Morgunblaðið - 29.03.1983, Síða 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983
25
Víkingar í miklum ham
— léku mjög vel gegn KR á laugardaginn
ÞAU eru fá liðin sem hafa roð viö
Víkingunum þegar þeir eru í slík-
um ham sem þeir voru í gegn KR
á laugardaginn er liðin mættust í
annarri umferð úrslitakeppninnar
í handbolta. Lokatölurnar 28—26
segja ekki alla söguna þar sem
Víkingarnir höföu oftast n»r
góða forystu, en undir lok leiks-
ins tóku KR-ingar að berjast svo
um munaði og minnkuðu mun-
inn. Þaö dugöi aftur á móti ekki
til og sigurinn endaöi Víkings-
megin. 7
KR-ingar höföu forystuna fram-
an af leiknum, en Víkingar voru
ekki langt undan, eöa öilu heldur
Siguröur Gunnarsson sem skoraöi
fjögur fyrstu mörk liös síns. Undir
miöjan fyrri hálfleikinn náöu Vík-
ingarnir forystunni í fyrsta skipti,
6—5, og héldu henni út allan leik-
inn, en staöan í hálfleik var
16—12.
Siguröur Gunnarsson sem átti
stórleik í fyrri hálfleik og skoraði 7
mörk var tekinn úr umferö í þeim
síöari. Viö þaö losnaöi um aöra í
liöinu, og þá einkum Þorberg sem
tók aö skora af miklum krafti.
Fjögur mörk hans í röð um miöjan
síöari hálfleik komu Víkingum í sjö
marka forystu, og síðan geröi Sig-
uröur þennan mun enn stærri með
marki úr vítaksti, 24—16. Þegar
hér var komiö sögu fóru Víkingar
aö slaka mikiö á en KR-ingar hins
vegar aö berjast, og upphófst þá
hinn mesti barningur meö rysking-
um og brottrekstrum af leikvelli.
KR-ingar tóku aö saxa grimmt á
forskot Víkinga en til að komast
yfir var tíminn of knapþur, auk
þess sem Ellert Vigfússon í marki
Víkings varöi vel undir lokin og lét
skot í andlit sér lítil áhrif hafa.
Þeir Þorbergur Aöalsteinsson
og Siguröur Gunnarsson voru í
sérflokki hjá Víkingum, en auk
þeirra átti Ellert góöan leik í mark-
inu í fjarveru Kristjáns Sigmunds-
sonar.
KR-liöiö var nokkuö frá sínu
besta í þessum leik, en bestan leik
átti Stefán Halldórsson sem skor-
aöi flest sín mörk undir lok leiks-
ins. Alfreö Gíslason naut sín ekki
sem skyldi enda var fariö vel út á
móti honum og hann stöövaöur.
Mörk Víkings: Siguröur Gunn-
arsson 9, Þorbergur Aöalsteinsson
8, Hilmar Sigurgíslason og Guö-
mundur Guömundsson 3, Steinar
Birgisson og Páll Björgvinsson 2
og Viggó Sigurösson eitt mark.
Mörk KR: Stefán Halldórsson 8,
Jóhannes Stefánsson 5, Anders
Dahl 4, Alfreö Gíslason og Gunnar
Gíslason 3, Guömundur Alberts-
son 2 og Haukur Geirmundsson
eitt mark.
Brottrekstrar af leikvelli: Hjá
Víking var þeim Páli, Guömundi,
Hilmari og Þorbergi vikiö útaf í
tvær mín., en Steinari Birgissyni
tvisvar í tvær mín. Alfreð Gíslasyni
var vikiö út af í tvær mín. hjá KR
og Jens Einarssyni var sýnt rauöa
spjaldiö er hann felldi Þorberg eftir
aö honum og Alfreö haföi sinnast.
Misheppnuö vítaköst: Ellert
varöi frá Gunnari Gíslasyni og
Þorbergur skaut í slá úr víti.
- BJ
• Sigurður Gunnarsson og fólagar hans í Víkingi áttu mjög góðan leik gegn KR-ingum á laugardag ains og iesa má um nn
til vinstri. Hór skorar Siguröur eitt af níu mörkum sínum í leiknum og f»r til þess góðan friö. KR-ingarnir aðeins áhorfendur.
FH-ingar klaufar að
tapa fyrir Víkingum
EFTIR fyrstu umferðina í úrslita-
keppni efri liða 1. deildar í hand-
boltanum voru KR og FH efst og
jöfn með fimm stig. Nú um helg-
ina sigruðu svo Víkingar bæði
þessi liö, þannig að sýnt er aö
keppnin verður geysihörð og ráð-
ast úrslit vœntanlega ekki fyrr en
í síöustu keppninni.
I fyrri leiknum á sunnudags-
kvöldiö sigruöu Víkingar FH með
23 mörkum gegn 22. FH-ingar
voru yfir (13:11) í hálfleik en náöu
ekki aö halda út. FH komst í 4:0 í
byrjun, en Víkingar minnkuöu svo
muninn niður í 4:3. Mikill hraöi var
í leiknum og greinilegt aö hvorugt
liöiö ætiaöi aö gefa neitt eftir.
FH-ingar höfðu þó alltaf yfirhönd-
ina og voru betri. Þeir voru tveimur
mörkum yfir í hálfleik og strax í
upphafi seinni hálfleiksins komust
þeir í 15:11. Enn héldu þeir áfram,
en er staöan var orðin 17:13 FH (
hag, fór heldur betur aö halla und-
an fæti hjá þeim. Víkingur skoraöi
þá fimm mörk í röö og breytti
stööunni í 17:18.
Á þessum kafla uröu sóknir FH
styttri en góöu hófi gegnir og
leikmenn æstust uþþ er á móti
blés. En FH komst aftur yfir. Hans
jafnaöi 18:18 og Guömundur
Magnússon skoraöi svo 19:18.
Spennan og stemmningin í Höllinni
var geysileg og allt ætlaöi vitlaust
aö veröa er Þorbergur Aðal-
steinsson jafnaöi, 19:19. Glæsi-
mark. Hann fór inn úr horninu úr
hraöaupphlaupi og skrúfaöi bolt-
ann framhjá markmanninum.
FH haföi aftur tvö mörk yfir,
21:19, en Víkingur jafnaöi. FH
komst í 22:21, en svo geröi Víking-
ur tvö síðustu mörkin. FH-ingar
voru miklir klaufar aö vinna ekki
þennan leik — þeir voru meö góöa
forystu í leiknum — mest fjögur
mörk, en þeir héldu ekki haus. Þaö
sýndi sig aö gegn Víkingi má ekki
mikiö bera út af til aö illa fari,
a.m.k. ekki þegar Vikingur nær sér
á strik.
Vikingar högnuöust á dómgæsl-
unni í leiknum. Flest vafaatriöi voru
dæmd þeim í hag. Ellert varöi
mjög vel í Víkings-markinu og Har-
aldur stóö honum ekki langt aö
baki hinum megin. Aðrir sem voru
góöir voru Þorbergur, Sigurður og
Hilmar hjá Víkingi. Hilmar er leik-
maöur sem sjaldan fær þaö hrós
sem hann á skiliö. Hjá FH var
Pálmi góöur í horninu og Kristján
geröi lagleg mörk auk þess sem
hann var sterkur í vörninni. Annars
var hann mistækur í seinni hálf-
leiknum.
Mörkin: Víkingur: Þorbergur 8
(3v), Viggó 4 (2v), Siguröur 3 (1v),
Páll 3, Hilmar 2, Guðmundur 2,
Steinar 1.
FH: Pálmi 6, Kristján 6 (2v),
Hans 5, Valgarður 2, Sveinn 2,
Guðmundur 1. Brottrekstrar: V(k-
ingar fóru af velli í 8 mín., FH-ingar
í 4. mín. Víkingur fékk sjö vítl, nýttl
sex. Haraldur varöi einu sinnl frá
Siguröi. FH fékk 3 víti, nýttu 2. Ell-
ert varöi eitt frá Kristjáni.
KR-ingar gerðu sér lítið fyrir
og sigruðu lið FH með 7 mörkum
KR-ingar unnu stóran og
sanngjarnan sigur á FH í gær-
kvöldi í úrslitakeppninni í hand-
bolta. Lokatölurnar urðu 32—25,
og var sigur KR aldreí í hættu,
sem höföu forystuna allan tím-
ann, en aöeins einu sinni var
jafnt, 3—3. KR-liðið var mjög gott
í leiknum, alfir áttu góöan leik, en
þó einkum Jens Einarsson í
markinu sem sýndi stórgóða
markvörslu.
Leikurinn fór fremur rólega af
staö, KR-ingar náöu forystunni
strax, en hún varö þó ekki meiri en
eitt til tvö mörk, en staöan í hálfleik
var 15—13.
Strax á fyrstu mínútum seinni
hálfleiks breyttu þeir bræöur,
Gunnar og Alfreð, stööunni í
16—13, og 5 mínútum síöar var
staöan oröin 21 —14. Þaö var
einkum góöur varnarleikur sem
gerði gæfumuninn hjá KR-ingum
og ef skot fór í gegnum vörnina
varöi Jens þaö, en alls varöi hann
21 skot í leiknum. Þaö sama er
ekki hægt aö segja um FH-vörn-
ina, sem var hriþlek aö þessu
sinni, auk þess sem markveröirnir
vöröu lítið. KR-ingar héldu þessari
forystu allt til loka leiksins, án þess
aö FH ætti glætu á aö jafna, og
sanngjarn sigur lenti því KR megin,
32—25.
Eins og fyrr segir var KR-liöiö
mjög jafnt, allir voru góöir, hvort
KR — FH
32—25
heldur var í sókn eöa vörn, og Jens
síöan í markinu.
FH-ingar voru algerlega heillum
horfnir, náöu aldrei upp spili aö
neinu gagni og vörnin var opin. Ef
einhverja á aö tína út, þá eru þaö
helst Kristján og Sveinn.
Mörk KR: Anders Dahl og Stef-
án Halldórsson 8, Anders 2v., Jó-
hannes Stefánsson 7, Alfreö Gísla-
son 6 og Gunnar Gíslason 3.
[ HanflKnalliemur)
v.#' v.#'
Mörk FH: Hans Guðmundsson
6, Kristján Arason 5 (1v.), Sveinn
Bragason og Guðmundur Magnús-
son 4 hvort, Pálmi Jónsson 3,
Guöjón Árnason 2 og Valgarð
Valgarösson eitt mark.
Varin vítaköst: Engin.
Brottvísanir af leikvelli: Pálmi
Jónsson hjá FH tvisvar í 2 mín. Hjá
KR var Alfreö vikiö tvívegis útaf í 2
mín., síðan var Stefáni Halldórs-
syni og Anders Dahl vísað útaf í 2
mín. hvorum.
v ^ Y.#'
Enn vantaði herslu-
muninn hjá Stjörnunni
STJARNAN róð ekki viö KR á
sunnudagskvöldið (úrslitakeppni
1. deildar í Höllinni. Þrátt fyrir að
KR léki ekki eins vel og liðiö get-
ur mátti Stjarnan sætta sig viö
tap. Stjarnan stendur í liðunum
þremur, FH, KR og Víkingi, ( úr-
slítakeppninni, en alltaf viröist
vanta herslumuninn aö liðið nái
að sigra.
KR vann á sunnudaginn 24:21
og voru KR-ingar yfir (12:10) í hálf-
leik. Sigur KR var aldrei í hættu þó
munurinn væri oft ekki mikill. Liölð
skoraöi tvö fyrstu mörkin en
Stjarnan náöi aö jafna og jafnt var
um tíma. KR-ingar reyndar alltaf á
undan aö skora. KR var svo eitt til
tvö mörk yfir þar til nokkrum mín.
fyrir hlé er Eyjólfi Bragasyni tókst
aö jafna, 9:9. Þá sigldi KR fram úr
aftur og var yfir (12:10) í hálfleik.
KR skoraöi tvö fyrstu mörk
seinni hálfleiks, staðan 14:10, en
þá skoraöi Stjarnan þrjú mörk í
röö. Munurinn kominn í eitt mark
og hélst hann þannig um tima. En
er Magnúsi Andréssyni var vikið af
leikvelli (tvær min. dró verulega af
Stjörnumönnum og staöan breytt-
ist fljótlega í 19:14 fyrir KR. Sigur-
inn því í rauninni í höfn þrátt fyrir
aö rúmlega 15 mín. væru eftir.
Stjarnan náöi ekki aö ógna veru-
lega. Nokkrum mín. fyrir leikslok
komst munurinn reyndar niöur í
tvö mörk, 22:20, en KR skoraði
svo þrjú síðustu mörkin.
Gunnar Einarsson, þjálfari
Stjörnunnar, kom inn á er líöa tók
á seinni hálfleikinn. Aö mínu viti
gerir Gunnar of lítiö af því að spila
meö liðinu. Hann spilar meöspilara
sína glæsilega upp og eru línu-
sendingar hans hreinasta gull.
Hann geröi hluti í gær sem varla
hafa sést hér á landi (mörg ár, t.d.
er hann sendi þrumuskot inn á lín-
una til Magnúsar Teitssonar frá
miöju. Þeir eru ekki margir sem
reyna þaö. Gunnar var reyndar
seinheppinn meö skot sín í leikn-
um og sum hver voru þau ótíma-
bær.
Eyjólfur Bragason var atkvæöa-
mikill í sóknlnni hjá Stjörnunni,
skoraöi 10 mörk, Magnús Teitsson
geröi 5, Magnús Andrésson, Sig-
urjón Guömundsson og Guö-
mundur Þóröarson 2 hver (Guö-
mundur eitt úr víti). Haukur Geir-
mundsson, sem lék meö KR aö
nýju eftir nokkurt hlé, sýndi
skemmtilega takta og var hann
markahæstur meö 6 mörk. Stefán
Halldórsson skoraöi 5, Alfreð 4,
Anders Dahl 4 (1 v.), Jóhannes 3,
Gunnar 1 og Ragnar 1.
Sóknarleikur liöanna var oft á
tíöum nokkuö góöur en varnarleik-
urinn ekki ýkja sterkur aö sama
skapi. Sérstaklega þurfa Stjörnu-
menn aö laga hjá sér vörnina.
Brottrekstrar af velli: Anders
Dahl KR, Sigurjón Guömundsson
og Magnús Andrésson, Stjörnunni,
fóru allir út af í 2 mín. Eitt víti fór
forgöröum í leiknum, Gísii Felix
varöi frá Eyjólfi.
— SH
1. deild:
Staðaní
lokakeppninni
Nú er tveimur umferðum í úrslita-
keppninni í 1. deild um íslands-
meistaratitilinn í handknattleik lok-
ið. Hvert lið hefur leikið sex leiki.
Úrslit í leikjum helgarinnar urðu
þessi:
FH — Stjarnan 24—22
Víkingur — FH 23—22
Víkingur — KR 28—26
KR — Stjarnan 24 21
Víkingur — Stjarnan 23—20
FH — KR 25—23
Staðan að loknum þessum um-
ferðum er nú þessi:
KR 6 4 1 1 150—133 9
Víkingur 6 4 0 2 138—139 8
FH 6 3 1 2 142—140 7
Stjarnan 6 0 0 6 116—134 0
Næsta umferð veröur leikin 8., 9.
og 10. apríl. Eins og sjá má á stöð-
unni hér að ofan er hún mjög jöfn
og enn eiga þrjú lið jafna möguleika
á að hreppa íslandsmeistaratitilinn
í ár. Þaö veröur því mikil spenna í
síöustu tveimur umferðunum.
— ÞR.
FH-ingar aðeins í gang og áttu
mun meira í leiknum, voru oftast
meö tveggja til þriggja marka for-
ystu. Undir lokin náöi Stjarnan aö
minnka muninn niöur ( eitt mark,
og þegar nokkrar mínútur voru ,'il
loka leiksins var staðan 23—22.
Kristján Arason geröi sigurvonir
Stjörnunnar hins vegar aö engu er
hann skoraöi 24. mark FH úr víta-
kasti rétt áöur en leiktímanum
lauk.
Pálmi Jónsson og Kristján Ara-
son voru atkvæðamestir í liöi FH,
en sá fyrrnefndi geröi marga lag-
lega hluti í fyrri hálfleiknum og
skoraöi fimm mörk. Auk þessara
tveggja voru markveröirnir Sverrir
og Haraldur ágætir.
í Stjörnunni var Eyjólfur Braga-
son drjúgur, skoraöi 8 mörk og átti
fallegar línusendingar sem gáfu af
sér mörk. Brynjar Kvaran var og
góður eins og fyrri daginn og hirtl
ein 14 skot.
Mörk FH: Kristján Arason 7,
Pálmi Jónsson 6, Sveinn Bragason
og Hans Guðmundsson 4, Guö-
mundur Magnússon 2 og Valgarö
Valgarösson eitt mark.
Mörk Stjörnunnar: Eyjólfur
Bragason 8, Magnús Teitsson og
Ólafur Lárusson 4, Sigurjón Guö-
mundsson 3, Guðmundur Þóröar-
son 2 og Guðmundur Óskarsson
1.
Brottrekstur af leikvelli: Ólafur
Lárusson í tvær mín. og Sigurjón
tvisvar í tvær min. Hjá FH var þeim
Hans og Pálma vikið út af í tvær
mín hvorum.
Misheppnuö vítaköst: Kristján
Arason skaut í stöng úr einu víti
FH-inga. Haraldur Ragnarsson
varöi víti Ólafs Lárussonar þegar 3
mínútur voru eftir af leiktfma.
• „Má bjóða þér upp í dans?“ Þorbergur Aöalsteinsson og Kristján
Arason fá sér snúning í leiknum á sunnudagskvöldiö. Víkingarnir áttu
síðasta orðiö í þeim leik og unnu. Ljó«m. köe.
• Alfreð Gíslason í baráttu viö varnarmenn Stjörnunnar á sunnudagskvöfdið, þé
Magnús Teitsson og Ólaf Lárusson. L>6Mn. köe.
FH-INGAR áttu ( heilmiklu basli
með aö vinna sigur á Stjörnunni (
úrslitakeppninni ( handbolta á
laugardaginn, og má segja að úr-
slitin hafi ekki ráöist fyrr en rétt
áöur en leiktfminn rann út, en þá
hafði FH skorað 24 mörk en
Stjarnan 22. Leikmenn FH lögðu
sig ekki alla fram viö leikinn og
var sem alla baráttu vantaði (spil
liðsins.
Leikurinn var nokkuð jafn og
spennandi, en bauð hins vegar
ekki upp á fallegt spil.
Þaö var Olafur Lárusson sem
skoraöi fyrsta markiö og var þaö
annaö skiptiö sem Stjarnan komst
yfir. FH-ingar jöfnuðu strax og
Pálmi Jónsson skoraði þrjú mörk í
röö og staðan 4—2. Stjarnan
komst síöan aftur yfir, 5—4, en
síðan ekki söguna meir. Jafnt var á
flestum tölum fram aö hálfleik en
Pálmi kom FH-ingum tvelmur
mörkum yfir fyrir hlé, 14—12.
í seinni hálfleiknum fóru
FH í basli með Stjörnuna
Víkingar voru mun sterkari
á lokakaflanum og sigruðu
Víkingar komu taplausir úr
annarri umferð úrslitakeppninnar
í handbolta, sigruöu síðast
Stjörnuna í jöfnum og spennandi
leik með 23 mörkum gegn 20.
Liðin léku bæði góðan varnarleik,
en Víkingar léku mun betri sókn-
arleik, og það réði úrslitum.
Stjarnan byrjaöi vel, skoraöi tvö
fyrstu mörkin og hafði forystuna
fyrstu mínúturnar, en þó aldrei
meira en eitt mark. Um miöjan fyrri
hálfleikinn fóru Víkingarnir svo í
gang og meö beittum sóknarleik
náöu þeir fjögurra marka forskoti,
9—5. Víkingar héldu sínum hlut
fram aö hléi, en staöan ( hálfleik
var 12—11. Gunnar Einarsson,
þjálfari Stjörnunnar, kom sínum
mönnum til hjálpar rétt fyrir hlé og
geröi marga laglega hluti, m.a.
fjögur mörk.
Seinni hálfleikurinn var mjög
jafn framan af og jafn á flestum
tölum, eöa þangaö til aö staöan
var 16—15. Þá sigldu Víkingar
fram úr, náöu þriggja marka for-
Víkingar
Stjarnan
23:20
• ♦
v.#'
ystu, 20—17, og héldu henni allt til
loka leiksins, úrslitin því 23—20.
Víkingarnir voru nokkuö jafnir í
þessum leik, en bestur var þó
Þorbergur, sem skoraöi grimmt. Af
öörum mönnum voru þeir Ellert í
markinu og Hilmar á línunni góöir,
og varöi Ellert ein 9 skot.
Brynjar Kvaran, markvöröur,
varöi sérlega vel (15 skot), en af
útisþilurum voru þjálfarinn Gunnar
Einarsson ásamt Ólafi Lárussyni
bestir.
Mörk Víkings: Þorbergur Aðal-
steinsson 9 (4 v.), Viggó Sigurðs-
son 4, Siguröur Gunnarsson, Hilm-
ar Sigurgíslason og Ólafur Jóns-
son 3 og Guömundur Guðmunds-
son eitt mark.
Mörk Stjörnunnar: Gunnar Ein-
arsson og Ólafur Lárusson 5,
Gunnar (1 v.), Magnús Andrésson
4, Magnús Teitsson og Eyjólfur
Bragason 2, Eyjólfur 1 v., Guö-
mundur Óskarsson og Guömundur
Þóröarson eitt mark hvor.
Varin vítaköst: Brynjar varöi frá
Viggó og Þorbergi, Ellert varöi eitt
víti frá Eyjólfi.
Brottvísanir af leikvelli: Magnús
Andrésson og Gunnar Einarsson í
Stjörnunni í 2 mín. hvor: Hjá Vík-
ingi var Hilmari vikið tvívegis i 2
mín.
— BJ.
Knatt-
spyrnu-
úrslit
ÚRSLIT leikja (Englandi:
1. deild
Birmingham — Notta County 3—0
Bríghton — Aaton V. 0—0
Everton — Arsenal 2—3
Luton — Sunderl. 1—3
Man. City — Ipswich 0—1
Norwich — West Ham 1—1
Nott. For. — Southampton 1—2
Stoke — Watford 4—0
Swansea — WBA 2—1
2. deild
Blackburn — O.P.R. 1—3
Bolton — Derby 0—2
Cambridga — Burnlay 2—0
Chelsea — Barnsley 0—3
Fulham — Grimsby 4—0
Leeds — Crystal P. 2—1
Middlesbr. — Charlton 3—0
Newcastle — Leicester 2—2
Rotherham — Charlísle 1—2
Sheff. Wed. — Shrewsbury 0—0
Wolves — Oldham 0—0
Bournemouth — Newport 0—1
Brentford — Huddersfield 1—0
Cardiff — Lincoln 1-0
Chesterfield — Preston 1—1
Exatar — Bradford City 2—1
Oxford — Plymouth 1—1
Portsmouth — Bristol R. 1—0
Southend — Sheffield U. 3—1
4. daild
Blackpool — Northampton 0—0
Brístol C. — Mansfield 3—1
Chester — Aldershot 1—1
Darlington — Stockport 3—1
Hartlepool — Hereford 0—1
Hull City — Port Vale 1—0
Rochdale — Peterbr. 1—1
Torquay — Bury 2—3
Yorfc — Swindon 0—0
ÚRSLIT leikja I Skotlandi:
Celtic — St. Mirren 1—1
Dundee Utd. — Hibernian 3—3
Kilmarnock — Rangers 0—1
Morton — Aberdeen 1—2
Motherwell — Dundee 1—1
1. deild
Alloa — Dunfermline 1—1
Dumbarton — Airdrie 1—1
Falkirk — Hamilton 1—1
Hearts — Clyde 3—1
Partick Thiatle — Ayr 3—1
Raith — Clydebank 1—3
St. Johnatone — Queen’e Park 2—1
SKOTLANDSURVALSDEILD
Aberdeen 28 20 4 4 59—21 44
Celtic 28 19 5 4 69—30 43
Dundee Utd. 28 17 8 3 68—28 42
Rangers 29 9 12 8 38—30 30
Dundee 29 8 9 12 38—45 25
St. Mirren 29 7 11 11 35—42 25
Hibemian 28 5 13 10 25—38 23
Motherwell 29 9 4 16 32—57 22
Morton 29 5 8 16 28—59 18
Kilmarnock 29 3 8 18 24—66 14
ÚRSLIT leikja í Hollandi um helgina:
Utrecht — Feyenoord 1—1
Willem 2 — Helmond Sport 4—0
AZ '67 Alkmaar — Fortuna SittardO—0
Roda JC — GA Eaglea 2—0
PEC Zwolle — Ajax 1—2
FC Twente Enschede — Haarlem 2—4
Nec Nijmegen — Nac Breda 1—1
PSV Eindhoven — Excelsior 4—3
Sparta — FC Groningen 3—3
Staðan f 1. deild:
Ajax 27 20 $ 2 77- -28 45
Feyenoord 27 18 8 1 58—29 44
PSV 27 17 8 2 67- -28 42
FC Groningen 27 8 14 5 50—40 30
Sparta 27 9 11 7 50—41 29
Roda JC 27 11 7 9 44—34 29
Haaríem 27 11 7 9 31—36 29
Fortuna 27 9 9 9 30—32 27
AZ -67 27 10 6 11 36—26 26
Exceleior 27 10 6 11 36—35 26
FC Utrecht 27 9 8 10 40—43 26
Hetmond 27 6 7 12 36—53 23
Wiltom 2 27 6 7 14 35—43 19
PEC Zwolle 27 6 7 14 34—47 19
GA Eaglea 27 5 9 13 30—53 19
FC Twente 27 4 10 13 26—«6 16
NEC 27 3 12 12 24—49 18
NAC 27 4 9 14 23—60 17
ÚRSLIT leikja á Italfu:
Aacoli — Napoli 2—1
Avellino — Sampdoria 0—0
Cagliari — Verona 2—1
Catanzaro — Piaa 0—2
Fiorentina — Roma 2—2
Genoa — Inter Milano 2—3
Torino — Juventua 3—2
Udineee — Ceaena 3—1
SteAan i 1. deild:
Roma 25 13 9 3 39 22 35
Juventus 25 11 9 5 36 20 31
Inter 25 9 12 4 33 21 30
Verona 25 10 10 5 32 26 30
Torino 25 9 11 5 28 18 29
Fiorentina 25 9 9 7 31 23 27
Udinese 25 5 17 3 21 22 27
Sampdoria 25 7 12 6 21 22 26
Cagliari 25 8 12 7 21 27 24
Genoa 25 6 11 8 29 31 23
Avellino 25 8 11 8 23 29 23
Pisa 25 7 8 10 25 26 22
Ascoli 25 7 8 10 27 30 22
Napoli 25 4 12 9 19 29 20
Cesena 25 3 12 10 18 31 18
Catanzaro 25 2 9 14 18 44 13