Morgunblaðið - 29.03.1983, Blaðsíða 31
39
ósérhlífni, sem átti sér örugglega
fáar hliðstæður. Hann lét ekkert
aftra sér frá gönguferðum með
börnin og þau voru ófá sporin eftir
alls kyns duttlungum smáþjóðar-
innar.
Á sínum yngri árum var Torfi
mikill áhugamaður um fótbolta,
spilaði með Val árum saman og
var alla tíð Valsari í anda. Hann
var lítið fyrir að láta á sér bera,
maður hæglátur en viðræðugóður
og vildi allra vanda leysa. Á
stundum var með ólíkindum
hversu margir þekktu þennan
hægláta mann, en sama segul-
magnið og dró öll börn að honum
virtist ekki láta aðra samferða-
menn ósnortna heldur.
Núna á krossgötum í samskipt-
um okkar Torfa er áleitin hugsun-
in um áhrifin, sem hann hafði inn-
an fjölskyldunnar. Ætíð rólegur,
yfirvegaður og skilningsríkur, en
umfram allt vinur í raun. Sem eig-
inmaður og faðir átti hann örugg-
lega fáa sína líka. Torfi bar ekki
tilfinningar sínar á torg og þakka
skyldi almættinu að í lokin var
honum hlíft við löngum sjúkra-
húslegum.
Um leið og ég bið um styrk til
handa hans allra nánustu, sem nú
eiga erfiðar stundir þykist ég þess
fullviss að hans bíði á öðru
tilverustigi hinar bestu móttökur.
Hjá hinum eftirlifandi stendur
minningin um góðan dreng og
þakkir fyrir lærdómsríka sam-
fylgd.
Jónatan Ólafsson
Tilvalin
tœkifœris
gjöf
Soda Stream tækiö er tilvalin gjöf við öll tækifæri.
Geriö sjálf gosdrykkina
og sparið meira en helming.
Sól hf. Þverholti 19, sími 91-26300
hreint og meira að segja soðnu
eggin hennar ömmu brögðuðust
betur en nokkur önnur, að ekki sé
minnst á „ömmukökuna".
Hennar ævistarf var unnið háv-
aðalaust inni á heimilinu, eins og
var hlutskipti flestra kvenna af
hennar kynslóð. Sjö mannvænleg-
um börnum skilaði hún út í lífið og
öllum var hún góð. Amma var vel
greind kona og metnaðargjörn á
sinn hógværa hátt. Barnaskólann
á Látrum rækti hún af kostgæfni
og einnig stundaði hún nám við
Húsmæðraskólann á ísafirði vet-
urinn 1916—1917. Ekki var slík
skólaganga algeng þar í sveit á
þessum tíma og ber það ljósan
vott um framfarahug og trú á
gildi menntunar, að faðir hennar
gerði henni kleift að stunda þetta
nám.
Gaman þótti okkur systkinun-
um að sögunni um „baráttuna um
efsta sætið" í barnaskólanum.
Amma hafði Iegið veik og ekki
komizt í skólann. Einn skóla-
bræðra hennar hugsaði sér gott til
glóðarinnar að hreppa nú efsta
sætið á prófinu um vorið, en mikil
voru vonbrigði hans, þegar amma
birtist, gangandi um langan veg
þó lasin væri, til að taka prófið og
hélt sínu sæti eins og venjulega.
Þessi einstaka seigla og baráttu-
vilji einkenndi hana alla tíð og gaf
henni styrk til að rísa undir ýms-
um áföllum, sem hún varð fyrir á
langri ævi, svo sem ástvinamissi
og heilsuleysi.
Amma fór vel með allar Guðs
gjafir og hafði megnustu skömm á
notkun áfengis og tóbaks og er það
haft að orðtaki meðal okkar unga
fólksins, sem höfum svipaða af-
stöðu, að hann/hún séu af „Mið-
víkurættinni", þ.e. eins og amma.
Þrátt fyrir söknuð og eftirsjá,
gleðjumst við nú, þegar amma er
laus við fjötra þessa útslitna lík-
ama, því seinustu árin voru henni
erfið. Allt var gert, sem í mann-
legu valdi stóð, til að gera henni
tilveruna bærilega, en enginn gat
gefið henni starfsorkuna aftur.
Getan var orðin svo lítil en hug-
urinn stór sem fyrr og það tók í
hjartað að sjá þessar órólegu
hendur, sem flögruðu yfir sængina
og gátu ekkert lengur.
En nú er löngu og viðburðarríku
lífi lokið og hafi nokkur átt skilið
góða heimkomu, þá er það hún
amma. Afi, Sveinarnir hennar
báðir og Sigríður hafa vafalaust
tekið þar á móti henni og við biðj-
um Guð að geyma hana og gefa
okkur styrk til að reyna að lifa
lífinu eitthvað í líkingu við það
sem hún gerði.
Sigríður og Theódór
Vinnubillinn frá MAZDA
með mörgu
möguleikana
E 1600 pallbíllinn frá MAZDA hefur
þegar sannað ágæti sitt við fjöl-
breyttar aðstæður í íslensku
atvinnulífi. Hann er frambyggður,
með 1 tonns burðarþoli, byggður á
sterkri grind og með tvöföldum
afturhjólum. Hann er óvenju
þægilegur í hleðslu og afhleðslu,
þar sem pallgólfið er alveg slétt og
án hjólskála og hleðsluhæðin er að-
eins 73 cm með skjólborðin felld
niður.
Örfáir bílar til afgreiðslu strax á sérstöku
afsláttarverði. Verð áður kr.
VERÐ NÚ KR.
174.198
GENGISSKR. 1.3.83
Athugið: Verð þetta getur hækkað
verulega eftir 6. apríl næstkomandi.
mazDa
BÍLABORG HF
Smiðshöföa 23 sími 812 99