Morgunblaðið - 29.03.1983, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983 27
Phil Mahre varð heimsmeistari þriðja árið í röð:
„Ég hef ekkert annað markmið
en það að hafa ánægju af íþróttinni
áá
PHIL MAHRE var fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem vann heimsmeistara-
titil í skíðagreinum og nú þriðja árið í röð. í síðustu viku sigraöi hann
sænska skíöakónginn Ingemar Stenmark og aðra keppendur í Aspen
og Vail í Colorado í Bandaríkjunum og varði þar með heimsmeistara-
titil sinn í skíðagreinum. „Evrópubúar eru ekki svo miklir ferðamenn
og af er látið,“ sagöi Mahre í meðaumkunartón. „Þeir sakna fjallanna
sinna.“
Stenmark saknar heimsmeistaratitilsins: „Ég er vonsvikinn,“ sagði
fyrrverandi konungur skíðaíþróttarinnar og þrefaldur sigurvegari á
undan Phil Mahre. „Mér er til efs að ég verði nokkru sinni heimsmeist-
ari aftur.“ Svo miklir eru yfirburöir Mahres.
Heimsmeistaratitíllinn í kvennagreinum hafnaði einnig í Bandaríkj-
unum þetta árið. Hin 20 ára Tamara McKinney bar sigurorð af öðrum
keppendum og er það jafnframt í fyrsta skípti sem sá heimsmeistara-
titill hafnar hjá Bandaríkjamanni. „Ég trúi þessu varla ennþá, en mér
líður stórkostlega," sagði McKinney. „Ég var óneitanlega dálítíð tauga-
óstyrk í keppninni í dag, en ég keyrði eins hratt og ég gat.“ Þegar
fyrrverandi heimsmeistari, Erika Hess frá Sviss, varð fyrir því óláni aö
detta í keppninni í síöustu viku, komst McKinney upp úr þriðja sætinu
og skaut bæöi Hess og Hanni Wenzel frá Liechtenstein aftur fyrir sig.
Þessa daga, sem hún kallar sjálf bestu daga sína á skíðaferlinum,
sigraði hún í tveimur stórsvigskeppnum, sem voru hennar fjóröi og
fimmti sigur á þessum vetri. „Ég tefldi á tvær hættur og lagöi allt í
sölurnar,“ sagöi hún.
Phil Mahre haföi ekki, þar til í
síöustu viku, unnið eina einustu
keppni, þó svo samanlagður
árangur hans í svigi, stórsvigi og
bruni væri sá besti. En sigrar hans
tveir í stórsvigi glöddu hann meira
en heimsmeistarabikarinn sjálfur.
„Ég veit þaö ekki, þaö er einhvern
veginn þannig, aö hver einstök
keppni er mér meira viröi. Maöur
hugsar ekki um bikarinn fyrr en
eftir á. Keppnirnar eru hápunktur
skemmtunarinnar og ég tek þátt í
þeim ánægjunnar vegna."
Þrátt fyrir bjart og áhyggjulaust
líf og mikla velgengni í skíöagrein-
inni, viröist þaö ekki hafa stigið
Phil Mahre til höfuös. Hann er orö-
inn svo frægur í Evrópu, aö þegar
hann, fremsti skíöamaöur heims,
kemur heim til Bandaríkjanna er
hann feginn því aö enginn tekur
eftir honum. „Líklega eru fáir Am-
ertkanar sem gera sér grein fyrir
afrekum mínum," segir Mahre.
„Þaö er miöur fyrir skíðaíþróttina,
en gott fyrir mig. Ég er ekkert fyrir
frægö og frama.“ Sjálfum finnst
honum hann ekkert einstakur. „Ég
óist upp í snjó,“ sagöi hann og
yppti öxlum, „og þar þótti sjálf-
sagöur hlutur aö börnin færu á
skíöi eftir skólatíma." Þaö geröu
einnig hin níu Mahre-systkini.
Faöir þeirra, Dave Mahre, fram-
kvæmdastjóri „White Pass“-skíða-
svæðisins, gaf öllum börnunum
skíöaútbúnaö og dálitla ævintýra-
þrá. Á síöasta ári barst honum
fregnin um heimsmeistaratitil son-
ar síns frá litlu feröaútvarpstæki
þar sem hann hékk í kaöli utan á
fjallinu Mount Everest, þá 55 ára
aö aldri.
„Til allrar hamingju," heldur Phil
Mahre áfram, „haföi ég hæfileika
og sem betur fer átti ég tvíbura-
bróöur, sem kom inn hjá mér þeirri
hvöt aö þurfa alltaf aö vinna hann.
Og samt voru á sama tíma sigrar
hans sem mínir. Þaö er ekki svo
gott aö útskýra þetta."
i fyrra hafnaöi Steve Mahre í
þriöja sæti á eftir bróöur sínum
Phil og Stenmark. í vetur átti hann
viö meiðsli aö stríöa í annarri öxl-
inni og var í níunda sæti i síöustu
viku. Fyrir 25 árum (á fæöingar-
degi þeirra) var Steve fjórum mín-
útum á eftir bróöur sínum, enda
segir hann í gamansömum tón:
„Ég hef veriö aö reyna aö ná hon-
um allt frá þeirri stundu." Það er
honum huggun, aö hann minnkaði
bilið niöur í eina sekúndu í keppni
einni niöur brattar fjallshlíðar.
Þaö er fleira líkt meö þeim
bræörum en fallegt, breitt bros og
hár sem er aö þynnast. Þeir eiga
báöir nýfæddar dætur og þrá aö
komast heim í Cascades í Wash-
ington. „Feröalögin eru ekkl svo
• Svíinn Stenmark é ekki von é þv( að hann endurheimti nokkurn
tíma heimsmeistaratitil sinn aftur.
• Besti skíðamaður heims, Bandaríkjamaöurinn Phil Mahre. Heimsmeistari é skíðum síöastliöin þrjú ér.
• Hin tvftuga Tamara McKlnney
é framtíöina fyrir sér. Hún var aö
vinna sinn fyrsta heimsmeistara-
titil.
skemmtileg lengur,“ sagöi Phil,
„og óæskileg fyrir fjölskyldulíf. Ég
ætla aö taka mér frí í sumar og sjá
svo til.“
Ólympíuleikarnir myndu án efa
opna honum leiöina til Sarajevo,
Júgóslavíu, nk. febrúar, en hann
segir sjálfur: „Ég hef í rauninni
ekkert annaö markmið en þaö aö
hafa ánægju af íþróttinni. Ef ég fer
á Ólympíuleikana verö ég aö vera
vel upplagður og heppinn einhvern
ákveöinn dag.“ j Lake Placid áriö
1980 varö hann í ööru sæti á eftir
Stenmark, en hann hefur nú flutt
lögheimili sitt til Monaco vegna
skattbyröar í heimalandi sínu og er
oröinn atvinnumaöur í skíðaíþrótt-
inni og hefur þar meö bundiö endi
á keppnisferil slnn á Ólympíuleik-
um.
Samkvæmt áhugamannareglum
hefur Phil Mahre líklega ekki nema
nokkur hundruð þúsund dollara í
aöra hönd. „Éf ég lendi í þriöja
sæti á Ólympíuleikum og hef gam-
an af keppninni, þá er ég salla-
ánægöur,“ sagöi Mahre.
Hvaö fjárhaginn snertir er Phil
Mahre vel settur. Maöur sér ekKi
mynd af Phil né öörum skíöakappa
án þess aö á þeim séu einhver
auglýsingaheiti. Þegar Phil var
spurður hvort hann ætlaöi aö Ijúka
keppnistímabilinu í Japan, svaraöi
hann: „Vissulega, ef ekki fyrir mig
sjálfan, þá fyrir fyrirtækin mín.“
Billy Kidd, fyrrverandi skíöa-
kóngur í Bandaríkjunum um 1960,
var áhorfandi þegar Phil Mahre
kom sem sigurvegari í markiö í
Aspen og furðaöi sig á því hvaö
Phil metur lítils titla og frægö.
„Viðurkenningar, fé og bækur,“
sagöi Kidd, „lætur hann sér fátt
um finnast. Þaö eina sem kemgt
aö hjá honum er aö hafa gaman af
keppninni. Þó ber ekki svo aö
skilja aö hann geti aldrei veriö al-
varlega þenkjandi. Þaö er hreint
ótrúlegt aö hann, sem hugsar
svona, skuli vera svona góöur.
Umfram allt er hann góöur íþrótta-
maður.”
Á skólaárum sínum stundaöi
Mahre alls kyns íþróttir og naut sín
best í fjörugum og ærslafullum
boltaleikjum. Kvöldið fyrir loka-
keppnina um heimsmeistaratitilinn
á skíöum áriö 1981, en þar þurfti
hann aö ná einu af þremur efstu
sætunum til þess aö veröa heims-
meistari og þá jafnframt fyrsti
bandaríski heimsmeistarinn, lék
Phil Mahre körfubolta í þrjár
klukkustundir, þrátt fyrir ítrekaöar
aövaranir félaga sinna.
Þegar tvíburabræðurnir eru ekki
aö keppa í skíöagreinum, leggja
þeir stund á kappakstur og fær
ekkert þá ofan af þeirri iöju.
„Mörgum finnst ég brjálaður,“ seg-
ir Phil, „en þetta eru allt leikir og
leikir eru til þess aö hafa ánægju af
þeim.“
Fyrir þaö hvaö Phil er mikill
íþróttamaöur og í góöri líkamlegri
þjálfun, getur hann tekiö svo frá-
bærar beygjur í skíöabrautinni
sem raun ber vitni; aörir meö
minni áhuga fyrir íþróttum myndu
líklega aldrei reyna aö leika þaö
eftir. Hann markar svo skörp
skíöaför í snjóinn, aö þeim sem á
eftir honum koma og lenda í þeim,
á undantekningalaust eftir aö
hlekkjast á í brautinni.
McKinney hefur mjög fallegan
stil og svo mjúkan og llpran aö
sagt er aö hún „kyssi snjóinn“ í
brautinni, og mikill hraöi er henni
aö skapi.
Vist er aö Bandaríkjamenn eiga
lengi eftir aö hreykja sér af þessari
„tvennu“. Og eins og Mahre sagöi:
„Ef til vill eygja margir Bandaríkja-
menn frægöarvon í skíðagreininni
á næstu árum.“
Eftir keppnina í Aspen stóöu
Phil Mahre og Stenmark hliö viö
hliö og köstuöu mæöinni eftir
keppnina. Mahre var berhöföaöur
en Stenmark bar húfu meö dúski á
höföi. Dúskurinn sveiflaöist til þar
sem margfaldur heimsmeistari
skíöagreinarinnar hristi höfuöið,
tók síöan í hönd heimsmeistarans
Phil Mahre. Stuttu seinna spuröi
Stenmark hvernig hann ætlaöi aö
gera sér dagamun. „Ja, þaö veit ég
ekki,“ sagöi Mahre. „Kannski fæ
ég mér súkkulaöiköku.”