Morgunblaðið - 11.05.1983, Side 9

Morgunblaðið - 11.05.1983, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1983 41 Skammt stórra högga á milli hjá Egó: Magnús hættur og Norðurlanda- ferðin úr sögunni Það er skammt stórra högga á milli hjá Egó þessa dag- ana. Skýrt var trá því á Járnsió- unni um helgina, og reyndar hafði fréttin beðið lengi eins og ann- að efni síðunnar af óviðráðanlegum orsökum — að hljómsveitin væri á leið i tónleikaferðalag til Norðurlanda. Sú ferð mun nú vera dottin uppfyrir. Það er þó ekki versta áfallið, sem dynur á sveitinni þessa dagana. Járnsíðan hefur það fyrir satt, að Magnús Stefánsson, trommuleikari hljómsveitarinn- ar, hafi ákveðið að segja skiliö viö hana. Upphaflega mun sú ákvöröun hafa Grýlurnar fara hins veg- ar til Noröur- landa í tón- leikaferð staðið í tengslum við fyrirhugaöa Norðurlandaferð, en þegar hætt var við hana stóð karl fastur á sínu. Þegar þetta er skrifað er ekki vit- að hver kemur i hans stað, en víst er að skaröiö verður vandfyllt. Á sínum tíma hljóp Ásgeir, fyrrum Purrkur, í skaröiö hjá Egó vegna veikinda Magnúsar, en nú er hann fastamaöur í Puppets. Grýlur út í staðinn En þótt ekkert verði af fyrirhug- aöri utanlandsreisu Egósins aö sinni eru Grýlurnar senn á faraldsfæti. Þær munu leika víða í Danmörku og e.t.v. í Noregi og Svíþjóö. Hefst ferð þeirra nú upp úr miðjum mánuöi og stendur í nokkrar vikur. Verður sveit- in komin rétt tíman- lega heim fyrir brúökaup Herdís- ar Hallvarðsdóttur 2. júlí. Fyrir þá allra forvitnustu sakar e.t.v. ekki aö geta þess, að hún geng- ur í hjónaband með Richard Korn, bassaleikara Puppets. Magnús Stefánsson í vígamóö. Hallbjörn Hjartarson, sem fyrir löngu er orö- inn þekktur um land allt fyrir kúrekasöngva sína, sendi í síðustu viku frá sér þriöju sólóplötu sína og nefnist hún Kántrý-ll. Platan var tekin upp í lok mars. Á henni eru 12 lög, 10 eftir Hallbjörn en tvö eftir Jóhann G. Jóhannsson. Textarnir eru eftir ýmsa þekkta höfunda, m.a. Jón Sigurðsson o.fl. Um sjö ár munu nú vera liðin frá því Hallbjörn sendi frá sér fyrstu plötu sína og hét hún Hallbjörn syngur eigin lög og var gefin út af SG-hljómplöt- um. Hallbjörn gaf aðra plötu sína út sjálfur, Kántrý, og kom hún út fyrir tveimur árum. Seldist hún mjög vel og hefur verið ófáanleg æ síðan. Unnendur Hallbjarnar geta því bætt sér upp skortinn á þeirri plötu með hinni nýju Kántrý-ll, en þess má geta að gefiö veður út að nýju lítið upp- lag af Kántrý fyrir þá, sem vilja verða sér út um hana nú. Á þessari nýjustu plötu Hallbjarnar kveöur nokkuö við annan tón en á fyrri plötum hans. Tónlistin er að vísu sú sama og á Knatrý, þ.e. kúrekatónlist, en það er mál manna, að nú hafi honum tekist enn betur upp en þá. Söngur hans annar en var, lögin léttari og þá um leið fjölbreyti- legri og síðast en ekki síst meiri fjölbreytni í út- setningum. Við gerð Kántrý-ll naut Hallbjörn aöstoðar ým- issa færra manna, en upptökur annaðist Sigurður Rúnar Jónsson í Stemmu. Útgefandi plötunnar er HJH-hljómplötur. „Það er skammarlega lítið um íslenska tón- list í fjölmidlunum“ „Þáttur íslenskrar tónlistar í fjölmiðlum er skammarlega lítill," sagöi Hallbjörn Hjartarson, kántrýsöngvari af Skagaströnd, er Jórnsíðan ræddi við hann. „Sér ( lagi stendur sjónvarpið sig hörmulega. Þaö er aö mínu mati sterkasti menningarmiöillinn á landinu og »tti aö gera miklu meira fyrir íslenska tónlist en raun ber vitni.“ Hallbjörn hélt áfram: „Yfirgnæf- andi meirihluti tónlistar í útvarpi er erlendur og í ofanálag innan ákaf- lega þröngs ramma. Þaö er þetta dæmigerða dægurpopp, sem tröll- ríöur öllu. Þaö er enginn þáttur sérstaklega ætlaöur íslenskri tón- list. Sjónvarpið leikur varla nokk- urn tíma íslenska tónlist nú oröiö. segir kántrý- söngvarinn Hallbjörn Hjartarson Ég er alls ekki aö finna aö þátt- um á borð viö Skonrokk, sem eru mjög góöir til síns brúks, en þaö verður aö gera eitthvað fyrir okkar eigin tónlist. Þaö er óþarfi hjá sjónvarpinu aö demba yfir okkur erlendri tónlist, t.d. fyrir fréttir. Viö fáum nóg af erlendri tónlist í út- varpinu." Inn á hvert heimili Hvaö tónlist sína varðaöi sagöi Hallbjörn það ekki nokkurn vafa, að hún væri frumraunin hér á landi í kántrý-tónlist. Plötur hans kynnu því aö hafa mikiö söfnunargildi þegar fram liðu tímar. „Þetta eru plötur sem ég tel að ættu aö vera til á hverju heimili,“ sagöi hann. „Ekki endilega vegna þess, aö tónlist mín sé eitthvaö betri en annað, heldur vegna þess að hér er um frumraun að ræða. Kannski að ég þurfi aö hrökkva upp af til að fá viðurkenningu. Þannig er það iðulega erlendis," sagði Hallbjörn í lokin og glotti. Þess má geta að á næstu Járn- síðu verður birt viðtal viö þennan eina boðbera kántrýs á íslandi. Hljómsveitin Grafík sendir nú sína aóra plötu frá sér. nútímann og þau vandamál, sem að fólki steðja í dag. Og þó ekki ein- göngu vandamál, heldur kannski hluti sem eru ofarlega á baugi. I einu laginu er t.d. fjallað um líkamsrækt, í öðrum um danska sæðisbankann, • sem mörgum hefur orðiö hugleikinn. Reyndar vorum við upphaflega að hugsa um aö hafa enska texta viö lögin, en hættum síðan við það. Þaö má alltaf bæta úr því ef ástæöa er til.“ — Geriö þið ykkur e.t.v. einhverj- ar vonir um frama á erlendri grund? „Ég veit það nú kannski ekki, en vafalítiö lifa allir í voninni um slíkt. Þessi fáu eintök, sem fariö hafa til Bandartkjanna, hafa likað vel er okkur tjáð og við höfum sent nokkur kynningareintök af nýju plötunni vestur um haf.“ Einhverjum kann að þykja merki- legt, aö jafn fær sveit og Grafík komi frá stað eins og isafiröi. Ekki svo að skilja, að ísafjöröur sé eitthvað verri staöur en hver annar, en einhvern veginn er þaö nú svo, að maöur á von á allt öðru en góöri tónlist úr þeirri áttinni. Ég spuröi Rafn aö því hvort Isafjöröur væri mikill tónlist- arbær. „Já, einhvern veginn er þaö svo, að það hefur alltaf verið fjörugt tón- listarlíf fyrir vestan. Núna starfa a.m.k. sex hljómsveitir þar aö minna eða meira leyti. Ég veit ekki skýring- una á þessu, sumir staðir eru ein- faldlega fjörugri en aörir aö þessu leytinu til. Okkur nægir að nefna Seyðisfjörð.“ Þeir félagar i sveitinni tóku upp grunnana aö plötu sinni í haust. Voru þeir teknir á sama 8-rása tækið og reyndist svo vel á Út í kuldann. Síð- an hvíldu þeir sig á lögunum í dá- góðan tíma, en luku síöan við þau í Stemmu með aöstoö Gunnars Smára við hljóðblöndun. Þegar plat- an var send utan í skurö duttu strák- arnir í lukkupottinn því þeir fengu skurðarmeistarann, sem átti aö skera þlötu Mike Oldfield. Einhver töf varð á henni og Grafík var næst í röðinni. Komst því óvænt í hendur topþ-skurðarmanns og slíkt skiptir alltaf verulegu máli. „Já, við eigum von á plötunni nú allra næstu daga,“ sagði Rafn er ég rabbaði viö hann. „Viö þurfum ekki að selja nema um 600 eintök til þess að standa undir kostnaði — þökk sé upptökutækjum okkar sjálfra. Ætl- unin er aö reyna aö fylgja henni eftir með einhverju tónleikahaldi, en þessa dagana hafa menn hægt um sig vegna þrófanna. Verði þessi plata ekki fjárhagslegt „flopp“ er næsta víst, að við stefnum ótrauðir að þriðju plötu okkar með haustinu og ætlum henni að koma út fyrir jól. Þá ætlum viö einnig að koma okkur upp litlu hljóðveri hérna fyrir sunnan í sumar til þess aö vera betur í stakk búnir.“ Ekki neinn uppgjafartónn i þess- um herbúðum, enda þýðir slíkt víst lítið nú á dögum. Og þá er bara aö bíða og sjá hvernig almenningur tek- ur plötu Grafík, Sýn, þegar hún kem- ur í verslanir. — SSv.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.