Morgunblaðið - 29.03.1983, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
funda með námsmönnum erlendis:
Það hafa orðið
líflegar umræður
— segir Birgir Isl. Gunnarsson
„VIÐ höfum mætt bæði samherjum og
andstæðingum á fundunum og það
hafa orðið líflegar umræður,** sagði
Birgir ísl. Gunnarsson, alþingismaður,
f spjalli við Morgunblaðið, en þeir
Geir H. Haarde, frambjóðendur 1
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, eru
nýkomnir frá Norðurlöndum, en þar
voru þeir til að kynna íslendingum
stefnumál Sjálfstæðisflokksins við
komandi alþingiskosningar.
Birgir sagði að þeir Geir væru
ánægðir með fundarsókn íslend-
inganna og gat Birgir þess að um 60
manns hefðu mætt á fjölmennustu
fundunum, en fundir hafa verið
haldnir í níu borgum Norðurlanda á
átta dögum. Á föstudagskvöld var
haldinn fundur í Árósum, en á
fimmtudagskvöld í Kaupmanna-
höfn, en þann fund sóttu um 50 ís-
lendingar.
Birgir sagði að fundirnir hefðu
verið miklir umræðufundir, þar sem
einnig hefðu mætt pólitfskir and-
stæðingar og hefðu farið fram fjör-
ugar umræður. „Mér finnst að það
mælist mjög vel fyrir hjá íslending-
um að menn komi og ræði málefnin
og stjórnmálaviðhorfið," sagði Birg-
ir ísl. Gunnarsson.
Oddur A.
Sigurjóns-
son fgrrv.
skólastjóri
er látinn
LÁTINN er I Vestmannaeyjum
Oddur A. Sigurjónsson, fyrrverandi
skólastjóri.
Oddur var fæddur þann 23. júlí
1911 á Grund i Svínadal í Austur-
Húnavatnssýslu. Hann var sonur
hjónanna Sigurjóns Oddssonar,
sjómanns, og Ingibjargar Jósefs-
dóttur.
Oddur varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið 1935,
lauk prófi í forspjallsvísindum frá
Háskóla íslands árið eftir og tók
kennarapróf árið 1937. Hann
stundaði einnig nám ( orlofi í
Bandaríkjunum veturinn 1957-
1958.
Oddur var skólastjóri Gagn-
fræðaskólans á Neskaupstað árin
1937 til 1960 og skólastjóri
Gagnfræðaskólans í Kópavogi varð
hann árið 1960. Hann var vara-
Oddur A. Sigurjónsson
fulltrúi og aðalfulltrúi í bæjar-
stjórn Neskaupstaðar árin 1946 til
1958 og sat þar í ýmsum nefndum.
Eftir að Oddur lét af skólastjórn í
Kópavogi fyrir aldurs sakir, gerðist
hann blaðamaður við Alþýðublaðið
og starfaði þar um nokkurra ára
skeið. Síðustu árin bjó hann í Vest-
mannaeyjum. Oddur skrifaði mikið
um þjóðmál í blöð, þar á meðal i
Morgunblaðið.
Árið 1938 kvæntist Oddur A. Sig-
urjónsson Magneu Bergvinsdóttur
og lifir hún mann sinn.
Albert á kappræðufundi í gærkvöldi:
Alþýðubandalagið útilokar
sig frá stjórnarsamvinnu
— stöðvi það framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli
ALBERT GUÐMUNDSSON, efsti
maður D-listans ( Reykjavík, lýsti
því yfir á fjölmennum og fjörugum
kappræðufundi með Jóni Baldvin
Hannibalssyni í gærkvöldi, að Al-
þýðubandalagið útilokaði sig frá
stjórnarsamvinnu, ef það reyndi að
koma í veg fyrir að Alþingi tæki
ákvarðanir um framkvæmdir á
Keflavíkurflugvelli.
A-listinn spyr, hvað á að taka
við og leitar auðvitað til okkar
sjálfstæðismanna um svör, sagði
Albert Guðmundsson. Þessi fund-
ur er þess vegna mikil traustsyf-
irlýsing á Sjálfstæðisflokkinn.
Jón Baldvin Hannibalsson sagði
í inngangsræðu sinni, að það ætti
að taka „tvíburaflokka verðbólg-
unnar“ á orðinu og telja niður at-
kvæði þeirra í komandi kosning-
um.
í svari við fyrirspurnum lýstu
báðir frambjóðendur sig hlynnta
þjóðaratkvæði í auknum mæli og
báðir töldu þjóðaratkvæði eðlilegt
til þess að skera úr um jöfnun at-
kvæðisréttar í landinu.
Albert Guðmundsson var spurð-
ur, hvaðan Sjálfstæðisflokkurinn
ætlaði að taka fé til aukinna hús-
næðislána og hvort Sjálfstæðis-
flokkurinn ætlaði að gera það með
því að vinna í happdrætti, og hann
Jón Baldvin Hannibalsson:
svaraði því, til að þjóðin myndi
vissulega vinna í happdrætti ef
Sjálfstæðisflokkurinn hlyti meiri-
hluta á Alþingi.
Jón Baldvin Hannibalsson var
spurður um ástæður fyrir lélegri
útkomu Alþýðuflokksins í skoð-
anakönnunum á vinnustöðum, til
dæmis ( Afurðasölunni og á Hótel
Sögu, en samkvæmt þeim virtist
flokkurinn vera að þurrkast út.
Jón Baldvin Hannibalsson svaraði:
Þú sagðir Afurðasölu og Hótel
Sögu, ég á eftir að heimsækja
þessa vinnustaði, þetta lagast
kannski þá.
Sja nanar a miðsiðu.
Teljum niður atkvæði tvíbura-
flokkanna í kosningunum
Egilsstaðir:
Ætlar að
ganga yfir
Vatnajökul
KgikHtöóum, 26. mars.
í DAG kom hingað með Flugleiðavél frá
Reykjavík Roger nokkur Pichon, sem er foringi
í björgunarsveitum franska hersins — en hann
kom til landsins í gær. Erindi hans hingað er
nokkuð sérstakt — en hann hyggst ganga yfir
Vatnajökul á fjórum dögum.
Pichon kvaðst fara beinustu leið með bifreið
að Eyrarlandi í Fljótsdal, en þaðan mun Ingi-
mar Jóhannsson aka honum á vélsleða um 100
km leið að rótum Brúarjökuls. Ferðinni yfir
Vatnajökul kvaðst Pichon hafa skipt í fjóra
áfanga — sem hver um sig tekur einn dag.
Roger Pichon hyggst ganga yfir Vatnajökul á 4 dögum.
Á fyrsta degi gerir hann ráð
fyrir því að komast í Kverkfjöll,
þaðan að Grímsvötnum, þá Esju-
fjöllum og síðan að Öræfajökli
— og fara niður af jöklinum
ofan við Svínafell.
Pichon kvaðst fara þessa ferð
með vitund og vilja Flugbjörg-
unarsveitarinnar, samkvæmt
meðmælum frá björgunarsveit-
um franska hersins. Pichon
sagðist þaulvanur slíkum ferð-
um — enda eru björgunarstörf (
frönsku ölpunum daglegur
starfi hans, en hann býr í Gren-
oble. Þá kvaðst hann mjög vel
búinn til fararinnar, þótt talstöð
hefði hann enga — enda væri
hún of þung til slíkra göngu-
ferða.
Pichon er í leyfi frá störfum
og kvaðst einfaldlega hafa feng-
ið áhuga á Vatnajökli; hann væn
ekki i neinum þjálfunarleiðangri
heldur skemmtiferð.
Pichon kvaðst mundu skrifa
um ferð sína i frönsk blöð og
jafnvel gera sjónvarpsþátt um
hana. „Það er að segja — ef ég
kemst einhvern tíma niður af
jöklinum aftur“ — bætti hann
við og brosti.
— Ólafur
Viggó
Oddsson
látinn
LÁTINN er í Jóhannesarborg í Suður-
Afríku Viggó Oddsson. Minningarat-
höfn um hann verður haldin ( Dóm-
kirkjunni í Reykjavik í dag, þriöjudag.
Viggó Oddsson var fæddur 2. des-
ember árið 1932 í Vatnskoti í Þing-
vallasveit, en hann var sonur Odds
Helgasonar, forstjóra, og Katrinar
Símonardóttur. Viggó lauk gagn-
fræðaprófi árið 1948 og að því loknu
lagði hann stund á nám í rennismíði,
en hóf síðan að læra loftmynda-
kortagerð hjá Hauki Péturssyni,
verkfræðingi i fyrirtækinu Forverk.
Viggó fór siðan til Hollands til fram-
haldsnáms og var til þess styrktur af
Sameinuðu þjóðunum.
Eftir að hafa unnið um hrið á Is-
landi, réðist hann til bresks fyrir-
tækis í Jóhannesarborg og starfaði
Viggó Oddsson
hann þar síðan. Viggó Oddsson
skrifaði talsvert í Morgunblaðið
fyrir nokkrum árum.
Hann var ókvæntur og barnlaus.
Egilsstaðir:
Frambjóðendur Alþýðu-
bandalagsins hætt komnir
Kgilsstóðum, 26. mars.
í NÓTT fór jeppabifreið út af þjóðveg-
inum sunnan megin Reyðarfjarðar. í
bílnum voru tveir frambjóðendur Al-
þýðubandalagsins á Austurlandi, Helgi
Seljan og Sveinn Jónsson, en þeir voru
á leið til náttstaðar á Reyðarfirði eftir
framboðsfund á Fáskrúðsfirði.
Sluppu þeir ómeiddir að kalla —
sem teljast verður hin mesta mildi
— því að bíllinn er nær ónýtur eftir.
Þeir munu báðir hafa haft bflbeltin
spennt.
f kosningabaráttunni 1979 mun
þeim félögum einnig hafa hlekkst
eitthvað á, að sögn heimildarmanns,
á svipuðum slóðum.
- Olafur