Morgunblaðið - 29.03.1983, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983
19
Kosningabanda-
laginu spáð
minnkandi fylgi
iAindúnum, 28. mara. AP.
EFTIR að hafa hafnað í þriðja scti í
aukakosningum í Darlington, hefur
fylgí kosningabandalagsins minnk-
að til muna annars staðar, ef marka
má niðurstöður skoðanakönnunar
sem birtar voru á sunnudag.
Niðurstöður skoðanakönnunar
þessarar, sem gerð var fyrir sjón-
varpsþáttin „Weekend World“,
leiddu einnig í Ijós fylgisaukningu
fhaldsflokks Margrétar Thatcher,
forsætisráöherra, en hann varð f
öðru sæti í aukakosningunum í Darl-
ington á fimmtudag.
Roy Jenkins leiðtogi Sósíal-
demókrataflokksins, sagði á
sunnudag að hann væri reiðubú-
inn að láta David Steel leiðtoga
frjálslyndra taka við forystu
bandalagsins.
Þar til nú hafa Jenkins og
stuðningsmenn hans einblínt á
leiðtoga sósíaldemókrata sem leið-
toga og forsætisráðherraefni
kosningabandalagsins. Jenkins,
sem er 62 ára að aldri er fyrrver-
andi atvinnumálaráðherra Bret-
lands og var einnig í forsæti
framkvæmdaráðs EBE.
Skoðanakönnunin, sem náði til
1000 kjósenda, leiddi í ljós að ef
kosningar yrðu haldnar nú hlytu
íhaldsmenn 43 prósent atkvæða,
Verkamannaflokkurinn 35 prósent
atkvæða og kosningabandalagið
21 prósent atkvæða. Aðrir smærri
flokkar fengu eitt prósent at-
kvæða í skoðanakönnuninni.
Margrét Thatcher gaf í skyn í
ræðu á laugardag, að hún væri að
undirbúa kosningar áður en kjör-
tímabilið er útrunnið, þ.e. fyrir lok
maí 1984 þegar fimm ára tímabili
hennar á að ljúka formlega.
Njósnarinn Blunt
látinn í London
London, 28. nura. AP.
ANTHONY Blunt, fyrrum listráð-
gjafi Elísabetar II. Englandsdrottn-
ingar, og sem á sfnum tíma játaði á
sig njósnir fyrir Sovétmenn, lést sl.
laugardag á heimili sínu f London.
Hann var 75 ára að aldri.
Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra, skýrði þingheimi frá þvi
í nóvember árið 1979, að Blunt
hefði njósnað fyrir Sovétmenn í
stríðinu og eftir það, á sama tíma
og hann starfaði fyrir MI-5, gagn-
njósnaþjónustuna bresku. Blunt
játaði njósnirnar árið 1964 en fall-
ið var frá málssókn á hendur hon-
um gegn því að hann segði allt,
sem hann vissi, um bresku njósn-
arana Kim Philby, Guy Burgess og
Donald MacLean, sem allir flýðu
til Sovétríkjanna. MacLean lést í
Moskvu 6. mars sl.
Blaðamaðurinn, Chapman
Pincher, sem mikið hefur skrifað
um njósnamál i Bretlandi, sagði i
gær, sunnudag, að Blunt hefði
svikið eina manninn sem Bretar
höfðu á sínum snærum í innsta
hringnum í Kreml á striðsárunum
og auk þess valdið dauða fjöl-
margra annarra manna í Austur-
Anthony Bhint
Evrópu. Stórblaðið Times of Lond-
on, sem skrifaði allítarlega um
Blunt látinn, sagði, að hvað sem
liði sviksamlegum ferli Blunts, þá
hefði hann lagt fram merkilegan
skerf til breskrar listasögu og það
yrði að meta án tillits til annars.
ítalir krefjast brott-
flutnings Sovétmanna
Islamabad, PakisUn, 28. mara. AP.
EMILIO Colombo, utanríkisráð-
herra Ítalíu, krafðist þess f ræðu á
sunnudag, að allir sovéskir hermenn
yrðu kallaðir frá Afganistan þegar í
stað til að stuðla að heimsfriði og
slökun á spennu í heiminum. Talið
er að sovéskir hermenn í Afganistan
séu um 105.000 talsins.
„Við fordæmum veru Sovét-
manna í Afganistan, sem er brot
gagnvart sjálfstæði landsins auk
þess að vera mannréttindabrot,"
sagði Colombo í ræðu sinni. Hann
sagðist telja að innrás Sovét-
manna í Afganistan fyrir þremur
árum væri ein meginástæða fyrir
spennu milli austurs og vesturs og
eitt stærsta vandamál nútímans.
TOLEDO
Virtasta fyrirtæki heims í vogagerö.
SALTFISKVERKANIR
SÍLDARSALTANIR
Trílluhafnir
Vöruafgreióslur
Okkar lóð á vogarskálina
35% VERÐLÆKKUN
Á PALLAV0GUM!
Vegna hagstæöra magninnkaupa höfum viö náö
35% verðlækkun á TOLEDO stálpallavogum. Núna
býöst ykkur 2ja tonna vog (150 X 150) frá
kr. 84.809,-. Hún er viðurkennd fyrir nákvæmni. Frávik
eru innan viö 500 gr. Hæö frá gólfi er aöeins
3 tommur (minni slysahætta).
2ja ára ábyrgö og góöir greiðsluskilmálar.
2ja tonna pallavogin úr ryöfríu stáll,
lækkar úr kr. 245.000 í kr. 126.000.
500 kg vogir 1000 kg vogir 2000 kg vogir
(90X90 cm) (120 X 120 cm) (150 X 150 cm)
Verö kr. 74.480,- Verö kr. 79.580,- Verö kr. 84.809,-
Gengisskr. 1.3. '83.
ISTW
Laugavegi40 S:26707 - 26065
Hvítvoðungur
lést af völd-
um sprengju
NoU, fulíu, 28. nure. AP.
ELDUR, sem kveiktur var með
„Molotov-kokteil" eða bensín-
sprengju varð fjögurra mánaða
gömlu barni að bana og sex slösuð-
ust í þessum litla bæ í nind við Nap-
ólí, að því er segir í heimildum lög-
reglunnar.
Lögreglan sagðist þess fullviss
að eldurinn hefði verið kveiktur
með „Molotov-kokteiT sem kastað
var inn í verslun með þeim afleið-
ingum að eldur kviknaði og breidd
ist hann hratt út i ibúðum sem
staðsettar eru fyrir ofan verslun-
ina.
Colombo er i stuttri heimsókn í
Pakistan um þessar mundir.
Bilskúrshurðir
Hagstætt verð/góð greiðslukjör
Biðjið um mync/a/ista ísíma 18430
▼ Timburverzlunin Völundur hf.
KLAPPARSTÍG 1 S .1843o/sKEIFAN 19 S. 85244