Morgunblaðið - 01.07.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1983
13
Ljósm. Kristján Einarason.
Sótti slasaða konu inn
á Arnarvatnsheiði
ÞYRLA frá Landhelgisgæsl-
unni sótti þýska konu sem
slasast hafði á Arnarvatns-
heiði síðdegis á miðvikudag.
Þyrlan flutti konuna til
Reykjavíkur og var lent fyrir
framan Borgarspítalann kl.
20 í gærkvöldi.
Það var kl. 17.30 í gær að
beiðni barst frá héraðslækninum
á Hvammstanga um það að þýsk
kona, sem var í ieiðangri á veg-
um Arinbjarnar Jóhannssonar
frá Brekkulæk, yrði sótt inn á
heiðina. Ferðalangarnir voru þar
á hestum og mun konan hafa
dottið og lærbrotnað.
Meðfylgjandi mynd var tekin
þegar þyrlan lenti við Borgar-
spítalann í gærkvöldi.
Yfirlitssýning á Sauðárkróki:
Þáttur íslands í Menningar-
kynningunni í Bandaríkjunum
Menntamálaráðuneytið og Menn-
ingarstofnun Bandaríkjanna á ís-
landi hafa í samvinnu unnið að upp-
setningu yfirlitssýningar á þætti Is-
lands í Norrænu menningarkynning-
unni í Bandaríkjunum.
Sýningin er í máli og myndum
og opnar í Safnahúsinu á Sauð-
árkróki föstudaginn 1. júlí kl.
20.30. Sýningin verður opin sem
hér segir:
I>augardaginn 2. júlí kl. 14—18,
sunnudaginn 3. júlí kl. 14—18,
mánudaginn 4. júlí kl. 15—19,
fimmtudaginn 7. júlí kl. 19.30—22.00,
laugardaginn 9. júlí kl. 14—18 og
sunnudaginn 10. júlí kl. 14—18.
Frá Sauðárkróki fer sýningin til
ísafjarðar og verður opnuð þar 14.
júlí.
ins og myndunarsaga þess út-
skýrð. Stansað verður á nokkrum
stöðum eftir því sem tími leyfir.
Esjan er öll mynduð á ísöld. í
henni skiptast á hraunlög frá
hlýskeiðum og móberg og bólstra-
berg frá jökulskeiðum. Þar finnast
og rústir af tveimur megineld-
stöðvum, Kjalarnes- og Stardals-
eldstöðvunum. Þær hafa verið lík-
ar Kröflueldstöðinni í hátt, m.a.
hefur eldvirknin hagað sér líkt.
Gangakerfi Kjalarneseldstöðvar-
innar sést við Tíðaskarð. Gang-
arnir stefna NA-SV eins og vera
ber.
Akrafjall og Skarðsheiði eru að
mestu úr tertíerum hraunlögum,
en efst í báðum þessum fjöllum er
elsta jökulbergslagið að finna; þar
eru því mörkin milli tertíer og ís-
aldar. Hraunlögunum hallar til
suðausturs inn að virka gosbelt-
inu.
Kiðafellsárós (stansað). Við
ósinn er elsta jökulbergslag aust-
an Hvalfjarðar. Þar er og ágætt
snið í jarðlög frá fyrri hluta ísald-
ar, en á þeim tíma voru hlýskeiðin
(hraunlögin) mun meira áberandi
en jökulskeiðin (móbergið).
Skammt utan við Kiðafellsá eru
jökulmyndanir, sem talið er að
hafi myndast á Álftanesstigi,
fyrir um 12.000 árum.
Meðalfell er nokkru yngra en
jarðlögin við Kiðafell. Nú er farið
að bera meira á móbergsmyndun-
um. í fellinu utanverðu er mjög
þykkt móbergs- og bólstrabergs-
lag, leifar af móbergsfjalli. Lagið
þynnist hratt til austurs og síðast
sést í það austan undir Meðalfelli.
Móbergslagið er klippt sundur af
allstóru misgengi utan til i fellinu.
Sandfell er liðlega hundrað
metra hár, skriðurunninn mó-
bergshnúkur uppi á fjallinu ofan
við Vindáshlíð. Það mun hafa
myndast við gos undir jökli á síð-
asta jökulskeiði, enda stingur það
mjög í stúf við bergið í kring.
Grindagil (stansað) skerst upp í
gegnum jarðlög frá miðbiki ísald-
ar. Þar skiptast á móbergslög og
hraunasyrpur. Hér er móbergið
orðið enn meir áberandi, þ.e. jök-
ulskeiðin eru orðin lengri og harð-
ari. í hlíðinni má sjá merki um
þrjú jökulskeið og þrjú hlýskeið.
Þórufoss (stansað) fellur fram
af hraunlögum frá miðbiki ísaldar
en vestan við ána er grágrýtis-
hraun frá síðasta hlýskeiði. Það
mun eiga upptök inn á Mosfells-
heiði en runnið þaðan niður í Kjós.
Stóröxl er hnúkurinn innan og
ofan við Þórufoss. Þar er mjög fal-
legt misgengi og hefur barmurinn
vestan megin sigið niður.
Mosfellsheiði er að mestu hulin
jökulruðningi frá síðasta jökul-
skeiði en undir honum mun nær
allsstaðar vera grágrýtishraun frá
síðustu hlýskeiðum ísaldar.
Yngsta hraunið er komið frá
Borgarhólum.
Stardalseldstöðin er milli Grí-
mannsfells og Esju. í henni mynd-
aðist grunn askja, um 6 km í
þvermál, sem seinna barmafylltist
af gosefnum. Mjög lítið sést nú af
henni þar sem yngri grágrýtis-
hraun hylja hana að mestu. Star-
dalshnúkur er innskotslag sem
troðist hefur inn í öskjufylling-
una. Móskarðshnúkar mynduðust
er súr bergkvika leitaði upp með
öskujaðrinum.
Norður- og Suður-Reykir eru
mestu jarðhitasvæðin í nágrenni
Reykjavíkur. Jarðhitasvæðið í
Mosfellssveit er eitt af þremur
mestu lághitasvæðum landsins.
Nú er dælt þar upp um
1.200—1.300 lítrum á sek. af
80—100°C heitu vatni. Heita vatn-
ið er úrkoma að uppruna og mun
hafa fallið til jarðar í fjalllendinu
norðaustur af Esjunni. Vatnið
hefur síðan streymt djúpt í jörðu,
hitnað við snertingu við heitt
bergið og að lokum steymir það til
yfirborðs eftir NA-SV-sprungum
og misgengjum í Mosfellssveit.
SUMIR VERSLA DÝRT-
AÐRIR VERSLA
HJÁOKKUR
Ný fersk
kr.QQ.50
yu bakkinn
Safaríkarfuu-js&í..
steikur '*>&***
og glæsilegir grillpinnar
... og nú tilbúið
á Grillið:
T , Ekkert veseri ...
r| nQ Bakkinn settur beint á grillið
JÍM'M.t.MMJd — engin óhreinindi!. engin fita á glóðina!
frampartar ,
niðursagaðir Smjör Vi kg Isl. Tómatar
.00
pr. kg.
73« 72-“ 55
Nýjaverðiö 91.95 Nýja verðið 96.35
Kindahakk Lambalifur
AÐEINS
7^1pr.kg.
.00
49
Nýja verðið 89.80
BESTU KAUPIN: AÐEINS kr.
GriHkol ^ kg. ^48*00
Nýr lax Opið
til kl. 7.00 í kvöld
Opið í hádeginu á föstudögum.
Lokað á laugardögum í sumar
AUSTURSTRÆT117 STARMYRI