Morgunblaðið - 18.08.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983
Bflar án skrásetningarnúmera:
„Eftir umræður í ríkisstjórninni
voru allir ráðherrar sammála um,
að það væri ekki unnt að brúa
fjárþörfina meira en ofangreindar
tölur segja til um. Því yrði ekki
unnt að lána meira en 90% af
framfærslukostnaði að þessu
sinni," sagði Geir. Hann sagði og
að menn hefðu ekki talið það
óeðlilegt, að námsmenn þyrftu að
lúta einhverri kjaraskerðingu, þó
aldrei meiri en launþegar í land-
inu. „Að þessari ákvörðun stóð öll
ríkisstjórnin og taldi sig ekki
þurfa sérstakt samþykki þing-
flokka, þar sem það verður eigi
lánað sem ekki er til. Hins vegar
þótti Ragnhildi Helgadóttur,
menntamálaráðherra, varlegar að
fá heimild til útgáfu bráðabirgða-
laga, ef einstaka lántakendur
meðal námsmanna bæru fyrir sig
skýlaus ákvæði laga um að þeim
bæri 95% af framfærslukostnaði
þegar fjármagn sjóðsins leyfði það
ekki,“ sagði Geir Hallgrímsson.
Hann sagði að Ragnhildur hefði
óskað eftir sérstakri umsögn Loga
Einarssonar, fyrrverandi hæsta-
réttardómara, sem telur útgáfu
bráðabirgðalaga nauðsynlega þeg-
ar svo stendur á sem hér segir.
„Útgáfa bráðabirgðalaga er
auðvitað á fyrsta stigi umræðu-
efni í þingflokkum stjórnarflokka
og ef ekki næst samkomulag á
milli þeirra þar að lútandi, er eðli-
legt að málið fari aftur fyrir ríkis-
stjórnina, án digurbarkalegra yf-
irlýsinga formanns annars þing-
flokksins eða fyrrverandi mennta-
málaráðherra. Með þeim hætti
verður með mál þetta farið að
þessu sinni," sagði Geir Hall-
grímsson að lokum.
Maöur
slasast
VINNUSLYS varð á Keflavíkur-
flugvelli um miðjan dag í gær.
Vinnupallur hrundi og maður sem
var á honum féll til jarðar. Var
það um 4 metra fall. Maðurinn
reyndist ekki eins mikið slasaður
og óttast var í fyrstu, en hann
skarst á höfði og gekk úr axlar-
liðnum meðal annars. Ekki var
vitað í gær hver var orsökin fyrir
því að vinnupallurinn féll. Menn
frá Vinnueftirlitinu og öryggis-
verðir hjá íslenskum aðalverktök-
um komu á staðinn og könnuðu
orsakir slyssins.
sá
Valt vegna hemlabilunar
VÖRUBIFREIÐ með skreiðarfarm valt á horni Kringlumýrarbrautar og Sundlaugavegar um eittleytið í gærdag.
Bifreiðin var að beygja af Kringlumýrarbrautinni til að aka austur Sundlaugaveginn þegar atburðurinn átti sér
stað. Ökumaður vörubifreiðarinnar slapp ómeiddur og segir hann að hemlarnir hafi bilað og hafi hann því
kotnið á of mikilli ferð í beygjuna. Slökkviliðið kom á staðinn því tilkynnt var að eldur hefði komið upp í bflnum
og hreinsaði það upp olíu sem rann úr bflnum á götuna. MargunbiaAiA/júiius.
nægu
Lögreglan varar
menn við ádur en
adgerðir hefjast
„VIÐ höfum verið að aðvara menn
núna og gefa þeim þannig tækifæri
til að fjarlægja bílana," sagði Óskar
Olason, yfirlögregluþjónn í Reykja-
vík, í samtali við Morgunblaðið í
gær, en nú hefur tekið gildi breyting
á lögreglusamþykkt Reykjavíkur-
borgar, sem gerir lögreglunni heim-
ilt að fjarlægja bíla án skrásetn-
ingarnúmera, sem lagt er á götum og
í almenn bifreiðastæði, á kostnað
eigenda þeirra.
„Aðgerðir hefjast fljótlega, en
ekki alveg strax. Við viljum gefa
fólki tækifæri til þess að átta sig á
þessari breytingu og gera ráðstaf-
anir varðandi bílana, annaðhvort
að koma þeim í lag eða koma þeim
fyrir í bílskúrum eða annars stað-
ar, þar sem heimilt er að geyma
þá. Fólk hefur kvartað mjög und-
an númeralausum bifreiðum í
reiðileysi og við munum hefja að-
gerðir innan skamms og fjarlægja
bifreiðirnar, láti menn sér ekki
segjast og geri það sjálfir. Þá
verða viðkomandi að greiða flutn-
ings- og geymslukostnað og sektir
fyrir að hafa gerst brotlegir við
þessi ákvæði. Við viljum gjarna
vera lausir við þetta og okkur
þætti vænt um ef menn notuðu nú
tímann til þess að fjarlægja bíl-
ana, án þess að lögreglan þurfi að
koma þar nærri. Þegar farið verð-
ur af stað, verður farið í gegnum
borgina með kranabíla og bílar án
skrásetningarnúmera hirtir án
frekari umsvifa," sagði Óskar að
iokum.
Fyrrverandi ríkisstjórn
LIN ekki fyrir
fé
Bílvelta í
Breiðholti
BÍLL valt í fyrrinótt á Breið-
holtsbrautinni á móts við kirkj-
una, sem verið er að reisa í Mjódd-
inni. Þrír voru í bílnum og slasað-
ist enginn. Grunur leikur á að
ökumaðurinn hafi verið ölvaður.
Þá varð árekstur um miðjan dag
í gær á horni Langholtsvegar og
Holtavegar. Biðskylda er á Holta-
vegi og var biðskylda brotin. Öku-
menn beggja bifreiðanna voru
fluttir á slysadeild, en þeir munu
ekki vera alvarlega slasaðir; munu
einkum hafa skorist.
— segir Geir Hallgrímsson
RÁÐHERRAR ríkisstjórnarinnar voni allir sammála um, að ekki væri unnt
að lána meira en 90% af framfærslukostnaði námsmanna að þessu sinni.
Ragnhildi Helgadóttur, menntamálaráðherra, þótti varlegar að sett yrðu
bráðabirgðalög um þetta efni, svo einstaka lántakendur meðal námsmanna
bæru ekki fyrir sig skýlaus lagaákvæði um að þeim bæri 95% framfærslu-
kostnaðarins. Þetta kom m.a. fram í samtali sem Morgunblaðið átti við Geir
Hallgrímsson, utanríkisráðherra, í gær.
Hann var inntur álits á þeirri
ákvörðun þingflokks framsókn-
armanna í fyrradag að hafna
hugmynd Ragnhildar Heigadóttur
um útgáfu sérstakra bráðabirgða-
laga vegna Lánasjóðs íslenskra
námsmanna. Geir sagði að málið
yrði nú aftur tekið fyrir í ríkis-
stjórninni. Ragnhildur er stödd
erlendis um þessar mundir og á
meðan fer Geir Hallgrímsson með
hennar málaflokka.
Ingvar Gíslason, alþingismaður,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að ástæður þessarar ákvörð-
unar þingflokksins væru einkum
tvær: í fyrsta lagi hefði mönnum
þótt óeðlilegt að gefa út bráða-
birgðalög af ekki meira tilefni og í
öðru lagi væri andstaða í þing-
flokki framsóknarmanna gegn
hugmyndum um að skerða náms-
lánin. „Menn vildu fá betra tæki-
færi til að hugleiða þessi mál,“
sagði Ingvar. Hann sagði að sam-
staða hefði verið í þingflokknum
um það, að styðja ekki slík bráða-
birgðalög, endanleg afstaða hefði
þó ekki verið tekin um skerðing-
una sem slíka.
Geir Hallgrímsson sagði að þeg-
ar síðasta ríkisstjórn hefði látið af
störfum, en í henni var Ingvar
Gíslason menntamálaráðherra,
hafi verið gerð áætlun um fjárþörf
Lánasjóðs íslenskra námsmanna,
þannig, að hann gæti fullnægt
lagaskyldu sinni til lánveitinga.
Þá hafi komið í ljós að yfir 180
milljónir króna hafi skort til þess
að brúa fjárþörf sjóðsins. „Fráfar-
andi ríkisstjórn hafði ekki aflað
fjár til þess að standa við þessar
skuldbindingar. Það féll því í hlut
núverandi menntamálaráðherra
og fjármálaráðherra að taka við
þessum arfi,“ sagði Geir Hall-
grímsson.
„Eftir löng og ströng fundahöld
með stjórn Lánasjóðs íslenskra
námsmanna og fulltrúum ís-
lenskra námsmanna, varð að ráði,
eftir umræður í ríkisstjórn, að séð
yrði fyrir rúmlega 130 milljón
króna viðbótarfjárveitingu til
Lánasjóðs íslenskra námsmanna,
umfram það sem fyrrverandi rík-
isstjórn hafði ætlað honum. En
auðvitað skorti ennþá milli 40 og
50 milljónir króna,“ sagði Geir
Hallgrímsson. Hann bætti því við
að samkvæmt lögum væri áskilin
gerð áætlunar um framfærslu-
kostnað námsmanna. Væri sjóðn-
um skylt að lána á þessu ári 95%
af framfærslukostnaði og á næsta
ári 100%.
DAGSKRÁ Reykjavíkurviku hefst
í dag kl. 09.00, þegar Davíð
Oddsson, borgarstjóri, ræsir kepp-
endur í Ljómarallý ’83 af stað. Þá
verður frá kl. 10.00 til kl. 18.00
fiskmarkaður á Lækjartorgi og
bókabfll, en blómabúðin Blóm og
ávextir skreyta Lækjartorg og
Austurstræti.
Þrjár sýningar eru í gangi, þ.e.
sýning í Árbæjarsafni á gömlum
Reykjavíkurkortum, listaverk í
eigu Reykjavíkurborgar og
„Kjarval á Þingvöllum" á Kjar-
valsstöðum og sýning í Gerðu-
bergi á listaverkum frá Lista-
safni ASÍ. Þá flytur Nanna Her-
mannsson, borgarminjavörður,
erindi um Árbæjarsafn og sögu
Reykjavíkur kl. 20.30 á Kjarvals-
stöðum.
Á vegum Borgarbókasafnsins
verður bókasafn á Kjarvalsstöð-
um og barnadeild í menningar-
miðstöðinni að Gerðubergi.
Útiskemmtun hefst á Lækjar-
I________________________________
torgi kl. 17.00 og er hún á vegum
Reykjavíkurborgar í samvinnu
við SATT. Þar koma fram
hljómsveit Gunnars Þórðarson-
ar, Jóhann Helgason, Bergþóra
Árnadóttir og leikhópur úr
Reykjavíkurblús. Flutt verða
m.a. lög um Reykjavík, atriði úr
Reykjavíkurblús og frumsamið
efni í tilefni dagsins. -
Sumarhátíð Æskulýðsráðs
Reykjavíkur hefst kl. 19.30 í
Gerðubergi, en skemmtunin er
fyrir þátttakendur í sumarstarfi
æskulýðsráðs í félagsmiðstöðv-
unum í Nauthólsvík og í Saltvík.
„Reykjavík vorra daga“, kvik-
mynd Óskars Gíslasonar verður
síðan sýnd á kvikmyndasýningu
í Iðnó kl. 20.30. Kynnir er Pétur
Pétursson, þulur.
Er því margt hægt að sjá og
gera á afmælisdegi Reykjavíkur-
borgar 18. ágúst, en í dag eru
liðin 197 ár frá því Reykjavík
hlaut kaupstaðarréttindi.
Frá skoðunarferð að vatnsbólum Reykvíkinga í gær. Ljosm.: kbb.
Dagskrá Reykjavíkurviku á
afmælisdegi borgarinnar