Morgunblaðið - 01.07.1983, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1983
25
Svava Jónsdóttir
Minningarorð
In Mcmoriam
„Komdu bara. Hún er ágæt,“
sagði Jón bróðir minn, er hann
kom sem smápatti að heimsækja
Svönu frænku á Laugaveginum,
með vini sínum, sem varð eitthvað
hálffeiminn við frænkuna, sem
hann þekkti ekki.
Þetta var alveg rétt hjá Jóni
Páli.
Svana frænka var ágæt. Hún
var reyndar miklu meira en það.
Hún var bezt.
Það var nefnilega þannig að
prestshjónin á Bíldudal áttu fjór-
ar dætur. Um þær var sagt að ein
væri gáfuðust. Það var Sigríður,
þeirra elzt, nú látin fyrir fáum ár-
um. Ein var fallegust, það var
Ragnheiður, nú á áttugasta og
sjöunda aldursári og nærri al-
blind. Ein var skemmtilegust, það
var Anna, móðir undirritaðs, lést í
október sl. Og ein var bezt. Það
var Svana.
Svana var alveg sérstök kona og
kom það fram á marga vegu. Hún
mátti aldrei neitt aumt sjá. Ég hef
aldrei heyrt Svönu frænku leggja
annað en gott til allra manna.
Yngstu systurnar, Svana og
móðir mín, voru mjög líkar bæði í
sér, í útliti og einnig höfðu þær
báðar dálítið sérstakan málróm.
Mér fannst oft ég vera að taia við
móður mína, þegar ég talaði við
Svönu frænku í síma.
Það koma aldrei að sök, þótt ég
tæki stundum feil á þeim. Svana
leysti úr mínum málum ekkert
síður en móðir mín.
Svana frænka var fædd í Otra-
Fyrir skömmu lést á sjúkrahúsi
í Danmörku Björgvin Bjarnason,
forstjóri. Kynni okkar Björgvins
hófust fyrir þrettán árum. Ég held
ég gleymi seint okkar fyrsta fundi,
en mér hafði verið ráðlagt að
semja við Björgvin um sölu á
hraðfrystri rækju, en Björgvin rak
um árabil ásamt Richard syni sín-
um blómlega útflutningsverslun
með frystar og niðursoðnar sjáv-
arafurðir. Björgvin var sjálfum
sér líkur í þessum samningum um
rækjusöluna. Ég vildi selja veru-
legan hluta framleiðslunnar til
hans en hafa eitthvað í aðra. En
það var engin hálfvelgja hjá
Björgvin Bjarnasyni, allt eða ekk-
ert var svarið. Eins og svo oft
hafði Björgvin allt fram og var
gengið frá samningi á Langeyri.
Það var mín fyrsta ferð þangað en
ekki sú síðasta, enda var maður-
inn hafsjór af fróðleik um lands-
ins gagn og nauðsynjar. Tíminn
var jafnan fljótur að líða er spjall-
að var við Björgvin, enda var með
ólíkindum hvað hann hafði sýslað
margt um ævina. Nánast allan
sinn aldur var Björgvin sjálfstæð-
ur atvinnurekandi, honum líkaði
betur að vera sjálfur húsbóndi.
Ungur rak hann fiskimjölsverk-
smiðju á Isafirði, þá var útgerð-
arreksturinn mjög umfangsmikill,
en sum árin var hann með stærstu
síldarsaltendum landsins, var með
fjögur skip á síld, er hann átti
sjálfur. Þá stunduðu skip Björg-
vins siglingar með ferskan fisk á
stríðsárunum.
Mikil reisn var yfir útgerðinni á
þessum tíma og voru margir um
hvert skiprúm á skipum Björg-
vins, alltaf sá hann þó til þess að
nokkrir skólapiltar fengju pláss á
skipum sínum og var honum
metnaðarmál, að hagur sinna
manna væri góður. En segja má
með réttu að á skammri stund
skipast veður í lofti. Þegar eftir
stríðið komu til landsins tugir tog-
ara og nýir bátar frá Svíþjóð.
Þessum skipum var dreift um allt
landið og stóðust þá illa sam-
dal 9. desember 1903. Foreldrar
hennar voru frú Jóhanna Páls-
dóttir og séra Jón Árnason. Svana
fór ung að heiman og fór þá til
elztu systur sinnar, Sigríðar, sem
þá var orðin yfirlæknisfrú á
Vífilsstöðum. Þaðan giftist Svana
Gísla Pálssyni lækni og eignuðust
þau tvö börn, Pál og Stefaníu. Er
mikill og mannvænlegur hópur
barna, barnabarna og barna-
barnabarna kominn út af þeim
heiðurshjónum Svönu og Gísla.
Fjölskylda mín og ég vottum
Páli, Stefaníu og fjölskyldum
þeirra, okkar innilegustu samúð
og biðjum Guð að geyma minning-
una um góða konu, sem nú hefur
fengið líkn frá veikindum sínum.
Anna Guðbjörg Bjarnason.
Hún Svana „amma“ er dáin. Já,
þannig barst mér andlátsfregn frú
Svönu Jónsdóttur. f orðsins fyllstu
merkingu var Svana ekki amma
mín né barna minna, en öll kölluð-
um við hana Svönu „ömmu“ og
segir það sína sögu um vinsældir
þessarar góðu konu hjá minni fjöl-
skyldu.
Svana Jónsdóttir var vel gerð og
góð kona, sem lét gott af sér leiða
hvar sem hún fór og það geislaði
frá henni ljúflyndi og hjartahlýja.
Svana var fædd á Bíldudal 9.
desember 1903, dóttir séra Jóns
Árnasonar og konu hans Jóhönnu
Pálsdóttur, sem þar bjuggu um
nokkurra ára skeið. Þar ólst hún
upp í stórum systkinahópi við ást
keppnina þau skip er eldri voru.
Upp úr þessu sendi Björgvin skip
sín á veiðar í salt við Grænland og
lauk þeirri veiðiferð í Nýfundna-
landi, en þar seldi hann bæði afla
og skip og dvaldi um tíma á Ný-
fundnalandi og Kanada eftir það.
Þetta var mjög umdeilt á sínum
tíma, en einhvern veginn varð að
snúa hlutunum áfram í samkeppni
við bæjarútgerðir og gjafaskip er
greidd voru af almannafé og sum
hver þessara skipa náðu aðeins að
vera rekin skamman tíma áður en
þau urðu svokölluðum eigendum
sínum til stórskaða. Alltaf var
Björgvin mikill bjartsýnismaður
og kom það vel í ljós, er hann lagði
allt undir til að koma hugmyndum
sínum í fyrirtæki, sem sköpuðu at-
vinnu. Á Langeyri við Álftafjörð
keypti hann fiskverkunarhús, en
og umhyggju þar til hún fluttist
til Reykjavíkur.
Svana giftist Gísla Pálssyni
lækni (Páls í Kaupangi) og bjuggu
þau sín fyrstu búskaparár á Eski-
firði, þar sem Gísli starfaði sem
læknir. Þau fluttust þaðan til
Hafnarfjarðar og síðar til Reykja-
víkur.
Þar fóru saman elskuleg sæmd-
arhjón, sem hændu alla að sér sem
þau umgengust, enda gestrisin og
góð heim að sækja. Átti Svana þar
stóran hlut að máli í að tengja
fjölskyldurnar saman og var oft
gestkvæmt á Laugavegi 15 og síð-
ar í Drápuhlíðinni á þessum árum.
Gísli lést í Reykjavík árið 1955
langt um aldur fram og var öllum
harmdauði.
Þau eignuðust 2 börn, Pál yfir-
lækni f. 1924, kona hans er Soffía
Stefánsdóttir og eiga þau 5 börn,
og Stefaníu f. 1926, hennar maður
er Víkingur Arnórsson prófessor
og eiga þau 6 börn.
Allt er þetta fólk glæsilegir af-
komendur Svönu og Gísla og hafa
hlotið í vöggugjöf manndóm,
listhneigð og ljúfmennsku þessara
ágætu hjóna.
Eftir lát Gísla bjó Svana ein, en
samgangur var mikill við börnin,
tengdabörnin og barnabörnin, sem
veitti þeim mikla gleði og ekki síð-
ur nú síðustu árin þegar hún
fylgdist með barnabarnabörnun-
um vaxa úr grasi, því einstök fjöl-
skyldubönd hafa alltaf tengt þessa
fjölskyldu.
Sömu sögu var að segja um
systkini Svönu, sem héldu saman
meðan dagar entust, en eftir lifir
nú aðeins ein systir, Ragnheiður
fyrrv. bankafulltrúi, búsett í
Reykjavík.
I huga mínum, konu minnar og
barna verður Svana „amrna" alltaf
til, svo sterk spor skilur hún eftir
í vitund okkar allra. Hún var ein
þar var lengi starfrækt rækju-
verksmiðja undir hans stjórn. Þar
var sett upp ein fyrsta vél sinnar
tegundar hér á landi og þar var
gert meira en setja upp eina vél
heldur voru settar upp tvær vélar
samhliða, en það tíðkaðist ekki
fyrr en fimmtán árum síðar og
þykir nú næsta vonlaust annað en
að hafa þennan háttinn á nú.
Svona var hann oft á undan sinni
samtíð.
Björgvin Bjarnason var mikill
uppfinningamaður og voru ólík-
legustu hlutir sem hann lét smíða
og reyna, m.a. vél til að vinna
hörpudisk. Hugurinn var alltaf
fullur af nýjungum á ýmsum svið-
um, sem allar voru tengdar at-
vinnulífinu, segja má að hann
hefði notið sín best með hóp iðn-
aðarmanna í kringum sig til að
segja þeim til um framkvæmd
mála. Allt til síðasta dags var
hugurinn tengdur atvinnulífinu og
er hann fór til Danmerkur í lækn-
isaðgerðina hafði hann við orð að
ég kæmi til sín út, því þar væru
svo margir hlutir ókannaðir sem
gaman væri að sjá.
Eins og ég hef áður getið rak
Björgvin útflutningsverslun og
var gaman að skipta við hann á
því sviði. Þar naut Björgvin sín
vel, m.a. rak hann skrifstofu í
London og læt ég ósagt að nokkur
útflytjandi hafi haft jafn gott
skipulag á sínum útflutningi sem
hann. Var jafnvel svo að greiðsla
var komin fyrir afurðir rétt eftir
að þeim hafði verið skipað út.
Þetta krafðist mikils trausts á
báða bóga, en Björgvin naut mik-
ils trausts víða erlendis.
Ég vil að lokum þakka Björgvin
allt sem hann hefur fyrir mig gert
og sendum við Hildur ættingjum
hans innilegar samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Björgvins
Bjarnasonar.
Sæmundur Bj. Árelíusson
af þeim sem við hittum á lífsleið-
inni og höfum orðið ríkari af að
kynnast og munum ætíð minnast
hennar með virðingu og þökk.
Þegar ég hóf þátt minn í útvarp-
inu fyrir aldraða sl. vetur kom
í dag er til moldar borinn móð-
urbróðir okkar, Halldór S. Guð-
laugsson, eða „Dóri frændi" eins
og við systurnar vorum vanar að
kalla hann.
Fjölskylda okkar er ekki stór,
Dóri átti aðeins eina systur og
finnst okkur því vera höggvið
stórt skarð í fjölskylduna við frá-
fall hans.
Við okkur systurnar var hann
einstaklega góður og heimsótti
hann okkur eins oft og hann gat.
Það voru sérstaklega ánægjulegar
stundirnar þegar Dóri kom í
heimsókn, því svo var hann góður
við börn okkar systranna. Nú eiga
þau erfitt með að skilja að Dóri
komi ekki í fleiri heimsóknir.
Dóri var sérstaklega barngóður,
ekki aðeins við börn okkar systr-
anna. Á Langeyrarvegi, þar sem
Dóri bjó, voru 3 systkini í sama
húsi og reyndist hann þeim vel. Þó
var Anna í sérstöku uppáhaldi hjá
honum. Sátu þau oft og spjölluðu
saman og áttu margar ánægju-
stundir. Dóri talaði oft um Önnu
við okkur systurnar, rétt eins og
hann ætti hana sjálfur.
Dóri var fæddur í Reykjavík en
ólst upp hjá foreldrum sínum
ásamt systur sinni í Hafnarfirði
frá 3ja ára aldri. Foreldrar hans
voru Guðlaugur Halldórsson frá
Pálshúsum í Garðahverfi, og Þóra
Ágústa Magnúsdóttir frá Efri
Hömrum, Holtum, Rangárvalla-
sýslu. Guðlaugur var vélstjóri og
fórst hann með togaranum Gull-
fossi árið 1940. Þremur árum
seinna missti Dóri móður sína og
stóðu þá systkinin ein eftir for-
eldralaus, aðeins 14 og 15 ára.
Fljótlega fór Dóri á sjóinn og
ákvað hann þá að feta í fótspor
föður síns og gerðist vélstjóri.
Vann hann við það starf meðan
heilsan leyfði. í starfi sínu var
Dóri samviskusamur og vakandi
yfir vinnu sinni og vel liðinn af
starfsfélögum sínum.
Dóri var vel gefinn maður, víð-
lesinn um ýmis málefni, enda með
afbrigðum bókhneigður. I fríum
fór Dóri margar ferðir um landið
okkar. Ýmist voru það fjallaferðir,
veiðitúrar, göngu- eða hjólreiða-
Svana „amma“ að máli við mig og
bað mig um óskalag. Lagið var
„Um sumardag er sólin skín“. Þar
segir í ljóði Benedikts Gröndal:
„Þá er svo gaman að ganga saman,
um græna hjalla og margt að
spjalla. Að ganga um fjalla glæst-
an sal, fyrir góða vini sprund og
hal.“ Þetta á svo sannarlega vel
við um lífsgöngu Svönu Jónsdótt-
ur. Og um sumardag kveðjum við
Svönu „ömmu“ hinstu kveðju. Ég
gæti trúað því að nú gangi hún um
græna hjalla og hafi margt að
spjalla í glæstum sölum á guðs-
vegum.
Ragnheiði systur hennar, börn-
um hennar, tengdabörnum og
barnabörnum sendum við Unnur
og börnin okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Við vitum að minn-
ingin um elskulega systur, góða
móður og ömmu lifir með ykkur
um langan aldur, svo djúp spor
markaði hún á lífsgöngu sinni.
Friður og blessun fylgi henni yf-
ir móðuna miklu.
Hermann Ragnar Stefánsson.
túrar. Aldrei gleymdist myndavél-
in hans í óteljandi ferðum.
Dóri ferðaðist einnig til annarra
landa, þar á meðal til Kína. Alltaf
kom hann færandi hendi úr ferð-
um sínum og eigum við systurnar
ótaldar gjafirnar frá honum. Dóri
varð aldrei neinn stóreignamaður,
enda ekki von því hans hugsun
snerist ætíð um það að rétta að
öðrum og gleðja. Dóri var hvers
manns hugljúfi, þar sem hann
hugsaði alltaf um aðra fyrst og
sjálfan sig á eftir.
I veikindum sínum kvartaði
Dóri aldrei og vildi hann sem
minnst um þau tala. Hann byrjaði
að kenna til veikinda sinna í júnf í
fyrra og gekkst hann þá undir að-
gerð og var allt gert sem hægt var
honum til hjálpar. Okkur langar
að þakka Snorra Ingimarssyni
lækni sérstaklega fyrir hans um-
önnun og hlýju í garð Dóra or
einnig hjúkrunarfólki á taupa-
deild Landspítalans.
Við systurnar þökkuin Dóra
frænda óll árin og ánægjustund-
irnar sem munu geymast i minn-
ingunni.
Far þú í friði,
fridur (iufts þig blessi,
hafdu þökk fyrir allt og allt.
+
Þökkum innilega auösýnda samúð viö andlát og útför sonar míns
og stjúpsonar.
HILMARS VIGNISSONAR,
Hátúni 12, Reykjavík.
Sigríöur Vilhjálmsdóttir, Óakar Ólafsson.
Asta, Eyvör og Þóra.
+
Þökkum af alhug auösýnda samúö viö andlát og jaröarför, móöur
okkar, tengdamóöir og ömmu,
GUORUNAR STEINSDÓTTUR
frá Karlsskála, Grindavík.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks í Sjúkrahúsi Keflavík-
ur.
Börn, tsngdabörn og barnabörn.
Minning:
Björgvin Bjarna-
son forstjóri
Minning:
Halldór Sigurður
Guölaugsson
Fæddur 12. janúar 1928.
Dáinn 23. júní 1983.