Morgunblaðið - 29.03.1983, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.03.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983 41 fclk í fréttum Hljómsveitin The Who. Kenny Jones, John Entwistle, Roger Daltrey og Pete Townshend. Laus undan áfengi og eiturlyf jum + f hljómsveitinni The Who, sem staðið hefur í eldlínunni í 20 ár, fer jafnan mest fyrir söngvaranum, Roger Daltrey, en það er þó gítar- leikarinn, Pete Townshend, sem á heiðurinn af flestum Ijóðunum og lögunum. Pete Townshend lætur yfir- leitt fremur lítið fyrir sér fara en dregur enga dul á, að hann hafi bæði verið áfengissjúkling- ur og eiturlyfjaneytandi. „Ég drakk alveg ótrúlega mik- ið og líkaminn gat ekki haldið það út til lengdar. Fjölskyldan var í upplausn og ég forðaðist að horfast í augu við sjálfan mig. Áður en ég vissi af var ég svo líka orðinn háður kókaíni," segir Pete. Pete stundaði hið ljúfa líf í London af miklum krafti og drakk aldrei minna en tvær koníaksflöskur yfir nóttina, stundum fjórar, þangað til hann fór að velta því fyrir sér hve langt væri í endalokin fyrir hon- um. Dag nokkurn horfði hann á mynd sína í speglinum og viður- kenndi fyrir sjálfum sér, að hann væri alkóhólisti. Þau hjón- in voru þá skilin en hann leitaði þó á náðir fyrrverandi konu sinnar og dætra sinna tveggja og þær komu honum á stofnun fyrir áfengissjúklinga þar sem hann var í tvo mánuði. Nú er Pete Townshend laus við áfengið og eiturlyfin. „Að vera saman aftur er dá- samlegt fyrir okkur bæði. Mér hefur alltaf fundist sem til hjónabands okkar hafi verið stofnað á himnum og ég get ekki hugsað til þess hvað hefði gerst ef ég hefði misst fjölskyldu mína að fullu. Ég reyni heldur ekki að hugsa um það.“ Pete Townshend hafði áður fyrr engan áhuga á kerfinu og kosningum þess en nú er hann breyttur maður. Nú ætlar hann að neyta kosningaréttarins í fyrsta sinn og fylgist því vel með því, sem fram fer í þjóðfélaginu, annars staðar en á næturklúbb- unum. Söngskglinn í Reykjavik Ljóöanámskeiö Dr. próf. Erik Werba heldur Ijóöatúlkunarnámskeiö á vegum Söngskólans í Reykjavík dagana 7,—16. apríl nk. 23 söngvarar og píanóleikarar taka þátt í námskeiö- inu en þaö er einnig opið áheyrendum. Nánari uppl. í Söngskólanum í Reykjavík kl. 3—5 daglega. Skólastjóri. Geröu þaö sjálfur HMBWSTUW formhönnun sf Metsölublad á hverjum degi! SPUNNIÐ UM STALÍN eftir MATTHÍAS JOHANNESSEÞ Rithöfundurinn er aðgangsharður í spurningum sínum: Af hverju þessa dýrkun á einum manni? Af hverju yfir- gnæfandi styttu af Stalín á Rembrandtsýningu? spyr hann. Stalín kannast ekkert við það: Þetta er ekki mér að kenna, segir hann rauður í andliti og vandræðalegur eins og barn, sem skrökvar. Ég hef ekki verið spurður, ég er aldrei spurður! En þetta er það, sem fólkið vill! En það er ekki að dýrka mig persónulega, heldur sósíalismann. Feuchtwanger þykir hann hégómlegur og þolir ekki lág- an, innantóman hlátur hans. En honum þykir athyglisvert þegar Stalín segir allt í einu: Það er aðeins til ein eilíflega sönn goðsögn — um Júdas! Feuchtwanger hugsar oft um jjessi orð, skrifar jafnvel heila skáldsögu um þau síðar, Útlegð. En aldrei söguna um Stalín. Segir þó síðar, að hann sé sú tegund rússnesks bónda og verkamanns „sem hefur breytzt í snilling og hlýtur að sigra“). Emil Ludwig spyr Stalín um örlögin. Hvernig getur annað verið, rithöfundur og spyrill, sem hefur sagt um Napoleon, að líf hans sé mikil saga — samin af örlögun- um. Hann hefur þetta barnalega viðhorf íslenzkra sjó- manna til örlaganna. En kannski var það einmitt þessi frumstæða afstaða, sem gerir hann að skemmtilegum rithöfundi. Og Stalín getur svo sannarlega tekið undir með honum, j>egar hann leggur Napoleon í munn þessi orð: Ég elska vald eins og listamaður; eins og fiðlari elskar fiðluna sína ... Einmitt það sem hann sjálfur hafði keppt að. Ná réttum tónum úr hljóðfærinu. En það getur enginn stillt það. En hvað sem því líður horfir spyrðillinn undrandi á þennan fræga spyril sinn og segir óhikað: Bolshevikar, marxistar trúa ekki á örlög . .. Þaö eru fordómar ... goðafræði. Án allra tengsla við náttúru- lögmálin ... Dulspeki. Það fer vel á með Stalín og Emil Ludwig. Stalín tekur því jafnvel ekki illa, þegar hann fer að fullyrða í spurning- um sínum, að andstæðingum stjórnarinnar sé ógnað. Læt- ur liggja að harðstjórn. Stalín hlustar. Svo brosir hann út í annað munnvikið og segir hægt, en ákveðið: Alger misskilningur! Við gætum ekki stjórnað landinu, ef við hefðum ekki fólkið með okkur. En 10—15% verðum við að refsa. Leifum deyjandi stéttar, sem vill halda í forrétt- indi sín. Við höfum verið hvattir til að útrýma mennta- stéttinni, en neitað því. Auðvitað. Keisarastjórnin hafði fólkið á móti sér, eilíf andspyrna og byltingartilraunir sýna það. Stalín hefur síður en svo á móti því að heilsa upp á erlenda gesti í Kreml. Hann talar jafnvel við Emil Lud- wig í íbúðinni sinni. Svo mikið er ekki haft við aðra rithöfunda. Þeim er vísað í skrifstofur miðstjórnarinnar eða Æðstaráðsins. En ekki Emil Ludwig! Stalín tekur jafnvel á móti blaðamönnum. Af samtölum þeirra kvikna samt engar heimssögulegar fréttaskýringar. Nema kannski um atómbombuna löngu síðar: Hún mun ekki, ein sér, ráða neinum úrslitum! Stalín er nauðsynlegt, finnst honum, að opna hús sitt fyrir erlendum áróðurs- mönnum, meðan dýrið Trotsky leikur lausum hala í FRAMHALD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.