Morgunblaðið - 11.05.1983, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 1983
49
fólk í
fréttum Á.
Diana
ófrísk
aftur
+ Er Díana prinsessa oröin ófrísk aftur?
Já, eða svo hefur móðir hennar, Frances
Shand-Kydd, að minnsta kosti gefið i
skyn. Hún var með þeim Díönu og
Karli í Ástralíu og varð eftir þegar
þau fóru heim, en þó skemur en hún
ætlaði sér. Þegar hún kom heim til
Englands, sagði hún frétta-
mönnum, að ástæðan fyrir
heimkomunni væri fjöl-
skyldumál. Mjög gleðileg tíð-
indi reyndar, sagði hún. Þeg-
ar hún var spurð hver þau
væru, sagði hún að það væri
leyndarmál. Englending-
ar eru ekki í neinum vafa
um hvert það leyndarmál
er, nefnilega, að dóttir
hennar sé ófrísk.
Skattsvik Sophiu
og Pontis fyrnd
+ Sophia Loren og maður hennar,
Carlo Ponti, mega nú aftur tylla niður
tá á sinni ástkæru fósturjörð, Ítalíu,
en áfrýjunardómstóll þar hefur úr-
skurðað, að skattsvik þeirra séu nú
fyrnd.
Eins og kunnugt er, var Sophia í
ítölsku fangelsi í nokkrar vikur á síð-
asta ári vegna þessa máls og kom það-
an niðurbrotin manneskja.
„Hjóna-
bandið
rjúkandi
rúst“
+ Tennisstjarnan Jimmy
Connors og kona hans, Patti,
ætla nú að fara að skilja.
„Hjónabandið er ein rjúk-
andi rúst, sem aldrei verður
endurreist," segir Patti.
Þau Patti og Connors
giftu sig í Tókýó fyrir fjór-
um árum og eiga þriggja
ára gamlan son. Hjóna-
bandið hefur lengi þótt
standa fremur völtum fót-
um og í vetur þóttust menn
ekki þurfa lengur vitnanna
við þegar í ljós kom, að
Patti hafði brugðið sér í
austurrískan fjallakofa með
Adam Faith, fyrrum popp-
söngvara en núverandi
kaupsýslumanni og plötuút-
gefanda. Patti er hinn
mesti myndarkvenmaður og
skreytti einu sinni síður
tímaritsins Playboy.
Viðskiptavinir
athugið
Allar deildir Kristjáns Ó. Skagfjörðs veröa
lokaöar á föstudaginn 13. maí vegna
orlofslengingar.
Tölvuviögeröarmenn veröa þó á vakt til aö
sinna brýnum viögeröarverkefnum.
KRISTJÁN Ó.
SKAGFJÖRD HF
Hólmsgata 4- pósthólf 906- sími 24120 -121 Reykjavík
ALLTAF Á FIMMTUDÖGUM
BROSTU!
MYNDASÖGURNAR
KOMA Át MORGUN
>
I
Vikuskommtur afskellihlátri
SPUNNIÐ UIVl STALÍN
eftir MATTHÍAS JOHANNESSEN
á kostum og göllum samstarfsmanna sinna, að Stalín sé
óhollur og ruddalegur. Stalín sárna enn þessi orð. En það
er bót í máli, að Lenin gagnrýnir Trotsky fyrir óheyrilegt
sjálfstraust. Og Búkharin: að vafasamt sé, að hann geti
talizt „algjör marxisti". Það er einkennilegt, að Lenin
skuli hafa hitt naglann svona vel á höfuðið, þegar hann
talar um þá hina, en flaskar svona kyrfilega, þegar hann
talar um Stalín. Jú, auðvitað hafði hann einnig flaskað á
Búkharin, þegar hann getur þess, að hann sé „mesti og
verðmætasti fræðimaður flokksins". Stalín hristir höfuð-
ið. Nei, Lenin var ekki mannþekkjari. Ekki alltaf.
Sumir vildu halda því fram, að Búkharin væri bezt
gefni lærisveinn Lenins. En Stalín eyddi fljótt þeirri
goðsögn. Og hann gleðst nú yfir þeim árangri, sem hann
náði með réttarhöldunum. Stillti jafnvel kompásinn hjá
auðtrúa samfylgdarmönnum sovézka kommúnismans um
allan heim. Það var afrek út af fyrir sig. Búkharin var eins
og mús í kjaftinum á Koba, eins og Stalín var kallaður í
byltingunni. Kötturinn lék sér að músinni, en lét jörðina
um að gleypa hana að lokum.
Blindir kettlingarnir létu köttinn um blóðugan terror-
inn. Hann hafði lært hann á götunum í Tíflis. Hitler var
einskis verður smáborgari, sem vildi ekki verða verka-
maður, sagði Trotsky. Stalín skítmenni úr göturæsum
Grúsíu. Skemmti sér við að skera kindur á háls og kveikja
í mauraþúfum við sveitasetur sitt. Maður, sem hefur
komið heilli keisarafjölskyldu fyrir kattarnef, lætur sér
ekki allt fyrir brjósti brenna.
En nú var Trotsky dauður. Ekki hann! Söguleg efnis-
hyggja velur úr beztu kostina. Hvort sem menn eru
fæddir til forystu eða ekki, þá stjórnar hann þessu víð-
lenda ríki, en ekki þeir hinir. Það er allt og sumt!
Og Stalín gleðst með sjálfum sér. Júdasarnir eru dauð-
ir. Páskasól kommúnismans í hádegisstað.
Búkharin kunni ekkert fyrir sér í faginu. Og Stalín
brosir með sjálfum sér. Bókstaflega ekkert frekar en
Trotsky. Kamenev og Zinoviev báru þó hönd fyrir höfuð
sér! Og nú hugsar Stalín um það í fyrsta sinn, hvernig á
því hafi eiginlega staðið, að þeir hreyfðu hvorki legg né
lið sjálfum sér til bjargar. Og ekki var Búkharin að koma
vinum sínum til hjálpar. Hafði hann ekki sagt um fangels-
anir Kamenevs og Zinovievs: Ætli það sé ekki eitthvað til
í þessu. í okkar landi er fólk ekki handtekið að tilefnis-
lausu. ójú, ekki heyrði hann annað. Og hann, sem heyrði
allt! Molotov og Kaganovich kunnu sér ekki hóf frekar en
venjulega. Sögðu strax eins og fífl: Það á að skjóta
Búkharin! En sjálfur sagðist hann vera á bandi Búkharins.
Öllu var óhætt, enda var hann í kvennastússi um þær
mundir. Þá eru menn auðveld bráð. Að láta sér detta í
hug að kvænast 22ja ára stúlku, maður á hans aldri!
Auðveld bráð 1937, með unga konu og son á fyrsta ári.
Honum var nær: Koba er með mér! Ég er hættur við
hungurverkfallið. Ég fæ að standa á grafhýsinu í haust!
Og umfram allt: Ég verð ekki rekinn úr Flokknum! Það
skipti víst mestu máli. Hvílíkur barnaskapur!
Já, þeim var nær. Stalín stendur upp og kveikir á
útvarpinu. Hann ætlar að hlusta á, hvernig Dynamo,
knattspyrnuliði sovézku öryggislögreglunnar, NKVD,
vegnar í landsleiknum. Hann er stoltur af þessu liði. Það
sýnir hvers hinn nýi sovétmaður er megnugur. Á meðan
þeir Bería sýna fólki þessa aðlaðandi ásjónu, eru gerðar
tilraunir með eitur og lyf á fórnardýrum í ljótustu afkim-
um Lúbjanka-fangelsis. Þar sem þúsundir manna eru
pyntaðar, niðurlægðar, svívirtar. Einnig tryggir flokks-
menn, jafnvel hetjur úr borgarastyrjöldinni. Nú svikarar!
Merkilegt hvað Himmler komst langt í þessu. Gyðingar
... skítur! Mátulegt á þá, þessa zinovievsku djöfla! En
hann skilur ekki, hvernig Malenkov nennir að stússa í
þessu skítuga svartholi. Hann hlýtur að vera eitthvað
undarlegur. Bezt að kanna það nánar. Allir þekkja Bería.
Nóg að hafa auga með honum! Enginn hefur sýnt holl-
ustu sína betur en hann. Sendi jafnvel hálfáttræðan
stjúpföður sinn í vinnubúðir til að sýna hug sinn til
ríkisins og þeirrar kenningar, sem er holdi klædd í per-
FRAMHALD