Morgunblaðið - 29.03.1983, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.03.1983, Blaðsíða 30
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983 Faöir okkar. + ÓLAFUR GUTTORMSSON, Stýrimannastíg 3, er látinn. Dætur hins látna. t Eiginmaður minn, ODDUR A. SIGURJÓNSSON, fyrrverandi akólaatjóri, Hólagötu 24, Veatmannaeyjum, lést í sjúkrahúsi Vestmannaeyja, aöfaranótt 26. mars. Útförin fer fram frá Landakirkju, laugardaginn 2. apríl kl. 17. Þelm sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á sjúkrahús Vestmannaeyja. Fyrir mína hönd, barna okkar, tengdabarna og barnabarna, Megnea Bergvinedóttir. t Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, TORFI GUÐBJÖRNSSON, skrifstofumaöur, Barmahlíö 40, veröur jarösunginn í dag kl. 13.30 frá Dómkirkjunni. Rósa Jónatansdóttir, Helga Torfadóttir, Anton Bjarnason, Rósa Antonsdóttir, Birna Antonsdóttir. Torfi Guðbjörnsson — Minningarorð Fæddur 5. desember 1907 Dáinn 18. mars 1983 Deyr fé, deyja frændur deyr sjálfur ié sama; er orAstír deyr aldregi hveim er sér gódan getur. Þessi sígildi hluti úr Hávamál- um varð efstur í huga á dögunum þegar mér var tilkynnt að Torfi hefði lokið lífsgöngunni. Minn- ingarnar komu í hugann ein af annarri, atburðir úr barnæskunni þar sem Torfi var í einu af aðal- hlutverkunum. Ýmis skapgerðar- einkenni hans, svo sem að því er virtist takmarkalaus þolinmæði og ljúfmennska ásamt næmni á marga þætti barnssálarinnar gerði það að hann verkaði eins og segulafl á alla af yngri kynslóð- inni. Hann var óþreytandi þegar yngsta fólkið átti í hlut, hvort sem um var að ræða að gerast fylgdar- maður í þrjúbíó, jólaskemmtanir, tívolíferðir eða aðrar skoðunar- ferðir um krákustíga tilverunnar. Ferðirnar niður að höfn voru óteljandi þar sem ekki var látið hjá líða að sýna okkur skipin bæði utan og innan. Alls staðar átti hann kunningja, sem aðstoðuðu við að fræða smáfólkið um þessa hlið mannlífsins. Torfi Guðbjörnsson var fæddur 5. desember 1907 og foreldrar hans voru Jensína Jensdóttir hús- móðir og Guðbjörn Guðbrandsson bókagerðarmaður í Reykjavík. Systkini hans voru sex og er nú aðeins einn bróðir á lífi. Maðurinn með ljáinn hjó stórt skarð í þessa fjölskyldu á ungdómsárum Torfa og sjálfur komst hann ekki áfalla- laust í gegnum þau heldur. Þessi lífsreynsla virtist gera það að verkum að síðar taldi hann aldrei að veikindi væru til að hafa orð á og þrátt fyrir ýmis áföll fullyrti hann að ekkert amaði að, þótti lít- il ástæða til að fjölyrða um slíkt. Það sama varð reyndin í síðustu legunni, aldrei heyrðist æðruorð, honum leið að eigin sögn alltaf prýðilega þar til yfir lauk. Þann 23. júlí 1949 kvæntist hann móðursystur minni, Rósu Jónatansdóttur. Foreldrar hennar voru Helga Helgadóttir og Jóna- tan Jónsson gullsmiður í Reykja- vík. Sambúð þeirra hjónanna var með miklum ágætum og tillits- semi í hvors annars garð einstök. Þau áttu eina dóttur, Helgu sjúkraliða, sem gift er Antoni Bjarnasyni forstjóra. Barnabörn- in eru orðin tvö, systurnar Rósa og Birna, sem voru afanum mikil lífsfylling. Samband móður minnar og Rósu hefur alltaf verið mjög náið og þær systurnar ólu börn sín upp í mikilli samvinnu. Því var ekki síður litið á okkur sem systkin, þannig að einbirni Barmahlíð- arhjónanna var meira og minna þrefalt. Sambýlið á sumrum í sumarbústaðnum á Laugarvatni frá vori fram á haust er með bjartari bernskuminningum og þar er hlutur Torfa ógleymanleg- ur. Einkum virðing hans fyrir skoðunum þeirra yngstu og þol- inmæði á öllum stundum ásamt Móöir okkar og tengdamóöir, SIGRIDUR JÓNA ÞORBERGSDÓTTIR frá Látrum ( Aöalvík, Háaleitisbraut 26, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 29. marz kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er Sunnuhlíö. Ragnhildur Ólafsdóttir, Oddný Ólafsdóttir, Ásta Olafsdóttir, Kjartan T. Ólafsson, Friörik Ólafsson, Helga Ólafsdóttir, bent á hjúkrunarheimiliö Árni Ólafsson, Gunnar Jónsson, Ágústa Skúladóttir, Kristín Lúövíksdóttir, Ásgeir Leifsson. Útför vinar okkar, ÞORKELS GUNNARSSONAR, Bankastraeti 11, Rvík, fer fram miövikudaginn 30. mars klukkan 10.30 frá nýju kapellunni í Fossvogi. Fyrir hönd aöstandenda, Grímur Guömundsson. + Útför SNORRA ÓLAFSSONAR, Suöurgötu 63, Hafnarfiröi, fer fram í dag frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi kl. 13.30. Vandamenn. + Minningarathöfn um son okkar, VIGGO ODDSSON, er lést í Jóhannesarborg 7. mars sl., veröur haldin í Dómkirkjunni 29. marz kl. 15.00. F.h. aöstandenda, Katrín Símonardóttir, Oddur Helgason. Þökkum auösýnda samúö við andlát og útför, gudrIðar halldórsdóttur, Grund, Súðavík. Fyrir hönd vandamanna, Gísli Sigurbjörnsson. Minning: Sigríður Jóna Þorbergsdóttir Fædd 2. desember 1899 Dáin 20. marz 1983 í dag fer fram frá Fossvogs- kirkju útför sæmdarkonunnar Sigríðar Jónu Þorbergsdóttur frá Látrum í Aðalvík. Sigríður var fædd í Efri-Miðvík í Aðalvík, dóttir hjónanna Oddnýjar Finnbogadóttur og Þorbergs Jónssonar, bónda þar. Hún ólst upp í Miðvík í stórum systkinahópi við öll algeng störf þeirra tíma. Þaðan giftist hún 17. nóvember 1917 Ólafi Helga Hjálmarssyni frá Stakkadal og voru þau í hjónabandi í 57 ár. Þau settu saman bú á Látrum og bjuggu þar fyrstu búskaparár sín, en síðan fluttust þau í Miðvík en bærinn brann eftir tæpt ár og misstu þau þar aleiguna. Var þá aftur flutt að Látrum. Ekki er hægt að minnast Sigríð- ar svo að ekki sé ólafs getið, en hann var kjarkaður drengskapar- maður. ólafur hafði dvalist í æsku í Bandaríkjunum á vegum frænda sinna og svo fór, að árið 1928 ákv- áðu þau hjón að halda vestur um haf með börnin sín fjögur, sem þá voru fædd, þau Ragnhildi, Oddnýju, Ástu og Kjartan, en tvö létust ung, Sveinn og Sigríður. Ólafur varð að fara á undan fjöl- skyldu sinni vestur og kom það í hlut Sigríðar að takast á hendur ferð með börnin, mállaus á enska tungu, ferð sem tók í allt fimm vikur og lýsir það ekki sízt kjarki hennar og áræði, eiginleikum, sem einkenndu hana svo mjög. Fjórum árum síðar snéru þau aftur heim til Aðalvíkur, einu barninu ríkari, en Friðrik er fæddur ytra. Árið 1935 tóku þau á leigu kirkjujörð- ina Stað í Aðalvík og bjuggu þar í fimm ár. Þaðan lá leiðin enn að Látrum. Á stríðsárunum fór fólk að flytjast frá Aðalvík en eftir stríðið lagðist hreppurinn í eyði á nokkrum árum. Mun tæknileg bylting í útgerð og hafnleysi hafa verið aðalorsökin. Tengdaforeldrar Sigríðar bjuggu hjá þeim hjónum til dán- ardags og að þeim látnum fluttust þau til Reykjavíkur árið 1946 og áttu þar heima síðan. f Reykjavík urðu þau að reisa heimili frá grunni enn á ný, þar sem ekki nýttust einu sinni pottar eða pönnur úr sveitinni. Yngstu börnin, Helga 5 ára, Sveinn 9 ára og Friðrik nýlega fermdur, fylgdu þeim í nýju heimkynnin. Þar tókst þeim fljótlega að eignast aftur þak yfir höfuðið og héldu áfram að veita ættingjum og vinum af rausn sem fyrr. Börnin uxu úr grasi og er nú kominn út af þeim stór og mannvænlegur ættbogi. Sigríður var vel af Guði gerð og rækti störf sín af alúð og kost- gæfni. Hún var sérstaklega snyrti- leg og myndarleg í verkum. Kom það sér oft vel með þennan stóra barnahóp hve laghent og dugleg + Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug við andlát og útför foreldra okkar, tengdaforeldra, afa, ömmu, langafa og langömmu, SIGURSTEINS MAGNÚSSONAR, aóalræöismanns °g INGIBJARGAR SIGURDARDÓTTUR MAGNUSSON, 2 Orchard Brae, Edinborg, Skotlandi. Siguróur S. Magnússon, Audrey Magnússon, Margrét Bennett, Ronald Bennett, Magnús Magnússon, Mamie Magnússon, Snjólaug Thomson, Nigel Thomson, börn, tengdabörn og barnabörn. hún var að sauma og vænt þótti henni um saumavélina sína. í litla eldhúsinu hennar í Reykjavík var alltaf til brún kaka fyrir barnabörnin sem oft komu við hjá ömmu. Hún hafði líka tíma til að hlusta á alls konar vanda- mál og þegar próf voru í aðsigi hafði hún ekki minni áhyggjur en þeir, sem prófin áttu að taka. Eins var það, þegar þau voru að byrja búskap, þá var gott að leita ráða hjá reyndri konu, sem alltaf gat miðlað einhverju. Árið 1971 veiktist Sigríður al- varlega, en náði nokkurri heilsu með dyggilegri hjálp ólafs. Hann lést eftir þunga sjúkdómslegu árið 1974 og fluttist Sigríður þá á heimili dóttur sinnar, Ástu, og mitt og átti hún þar heima til dáuðadags utan síðustu mánuðina, er hún vegna mikilla vanheilsu dvaldist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Hlaut hún þar frábæra umönrun og hlýju starfsfólksins. Sigríður naut umhyggju hinna fjölmörgu afkomenda sinna til hinztu stundar og er nú kvödd með ást og virðingu. Ég trúi að hún eigi góða heimkomu. Gunnar Jónsson Okkur barnabörnunum þótti alltaf gott að koma til afa og ömmu, og sum okkar dvöldust hjá þeim um tíma vegna náms og ann- ars. Alltaf beið kvöldhressingin eftir okki.r á eldhúsborðinu og rúmið uppbúið, færum við út að kvöldlagi. Alltaf var skínandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.