Morgunblaðið - 11.05.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. MAf 1983
55
Fimm stærstu efnahagsstofnanir Vestur-Þýzkalands:
Hægur efnahagsbati iðn-
ríkjanna mun halda áfram
Spá um 0,5% aukningu þjóðarframleiðslu að meðaltali
Hcildarflutningar Hafskips juk-
ust um tæplega 4% í tonnum talið á
síðasta ári, þegar alls voru flutt
170.000 tonn, borið saman við
164.000 tonn árið 1981, að sögn
Páls Braga Kristjónssonar, fjár-
málastjóra félagsins. Þá liggur
fyrir, að hagnaður varð af rekstri
Hafskips á síðasta ári.
Páll Bragi sagði, að innflutn-
ingur félagsins hefði aukizt um
liðlega 8%, en hins vegar hefði
orðið um 5% samdráttur í út-
flutningi, sem er töluvert minna
en nemur almennum útflutn-
ingssamdrætti á síðasta ári.
„Ástæðan fyrir því er sú, að við
erum með stöðugri útflutning en
aðrir eins og kísilgúr, en minna í
sjávarafurðum," sagði Páll Bragi.
Páll Bragi sagði ennfremur, að
verðmætaaukning flutninganna
væri í raun meiri, en tonnatalan
segir til um.
Hvað varðar árið í ár, sagði
Páll Bragi að Hafskipsmenn
væru tiltölulega ánægðir með út-
komuna. Flutningarnir væru
heldur meiri en þeir hefðu gert
ráð fyrir.
Hafskip er að meðaltali með 7
skip í rekstri, en Hafskip er með
fastar áætlunarsiglingar til
Norðurlandanna, Bretlands, meg-
inlands Evrópu og til Bandaríkj-
anna.
GENGISÞROUNIN VIKURNAR 18.-22.0G 25.-29.APRÍL 1983
Tuttugu milljónasti Volkswagen-bíllinn var framleiddur í desember sl. og var
þessi mynd tekin við það tækifæri. Ennfremur getur að líta einn af „þeim
elztu“.
1982:
Volkswagen tapaði
300 milljónum marka
VOLKSWAGEN-bílaverksmiðjurnar vestur-þýzku töpuðu alls um 300
milljónum vestur-þýzkra marka á síðasta ári, sem jafngildir um 2.640
milljónum íslenzkra króna, en til samanburðar var hagnaður fyrirtæk-
isins um 136 milljónir vestur-þýzkra marka á árinu 1981, sem jafngild-
ir um 1.200 milljónum íslcnzkra króna á núverandi gengi. Þessar
upplýsingar komu fram á blaðamannafundi, sem aðalforstjóri VW,
Carl Hahn boðaði til.
Hann sagði aðalástæðuna fyrir
slælegri útkomu VW vera gífur-
legan sölusamdrátt í Bandaríkj-
unum á síðasta ár. Sala fyrirtæk-
isins á Volkswagen og Audi-bílum
hefði dregizt saman um 28%. Enn-
fremur hefði gengi fyrirtækisins
ekki verið sem skyldi í Mið- og
Suður-Ameríku.
Hahn sagði stjórn fyrirtækisins
hafa tekið ákvörðun um að mæla
með því á aðalfundi, sem haldinn
verður 30. júní nk., að enginn arð-
ur verði greiddur til hluthafa í ár,
en þeir eru um 150.000 talsins.
Tveir stærstu eigendur VW, vest-
Erlendar stuttfréttir ...!
ur-þýzka ríkið og Neðra Saxland,
hafa fyrir sitt leyti samþykkt
þessa tillögu stjórnar fyrirtækis-
ins, þannig að ljóst er að hún nær
fram að ganga.
Það kom fram í máli Hahn, að
hagur fyrirtækisins á heimamark-
aði hefði verið góður. Heiidarvelt-
an var þar um 27 milljarðar
vestur-þýzkra marka, borið saman
við 26,4 milljarða vestur-þýzkra
marka á árinu 1981. Þar hefði ver-
ið um 33 milljóna vestur-þýzkra
marka hagnaður af rekstrinum á
síðasta ári.
ÞJÓÐARFRAMLEIÐSLA Banda-
ríkjamanna jókst um 3,1% á fyrstu
þremur mánuðum ársins á árs-
grundvelli, sem að sögn Wall Street
Journal er mesta aukning þjóðar-
framleiðslu á þriggja mánaða tíma-
bili síðan í ágúst 1981
Nígería
Nígeríumenn hafa óskað eftir
því við nokkra erlenda banka að fá
um 2 milljarða Bandaríkjadollara
að láni á næstu sex mánuðum til
að styrkja efnahag landsins, sem
er mjög bágur um þessar mundir.
Citicorp
Citicorp, einn stærsti viðskipta-
banki Bandaríkjanna, tilkynnti
nýverið, að hagnaður á 1. ársfjórð-
ungi hefði verið um 18% meiri en
á sama tíma í fyrra, og hefði num-
ið um 228 milljónum Bandaríkja-
dollara.
Credit du Nord
Credit du Nord, einn stærsti
banki Frakklands, sem ríkisstjórn
sósíalista þjóðnýtti á sínum tíma,
hefur óskað eftir því við frönsku
ríkisstjórnina, að fá fjárstuðning
til að auka eigið fé bankans í
kjölfar um 59,2 milljóna franskra
franka tap á liðnu ári.
Dollaraverð hefur
hækkað um 30,21%
— Brezka pundið um 26,27%
— Danska krónan um 24,94%
— Vestur-þýzka markið um 25,78%
VERÐ á Bandaríkjadollar hækkaði um 0,46% í síðustu viku,
en sölugengi hans var skráð 21,580 krónur í upphafí vikunn-
ar, en 21,680 krónur sl. föstudag. Frá áramótum hefur Banda-
ríkjadollar því hækkað um 30,21% í verði, en í ársbyrjun var
sölugengi hans skráð 16,650 krónur.
Brezka pundið
Brezka pundið hækkaði um
0,87% í verði í síðustu viku, en í
vikubyrjun var sölugengi þess
skráð 33,589 krónur, en sl. föstu-
dag hins vegar 33,880 krónur. Frá
áramótum hefur brezka pundio
því hækkað um 26,27%, en i árs-
byrjun var sölugengi þess skráð
26,831 króna.
Danska krónan
Danska krónan lækkaði um
0,68% í verði í siðustu viku, en í
vikubyrjun var sölugengi hennar
skráð 2,4972 krónur, en sl. föstu-
dag hins vegar 2,4802 krónur. Frá
áramótum hefur danska krónan
hækkað um 24,94% í verði, en í
ársbyrjun var sölugengi hennar
skráð 1,9851 króna.
Vestur-þýzka markið
Vestur-þýzka markið lækkaði
um 0,63% í verði í síðustu viku, en
í vikubyrjun var sölugengi þess
skráð 8,8661 króna, en sl. föstudag
hins vegar 8,8103 krónur. Frá ára-
mótum hefur vestur-þýzka markið
því hækkað um 25,78%, en í árs-
byrjun var sölugengi þess skráð
7,0446 krónur.
Kína — fjár-
festing
Kínversk yfirvöld reyna nú allt
hvað þau geta til að fá erlenda
aðila til að fjárfesta í landi. Það
síðasta sem við fréttum þar að lút-
andi eru tryggingar fyrir pólitísku
ástandi.
Haig
Bandaríska fyrirtækið United
Technologies hefur endurráðið Al-
exander Haig, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, en
hann starfaði hjá fyrirtækinu á
árum áður. Hann verður ráðgjafi
um viðskipti við Evrópu.
Sviss
Vöruskiptahalli Svisslendinga
fyrstu þrjá mánuði ársins var um
2,35 milljarðar svissneskra
franka, sem er um tvöföldun frá
sama tíma í fyrra.
Hyatt — Braniff
Hyatt-hótelhringurinn hefur
lagt áform sín um 35 milljóna
Bandaríkjadollara fjárframlag til
endurreisnar Braniff-flugfélags-
ins á hilluna í bili, en bráðabirgða-
samningur hafði verið undirritað-
ur og gerði ráð fyrir 80% eignar-
aðild Hyatt í Braniff, sem varð
gjaldþrota á siðasta ári, eins og
kunnugt er.
Bretland - laun
Laun hækkuðu um 7,75% á árs-
grundvelli í Bretlandi í lok febrú-
ar, en á sama tíma voru almennar
verðhækkanir í landinu í ná-
munda við 5,25%.
Bretland —
smásala
Smásala jókst um 5% í Bret-
landi í marzmánuði sl., borið sam-
an við sama tímabil 1982 og gert
er ráð fyrir, að hún muni enn
aukast á næstu mánuðum.