fréttatilkynn-
ingu, sem Morgunblaðinu hefur
borizt segir m.a.: „Við búum í landi,
sem byggir að meira eða minna
leyti á kristinni trú. Grundvöllur
þeirrar trúar hlýtur að varða hvern
hugsandi íslending. Nú þegar pásk-
ar eru framundan væntum við þess
að þú gefir þér tíma til að líta við á
áðurnefndan fund. Allir eru vel-
komnir meðan húsrúm leyfir. — Af
öðru starfi KSF er það að nefna að
föstudaginn 25. marz verður fundur
að Freyjugötu 27, 3. hæð klukkan
20.30. Þar mun Páll Skúlason pró-
fessor fjalla um efnið trú og vísindi.
Að loknu erindi hans verða umræð-
ur, sem öllum er velkomið að taka
þátt í.“
Á fundinum 24. marz mun söng-
flokkur, er nefnist Saltkorn, syngja
tvö til þrjú lög.
Fyrirlestur um
hækkun olíuverðs
Fimmtudaginn 24. mars flytja
tveir hagfræðingar frá Stokk-
hólmsháskóla fyrirlestur í boði
viðskiptadeildar Háskóla Islands.
Fyrirlesararnir eru íslendingurinn
Birgir Björn Sigurjónsson og Sví-
inn Dag Lindskog og nefnist erindi
þeirra, sem flutt verður á ensku:
Hækkun olíuverðs og efnahags-
þróun: Samanburður á Norður-
löndunum fimm. Fyrirlesturinn
verður haldinn í stofu 101 í Lög-
bergi og hefst kl. 17.15. Öllum er
heimill aðgangur.
(Frétt frá Háskóla fslands)
Gestkvæmt var við vígslu nýja flskiðjuvers Þormóðs Ramma.
Ljósm. Steingrímur Kristinsson.
Nýtt fiskiðjuver
Þormóðs ramma
Siglunrði, 21. marz.
Þormóður Rammi hf. á Siglu-
firði tók nýtt frystihús í notkun
um helgina og voru um 300
manns viðstaddir hátíðlega at-
höfn. Frystihúsið hefur verið
áratug í byggingu.
Vígsluathöfninni stjórnaði
Hinrik Aðalsteinsson formaður
stjórnar Þormóðs Ramma, og f
ræðu sem hann hélt við þetta
tækifæri lýsti hann smíði hússins.
Ýms fyrirtæki hafa komið við
sögu þessarar byggingar, en pípu-
lagningamaður var Helgi Magn-
ússon Siglufirði, alla rafmagns-
vinnu vann Rafbær, uppsetningu
frystivélar vann vélsmiðjan óðinn
Keflavík, Bútur sá um trésmíða-
vinnu, og Jón og Erling önnuðust
uppsetningu fiskvinnsluvélanna.
Meðal þeirra sem héldu ræður
við vígsluathöfnina voru Ragnar
Arnalds fjármálaráðherra, en
hann setti vinnsluna formlega í
gang, Páimi Jónsson landbúnað-
arráðherra, Páll Pétursson alþing-
ismaður, Stefán Guðmundsson,
Kolbeinn Friðbjarnarson og
Sverrir Sveinsson rafveitustjóri.
Við athöfnina kom fram að
Ragnar Árnalds fjármálaráðherra
setur vinnsluna í hinu nýja flskiðju-
veri Þormóðs Ramma formlega í
gang.
Ljósm. Sceimjrímur Kristinsson.
þetta nýja fiskiðjuver kostar um
þriðjung af verði skuttogara.
Fiskiðjuverið er sérstaklega vand-
að að öllum tæknibúnaði og vinnu-
skipulagi og vinnuskilyrði allt
önnur en á gamla staðnum.
Þegar vinnsla verður komin í
fullan gang verður hægt að vinna
milli 40 og 50 smálestir af fiski
daglega í húsinu. Matti.
Kiwanismenn aðstoöa við byggingu sjónstöðvar:
Efna til happdrættis
og fjölskylduhátíðar
Kiwanisklúbburinn Esja í
Reykjavík er um þessar mundir að
ráðast í fjársöfnun til stuðnings
byggingar sjónstöðvar í viðbótar-
byggingu Blindrafélagsins í
Hamrahlíð 17. Þetta er viðamesta
verkefnið á sviði líknarmála, sem
Kiwanisklúbburinn Esja hefur ráð-
ist í. Sjónstöðin verður fyrsta
stofnun sinnar tegundar hér á
landi, en að sögn talsmanna
Blindrafélagsins er þörfin brýn
fyrir þá þjónustu, sem sjónstöðinni
er ætlað að veita.
Liður í þessu verkefni klúbbs-
ins er happdrætti, sem verið er
að hleypa af stokkunum þessa
dagana. Gefnir hafa verið út 12
þúsund miðar og er vinningur
Nissan Cherry að verðmæti 220
þúsund.
Dregið verður í happdrættinu
á mikilli fjölskylduhátíð, sem
Esja gengst fyrir í Laugardals-
höllinni á annan í páskum. Á há-
tíðinni verður fjöldi lands-
kunnra skemmtikrafta, flutt
verður tónlist af ýmsu tagi, farið
með gamanmál og efnt til bing-
ós.
Hápunktur fjölskylduhátíðar-
innar verður þegar dreginn verð-
ur út happdrættisvinningurinn,
Nissan-bíllinn. Ef hinn lukkulegi
vinningshafi verður viðstaddur
mun hann aka út úr Laugar-
dalshöllinni á nýjum bíl. Drætti
verur útvarpað þannig að ef ein-
hver úti í bæ er með vinnings-
miðann hefur sá hinn sami
möguleika á því að mæta í höll-
ina og taka við vinningnum.
Um kvöldið verður siðan ungl-
ingadansleikur þar sem Grýl-
urnar sjá um stemmninguna.
Allur ágóði af fjölskylduhátíð-
inni og unglingadansleiknum
rennur til tækjakaupa í sjónstöð
Blindrafélagsins.
Sjónstöð er stofnun sem sjón-
skertir geta leitað til. Þar fá þeir
skoðun hjá augnlækni, gler-
augnasmiður útvegar viðeigandi
Frá blaðamannafundi i
Kiwanisklúbbsins Esju.
húsakynnum sjónstöðvarinnar. Á myndinni eru
Datsun Nissan, happdrættisbfllinn, sem dregið verður um á fjölskyldu-
hátíðinni í Laugardalshöll.
sjónhjálpartæki og augnþjálfi
þjálfar fólk til að nýta sem bezt
sjónleifar sínar við iestur og
jafnvel vinnu. Einnig annast
stofnunin úthlutun sérhæfðra
hjálpartækja, svo sem sjón-
glerja, lessjónvarpstækja o.fl,-
Stofnuninni er ætlað að annast
ferðir starfsmanna sinna og
annarra sérfræðinga til aðstoðar
sjónskertum úti á landsbyggð-
inni.
Af hálfu forvígismanna
Blindrafélagsins er gert ráð
fyrir að viðbótarbyggingin í
Hamrahlíð verði tilbúin næsta
vetur og að hægt verði að taka
stöðina í notkun í byrjun næsta
árs. Miðað við núverandi verðlag
er áætlaður kostnaður vegna
tækjakaupa 4,6 milljónir króna,
og sögðu forráðamenn Blindra-
félagsins að það væri félaginu
mikið fagnaðarefni að Kiwan-
ishreyfingin í landinu skyldi á
þessu starfsári vinna að málefn-
um blindra. Án aðstoðar góðra
Morgunblaðíð/Kristján. manna og hinna ýmsu félaga-
forvígismcnn Blindrafélagsins og samtaka yrði seint hægt að gera
sjónstöð að veruleika.