Morgunblaðið - 01.07.1983, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1983
íri til Liverpool
Liverpool keypti á dögunum
ungan írskan varnarmann frá
Shamrock Rovers. Kappinn heitir
Jim Beglin, og var hann keyptur
fyrir 20.000 pund eftir þriggja
vikna reynslutíma á Anfield.
17,33 í þrístökki
Vestur-Þjóöverjinn Peter
Bouschen setti nýtt landsmet og
varö Þýzkalandsmeistari er hann
stökk 17,33 metra í þrístökkinu á
vestur-þýzka meistaramótinu í
frjálsíþróttum, sem fram fór í
Bremen um helgina.
Bouschen er 23 ára gamall og
eru framfarirnar miklar, þar sem
hann átti bezt 16,74 frá í hitteð-
fyrra, en á síðastliðnu ári stökk
hann 16,69 metra. Bouschen er frá
Dusseldorf.
— ágás.
Júnímót drengja í golfi
Júnímót drengja í golfi fór fram í Grafarholti þ. 23 þ.m. Urslit uröu þessi:
Án forgjafar:
1. Karl Ó. Karlsson
2. Sigurjón Arnarsson
3. Jón H. Karlsson
Með forgjöf:
1. Heiöar Gunnlaugsson
2. Sigurhans Vignir
3. Eiríkur Guðmundsson
4. Gunnar Sigurösson
Nýliöamót fór fram á Korpúlfsstaöavelli þ
1. Rúnar Gíslason
2. Almar Sigurðsson
3. Eyjólfur Bergþórsson
Bezta skor: Lee Tian Choi 85 högg.
76 högg
84 högg
84 högg
90—27 = 63 högg
93—26 = 67 högg
92—23 = 69 högg
86— 17 = 69 högg
i. 21. þ.m. Úrslit uröu þessi:
87— 30 = 57 högg
88— 30 = 58 högg
90—30 = 60 högg
• Dan Corneliusson
Styrktarmanna-
klubburinn f jár-
magnaði kaupin
Þegar Stuttgart keypti
Svíann Dan Corneliusson frá
IFK Gautaborg fyrir skömmu
var þaö styrktarmanna-
klúbbur félagsins sem fjár-
magnaöi kaupin.
Formaður styrktarmanna-
klúbbsins var einn þeirra sem
komu meö liöinu í íslands-
feröina á dögunum, og sagöi
hann að félagiö sjálft heföi
ekki haft efni á því að borga
Corneliusson. Þetta væri ekk-
ert einsdæmi — en máliö
væri þannig, aö þegar Corn-
eliusson yröi seldur aftur, ef
þaö yröi gert, þá fengi styrkt-
armannaklúbburinn þaö fé
sem fengist fyrir hann.
Aöaltekjur þessa styrkt-
armannaklúbbar eru þær að
hann hefur til umráöa sér-
staka stúku á leikvelli Stutt-
gart sem hann selur aögang
að á leikjum liösins.
íþróttafélagió Hlynur
stofnað á Kópavogshæli
HINN 14. júní sl. var stofnaö
íþróttafélag þroskaheftra á
Kópavogshælinu og hlaut þaó
nafniö HLYNUR. Röskloga 50
manns sátu stofnfundinn og
voru þeir bssöi úr rööum vist-
manna, starfsmanna og for-
eldra- og vinafélagsins. Einnig
sátu stofnfundinn fulltrúar frá
íþróttasambandi Fatlaöra og
Ungmennasambandi Kjalarnes-
þings.
Þaö var ekki síst fyrir hvatn-
ingu Sonju Helgason íþrótta-
kennara og félagsráögjafanna
Láru Björnsdóttur og Rannveigar
Gunnarsdóttur og áhuga fleiri
starfsmanna, aö félagiö var
stofnaö.
Tilgangur félagsins er aö efla
útivist og íþróttaiökanir fyrir
þroskahefta meö æfingum, nám-
skeiöum og keppni. Er tilkoma
þessa nýja félags einn þáttur i
vaxandi íþróttastarfsemi fatl-
aöra.
í fyrstu stjórn félagsins voru
kjörin: Kristján Sigurmundsson
formaöur, Hansína Jónsdóttir rit-
ari og Elísa Þorsteinsdóttir gjald-
keri. í varastjórn voru kjörin:
Guömundur Jensson, Halldór
Jónsson og Elísabet Ólafsdóttir.
— ágás.
• Frá stofnfundinum á Kópavogshaelinu. Á efri myndinni ávarpar Siguröur Magnússon viöstadda,
býöur þá velkomna og vonast eftir góöu samstarfi við þá. Á neöri myndinní er stjórn félagsins og
varastjórn.
• Edwin Moses svífur létt yfir grindurnar í landakeppninni viö Aust-
ur-Þjóöverja um helgina. Hann vann sinn 76. aigur í röö (aérgrein ainni
og lætur engan bilbug á sér finna, þótt háriö sé tekið aö þynnast.
í
76 sigrar í röð hjá
Edwin Moses í grind
Bandaríski grindahlauparinn
Edwin Moses vann enn einn sig-
urinn í grein sinni, 400 metra
grindahlaupi, i landskeppni
Bandaríkjamanna og Austur-
Þjóöverja í Los Angeles, á leik-
vanginum þar sem Ólympíuleik-
arnir veróa haldnir aó ári.
Þaö þykir vart í frásögur fær-
andi þó Moses vinni grindahlaup,
en afrek hans er merkilegra sakir
þess aö þetta var hans 76. sigur í
Kratovchilova
hljóp 400 á 48,82
Tékkneska stúlkan Jarmila
Kratovchilova náöi bezta árangri
Bryggare á 13,53
Finnski grindahlauparinn Arto
Bryggare setti nýtt finnskt met í
110 metra grind á móti í Edinborg
í Skotlandi um helgina, hljóp á
13,53 sekúndum.
Bryggare átti sjálfur eldra metið
og var þaö 13,56 sekúndur frá Evr-
ópumeistaramótinu í Prag 1978,
en hann vann til verölauna á því
móti, og einnig Evrópumeistara-
mótinu í Aþenu í fyrra, er hann
hlaut bronzverölaun.
Bezti árangur Bryggare í ár fyrir
methlaupiö var 13,64 og í fyrra
hljóp hann á 13,57 sek.
— ágás.
heims á þessu ári í 400 metra
hlaupi, er hún hljóp á 48,82 sek-
úndum á frjálsíþróttamóti í Prag
um helgina.
Kratovchilova skaust þar meö
upp fyrir löndu sina Tatjönu Koc-
embovu á afrekaskránni, því Koc-
embova haföi hlaupiö nokkru áöur
á 49,67 sekúndum. Marita Koch
frá A-Þýzkalandi á heimsmetið,
48,16 sekúndur, en Kratovchilova
hefur hlaupiö á 48,61.
Kocembova er hins vegar i
framför, hljóp á 50,41 i fyrra. Hún
er aðeins 21 árs, en Kratovchilova
32, og Koch er þar mitt á milli. Á
Evrópumeistaramótinu í Aþenu í
fyrra hlaut Kratovchilova silfur-
verölaun og Kocembova bronz, en
gulliö féll Maritu Koch i skaut og
setti hún heimsmet sitt í þvi hlaupi.
— ágás.
röö. Hann hefur veriö ósigrandi frá
því hann tryggói sér þátttöku f
Ólympíuleikunum 1976 á banda-
ríska úrtökumótinu fyrir þá leiki.
í millitíöinni hefur honum hlotn-
ast öll þau verölaun, sem hægt er
aö vinna til og slegið heimsmetiö
nokkrum sinnum, síöast hljóp
hann á 47,13 sekúndum í Mílanó
1980. Hann varö Ólympíumeistari
1976 í Montreal og heföi ugglaust
gert hiö sama 1980 ef Bandaríkja-
menn heföu tekið þátt í Moskvu-
leikunum.
Eins og nærri má geta þykir
Moses líklegastur til sigurs á
heimsmeistaramótinu í frjálsíþrótt-
um, sem fram fer í Helsinki í
sumar. Moses er 28 ára gamall.
— ágás.
Schmid hljóp
400 grind á 48,66
Evrópumeistarinn og methaf-
inn í 400 metra grindahlaupi,
Vestur-Þjóöverjinn Harald
Schmid, hljóp í sérgrein sinni á
48,66 sekúndum um helgina, sem
er bezti árangur Evrópubúa á
þessu ári.
Bezta tímann átti Rússinn Alex-
ander Charlov, sem hljóp á 48,78 á
móti í Moskvu í síöustu viku. Ný-
veriö hljóp Svíinn Sven Nylander á
48,88, sem er þriöji bezti árangur
Evrópubúa í ár, en þess má líka
geta, aö eftir því sem næst veröur
komist er Þorvaldur Þórsson ÍR
enn meö þriðja bezta árangur
Noröurlandabúa á þessu ári.
Schmid náöi þessum árangri á
vestur-þýzka meistaramótinu, sem
haldiö var í Bremen um helgina.
Schmid er Evrópumeistari frá í
Prag 1978 og Aþenu í fyrra.
Evrópumet hans er 47,48 sekúnd-
ur, sett í úrslitahlaupinu í Aþenu,
og aöeins heimsmethafinn Edwin
Moses er betri, en met hans er
47,13 sekúndur. Auk þeirra hefur
aöeins John Aki-Bua hlaupiö undir
48 sekúndum í 400 metra grinda-
hlaupi, en hann hlaut 47,82 sek-
úndur í sigurhlaupinu á Ólympíu-
leikunum í Munchen 1972.