Morgunblaðið - 01.07.1983, Síða 32

Morgunblaðið - 01.07.1983, Síða 32
BÍLLINN BfLASALA SlMI 79944 SMIÍXJUVEGI4 KOR4VOGI RAY CHARLES Á ÍSLANDI fimmtudaginn 7. júli kl. 20.00 og 23.00 á Broadway. FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 1983 LÖGREGLAN hefur nokkra undanfarna daga, stöðvaö bifreiðir og fært þær til skoðunar ef ástæða hefur þótt til. Ein slík skyndiskoðun var framkvæmd í gærkvöldi. Að sögn Hilmars Þorbjörnssonar, varðstjóra hjá umferðardeild lögreglunnar voru 70—80 bifreiðir færðar til skoðunar í Bifreiðaeftirlitinu og sagði hann, að þessu yrði haldið áfram næstu daga. Hilmar sagði að skoðun væri seinna á ferðinni, en hún hefði verið undanfarin ár. Morsunbitðið/Guðjón. Selir í loðdýrafóður Þessir útselir, sem Ari Albertsson f Ólafsfírði skaut fyrir skömmu, voru lagðir inn á loðdýrabúið að Böggvistöðum á Dalvík, þar sem þeir voru hakkaðir í fóður handa refum og minkum. Eggert E. Bollason, bústjóri þar, sagði að þetta virtist ágætt fóður og að þeir ætluðu að nota sel í 5% fóðursins til reynslu, sem gerði 30—40 tonn af sel á ári fyrir þeirra bú, svo framalega sem kostnaður við að afla þeirra yrði ekki of mikill og hring- ormanefnd borgaði veiðimönnunum fyrir að skjóta selinn. Fyrir þessa tvo seli sem voru samtals um 600 kíló að þyngd getur veiðimaðurinn hafa fengið um 8.000 krónur í verðlaun frá Hringormanefnd, 2.000 krónur fyrir kjálkana Og 6.000 krónur fyrir kjötið. Mor?unblaóid/Svavar B. Magnússon. Kjarasamningar hafa ekki náðst á Blöndusvæðinu: Framkvæmdir byrja ekki fyrr en samningar nást Þórarinn sagði að Landsvirkjun hefði sent frá sér útboðsgögn með skiladegi 12. ágúst nk., en í út- boðsgögnum er fyrirvari, sem lýt- ur að því að skiladegi kunni að verða breytt, ef kjarasamningar hafi ekki náðst fyrir þennan tíma. „Það má því raunverulega segja, að kjarasamningarnir séu for- senda þess, að hægt verði að hefja framkvæmdir við Blönduvirkjun í haust," sagði Þórarinn. „Það eru nokkrir þættir hinna svokölluðu öræfasamninga sem svæði, en tvö meginágreinings- málin eru annars vegar greiðslur vegna ferðalaga starfsmanna og hins vegar ágreiningur um for- gangsrétt starfsmanna í héraði til að sitja að störfum. Þeir verktakar, sem verða á svæðinu, eru flestir staðsettir hér sunnanlands og eru með sína starfsemi og menn hér. Þar eru menn sem hafa verið í vinnu við stórframkvæmdir af þessu tagi árum saman. Við treystum okkur því ekki til að semja um að þessir menn verði skilyrðislaust að víkja fyrir heimamönnum. Það myndi tvímælalaust tefja fyrir fram- kvæmdum vegna reynsluleysis starfsmanna, auk þess sem mark- aðurinn á svæðinu getur ekki ann- að nema broti af þörfinni yfir há- annatímann, þegar starfandi verða á svæðinu 450—500 starfs- menn,“ sagði Þórarinn. Aðspurður sagði Þórarinn að væntanlega yrði næsti samninga- fundur haldinn í næstu viku, þar sem málin yrðu reifuð, en það þyrfti að ræða um framangreind ágreiningsefni og önnur minni. Verkalýðsfélögin á svæðinu eru fimm talsins, en auk þess taka fulltrúar ASÍ þátt í viðræðunum. „ÞAÐ ERU NOKKUR meginágreiningsefni, sem hafa staðið í vegi fyrir samningum til þessa, en við gerum okkur eigi að síður von um að samning- ar takist og viðræðum verður því haldið áfrarn," sagði Þórarinn V. Þór- arinsson, aöstoðarframkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands, í samtali við Mbl. er hann var inntur eftir gangi mála í samningaviðræðum vinnuveitenda og verkalýðsfélaga á virkjunarsvæði Blöndu. við teljum, að eigi ekki við á þessu Bifreiðaeftirlitið með skyndiskoðanir Forsetaskrifstofan átti að hafa samband við mig — segir Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, um aðdraganda bókmenntaverðlaunanna „VITANLEGA á það ekki að vera fjármálaráðherra sem leggur þetta fyrir mig, það á að vera forsetaembættið. Ég hef sagt að ég geri ekki athuga- semd og á þá viö það. Síðan hefði ég þá að sjálfsögðu tekið þetta upp í ríkisstjórninni. Ég og forsetinn höfum rætt þetta og það er allt á hreinu okkar á milli,“ sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra m.a. í viðtali við Mbl. í gær í tilefni af þvf hvernig staðið var að undirbúningi bókmenntaverðlauna forseta íslands. Steingrímur sagði mikinn mis- skilning hafa átt sér stað vegna þess að haft hefði verið eftir hon- um að hann hefði ekki vitað um málið. Hann sagði í því sambandi að spurning virtist nú vera hvenær hann hefði vitað um það og sagði í framhaldi af því: „Þriðjudagsmorguninn 21. júní er ég á fundi og er kallaður út af honum á milli kl. níu og tíu og Albert segir mér þau tíðindi, að forseti hafi haft samband við sig og leitað samþykkis fyrir því að þessi verðlaun verði veitt. Forseti hafði ekki talað neitt við mig fyrir þann tíma. Albert segir mér jafn- framt að málið sé orðið hálfopin- bert og að hann sé því meðmælt- ur. Ég sagði því að ég myndi fyrir mitt leyti samþykkja það, enda yrði það svo samþykkt í ríkis- stjórn og á Alþingi. Þetta gerðist tveimur dögum áður en fjölmiðlar skýra frá því.“ Steingrímur var þá spurður hvort þetta svar hans við mála- leitan fjármálaráðherra í fram- haldi af beiðni forsetans til hans sé ekki jafngilt samþykki hans sem forsætisráðherra og hvort hann hefði þá ekki, miðað við stöðu málsins, átt að kalla saman ríkisstjórnarfund. Hann svaraði: „Það er forsetaskrifstofan se;n á að hafa samband við mig, en ekki fjármálaráðherra og ég er að segja að ég geri ekki athugasemd við það. Þrátt fyrir það sá ég í gegnum fingur mér og ákvað að styðja þetta í ríkisstjórninni." Varðandi það að kalla saman rík- isstjórnarfund þar sem hann væri æðsti maður hennar og að því leyti yfirmaður fjármálaráð- herra, sagði hann: „Hann hefði ekki átt að hringja í mig. Hann hefði átt að benda forsetanum á að hafa samband við mig, en for- setinn var farinn af stað þennan morgun." Hann sagði einnig að ríkisstjórnarfundur hefði verið daginn áður, mánudag. Forsætisráðherra var þá spurð- ur álits á skrifum prófessors Björns Þ. Guðmundssonar í Mbl. sl. miðvikudag þar sem hann spyr m.a. hvað forsætisráðherra meini með þeim orðum sínum að hann sé málinu hlynntur, þó ekki hafi verið farið eftir ströngustu regl- um og hvort hann sé með því að meina að skattborgarar þurfi ekki að fara að lögum, ef þeim finnist þau ströng. Steingrímur svaraði: „Ég verð nú að segja við pró- fessorinn að hann fer þarna dálít- ið villur vegar, ef hann heldur að ég haldi að ég sé löggjafarvald í þessu, því þetta er allt háð sam- þykki Alþingis og Alþingi getur kosið að fella þetta. Ég verð nú að segja eins og er að ég ber mikla virðingu fyrir þessum unga manni, en ég veit ekki hvað hann er að fara.“ Ernir hafa gert usla í æðavarpi ERNIR hafa gert nokkurn usla í æðavarpi í Barðastrandarsýslu í ár og síðastliðið ár. Sem dæmi um það er Morgunblaðinu kunn- ugt um að á einni eyju þar sem 340 kollur urpu árið 1981, urpu 80 í fyrra og aðeins ein núna. AIIs eru það um 70 eyjar og hólmar, sem hafa að einhverju leyti orðið fyrir barðinu á þessu. Talið er að um fimm erni sé að ræða, allt saman flökkufugla. Þegar örninn flakkar og verpir ekki, þá sest hann að máltíð þar sem hann drepur bráðina. Þá helgar hann sér heldur ekki svæði og hrekur aðra erni burt eins og hann gerir, þegar hann gerir sér hreiður. Æðabóndi einn á þessum slóð- um, sem skilaði inn 39 kílóum af æðadún 1981, sagði í samtali við Morgunblaðið, að hann byggist ekki við að fá nema 10 kíló af æðadún í ár. „Vinnuálagið stofnar flug- öryggi í hættu" „ÞAÐ gefur auga leið að þetta vinnuálag stofnar flugörygginu í hættu,“ sagði Hallgrímur Sigurðs- son, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, í samtali við Morgunblaðið í gær í framhaldi af því að takmarka varð flug um Reykjavíkurflugvöll í fyrrakvöld þar sem ekki fengust flugumferð- arstjórar á kvöldvakt frá klukkan 19.30 til 23.30. „Þessar umraeddu vaktir hafa verið mannaðar algjörlega með aukavinnu og menn eru gjarnan pressaðir beint á þessar vaktir í framhaldi af venjulegri vakt, sem stendur í 12 stundir," sagði Hallgrímur. í dag eiga flugum- ferðarstjórar fund með full- trúum fjármála- og samgöngu- ráðuneytis út af þessum auka- vöktum. Sjá nánar á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.