Morgunblaðið - 18.08.1983, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983
Módel
Okkur vantar stúlkur á aldrinum 16—25 ára til aö
vera hárgreiöslumódel fyrir Loreal-hárgreiöslu-
meistara sem veröa hér á landi meö sýnikennslu
sunnudaginn 21., mánudaginn 22. og þriðjudaginn
23. ágúst á Hótel Esju. Nánari uppl. í dag í síma
86700 milli kl. 1 og 5.
iMAVsiv a> ©©.
Laugaveg 178 — P.O. Box 338 — 105 Reykjavik — Iceland
30. ágúst
Sumarhus
og Tívolí
á sama stao
Bráðskemmtileg nýjung fyrir fjölskylduna sem vill stanslaust Tívolí-
fjör í sumarleyfinu án aukakostnaðar. Gist verður í sumarhúsum við
Pony Park, einn stærsta Tívolígarð Hollands. Innifalinn í verði
ferðarinnar erfrjáls aðgangur að öllum tækjum, leikjum og sýningum
í Pony Park og bílaleigubíll að auki!
Verðdæmi: 4 saman i húsi kr.10.600.- Barnaafsláttur kr. 4.000.-
Heildarverð fyrir 4ra manna fjölskyldu aðeins kr. 34.000.-
Innifalið: Flug til og frá Amsterdam, gisting í sumarhúsi og ókeypis
aðgangurað Pony Park, bílaleigubíllaf A-flokki íviku.ótakmarkaður
kílómetrafjöldi, allar nauðsynlegar tryggingar og söluskattur.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Þrátefiið um Líbanon
stendur sjálfsagt lengi enn
ingar hypji sig á braut. Eins og
málum er háttað nú er hætta á
að það skapi fleiri vandamál en
leysast.
Spyrja má vitanlega hvað sé
til ráða og hvernig megi vera, að
Amin Gemayel
Assad
Þó svo að Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hafi skipað nýjan sátta-
semjara, Robcrt McFarlane, í málefnum Miðausturlanda og þá fyrst og
fremst með það verkefni á herðunum að fá fsraela og Sýrlendinga til að
hverfa með heri á brott úr Líbanon, virðist það ekki ætla að bera meiri
árangur en viðleitni fyrirrennara hans, Philip Habibs. Sýrlendingar voru
undir það síðasta orðnir mjög argir í garð Habibs, sem er af líbönsku
bergi brotinn, og neituðu síðan að taka á móti honum til viðræðna, eins
og fram hefur komið í fréttum.
Robert McFarlane hefur þeg-
ar þetta er ritað hafið
ferðalög sín um þennan heims-
hluta og hann átti viðræður við
Assad Sýrlandsforseta á dögun-
um. En það hefur ekkert komið
fram sem bendir til að Sýrlend-
ingar muni verða við þeim til-
mælum að flytja hermenn sína í
burtu. Þar með neita ísraelar að
fara og samningur sá sem þeir
gerðu við Líbani um brottflutn-
ing herja til lítils.
Robert McFarlane mun þó
hafa fengið heldur vinsamlegar
viðtökur í Sýrlandi og eitt af því
sem rætt var á fundum hans og
Assads var að byrja mætti með
aðskilnaði ísraelskra og sýr-
lenzkra herja í Beeka dal og síð-
an mætti þoka sér áfram ef sam-
komulag næðist um það. í sýr-
lenzkum blöðum kemur fram að
McFarlane hafi svo sem ekkert
nýtt haft fram að færa og þar
gætir beizkju sem fyrr í garð
Bandaríkjanna, og Sýrlendingar
segja öldungis auðsætt að
Bandaríkjamenn vilji þá hvergi
styggja og víli ekki fyrir sér að
sýna öðrum aðilum í Líbanon
ósvífni og yfirgang til að ísrael-
ar fái vilja sínum framgengt.
Samt eru sumir fréttaskýrendur
á Vesturlöndum þeirrar skoðun-
ar, að fyrir Sýrlendingum vaki
með skrifum og viðbrögðum sín-
um að láta Bandaríkjamenn ekki
velkjast í neinum vafa með það,
að geri þeir tilslakanir verði
Bandaríkjamenn og ísraelar að
greiða þær dýrt. Varnarmála-
ráðherra Sýrlands, Mustafa
Tlas, hefur sagt að herflokkar
Sýrlendinga verði um kyrrt,
enda megi segja að ísraelar séu
ekki aðeins að ógna völtum friði
í Líbanon heldur séu þeir einnig
ógnun við Sýrlendinga.
ísraelar hafa greint McFar-
lane frá því og ítrekuðu það í
ferð hans nú, að ekki kæmi til
mála að þeir færu úr Líbanon, ef
Sýrlendingar yrðu um kyrrt.
Þetta þrátefli virðist engan endi
ætla að taka, en vissulega má
segja að afstaða beggja sé skilj-
anleg, að minnsta kosti með
hliðsjón af því ástandi og þeim
fjandskap sem er milli ísraela og
Sýrlendinga. Það má líka segja,
að enginn geti gert því skóna, að
allt falli í ljúfa löð í Líbanon um
leið og hersveitir Sýrlendinga og
ísraela væru farnar. Kannski
fjarri því. Það sem hefur verið
að gerast þar upp á síðkastið
bendir að minnsta kosti ekki til
þess: sundrung Líbana innbyrðis
er hörmuleg; þar vegur hver
annan, sprengingar eru daglegt
brauð og uppbygging Beirút
gengur heldur hægt fyrir sig
sem eðlilegt er við þessar að-
stæður. Og landið allt og íbúar
þess eru raunar í sárum og allt
ber vott þeirrar miklu eyðilegg-
ingar, sem næstum því tíu ára
samfelld átök víðs vegar um
landið hafa haft í för með sér.
Því er svo sem ekki einhlítt að
líta á það sem einhverja himna-
lausn að ísraelar og Sýrlend-
að sinni eigin köku og kynda
undir ófriðarbálið, þar sem þeim
þykir þeir ekki hafa fengið nægi-
lega mikið fyrir sinn snúð.
Staða Reagans forseta gagn-
vart ísraelum og Sýrlendingum
er heldur ekki sterk: Bandaríkja-
stjórn hefur mistekizt gersam-
lega það ætlunarverk að koma á
friði í Líbanon og fara þar með
sáttaboð á milli. Væri tiltrú
manna á styrk Reagans meiri,
hefði honum sjálfsagt tekizt að
fá einhverju áorkað.
í Sýrlandi og ísrael ráða ríkj-
Robert McFarlane
Þannig var umhorfs í bænum Baalbek í Líbanon eftir bílsprenginguna á
dögunum þegar 35 biðu bana og 133 slösuðust. A.m.k. 15 verslanir
eyðilögðust
Libanonmálið virðist beinlínis
óleysanlegt. Skýringar eru ugg-
laust margar, en nokkrar þeirra
kynnu að vera: veik staða Ámins
Gemayel forseta. Hann er ljúf-
menni og velviljaður, en hann er
ekki sterkur pólitíkus. Honum
hefur ekki orðið neitt ágengt að
sætta stríðandi öfl innan Líban-
on sjálfs og þar af leiðandi er
staða hans gagnvart Sýrlandi og
fsrael mjög veik. Hefði sterkur
forseti án efa getað hjálpað mik-
ið upp á sakirnar.
Drúsar, falangistar, PLO-
menn kristnir, hvort sem þeir
eru múhammeð8trúarmenn eða
kristnir, hafa notfært sér veika
stjórn Líbanon til að skara eld
um tveir menn, Begin og Assad,
sem þekktir hafa verið fyrir
annað en sveigjanleika og vin-
semd hvor í annars garð. Báðir
vantreysta þeir þó Reagan og
hvorugur hefur trú á Gemayel.
En líklega gætu þeir ekki náð
saman þrátt fyrir svipaða af-
stöðu. Svo að harmleiknum í
Líbanon er áreiðanlega langt frá
lokið. Fólk heldur áfram að flýja
þetta indæla land, sem einu
sinni var eins og vin í Miðaust-
urlöndum. Nú eru þar rjúkandi
rústir, menn berast á banaspjót
og friður er ekki í sjónmáli fyrir
þessa hrjáðu og hröktu þjóð.
(Heimildir: Jerusalem Post, AP,
Syrian Times)