Morgunblaðið - 29.03.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.03.1983, Blaðsíða 1
48 SIÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 73. tbl. 70. árg. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Lech Walesa í ræðu í Gdansk á sunnudag: „Sá tími kemur að við berum sigur úr býtum" (>dansk; 28. mars. AP. „SÁ TIMI kemur, að við berum sigur úr býtum,“ sagði Lech Walesa á fundi með 600 stuðningsmönnum Samstöðu, sem efnt var til eftir að guðsþjónustu iauk í Gdansk í gær, pálmasunnudag. Gaf Walesa í skyn, að hann myndi verða viðstaddur þegar réttarhöld yfir meðlim- um Samstöðu hæfust. Walesa hefur lítið sést opinberlega undan- farnar vikur. Guðsþjónustan í Gdansk var haldin til þess að biðja fyrir þeim meðlimum Samstöðu, sem enn eru í fangelsi. At- höfnin var sögð mjög áhrifa- mikil, þar sem hinir 3.000 kirkjugestir sögðu við hvert hinna 102 nafna, sem prestur- inn las upp, „veitið honum frelsi." Stjórnvöld 1 Póllandi hafa harðneitað því, að Jóhannesi Páli páfa II hafi verið meinað að heimsækja Gdansk á ferð sinni, sem verður farin í sumar. Vestrænir fréttamenn segja yfirvöld ekki hafa þorað að hafa Gdansk inn í ferða- áætlun af ótta við óeirðir. Stjórnvöld segja kirkju- leiðtoga aldrei hafa farið fram á, að páfi heimsækti Gdansk. Andrej Konarski, einn með- lima Samstöðu, sem verið hef- ur í felum frá því í desember 1981, gaf sig í dag fram við yfirvöld. Frekari staðfesting á þessum fregnum fékkst er hann kom fram í sjónvarpi í dag. „Það verður hver að ákveða fyrir sig,“ sagði Kon- arski er hann spurður að því hvort hann vildi hvetja aðra Samstöðumenn í felum til að gefa sig fram. Fundur de Cueilar og Andropov í Moskvu: Viðræður sagðar uppbyggjandi Simamynd AP. Lech Walesa á fundinam f Gdansk á sunnudag. Mo.skvu, 28. mars. AP. JAVIER Perez de Cuellar, aöalrit- ari Sameinuöu þjóöanna, kom til í fangelsi fyr- ir lauksúpugerð Berlín, 28. mars. AP. ÞAÐ ER hreint ekki sama hvar menn hita sér súpuspón í Berlín. Það fékk austurrískur flakkari, sem nú situr nú í steininum í Berl- ín fyrir brot á lögum um opinbert velsæmi, að reyna um helgina. Flakkaranum varð það á, að leggja skaftpott sinn yfir eldinn eilífa, sem logar á litlu torgi í Berlín, og tók til við lauksúpu- gerð. Nærstaddir vegfarendur voru ekki sáttir við hegðun flakkarans og létu lögregluna vita og þar með var súpudraum- urinn úti. Eldur þessi var tendraður af Theodor Heuss, forseta Vestur- þýska sambandslýðveldisins frá 1949-1959, og er honum ætlað að brenna þar til þýsku rfkin sam- einast á ný. Moskvu í gær og hitti Yuri Andro- pov, leiðtoga Sovétmanna, aö máli í dag. Ræddu þeir m.a. ástandið í Afganistan og öörum heimshlut- um, þar sem ókyrrð hefur veriö. Ekki var gefin út nein yfirlýsing aö umræðunum loknum, en þetta er í fyrsta sinn sem de Cuellar á viðræður viö sovéskan leiðtoga. Að sögn Tass var fundur þeirra Andropov og de Cuellar „mjög uppbyggjandi" og vin- gjarnlegur tónn í viðræðunum. Sameinuðu þjóðirnar hafa reynt að koma á málamiðlun í Afgan- istan, en orðið lítt ágengt. Sov- étmenn eru nú taldir hafa yfir 100.000 hermenn þar í landi. Sovétstjórnin heldur því statt og stöðugt fram, að herinn hafi verið kvaddur til Afganistan að beiðni stjórnarinnar í Kabúl, til þess að stemma stigu við upp- gangi skæruliða, sem sagðir eru hafa verið þjálfaðir í Kína. Rúmlega 3 milljónir Afgana hafa flúið land, aðallega til Pakistan, frá því átök brutust út í landinu. Frétt í útvarpinu í Beirút: Atta Israelum skipt fyrir 1.000 PLO-menn Beirút og Tel Aviv, 28. mars. AP. SKÝRT VAR frá því í útvarpi í Beirút í dag, að fangaskipti ísraela og PLO myndu eiga sér staö í Túnis nú á allra næstu dögum. Sagði í fréttinni, að flutningur fanga beggja aðila til Túnis væri hafinn. Samkvæmt þessari fregn áttu fsraelar að fá 8 menn í skiptum fyrir um 1000 Palestínumenn, sem þeir hafa haldið fóngnum. ngi Yfirvöld í fsrael báru fréttina strax til baka er hún var borin undir þau og slíkt hið sama gerðu talsmenn PLO, sem sögðu samn- ingaviðræður enn eiga langt í land. Talsmaður Bruno Kreiskys, kanslara Austurríkis, sagðist ekki hafa heyrt af þessum skiptum, en Kreisky hefur frá því í febrúar- byrjun reynt að hafa milligöngu í samningum um fangaskipti. Neit- aði talsmaðurinn að staðfesta fregnina eða bera hana til baka. Enn hefur ekkert komið fram, sem skýrt getur skyndileg veikindi um 300 skólabarna, aðallega stúlkna, í bænum Jenin á vestur- bakka Jórdanár. fsraelar og Pal- estínumenn saka hvorir aðra um að hafa eitrað fyrir börnin. Að -sögn ráðuneytisstjóra ísra- elska heilbrigðisráðuneytisins hafa rannsóknir 15 sérfræðinga leitt í ljós, að ekki hafi verið um beina eitrun að ræða, heldur er hallast að því að einhvers konar lofteitrun hafi verið valdur veik- indanna. Framámenn í hópi Palestínu- manna á Vesturbakkanum ásaka ísraelsk yfirvöld um að hafa ekki brugðist nógu snarlega við fregn- um um veikindi bamanna. Fyrstu börnin hafi veikst fyrir réttri viku, en ekkert hafi verið aðhafst fyrr en hundruð stúlkna veiktust á laugardag. Philip Habib, sendimaður Bandaríkjastjórnar í Miðaustur- löndum, kom í dag til Beirút eftir viðræður við ísraelska ráðamenn í Jerúsalem. Sagði hann engan árangur hafa orðið af fundi hans og ekkert miðaði enn í átt til sam- komulags í deilunni um brott- flutning erlendra hermanna frá Líbanon. Eitt fórnarlamba eitrunarinnar í Jenin fhitt á brott. Simamynd AP. Yfir Atlantshafið fyrir rúm 3 þúsund Skýrt var frá því í London Times um helgina, að bandaríska flugfé- lagið People Express, hefði í hyggju að bjóða upp á fiugferðir yfir Atlantshafið í sumar á aðeins 100 sterlingspund, eða sem svarar rúmlega 3.000 krónum íslenskum. Hefur félagið þegar fengið bráða- birgðasamþykkt bandarískra fiugmálayfirvalda fyrir þessari áætlun sinni. People Express-flugfélagið hefur þegar lækkað verð á inn- anlandsleiðum í Bandaríkjunum verulega og hyggst nú færa út kvíarnar. Hefur það nú ákveðið að bjóða upp á áðurnefndar flug- ferðir á milli Newark-flugvallar í New York og Gatwick-flugvall- ar í Englandi. Búist er við snörpum deilum á milli Breta og Bandarfkjamanna vegna þessa verðs, sem er langt undir því, sem önnur flugfélög hafa boðið. Talið er víst að Brit- ish Airways og önnur þekkt flugfélög leggist eindregið gegn samþykkt á þessu verði, en þau eru núna loks að rétta aðeins úr kútnum eftir Laker-ævintýrið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.