Morgunblaðið - 01.07.1983, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 01.07.1983, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1983 f t t } t ► I i í • Udo Boyor sést hér í kúluvarpskeppninni f landskeppninni við Bandaríkjamenn. Ekki lyfjapróf á stórmótinu AUSTUR-Þjóöverinn Udo Beyer setti heimsmet í kúluvarpi ó stórmóti í Bandaríkjunum fyrir nokkrum dögum eins og vió höfum reyndar skýrt frá. Hann kastaói þá 22,22 metra. Mót þetta var alþjóölegt frjáls- íþróttamót meö þátttakendum víöa aö, m.a. frá islandi, en Þór- dís Gisladóttir keppti í hástökki á mótinu. En hluti þessa móts var landskeppni Bandaríkjanna og Austur-Þýskalands — og þaö hefur vakiö mikla athygli aö fyrir mótiö komu Austur-Þjóöverjar og Bandaríkjamenn sér saman um aö á því yröu ekki nein lyfja- próf. Kemur þetta fram í frásögn norskra dagblaöa af mótinu, en Norömenn eru einmitt einna haröastir viö sína íþróttamenn hvaö lyfjanotkun varöar. Segir norska Dagblaöiö frá þvi aö Al- þjóöa frjálsíþróttasambandiö hafi ekki viljaö neyöa þjóöirnar til aö koma á lyfjaprófi, en á mótum sem þessum er slikt skylda. Vildi stjórn LSÍ eyði- leggja fyrir bræðrunum? — það vilja Akureyringar meina Sem kunnugt er dæmdi Lyft- ingasamband íslands tvíburana fræknu frá Akureyri, Garóar og Gylfa Gíslasyni, í keppnisbann á dögunum. Banninu hefur verið af- létt af héraðsdómstóli ÍBA og vítti dómurinn Lyftingasambandið fyrir meöferð þess á málinu. Forsaga þessa máls er sú aö fyrir Noröurlandamótið sem haldið var hér á dögunum valdi LSl þá bræöur báöa í 100 kg flokk. Þaö hefur veriö venja hjá sambandinu aö viö val á landsliöi hefur veriö gefin upp ákveöin dagsetning og tveir bestu í hverjum flokki á þeim degi þá valdir í liöiö, eöa þá aö haldiö hefur veriö úrtökumót. „Aö þessu sinni valdi LSÍ hvor- ugan kostinn, heldur valdi liöiö eft- ir eigin höföi á fundi," sagöi einn Akureyringanna í samtali viö Mbl. Fyrir valinu í 90 kg fl. uröu Baldur Borgþórsson, sem var meö bestan í dag eru íþróttir á bls. 26, 27, 30 og 31 árangur í flokknum og Guömundur Sigurösson, sem var meö þriöja besta árangur, er liöiö var valiö. Garöar Gtslason er vanur aö keppa í 90 kg flokki og var hann meö annan besta árangur yfir landiö er þetta var. Engu aö síður var hann valinn í 100 kg flokk en neitaöi aö una því, og til aö sýna samstööu meö honum ákvaö Gylfi bróöir hans aö gefa ekki kost á sér í landsliöiö. Fyrir vikiö setti LSÍ þá í tveggja mánaða keppnisbann — en að gera þaö á þessum forsend- um var lögleysa, eins og fram kem- ur í dómi héraösdóms ÍBA. „LSÍ vissi aö banninu yröi hnekkt. En stjórnin vissi líka aö þaö tæki nokkurn tíma aö gera þaö og þegar það yröi gert, yröi of seint aö tilkynna þátttöku á heims- meistaramót unglinga, sem fram fer í júlí í Kairó í Egyptalandi," sagöi viömælandi Mbl. „Þaö verð- ur því aö álykta aö þeir hafi viljaö eyöilegga fyrir tvíburunum svo þeir kæmust ekki á mótiö, og þar meö er búiö aö eyöileggja fyrir þeim átta mánaöa þjálfun." — SH. • Billy Jean King tapaði Ifla fyrir hinni ungu Andreu Jaeger. Hér sést King í leik á Wimbledon á dögunum. Wavraiilova og Jaeger í úrslitum á Wimbledon: Eitt mest niðurlægjandi tap á ferlinum hjá King — átti aldrei möguleika gegn Andrea Jaeger „Ég ákvað aö leggja mikla áherslu á hvert einasta smáatriði. Venjulega geri ég þaö ekki, en nú var ég geysilega ákveðin," sagði hin átján ára gamla Andrea Jaeg- er eftir að hafa burstaö gömlu Jordan ræðir við Chelsea — Blissett tekur stöðu hans hjá AC Milan LUTHER Blisset, sem lék með Watford en hefur nú verið keypt- ur til AC Milano, er nú á Ítalíu til aö ganga endanlega frá peninga- hlíðinní og einnig mun læknir fé- lagsins rannsaka hann til þess að fullvíssa sig um aö allt sé í lagi. Blisset mun leika viö hliöina á Eric Gerets frá Belgíu en hann var nýlega keyptur til Milano en þetta hefur þaö í för meö sér að Skotinn Joe Jordan verður seldur frá félag- inu en aöeins tveir erlendir leik- menn mega leika meö hverju liöi. Jordan sem leikiö hefur meö Mil- ano síöustu tvö keppnistímabil er nú í samningaviöræöum viö Cheisea og eru taldar miklar líkur á aö samningar takist. kempuna Billy Jean King í und- anúrslítum Wimbledon-keppn- innar í tennis í gær. Leikurinn tók aöeins 54 mínútur og þetta var eitt mest niðurlægj- andi tap á ferli hinnar 39 ára gömlu King, sem hefur sigraö 20 sinnum á Wimbledon. Jaeger mætir Martinu Navratilo- vu í úrslitunum á morgun, en Na- vratilova sigraöi í gær Suöur—Afr- íkustúlkuna Yvonne Vermaak meö sama mun, 6:1, 6:1. „Faöir minn ráölagöi mér aö leggja aöaláherslu á sendingarnar, en aörir sögöu mér aö best væri aö láta hana hlaupa sem mest — en passa mig á því aö láta hana ekki þreyta mig," sagöi Jaeger. Hún var spurö aö því hver heföi gefiö henni seinna ráöiö, sem hún fór bersýnilega eftir. „Ein af kepp- endunum hér — ég get ekki sagt hver," sagöi hún og brosti. King leit um öxl er hún gekk af velii eftir viöureignina; á völlinn þar sem hún hefur keppt á hverju ári síöastliöin 22 ár. „Ég hef aldrei gert þetta áöur," sagöi hún. „Ég hélt kannski aö þetta yröi í síöasta skipti." „Ég get enn leikiö mjög vel — vandamáliö er aö ná toppleik dag eftir dag í langan tíma," sagöi King, sem neitaöi því alfariö aö hún myndi nú hætta tennisleik. Mér var ráölagt aö hætta á toppn- um, en ég tel mikilvægast aö halda áfram aö leika meöan maöur hefur gaman af því.“ Jaeger veröur yngsti keppand- inn sem leikur til úrslita á Wimble- don. Undanúrslitaleikirnir í karla- flokki veröa leiknir í dag, John McEneroe leikur viö Ivan Lendl og Kevin Curren mætir Chris Lewis. Einkunnagjöfin ÞRÓTTUR: Guðmundur Erlingsson Jóhannes Sigursveinsson Þorvaldur Þorvaldsson Jóhann Hreióarsson Arsæll Kristjánsson Júlíus Júlíusson Valur Helgason Páll Ólafsson Sverrir Pétursson Ásgeir Elíasson Sigurkarl Aöalsteinsson Baldur Hannesson (vm) lék of stutt. Ottó Hreinsson (vm) lék of stutt. UBK: Guðmundur Ásgeirsson Benedikt Guðmundsson Ómar Rafnsson Jón Bergs Ólafur Björnsson Valdimar Valdimarsson Trausti Ómarsson Jóhann Grétarsson Sigurður Grétarsson Sssvar Geir Gunnleifsson Sigurjón Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.