Morgunblaðið - 23.03.1983, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. MARZ 1983
39
Hreinar flugvélar
— minni eyðsla
Það er ekki ný speki meðal
þeirra sem vel þekkja til flug-
mála að hreinar flugvélar eyði
minna eldsneyti en þær sem
skítugri eru. SAS-flugfélagið
hefur komist að þeirri niður-
stöðu eftir að hafa látið hreinsa
eina af DC-9 vélum félagsins
rækilega að innan, að þyngd vél-
arinnar hafi minnkað nóg til
þess að eldsneytiskostnaður á
einu ári lækkaði um 18 þúsund
dollara eða sem svarar tæpum
375 þúsund íslenskum krónum.
Hreingerningin fólst i aðalatrið-
um í því að teppi í farþegarými
voru ryksuguð eftir nákvæmri
aðferð og reynt var að hafa sem
minnst af „drasli" í farangurs-
lestum vélarinnar. SAS áætlar
einnig að smá rispa eða skeina á
frambrún flugvélarvængs kosti
félagið 8 þúsund dollara í auka-
eldsneytiseyðslu á ári hverju,
það samsvarar 166 þúsund ís-
lenskum krónum. En það fyndn-
asta er, að samkvæmt útreikn-
ingum þeirra SAS-manna geta
áhafnarmeðlimir sparað félag-
inu 3500 dollara með því einu að
hver og einn fari í smá megrun
og grenni sig um eitt pund (0,453
kg.). Þannig gæti sú megrun
sparað félaginu 73 þúsund ís-
lenskar krónur á ári.
Klúbbfélagar vinna í grunni nugskýlisms. HoltahverfiA og (llfarsfell í baksýn.
ekki. Þetta skilyrði hefur þýtt að
það hefur ekki verið stöðugur
straumur flugvéla frá Reykjavík
um völlinn. í þessu sambandi má
það einnig koma fram, að æfinga-
svæði fyrir kennsluvélar var í ára-
tugi yfir Mosfellssveit og Korp-
úlfsstöðum en fyrir þó nokkru var
æfingasvæðið fært til og er nú fyrir
norðan Leirvogsá, inn að Esju og út
á Víðines og Kjalarnes. Þessi breyt-
ing var til mikilla bóta fyrir íbúana
hér.“
— Hvernig hefur starfið gengið í
vetur og hvað er framundan hjá
klúbbnum?
„Flugvöllurinn hefur verið mikið
notaður í vetur af klúbbfélögunum,
en því miður er að fara í hönd erfið-
asti árstíminn, því brautin þiðnar
og verður ónothæf um tíma af þeim
sökum. í Flugklúbb Mosfellssveitar
Ljósm.: Jón Karl Snorrason
eru starfandi félagar tuttugu og
fimm. Við ætlum að einbeita okkur
að því á næstunni að leggja raf-
magn og síma að vellinum, svo og
að bæta fjarskiptaaðstöðuna. Við
erum bjartsýnir, því við höfum
unnið allt í sjálfboðavinnu, t.d. þeg-
ar við reistum flugskýlið, þá var um
98% af allri vinnu við það verk unn-
ið af klúbbfélögunum sjálfum."
Flug komið út
Flug, tímarit um flugmál er
nýkomið út. Er það fyrsta
tölublað þessa árgangs. Burð-
arefni Flugs er að þessu sinni
helgað pílagrímaflutningum
Flugleiða undir yfirskriftinni
„Hadj — 1402. Pílagrímaflutn-
ingar Flugleiða hf.“ Um þetta
efni skrifar ritstjóri blaðsins,
Pétur P. Johnson, og greininni
fylgja mjög margar skemmti-
legar myndir.
Af öðru efni Flugs má nefna
grein eftir Ragnar J. Ragnarsson
sem fjallar um mismun á nef-
hjóls- og stélhjólsflugvélum.
Þessar tvær flugvélagerðir eru í
grundvallaratriðum ólíkar og
dregur Ragnar fram kosti og
galla beggja gerðanna í grein-
inni. „Fallinn frumherji" heitir
grein sem Örn Ó. Johnson skrifar
í minningu Agnars Kofoed-
Hansen, fyrrverandi flugmála-
stjóra. í Flugi er athyglisverður
þáttur sem kallaður er „Það
kenndi mér“. Þar segir einka-
flugmaður frá reynslu sinni af
mistökum í flugi og hvernig hann
siapp með skrekkinn. Slíkir
þættir eru mjög þarflegir og geta
orðið öðrum flugmönnum víti til
varnaðar. Þá eru greinar um
keppni í smíði og flugi fjar-
stýrðra eftirlíkinga flugvéla; um
þrjár gamlar herflugvélar sem
höfðu viðdvöl hér sl. sumar; um
íslandsmeistaramót í svifdreka-
flugi 1982; um starfsemi
Flugklúbbs Selfoss; og loks er í
blaðinu þátturinn „í vindpokan-
um“ sem er byggður upp á ör-
stuttum flugufréttum sönnum og
hálfsönnum.
Tímaritið Flug er án efa í
flokki glæsilegustu tímarita
hérlendis. Útlit blaðsins ber vott
um smekkvísi aðstandendanna,
hluti þess er litprentaður, pappír
vandaður og fjölmargar myndir
prýða blaðið. Aðstandendur segj-
ast ætla að gefa út fjögur tölu-
blöð á þessu ári og lofa jafnframt
umbótum á efnisvali og fjöl-
breytni. Flugsíðan tekur undir
þá skoðun sem kemur fram í leið-
ara blaðsins, en þar segir m.a.;
„Þeir, sem að flugmálum starfa,
eru flestir þeirrar skoðunar að
fluginu beri að eiga gott og vand-
að málgagn og er það von okkar
að flugáhugamenn sameinist um
það að halda þessu eina málgagni
okkar á lofti.“
Ljósmynd Henning Finnbogason.
NÝFAXI — Þessi mynd var tekin í Syðri-Straumsfirði á Grænlandi árið
1%2. Flugfélag íslands var með talsverða starfsemi þar ( fjögur ár.
Flugvélin á myndinni er leiguflugvél sem FÍ var með á leigu hjá banda-
rískum aðilum og bar einkennisstafina N49529, en var í daglegu tali
einfaldlega kölluð Nýfaxi. Flugvélin var af gerðinni Douglas DC-4 (C-54)
Skymaster. Á myndinni sést að vélin er ekki í hinum hefðbundnu litum FI,
en hún var máluð f þeim og skráð hér á landi árið 1963, hlaut nafnið
Straumfaxi og einkennisstafina TF-FID. Árið 1967 var fiugvélin síðan seld
til Khodesíu. FÍ notaði um tíma tvær DC-4 vélar á Grænlandi, Nýfaxa
(Straumfaxa) og Sólfaxa. Nýfaxi var staðsettur í Syðri-Straumsfirði, en þar
var aðalbirgðastöð bandaríska hersins og var vélin aðallega í birgðafiutn-
ingum til Kulusuk og til Baffinslands í Kanada. Sólfaxi var staösettur í
Narssarsuaq og var aðallega notaður í ískönnunarfiug vegna siglinga Dana
fyrir suðurodda Grænlands. Að lokum má geta þess til gamans, að myndin
var tekin í 35 stiga frosti.
Einar L. Gunnarsson, formaður ís-
lenska fiugsögufélagsins.
„Sýningin tókst mjög vel og var
mikil aðsókn að henni. Hún var
haldin í samvinnu við Árbæjar-
safnið og sýningargripirnir sýndir
í húsakynnum þess. Þessi fyrir-
hugaða sýning er mun stærri og
þess vegna æskilegt að reyna að
halda hana einhvers staðar í landi
Reykjavíkurflugvallar. Aðsóknin
að sýningunni í Árbæjarsafni var
góð og sýnir ásamt því að félaginu
vex stöðugt ásmegin, að áhugi
fyrir varðveislu íslenskra flug-
minja er mikill."
— Hvað með fundi, útgáfumál
og þess háttar, sem virðist vera
fastur liður í starfsemi flestra fé-
laga hér á landi?
„Á hverju ári kemur út vandað
ársrit sem heitir FLUGSAGAN.
Nú þegar eru komin út þrjú hefti
og það fjórða kemur væntanlega
út fyrir aðalfundinn. Þá er það
stefnan að gefa út fréttabréf sem
er dreift til félagsmanna, a.m.k.
fjórum sinnum á ári. Hvað varðar
fundahöld, þá kemur stjórnin allt-
af saman einu sinni í mánuði,
stundum oftar, og svo erum við
með félagsfundi fimm til sex sinn-
um á ári. Þar koma fram helstu
brautryðjendur flugmála og rifja
upp minningar sínar. Sem dæmi
get ég nefnt að á síðasta ári héld-
um við fundi þar sem Þorsteinn
Jónsson flugstjóri sagði frá göml-
um minningum, Ingimar Svein-
björnsson sagði frá Grænlands-
flugi Flugfélags fslands og sýndi
jafnframt myndir, og á einn fund-
inn mætti Sigurður Ingólfsson,
fyrsti íslendingurinn sem fékk
fíugvélstjóraréttindi."
— Hvernig gengur að fjár-
magna starfsemina?
„Eini fasti tekjustofninn sem
við höfum eru félagsgjöldin og svo
reynum við að vera með í ýmsum
verkefnum sem gefa af sér ein-
hverjar tekjur, t.d. höfum við tek-
ið þátt í flugdeginum, þegar hann
hefur verið haldinn. Áuðvitað eru
myndaalbúminu". Verður leitast
við að hafa í þættinum skemmti-
legar ljósmyndir, sem eru í eigu
einstaklinga og birtast þess vegna
sjaldan eða aldrei í fjölmiðlum. Ef
þú, lesandi góður, hefur í fórum
þínum einhverjar áhugaverðar
myndir sem tengjast flugmálum,
væri gaman að þú hefðir samband
við umsjónarmann Flugsíðunnar,
því það vill því miður alltof oft
verða þannig að góðar og
skemmtilegar ljósmyndir rykfalla
í myndaalbúmum sem sjaldan eru
opnuð. Þvf ekki leyfa fleirum að
sjá þær?
þessi verkefni sem við höfum ráð-
ist í mjög fjárfrek og við hefðum
aldrei getað ráðið við þau nema
vegna þess að við höfum góðan
kjarna félagsmanna sem vinnur
mikið starf í sjálfboðavinnu. Þá
höfum við mætt miklum skilningi
hjá ýmsum frammámönnum í
flugmálum og getum yfirleitt leit-
að til þeirra ef við þurfum aðstoð.
Sjálfboðavinnan er ómetanleg til
fjár.“
— Eigið þið einhver drauma-
verkefni sem hægt yrði að ráðast í
á næstunni?
„Það er verulegur áhugi innan
félagsins á því að smíða frá grunni
AVRO 504K-flugvél til að eiga í
safninu. Fyrsta flugvélin hér á
landi var AVRO 504 og var hún
keypt frá breska flughernum fyrir
milligöngu dansks flugfélags.
Þetta var árin 1919 og 1920. Þá
hefur sú hugmynd komið fram, að
félagið myndi reyna að eignast
líkan af hverri flugvélagerð sem
hefur flogið á íslandi í gegnum
tíðina."
Þau geta sparað eldsneyti með þvf að fara f smi megrun.
Zlr myrtdhcLlfiÚMí
Flugsíðan hyggst f framtíðinni
hafa fastan þátt sem heitir „Úr