Morgunblaðið - 29.03.1983, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983
Til sölu:
Laugavegur 24
2 efstu hæöirnar, þaö er 3. og
4. hæö, ásamt 3ja hæöa bak-
húsi.
Nýlendugata
Timburhús á steinkjallara aö
grunnfleti 65 fm, kjallari, hæö
og ris.
Álfheimar
Vönduð 5—6 herb. íbúð á 2.
hæð.
Seljabraut
Vönduö 4ra—5 herb. íbúö á 2.
hæö.
Selfoss
Lóðir noröan Ölfussár: Jaöar
auk tveggja minni lóöa.
Hafsteinn Hafsteinsson hrl.
Suöurlandsbraut 6.
Sími 81335.
Mánagata
2ja herb. ca. 55 fm íbúö í kjall-
ara. Ósamþykkt. Verö 600 þus.
Flyðrugrandi
2ja herb. ca. 65 fm nýleg íbúö á
jaröhæö. Rúmgóö stofa. Flisa-
lagt bað. Parket. Mjög góö
sameign.
Spóahólar
3ja herb. ca. 90 fm mjög falleg
íbúö á 3. (efstu) hæö í blokk.
Fallegt eldhús og gott útsýni.
Verð 1200 þús.
Krummahólar
3ja herb. ca. 90 fm glæsileg
íbúö á 3. hæö (í enda) í lyftu-
blokk. Vandaöar furuinn-
réttingar. Flísalagt baö. 20
fm suöursvalir. Bílskýli. Verö
1250 þús.
Leirubakki
3ja herb. ca. 85 fm íbúð á 3.
hæö. Baðherbergi endurnýjaö,
gott eldhús meö boröplássl,
þvottaherb. innan eldhússins.
Karfavogur
3ja herb. ca. 90 fm mjög góð
íbúö í kjallara. Bílskúrsréttur.
íbúöin er öll mikið endurnýjuö.
Blikahólar
4ra—5 herb. falleg íbúð á 1.
hæö í lyftublokk. Góöar innrétt-
ingar Fallegt eldhús meö
borökrók. Þvottur á hæöinnl,
vestur svalir. Verð 1300 þús.
Efstihjalli Kóp.
4ra herb. ca. 100 fm rúmgóö
íbúö á 1. hæö í 3ja hæöa blokk.
Verð 1300 þús.
Kóngsbakki
4ra herb. ca. 110 fm mjög góö
íbúö á 3. hæö. Flísalagt baö.
Rúmgott eldhús. Sór þvottur.
Verö 1300 þús.
Bárugata
4ra—5 herb. aðalhæö (1. hæö)
í þríbýlis steinhúsi. Góöur bíl-
skúr fylgir. Verö 1600 þús.
Þverbrekka Kóp.
4ra—5 herb. góö íbúö á 6. hæö
í lyftublokk. Skipti mögjleg á
parhúsi eöa minni séreign í
Vesturbæ Kópavogs. Verö
1250 þús.
Háaleitisbraut
5 herb. ca. 117 fm sérlega
góð íbúð á 1. hæð í blokk.
Bílskúr meö raflögn fylgir.
Skipti æskileg á 3ja herb.
íbúð í Reykjavík. Verö 1750
þús. \
Leifsgata
Hæö og ris ásamt bílskúr. Alls 6
herb. um 130 fm. Gestasnyrting
og baðherb. Eldhús meö
borðkrók. Skipti möguleg á
4ra—5 herb. eign í Vesturbæ.
Verð 1550 þús.
Jaöarsund — Sérhæö
4ra herb. ca. 100 fm á 1. hæð,
flísalagt baö, rúmgott eldhús,
geymslur og þvottur í kjallara,
rúmgóður bílskúr.
MARKADSÞÍÓNUSTAN
INGOLFSSTRÆTI 4 . SIMI W911
Róbert Aml Hreiöarsson hdl.
IS L*i-hv^.ll
FLÓKAGÖTU1
SÍMI24647
Hamraborg —
eignaskipti
4ra herb. íbúö við Hamraborg.
3 svefnherb., svalir, bílskýll.
Æskileg skipti á 3ja herb. (búö.
íbúöin er ákv. í sölu. Einkasala.
Parhús
á hornlóö á góöum staö í Norö-
urmýrinni. j húsinu eru tvær 3ja
herb. íbúöir og ein 2ja herb.
íbúö. Bílskúrsréttur. Selst í einu
lagi.
í smíöum
Fjórar 3ja herb. íbúðir í vestur-
bænum í Kópavogi. Bílskúrs-
réttur meö tveim íbúöum.
Teikn. til sýnis á skrifstofunnl.
Helgi Ólafsson,
lögg. fasteignaaali,
kvöldsími 21155.
28444
2ja herb.
Krummahólar, 2ja herb. 55 fm
íbúö á 2. hæö. Bílskýli. Falleg
íbúö. Laus fljótt. Útb. 540 þús.
3ja herb.
Dvergabakki, 3ja herb. 87 fm
íbúö á 1. hæð. Tvennar svalir.
Falleg íbúö. Verö 1150—1200
þús.
Austurbær, 3ja herb. ca. 80 fm
íbúð á 2. hasö í nýju húsl. Mjög
falleg íbúö. Verð 1200—1250
þús.
Spóahólar, 3ja herb. ca. 97 fm
íbúö á 3. hæö. Falleg íbúö. Verö
1150—1200 þús.
Tjarnarbraut Hf., 3ja herb. ca.
87 fm íbúö á miöhæö í þríbýl-
ishúsi. Endurnýjuð íbúö. Falleg-
ur staöur. Verö um 1100 þús.
Stórageröi, 4ra herb. um 106
fm íbúö á 3ju hæð. Ný standsett
falleg ibúö. Verð 1550 þús.
Engjasel, 4ra—5 herb. um 115
fm íbúö á 1. hæö. 3 sv.herb.,
stofa, hol o.fl. Bílskýlí. Verö um
1500 þús.
Kérastígur, 4ra herb. um 90 fm
risíbúö í stelnhúsi. Sk. í 3 sv.h.,
stofu o.fl. Mögul. á 4 sv.herb.
og stofu. Góö ibúö. Verö 1 millj.
Sérhæðir
Neshagi, neöri hæö og hluti af
kjallara i þríbýlishúsi. Hæöin er
130 fm og sk. í 2 stofur, 3 sv.
herb., hol og fl. Nýtt gler, teppl
og tæki á baöi. I kjallara er
mögul. á einst.íbúö eöa her-
bergjum. Bílskúrsróttur. Verö
tilboö.
Raðhús o.fl.
Hvassaleíti, raöhús á 2 hæöum
samt. um 200 fm aö stærö. Sk.
m.a. í 4—5 sv.herb., stofu,
boröstofu, sjónv.herb. o.fl.
Bilskúr. Gott hús á fallegum
staö sunnarlega í götunni. Verö
tilboö.
Dalatangi Mosf., raöhús á 2
hæðum samt. um 150 fm aö
stærö. Sk. m.a. i 3 sv.herb.,
stofu o.fl. Bílskúr. Nýtt vandaö
hús. Verö 1800 þús.
Annað
Langholtsvegur, verslunar- og
lagerhúsnæöi samt. um 230 fm
aö stærö. Vel staösett húsnasöi
sem hentar vel fyrir verslun og
þjónustu.
Dugguvogur, 250 fm iönaöar-
húsnæöi á götuhæö meö góöri
aökeyrslu. Laust fljótt.
HÚSEIGNIR
VELTUSUNOI.’ O, Ctfin
sími 28444. 9L
Daníel Árnason
löggiltur fasteignasali.
Stjórn Málfundafélagsins Óðins 1982—1983. Fremri röð frá vinstri: GúsUf B. Einarsson, Þorvaldur Þorvaldsson,
Óskar V. Friðriksson form., Pétur Kr. Pétursson, Jón Kristjánsson. Aftari röð: Hannes Sigurjónsson, Sigurður
Hallvarðsson, Hannes Garðarsson, Þórólfur Þorleifsson, Þorsteinn Hansson, Björgvin Hannesson, á myndina vantar
Ólaf Hafþór Guðjónsson.
Málfundafélagið Óðinn 45 ára:
Stoftiendur 40
félagsmenn
Formadur Óskar V. Friðriksson
Rúmlega fjörutíu sjómenn, verkamenn og aðrir launþegar, sem fylgdu
Sjálfstæðisflokknum að málum, stofnuðu Málfundafélagið Óðinn fyrir 45
árum, 29. marz 1938. Höfuðmarkmið þeirra var að standa vörð um jafnstöðu
verkafólks innan eigin hreyfingar og til vinnu, án tillits til stjórnmálaskoð-
ana þess, — að faglegt sUrf og kjaraleg barátto ASÍ væru slitin úr tengslum
við Alþýðuflokkinn, en þau óeðlilegu tengsl, sem þá vóru á milli Alþýðu-
flokks og Alþýðusambandsins háðu mjög storfi verkalýðshreyfingarinnar, og
iýðræðislegri storfsreglur yrðu í verkalýðsfélögum, m.a. hlutfallskosningar.
Jafnframt varð Óðinn einn af traustustu hornsteinum Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík. Kjörorð félagsins var „stétt með stétt“. í dag eru nálægt 600
launþegar, er fylgja Sjálfstæðisflokknum að málum, félagsbundnir í Óðni, og
félagið mikilvirkt í flokksstorfinu.
Fyrsta stjórn óðins var skipuð
eftirtöldum mönnum: Sigurður
Halldórsson, formaður, Magnús
Ólafsson, varaformaður, Hans A.
Guðmundsson, ritari, Ingvi Hann-
esson, gjaldkeri, og Sigurður Guð-
brandsson, meðstjórnandi. Axel
Guðmundsson tók fljótlega sæti í
stjórninni.
Sveinbjörn Hannesson, fyrv.
formaður Óðins, sagði í grein um
félagið fyrir fáum árum: „Traust
verkamanna á leiðsögn óðinsfé-
laga hefur farið ört vaxandi. Nú
eru þeir í stjórnum margra verka-
lýðsfélaga í borginni í samstarfi
við frjálslynda lýðræðissinna.
Verkamenn, sjómenn, bílstjórar
og aðrir launþegar hafa fundið, að
það er alltaf hægt að trúa sjáif-
stæðisverkamönnum fyrir sinum
málefnum. Þau er ófá umbótamál-
in, sem fyrst hafa verið rædd á
fundum óðins, en orðið verka-
mönnum og launafólki til mikilla
hagsbóta. Nægir að benda á
skattfrelsi verkamanna við bygg-
ingu eigin íbúða, Bústaðavegshús-
in og smáíbúðirnar, bygginga-
samvinnufélag verkamanna og
sjómanna og fleiri byggingafélög,
sem stofnuð hafa verið fyrir for-
göngu óðinsmanna. Þá hefði tæp-
lega verið byggt jafn mikið af
nú 600
verkamannabústöðum, ef Sjálf-
stæðisflokksins hefði ekki notið
við, né heldur almannatrygg-
ingarnar orðið sú öryggisstofnun,
sem raun ber vitni."
Geir Hallgrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði m.a. á
35 ára afmæli félagsins, að hlut-
verk Óðins fælist m.a. í að vinna
að: 1) lýðræði og skoðanafrelsi
innan launþegasamtakanna í
landinu, 2) að leggja áherzlu á fag-
lega hagsmunabaráttu launþegum
til heilla og koma þannig í veg
fyrir pólitíska misnotkun samtak-
anna og 3) að hafa þau áhrif á
stefnu og störf Sjálfstæðisflokks-
ins, að hagsmunir launþega séu
ávallt í hávegum hafðir, svo að
flokkurinn eigi í raun fylgi allra
stétta skilið.
Núverandi stjórn Óðins skipa
eftirtaldir menn: óskar V. Frið-
riksson, formaður, Gústav B. Ein-
arsson, Þorvaldur Þorvaldsson,
Pétur Kr. Pétursson, Jón Krist-
jánsson, Hannes Sigurjónsson,
Þórólfur Þorleifsson, Þorsteinn
Hannesson, Björgvin Hannesson,
Sigurður Hallvarðsson og ólafur
Hafþór Guðjónsson.
Athugasemd frá Flugleiðum
vegna ummæla verðlagsstjóra
Flugleiðir hafa óskað eftir þvf við
Morgunblaðið að birtur yrði eftirfarandi
kafli úr reðu Sigurðar Helgasonar, for-
stjóra, á aðalfundi félagsins vegna þeirra
ummæla Georgs Ólafssonar, verðlags-
stjóra, í Morgunblaðinu 26. marz sl., að
ómaklega hafi verið vegið að verðlagsyf-
irvöldum, þegar gerð var grein fyrir tapi á
innanlandsflugi Flugleiða. Kaflinn er svo-
hljóðandi:
„Framkvæmd innanlandsflugsins á
sl. ári hefur verið með hefðbundnum
hætti. Heildarfarþegafjöldi fluttur á
innanlandsleiðum var 221.296 farþegar,
sem er um 2% aukning frá árinu áður.
Sætanýting í innanlandsflugi var
60,2% miðað við 62,1% árið áður.
Svo sem áður er frá skýrt var tap
félagsins i innanlandsflugi á sl. ári um
20 millj. króna og einnig að rfkisstjórn
íslands hafði samþykkt fyrirheit um að
verðlagning í innanlandsfiugi skyldi
vera í samræmi við tilkostnað. Þvf mið-
ur urðu ekki efndir á þessu fyrirheiti og
afieiðingin er það mikla tap, meira en
nokkru sinni fyrr, sem nú er staðreynd.
Bæta má þvf við að á sl. 4 mánuðum eða
svo hefur þó nokkuö þokað f rétta átt
því verðbreytingar hafa fengist í sam-
ræmi við hækkaðan tilkostnað.
í svo hraðri verðbólgu sem raun er á
og við þær aðstæður að gengisfall krón-
unnar er svo hratt eins og það var á sl.
ári, en krónan féll gagnvart Banda-
ríkjadollara um 92,5%, er þörfin fyrir
hækkanir á fargjöldum f innanlands-
fiugi svo til f samræmi við gengisfallið.
Þetta er vegna þess að verulegur hluti
af kostnaðarliðum innanlandsfiugsins
er f erlendum gjaldeyri, svo sem elds-
neyti, varahlutir, vextir af flugvélum
o.s.frv. og hækkar að sjálfsögðu 1 krón-
um í takt við það að gengið fellur.
Tap innanlandsfiugsins á sl. 6 árum
hefur numið á núvirði sem samsvarar
142 millj. króna. Hér er um gffurlega
blóðtöku að ræða fyrir félagið, sem
kemur til viðbótar öllum þeim marg-
vfslegu örðugleikum sem orðið hafa f
rekstri þess undangengin ár. Við svo
búið verður ekki lengur unað og er að
vænta þess að sú stefna sem nú hefur
verið upp tekin að heimila verðlagn-
ingu í samræmi við kostnaðarhækkanir
verði varanleg.
Spyrja má hvort löggjöf sú um verð-
lagsmál sem hér gildir fái staðist. Sú
óraunhæfa verðlagning sem félagið
hefur verið neytt til að viðhafa hefur f
reynd leitt til einskonar eignaupptöku
sem nemur 142 millj. króna á sl. 6 ár-
um. Má þá minna á neikvæða eigin-
fjárstöðu um aðeins hærri upphæð, og
álykta að við raunhæfa verðlagningu á
þessari þjónustu væri eiginfjárstaða
allt önnur og betri f dag en raun er á.
Óhjákvæmilegt er að huga að endur-
nýjun á flugflota innanlandsflugsins.
Innanlandsfiug félagsins gegnir mjög
þýðingarmiklu hlutverki í samgöngum
landsins og þvf verður að sinna vegna
hagsmuna hinna dreifðu byggða, með
fullkomnu öryggi f rekstri svo og af
ýtrustu hagkvæmni. Að sjálfsögðu er
það meiriháttar átak að endurnýja
fiugfiotann, en telja má að slfkt sé
óumflýjanlegt á næstunni.
Því miður er enn algjörlega óviðun-
andi ástand f flugvailarmálum að því
er innanlandsflugið varðar. Aðeins
tveir fiugvellir innanlandsfiugsins eru
með malbikaðar fiugbrautir, en allar
aðrar fiugbrautir eru malarbrautir,
sem stórauka viðhaldskostnað á fiug-
vélum vegna skemmda á þeim sem
verður af grjótkasti. Auk þess má
minna á að sumar brautirnar verða
ófærar vegna aurbleytu vissan tíma
ársins. Hér verður að koma til breyting
með átaki f malbikun aðalfiugvalla
innanlandsfiugsins.
Nú er verið að gera stórátak f gerð
varanlegs slitlags vega á landinu og er
áætlað að um 150 km bætist við f ár.
Samtals verða þá um 800 km vega með
varanlegu slitlagi. Malbikun þeirra 9
flugvalla sem mest er aökallandi sam-
svarar um 57 km f malbikun vegakerf-
isins. Er þvf hér um að ræða aðeins 7%
af vegakerfi landsins að þessu leyti. í
innaniandsfluginu eru fluttir um
230.000 farþegar árlega. Telja má að
ekki sé óeðlilegt að taka tillit til þess
mikla fjölda farþega sem þessa þjón-
ustu notar."