Morgunblaðið - 29.03.1983, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 29.03.1983, Qupperneq 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1983 Það yrði eftirminnilegur dagur á þessu heimili ef maturinn væri til- Maðurinn minn veit ekki hvað r búinn þegar maður kemur í mat- svefnleysi er! inn! HÖGNI HREKKVÍSI nijhnr- Eitt skipa Hafskips í Reykjavíkurhöfn. Það er hægt að reka íslensk fyrirtæki vel „Reykvíkingur“ skrifar: „Allir landsmenn þekkja hinn mikla barlóm, sem einkennt hefur málflutning flestra þeirra er eitthvað koma nærri rekstri at- vinnufyrirtækja hér á landi hin síðari ár. Víðast hvar kveður við sama tón: Tap, samdráttur, erfið rekstrarfjárstaða, fjármagns- kostnaðurinn er að sliga atvinnu- lífið, uppsagnir blasa við og svo framvegis. Allt eru þetta kunnar stað- reyndir, og vitað mál, að helst er um að kenna örðugleikum í efna- hagslífi hér á landi, enda vandséð hvernig á að reka fyrirtæki í 50 til 70% verðbólgu ár eftir ár, og í stanslausri gengisfellingu, auk si- vaxandi skattbyrði á einstaklinga og fyrirtæki. t öllum þessum harmagráti, við allar þessar erfiðu aðstæður, kem- ur það þó fyrir að íslensk fyrir- tæki eru rekin með hagnaði, og þau eru til sem þrátt fyrir allt eru að auka umsvif sín. Það gladdi mig til dæmis mjög er ég sá i blaði um daginn, að Hafskip hf. hefði aukið flutninga sína verulega á síðasta ári, á sama tíma og flest skipafélög veraldar hafa verið að draga saman seglin. Ég veit ekki hvort hagnaður varð á rekstri Hafskips á síðasta ári, en svo mik- ið þykist ég þó sjá af þessum frétt- um, að félagið er á réttri leið. Það er þrátt fyrir allt hægt að reka íslensk fyrirtæki vel, og það jafn- vel í samkeppni við erlenda aðila sem hafa mátt horfa upp á sam- drátt á undanförnum árum og áratugum. Ég gladdist yfir þessari frétt um Hafskip, og vona að fyrirtækið haldi áfram á þessari braut.“ Sigurður Demetz Franzson skrifar: Kæri kollega, Guðrún Á. Símonar. Ég er nú aldeilis hissa á, hvernig þú lætur í Velvakanda okkar þann 6.3. Finnst þér ekki, að við þurf- um að vera þakklát honum koll- ega og framkv.stjóra Sinfóníu- hljómsveitar íslands, Sigurði Björnssyni, fyrir allt sem hann hefur boðið okkur í sambandi við óperuflutning í konsert- formi? Fimm heilar óperur!!!! Sem sagt 14 kvöld með aðsókn samtals 13.664 áheyrendur. Og allt gekk með prýði og sóma. Bara einu sinni var Traviata- konsert aflýst hálftíma fyrir sýningu. Ég get sagt þér, að fyrir utan mína persónulegu ánægju, var ennþá ánægjulegra að verða vitni að, hvað íslenskir óperu- unnendur voru hrifnir. Auðvit- að er einn og einn maður kannski ekki alveg sammála. Meira um Tosca Sérstaklega í hópi gamalla og ungra óperusöngvara. Það var víst synd, að þú gast eða vildir ekki koma sjálf og taka eftir hvað þessi síðasta „Tosca" hans Puccini vakti mikla hrifningu. Verk sem tekið er til flutn- ings, er fyrst og fremst gert fyrir almenning, án þess að skapa aðstandendum svefn- lausar nætur vegna þess hvað Petra eða Pálína (þú veist hvern ég meina) mundu hugsa eða segja. Maður verður líka að ráða söngfólk sem getur staðið sig í hlutverkinu. Operan „Fidelio" eftir Beethoven var flutt með þýskum söngvurum sem þýska sendiráðið bauð íslenskum áheyrendum. Fyrir „Othello" og „Aida“ eftir Verdi var nauð- synlegt að flytja inn útlenda tenóra, af því, eins og þú, sem óperusöngkona og söngkennari í Söngskólanum, veist, eigum við engan íslenskan tenór sem gat tekið þess konar hlutverk að sér. Og svo? Hvað um sópran? Sigurður Demetz Franzson og Guðrún Á. Sfmonar f Tosca.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.