Morgunblaðið - 18.08.1983, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983
AF.
NKOMU SNÝST TIL VARNAR
Joshua Nkomu, sem fyrir fimm mánuðum flýði frá Zimbabwa vegna
ótta við útsendara Mugabes, forsætisráðherra, sneri aftur heim í fyrra-
dag. í gær mætti hann í þingið á ný og var þá vel fagnað af um 600
stuðningsmönnum sínum. Flokkur Mugabes, sem hefur meirihluta á
þingi Zimbabwe, var ákveðinn í að svipta Nkomu þingsæti sínu vegna
þess, að hann hafði ekki mætt á 21 þingfund í röð, en samkvæmt
síðustu fréttum hefur verið hætt við það, í bili a.m.k.
N ícaragua-menn
teknir í Hondúras
Egyptar vara
Khadafy við
Kaíró, 17. igúst. AP.
Stuttfréttir:
Atta dæmdir
ÁTTA ísraelskir hermenn hafa
verið dæmdir til fangelsisvist-
ar fvrir að ræna líbanska veg-
farendur við vegartálma.
Fengu hermennirnir allt að 11
mánaða dóma.
Allir eru viðkomandi her-
menn úr mikils metinni fall-
hlífaherdeild. Þeir sögðust
hafa viljað hefna fyrir fallna
félaga með þessu móti. Um
umtalsverðar fjárhæðir var að
ræða, t. d. rændi einn ísraeli
andvirði 2.000 dollara af Líb-
ana nokkrum.
Samgöngutruflanir
MIKLAR samgöngutruflanir
urðu í Lundúnum snemma í
gærmorgun, er eldur gaus upp
í kjarrgróðri við smákökuverk-
smiðju nokkra í suðurhluta
borgarinnar. Var um talsverð-
an eld að ræða og stöðvaði
hann alla umferð lesta og bif-
reiða á þessum slóðum í nokkr-
ar klukkustundir. Allt að 3
kílómetra langar biðraðir bif-
reiða mynduðust á götum og
130.000 farþegar strætisvagna
og lesta urðu að sneiða með
einhverjum hætti fram hjá
brunasvæðinu.
Skilnuðum fjölgar
ÁRIÐ 1981 skildu 15.352 hjón í
Belgíu, tvisvar sinnum fleiri
heldur en árið 1971. Sama ár
voru giftingar 64.380, eða
10.000 færri en tíu árum áður.
Meðalaldur brúðguma er 24 ár,
brúða 22 ár. Meðalskilnaðar-
aldur: karlmanna 43 ár, kvenna
32 ár.
Sleppti gíslum
VOPNAÐUR Spánverji hélt
spænska konsúlnum og fjórum
öðrum í gíslingu í níu klukku-
stundir í spænska ræðis-
mannsbústaðnum í Los Angel-
es í gær. Hann krafðist þess að
kona hans og börn fengju að
fara óáreitt til Puerto Rico, en
þau höfðu verið stöðvuð á
flugvellinum í Los Angeles og
eiginkonan hneppt í varðhald.
Spánverjinn sleppti gislum
sínum eftir að þau tíðindi
höfðu borist honum að hand-
taka konunar hefði verið mis-
skilningur og þau væru á leið
til Puerto Rico. Engum varð
meint af atvikinu.
Sá blindi týndur
EKKERT hefur spurst til 42
ára gamals sæfara, sem ætlaði
sér blindur að verða fyrsti
maðurinn til að sigla einn síns
liðs yfir Kyrrahafið frá San
Francisco til Hawaii-eyja.
Dreymdi hann um að verða
fyrsti blindi maðurinn til að
heppnast slíkt. Hann hafði
vatn og vistir til 100 daga út-
halds, en ekkert hefur til hans
spurst í 21 dag og er óttast um
afdrif hans.
Gershwin látinn
IRA Gershwin, yngri bróðir
tónskáldsins fræga George
Gershwins, lést í Beverly Hills
í gær, 86 ára að aldri. Hann var
textahöfundur og samdi mörg
fræg lög með bróður sínum,
svo sem „I got rhythm". Einnig
kom hann við sögu í tón-
verkinu „Porgy and Bess“.
Wa.shington, 17. ágúst. AP.
HONDURASSTJÓRN hélt því fram
í dag, að hermenn hennar hefðu
handtekið „undirróðurs- og innrás-
armenn“ frá Nicaragua og varaði þá
við, sem hefðu sent þá til landsins,
kvaðst hafa mátt til að knésetja þá,
sem reyndu að valda ólgu í landinu.
Yfirmaður hersins í Hondúras,
Gustavo A. Martinez, hershöfð-
ingi, sagði i dag á blaðamanna-
fundi, að 200 Hondúrasmenn, sem
þjálfaðir hefðu verið á Kúbu og í
Sovétríkjunum, hefðu laumast inn
Frakkaland:
Er Gelli í
Mónakó?
Nissa, 17. ágúst. AP.
LICIO GELLI, stórmeistari í
P2-frímúrarastúkunni, sem slapp úr
svissnesku fangelsi í síðustu viku,
kann að vera í felum í Mónakó að
því er yfirmaður ítölsku lögreglunni
sagði í dag.
Sagði lögreglumaðurinn að
þyrla hefði verið tekin á leigu að
morgni dags 10. ágúst sl. í frönsku
borginni Anecy og flugmanninum
sagt að fljúga til Nissa. Meðan á
fluginu stóð hefðu farþegarnir
þrír, sem töluðu ítölsku, beðið
flugmanninn að fara heldur til
Mónakó. Einn þessara manna
hefði virst vera illa haldinn og
haft klút um hálsinn. Gelli, sem er
64 ára að aldri, er ekki heill heilsu.
Síðastliðinn föstudag handtók
lögreglan í Sviss fangavörð, sem
nun hafa hjálpað Gelli til að flýja,
og segir lögreglan, að hann hafi
flutt Gelli yfir landamærin til
Frakklands. Þessar upplýsingar
þykja gera að engu þær fullyrð-
ingar lögfræðings Gellis, að hon-
um hafi verið rænt úr fangelsi til
að koma f veg fyrir, að hann segði
allt af létta um „pólitísk hneyksl-
ismál“.
Licio Gelli
í landið síðustu þrjár vikurnar.
Væru þeir í 3000 manna hópi, sem
ætlað væri að valda ólgu og grafa
undan stjórn Roberto S. Gordova.
Þessar fréttir koma á sama
tíma og bandarískur her er að búa
sig undir sameiginlegar heræf-
ingar með hernum f Hondúras.
EILBRIGÐISYFIRVOLD í Svíþjóð
Ija, að allir kynvillingar í landinu
erði teknir til rannsóknar í kjölfar
ess, að einn maður hefur nú látist
iar úr sjúkdómnum AIDS, eða
lunninni ónæmisbæklun.
„Það er engin ástæða fyrir fólk
nér í landi til að vera hrætt," sagði
ir. Georg von Krogh við Söder-
sjúkrahúsið í Stokkhólmi í viðtali
við Dagens Nyheter. „Við eigum
hægt með að rannsaka stóran
hluta þjoðarinnar og komast að
því hverjum er mest hætta búin.“
Síðastliðinn föstudag varð 47
Varnarmálaráðherra Egypta-
lands, Abdel Halim Abu Ghazala,
Bandalag
gert gegn
Gandhi
Nýju DeW, 17. ágúsl. AP.
TVEIR stórir stjómarandstöðu-
flokkar í Indlandi gerðu í dag með
sér bandalag gegn Kongress-flokki
Indiru Gandhi.
Viðræður stóðu í fimm mánuði
áður en samkomuiag náðist milli
flokkanna og hefur bandalaginu
verið valið nafnið „Þjóðlega lýð-
ræðisfylkingin". Formaður hennar
er Charan Singh, fyrrum forsæt-
isráðherra, og sagði hann í dag, að
stefnt væri að sameiginlegu fram-
boði í öllum kjördæmum í næstu
þingkosningum, sem búist er við
að verði snemma árs 1985.
Að minnsta kosti 12 flokkar á
þingi hafa átt viðræður um banda-
lag gegn Indiru Gandhi og flokki
hennar, en ekkert hefur af því orð-
ið fyrr en nú. Gandhi hefur fyrr
látið þau orð falla um þessa til-
burði stjórnarandstöðunnar, að
þeir væru „skrítla" og „móðgun
við indversku þjóðina".
ára gamall maður fyrstur til að
falla fyrir sjúkdómnum í Svíþjóð
en vitað er um tvo aðra menn, sem
eru sýktir. Fylgst er reglulega með
50 mönnum öðrum, sem hugsan-
Jega geta verið með sjúkdóminn,
en læknar segja, að hann verði að
bana 80% þeirra, sem fá hann.
Samtök sænskra kynvillinga
hafa fagnað ákvörðun heilbrigðis-
yfirvalda, en þrír af hverjum fjór-
um, sem sýkjast af AIDS, eru
kynvillingar. „Allt frá því í janúar
höfum við lagt hart að þeim að
hefjast handa og við krefjumst
þess að fá að vita hvað við getum
tilkynnti í gær, að Egyptar væru í
þann mund að hefja framleiðslu á
hinni sovéskhönnuðu SAM-7
eldflaug. Á framleiðsla að hefjast
snemma á næsta ári. Ráðherrann
varaði jafnframt við því, að væri
öryggi Súdans ógnað á einn eða
annan hátt, litu Egyptar svo á að
þeirra öryggi væri einnig í hættu
og því myndu þeir styðja Súdan í
hernaði.
„Hér er ekki um árásarstefnu
í garð Khadafys og Líbíu að
ræða, en Khadafy er að reyna
að auka spennuna í þessum
heimshluta á sama tíma og við
erum að reyna að draga úr
henni, það er því nauðsynlegt að
hann geri sér grein fyrir því að
árás á Súdan þýðir það sama og
árás á Egyptaland," sagði ráð-
herrann.
Abu Ghazala gat þess jafn-
framt, að Egyptar væru byrjað-
ir að framleiða sína eigin
skriðdreka og brynvarða her-
bíla og þeir fyrstu yrðu tilbúnir
í lok næsta árs. Eru vopnin að
sovéskri fyrirmynd, en andað
hefur köldu milli Egyptalands
og Sovétríkjanna síðan árið
1974, er Egyptar hófu skyndi-
lega að friðmælast við ísrael og
vingast við Bandaríkin.
gert til að sýkjast ekki og hvernig
best er að greina sjúkdómsein-
kennin," sagði Sten Pettersson,
talsmaður samtaka kynvillinga.
Þegar hann var spurður hvort
sjúkdómurinn myndi e.t.v. valda
nýrri andúðaröldu á kynvillingum
svaraði hann:
„Kynvilla snýst ekki um siðferði
heldur mannréttindi. AIDS mun
gera fólki ljóst, að við kynvillingar
erum beittir misrétti og neyðumst
til að sækja oft á tíðum vafasama
staði og leggja lag okkar við menn,
sem við ekki þekkjum."
Æ'
HONECKERí PÓLLANDI
Varsjá, 17. ágúst. AP.
ERICH HONECKER, aðalritari austur-þýska kommúnistaflokksins, kom í gær til pólska námubæjarins Katow-
ice, á öðrum degi hinnar þriggja daga vináttuheimsóknar sinnar til Póllands. Á meðfylgjandi símamynd frá AP
sést hvar Honecker, t.v., sæmir Wojciech Jaruzelski, hershöfðingja og forseta herstjórnarinnar í Póllandi,
Marxorðunni. Þeir hafa átt miklar viðræður og þeim verið lýst sem „heiðarlegum og gagnlegum".
Sænsk heilbrigðisyfírvöld:
Vilja rannsaka alla
kynvillinga í landinu
vtokkhólmi, 17. áj^ÚNt. AP.