Morgunblaðið - 27.04.1983, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 27.04.1983, Qupperneq 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983 Tage Voss og georgjedde. Drik eller druk — eftir Tage Voss og georgjedde Jóhanna Kristjónsdóttir I þessari bók hefur danski höf- undrinn og . furðufuglinn georgjedde skrifað um ofneyzlu áfengis, með dyggri aðstoð lækn- isins Tage Voss. Bókin er þó ekki í skrúðugum játningabókastíl, heldur miklu fremur skýringa og upplýsinga frásaga og sú aðferð sem þeir félagar hafa valið: að láta þá svona hálfpartinn skrif- ast á í bókinni kemur bara vel til skila. Tage Voss er ekki í dóm- arahlutverki, hann segir reyndar einhvers staðar á fyrstu blaðsíð- unum, „Ef maður finnur létti við það að drekka og líður betur full- ur, er eitthvað sjúkt við það að vera edrú“, en bætir þó við að „hins vegar sé öllu skynsamlegra að reyna að halda áfengisnotkun innan ákveðinna takmarka, þar sem fæstir hafa heilsu og pen- inga til að vera sífullir. Og með- an einhver þarf á manni að halda og þykir vænt um mann er þó nokkur ástæða til að reyna að halda í sér líftórunni. Sé svo ekki er út af fyrir sig skiljanlegt að menn geri lítið til að berjast á rnóti". Út frá þessari skoðun Voss ganga þeir síðan megnið af bók- inni. Rithöfundurinn georgjedde er 69 ára og hefur verið „manio- depressiv" í áratugi og lesanda skilst að hann telji sig hafa erft þann sjúkleika frá móður sinni. Sjúkdómurinn er honum erfið- astur viðfangs á veturna, þá drekkur hann sig augafullan langtímum saman til að losa sig undan fargi þungra þanka. End- ar svo á sjúkrahúsi eftir hvern túr. í hans augum er þessi bók tilraun til að lifa af — ekki með játningum eins og fyrr segir, heldur öllu frekar með því að átta sig á sjálfum sér. Hann seg- ir: Alkóhólismi er sjúkdómsein- kenni og ef flaskan er tekin frá alkóhólistanum og honum gefn- ar antabustöflur í staðinn, lok- um við í raun og veru öllum möguleikum á því að ná til meinsémdarinnar. Hún blundar en hún hverfur ekki.“ Og Tage Voss segir: „Ástæðan fyrir því að ég held áfengisneyzlu í skefj- um er sennilega sú, að foreldrar mínir innrættu mér ótta við það sem maður hefur ekki stjórn á. Áfengi getur örvað samræður og víst getur fólk verið fjörugt og skemmtilegt á vissu stigi áfeng- isnotkunar. En ég drekk ekki mikið, vegna þess að ef ég geri það verð ég svo þreyttur og timbraður daginn eftir og lífið er of stutt til að eyða því í timbur- mönnum og eymd. Mér leiðist að vera innan um drukkið fólk, það verður hávaðasamt, illþefjandi og það hlustar ekki á aðra — allra sízt mig (!). Þess vegna fer ég snemma heim úr slíkum sam- kvæmum. Þetta geta verið ein- hvers konar anti-viðbrögð. Það er misskilningur að fólk verði langtum andríkara og skemmti- legra undir áhrifum. Ef fólk tæki upp á band fylleríissam- kundu og spilaði hana svo þegar það er edrú myndi það heyra, hversu ömuleg líðanin verður eftir nokkur glös, hversu fárán- lega er talað og hve dómgreindin fýkur fljótt út í bláinn." Fram kemur að um 200 þús- und áfengissjúklingar séu í Danmörku, og þar af sé helming- ur sem viðurkennir sjúkdóminn sem slíkan. Þá er á það bent að áfengisnotkun kvenna hafi auk- izt þar mjög mikið og er það sama þróun og hefur orðið t.d. hér á landi og víðar. Á hinn bóg- inn eru 90 prósent þeirra sem leita sér lækninga í Danmörku, karlmenn, enda eru þeir sam- mála um að konur geti dulið drykkju sína lengur en karlar og drykkjuvenjur þeirra sé öðru- vísi. Hvort sem áfengismisnotkun er nú aumingjaskapur, sjúkdóm- ur sprottinn af félagslegum eða geðrænum ástæðum, er vandinn fyrir hendi. Það er nauðsynlegt að horfast í augu við og bók þeirra Voss og georgjedde er gagnlegt innlegg í umræður um þessi efni. Ribli-Torre 3—2: Ribli vann með svörtu Skák Margeir Pétursson Þó Portisch sé kominn á síðasta snúning í einvíginu við Korchnoi eiga Ungverjar þó enn von þar sem Zoltan Ribli er, því hann tók for- ystuna í einvígi sínu við Kugenio Torre frá Filippseyjum með því að vinna fimmtu skákina með svörtu, en hún var tefld á þriðjudaginn. Þeir Ribli og Torre eru báðir 31 árs og nýliðar í áskorendakeppn- inni. Lcngi vel gekk illa að finna einvígi þeirra stað, enda er það af mörgum talið minnst áhugaverðast af einvígjunum fjórum, en það er nú hafíð á sumardvalarstaðnum Alicante á Spáni. Báðir keppendurnir eru þekkt- ir sem mjög rólegir og yfirvegað- ir skákmenn og gangur fyrstu skákanna var í samræmi við það. Jafntefli var samið fljótlega eft- ir byrjunina í fjórum þeim fyrstu og það var ekki fyrr en eftir gróf mistök hjá Torre í tímahraki í fimmtu skákinni að eitthvað fréttnæmt fór að ger- ast. Taugaspennan í þessu ein- vigi er meiri en margan grunar, enda hangir mikið á spýtunni fyrir báða. Ribli kemur frá Úngverjalandi þar sem skák er í miklum hávegum höfð og Torre hefur fyrir löngu verið gerður að þjóðhetju heima á Filippseyjum, enda skákséní fáséð þar austur- frá. Þar að auki er Campomanes orðinn forseti FIDE og hann vill ólmur auka hróður Asíubúa í skákinni. Það er því mikið í húfi hjá báðum að komast a.m.k. áfram í undanúrslit þó ekki væri nema til að afla sér dýrmætrar reynslu fyrir næstu keppni. Fyrirfram var Ribli almennt álitinn sigurstranglegri því hann hefur sigrað á öllu sterkari mót- um en Torre. En þótt Filippsey- ingurinn standi andstæðingi sín- um að baki hvað reynslu og þekkingu varðar, hefur honum oft tekist að vinna óvænta sigra með þolinmæði og taugastyrk. Það er því of snemmt að afskrifa hann þrátt fyrir tapið í fimmtu skákinni. Hvítt: Kugenio Torre Svart: Zoltan Ribli Drottningarbragð 1. d4 — Rf6, 2. Rf3 — e6, 3. c4 — d5, 4. Bg5 — h6, 5. Bxf6 — Dxf6, 6. Rc3 - c6. Hvítur hefur látið biskupapariö af hendi en fær í staðinn nokkra yfírburði í rými. 7. e3 - Rd7, 8. Bd3 - Dd8, 9. 0-0 - Be7, 10. De2 Mun hvassara er 10. e4, en Torre kýs fremur að leita færa á drottningarvængnum. - 04), 11. Hfdl - f5!, 12. Habl - a6, 13. b4 - Bd6, 14. a4 - Rf6, 15. Hdcl — Re4, 16. Dc2 — Bd7. Ribli hefur stillt liði sínu upp með það í huga að draga úr áhrifum hvítrar árásar á drottn- ingarvæng, en Torre ræðst samt strax til atlögu: 17. b5 — axb5, 18. axb5 — I)e7, 19. c5 Hér kom einnig til greina að leika 19. Re5. - Bb8, 20. bxc6 — Bxc6, 21. Re2 - Df6, 22. Bb5 - f4!, 23. Rxf4 - Bxf4, 24. exf4 — Dxf4, 25. Hfl Það er greinilegt að byrjun- artaflmennska Torre hefur misst marks, en það eru þó enn ýmsir Ijósir punktar í hvítu stöð- unni, t.d. er möguleikinn Rf3-e5 fyrir hendi. - Ha3!, 26. Hb3? 26. Bxc6 — Hxf3 er hæpið fyrir hvítan, en langbezt er 26. Bd3, sem heldur í horfinu. T.d. ekki 26. - Ba4, 27. De2 - Rc3?, 28. Dxe6+ - Bxb5!, 27. Hxa3 Hvítur er varnarlaus eftir 27. Hxb5 - Hxf3!, 28. gxf3 - Hf5! — Bxfl, 28. Kxfl — g5! Vegna slæmrar kóngsstöðu sinnar fær hvítur nú enga björg sér veitt. 29. h3 — h5, 30. Ha2 — g4, 31. hxg4 — hxg4, 32. Re5 — Dh2, 33. f3 — Dhl +, 34. Ke2 - Dxg2+, 35. Kd3 — Hxf3+ og Torre gafst upp. Ótrú slær eigin herra Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Bíóhöllin: ÞRUMUR OG KLDINGAR („Creepshow") Leikstjórn: George A. Romero Handirt: Stephen King Kvikmyndataka: Michael Gornick Sérstakar förðunarbrellur: Tom Savini Aðalhlutverk: Hal Holbrook, Adri- enne Barbeau, Fritz Weawer, Leslie Nielsen, K.G. Marshall, Vi- veca Lindfors, Stephen King Bandarísk frá 1982. Creepshow, eða Þrumur og eld- ingar, er gerð í anda hryllings- myndasagnanna sem nutu mik- illa vinsælda um það leyti er höfundar þessarar myndar uxu úr grasi. Þ&E er nefnilega fimm, gríni blandaðar hrollvekjur í anda þessara bókmennta. Líkt og sögurnar í myndablöð- unum eru hinir fimm þættir Þ&E ærið misjafnir að gæðum, flestir nokkuð venjulegir og koma lítið á óvart — allavega þeim sem lesið hafa Night Shift, Kings. Þetta eru alltsaman nokkuð klassískar klisjur, eins og The Crate, þar sem mannætu- skrímsli finnst undir kjallara- tröppum og er síðan nýtt af eig- inmanni sem orðinn er lang- þreyttur á naggi og aðdróttunum drykkfelldrar ektakvinnu; They are Creepin Up On You er dæmi- gerð hryllingssaga af manni, einskonar Howard Hughes-týpu, sem hræðist og hatar kakka- lakka í gerilsneyddum heim- kynnum sínum og The Lonsome Death of Jody Verrill segir af ein- földum náunga sem fær send- ingu utan úr geimnum sem boð- ar ekkert gott. Saga af þeirri gerðinni sem frekar er ætluð til að örva brosið frekar en gæsa- húðina. Þá eru tveir kaflar enn ónefndir og eru þeir bestu hlutar myndarinnar. Annar, Father’s Day, er saga af draug sem vill fá kökuna sína en engar refjar á bóndadaginn. Fyndin, vel leikin og andrúmslofið oftast mettað spennu. Líklega vandaðasti hluti myndarinnar. Þá er ótalinn besti þátturinn — Something to Tide you Over, um hálfærðan, mynd- bandasjúkan eiginmann sem kemst að því að kona hans á í ástarsambandi við nágrannann. Hann hefnir sín á grimmilegan hátt með djöfullega kænskulegri aðstoð myndbandatækninnar. En sagan er ekki öll, því Romero gerði nú einu sinni Dawn of the Dead. Ég get ekki neitað því að í heild er ég ekki eins hress með Þ&E og ég reiknaði með. Ég er það mikill aðdáandi Kings að ég fæ bækur hans sendar í flugi er þær koma út erlendis, hef enga eirð í að þær skoli hér í hillur einhverntíma. Hér virðist þess- um, hvað mest lesna afþrey- ingarrithöfundi Bandaríkjanna í dag, nokkuð fatast flugið. í stað þess að iáta áhorfendur öskra úr hræðslu frekar en hlæja, líkt og höfundar lofuðu fyrirfram þá bregður manni jú, lítillega, ann- að slagið, en skopþáttur myndar- innar er mun sterkari. Hér svík- ur King aðdáendur sína og er ótrúr sjálfum sér og afleiðingin er ári misjöfn mynd sem nær sér aðeins tvisvar á flug af fimm flugtökum. Hinir þrír eru svona í meðallagi, minna eilítið á gömlu, (að manni fannst þá, góðu), AIP myndirnar í Hafnar- bíó, sáluga, t.d. Tales of Terror með höfðingjunum Vincent Price, Karloff og Peter Lorre, en tveir ná þeim gæðaflokki sem maður á að krefjast af King og Co. Hlutur George A. Romero, þess krassandi hryllingsmynda- leikstjóra, (Dawn of the Dead, Night of the Living Dead), er betri en Kings. Það er auðséð á vinnu- brögðum hans í Þ&E, að hann lumar á ýmsu fleiru í handrað- anum en þeim heljarhroða sem hann kvaldi áhorfendur á í fyrr- nefndum myndum. Hann á tví- mælalaust eftir að gera enn betri hluti í framtíðinni. (Þess má til gamans getaað Romero er einn uppáhaldsleikstjóri Kings, sbr. Danse Macabre, e. King, útg. 1981). Þ&E er ágætlega gerð tækni- lega í flesta staði, rann allavega snuðrulítið framhjá augum und- irritaðs. Leikur og leikaraval er með ágætum, minnisstæðastir Viveca Lindfors, Adrienne Barbeau, Leslie Nielsen og síðast en ekki síst King sjálfur í hlut- verki einfalds sveitamanns í þættinum The Lonsome Death of Jordy Verrill. Bara að hann hefði lagt sig jafnvel fram í handrits- gerð allra þáttanna. Þá hefði Þ&E ekki orðið aðeins þokka- legasta afþreying heldur þau gæsahúðarupptök sem maður reiknaði með frá hendi tveggja, hvað mestu hrollvekjusnillinga samtímans. VfeKrSCAKyMO/ie -m%eW 1 'M

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.