Morgunblaðið - 18.08.1983, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983
ftttvgui Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakiö.
Tígrisdýr fyrir
heimiliskött
Fulltrúar íslands á þingi
Alkirkjuráðsins í Van-
couver hafa greint fjölmiðlum
frá því markverðasta sem þar
gerðist. í frásögn Morgun-
blaðsins í gær af blaðamanna-
fundi með þingfulltrúunum
sagði meðal annars: „Sú slag-
síða (hlutleysi í þágu sovéskra
sjónarmiða; innsk. Mbl.) sem
virðist vera á ályktun Al-
kirkjuráðsins um alþjóðleg
mál verður því að skoðast í
ljósi þessa. Alkirkjuráðið er
ekki hliðhollara Sovétríkjun-
um eða samþykkt því sem þar
er að gerast, en það velur þann
kostinn að spara stór orð í
mótmælum en að valda
kirkjudeildum þessara landa
(kommúnistaríkjanna í
Austur-Evrópu; innsk. Mbl.)
skaða.“ Lesendum Morgun-
blaðsins er bent á að lesa þessi
ummæli í ljósi þriggja greina
sem birtust hér í blaðinu síð-
astliðinn sunnudag.
Því miður er það staðreynd
að Kremlverjar hafa þau tök á
opinberum fulltrúum kirkn-
anna í Austur-Evrópu að þeir
eru eins og hverjir aðrir
stjórnarerindrekar þegar þeir
sitja þing Alkirkjuráðsins.
„Herskátt guðleysi er ekki til-
viljanakennt aukaatriði í
stefnu kommúnismans heldur
aðalatriði," segir Alexander
Solzhenitsyn hér í blaðinu á
sunnudag, og bætir við: „Hve
mjög hinn guðlausi heimur
þráir að eyðileggja trúna, hve
mjög trúin skal eyðilögð, var
leitt í ljós með þeim samsæris-
vef, sem umlukti tilraunir þær
til þess að myrða páfann, er
gerðar voru fyrir skömmu."
Hvað getum við nú á tímum
lært af reynslunni frá fjórða
áratugnum, þegar tryggja átti
„frið á vorum dögum“ með því
að skrifa undir samninga við
Adolf Hitler? í grein í sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins um
friðarhugsjónina fyrr og nú er
meðal annars vitnað í þessi
ummæli eftir Adolf Hitler:
„Ég er reiðubúinn að skrifa
undir hvað sem er. Ég vil gera
allt til að auðvelda sigur
stjórnmálastefnu minnar. Ég
er reiðubúinn að gera griða-
sáttmála og vináttubandalag
við hvaða ríki sem er. Það
væri ekki annað en fásinna að
vilja ekki færa sér í nyt slíkar
I ráðstafanir af þeirri ástæðu
einni, að upp gætu komið þær
! aðstæður, að brjóta yrði hátíð-
J leg loforð. Það hefur aldrei
I verið til eiðfastur samningur
sem ekki hefur verið rofinn
fyrr eða síðar. Ævarandi
sáttmáli er ekki til.“ Einræðis-
herrar í allri mannkynssög-
unni hafa haft sama álit á
samningum og Adolf Hitler,
hvort heldur þeir eru gerðir
milli einstakra ríkisstjórna
eða á alþjóðlegum fundum.
En í frumskógi alþjóðamála
er sú tilhneiging rík að um-
gangast Kremlverja og út-
sendara þeirra eins og heimil-
isketti. Éða eins Dean Rusk,
fyrrverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, orðaði það í
Morgunblaðssamtali á sunnu-
daginn: „Enda þótt Sovéttar
hafi aldrei léð máls á alhliða
friðarsamkomulagi, þá hafa
alltaf verið í gangi viðræður
milli þeirra og okkar og báðar
þjóðir gengið fram í því að ná
samkomulagi um ýmis smærri
mál. Sovéttar eiga við sín inn-
anríkisvandamál að stríða,
rétt eins og við, en þó miklu
viðameiri. Stundum hefur mér
fundist í viðræðum við sov-
éska ráðamenn að þeir væru
lítið eitt smeykir vegna vanda-
málanna heimafyrir — en það
hefur aldrei verið mér nein
huggun, því hræddur maður
getur hæglega breyst í stór-
hættulegan mann.“
Áhættan er mikil þegar
menn taka sér tígrisdýr fyrir
heimiliskött. Andvaraleysi
getur leitt til stórslysa og
þeim er bráður bani búinn sem
gleymir því í gælunum að
hann er með óargadýr í fang-
inu. Afsökunartónninn í orð-
unum um slagsíðuna í yfirlýs-
ingum Alkirkjuráðsihs um al-
þjóðamál er af hinu góða en
breytir því ekki að fulltrúar
Kremlverja á þinginu voru
múlbundnir af fyrirmælum
hinna guðlausu sovésku
stjórnvalda. Sagan kennir
okkur að aðeins með árvekni
tekst mönnum að halda aftur
af þeim sem einskis svífast.
Vilji menn hins vegar ekki
læra af sögunni verða þeir að
reyna hana sjálfir Og á tímum
kjarnorkuvopna á öld tveggja
heimsstyrjalda mundi endur-
tekning á sögunni aðeins leiða
til gjöreyðingar.
Eldsvodinn á Hellissandi
Unnið að slökkvistörfum í fískmóttöku, en þar voru um 20 lestir af físki. Eldur er laus í
útveggjum og þeir byrjaðir að hrynja.
Frystihúsid brunnið
eins og það leggur sig
— segir Ólafur Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri
Gunnar Már Kristófersson, oddviti.
„ÞAÐ er Ijóst að hér hefur orðið tug-
milljónatjón, frystihúsið virðist brunn-
ið og ónýtt eins og það leggur sig. ís-
klefi, tækjasalur, flókunarsalur, frysti-
klefar, pökkunarsalur og báðar fisk-
móttökurnar. Það verður því ekki einu
sinni hægt að taka á móti fiski til verk-
unar í salt, þó söltunarhúsið hafi slopp-
ið. Þá voru nokkur þúsund kassar af
freðfiski, 35 lestir af frystri síld og 20
lestir af smokkfiski i frystiklefunum.
Vátryggingaupphæð er ekki nema smá-
munir hjá því, sem kostar að byggja
húsið upp að nýju,“ sagði Ólafur Rögn-
valdsson, framkvæmdastjóri Hrað-
frystihúss Hellissands hf.
„Það var hins vegar lán í óláni, að
Horfi með ugg til
framtíðarinnar
— segir Gunnar Már Kristófersson,
oddviti Neshrepps utan Ennis
„ÞETTA er mikið áfall þar sem allt að
60% vinnandi manna í byggðarlaginu
hafa haft atvinnu við þetta fyrirtæki.
Ég horfi því með ugg til framtíðarinnar
og þess skarðs, sem fyrirsjáanlegt er
að þessi atburður hefur höggvið í at-
vinnulíf bér,“ sagði Gunnar Már Krist-
ófersson, oddviti hreppsnefndar
Neshrepps utan Ennis.
„Hreppsnefndin koma saman í dag
til að ræða þennan vanda og á þeim
fundi var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt: „Hreppsnefnd Neshrepps
utan Ennis lýsir yfir áhyggjum sín-
um vegna hins alvarlega ástands, er
skapast mun í atvinnumálum í
hreppnum vegna bruna Hraðfrysti-
húss Hellissands í dag. Ljóst er, að
nú þegar stærsta atvinnufyrirtæki í
hreppnum er ekki lengur starfhæft
mun skapast mjög alvarlegt ástand í
atvinnumálum í hreppnum, sem
hreppsnefnd hlýtur að hafa mjög
miklar áhyggjur af. Hreppsnefnd
Neshrepps utan Ennis telur þvf mjög
brýna þörf á að hraðað verði upp-
byggingu Hraðfrystihúss Hellis-
sands, þannig að eðlilegt ástand
verði á ný í atvinnumálum í byggð-
arlaginu."
Þetta var síðan rætt fram og til
baka, en á þessu stigi er ekki hægt
að taka neinar ákvarðanir. Ég ber
mikinn kvíða fyrir því hvernig at-
vinnuástand verður hér í framtíð-
inni, en maður verður að vona hið
bezta. Þá vil ég komá á framfæri,
fyrir hönd hreppsnefndar, þökkum
til slökkviliðanna í Ólafsvík og
Grundarfirði fyrir góða veitta að-
stoð,“ sagði Gunnar Már Kristófers-
son.
við vorum nýlega búnir að losna við
7.500 kassa af freðfiski um borð í
þrjú skip. Sumarfríi eftir nokkrar
endurbætur á húsinu var nýlokið og
var þetta þriðji dagurinn, sem unnið
var eftir að fríinu lauk. Að meðaltali
hafa 60 til 70 manns verið á launa-
skrá hjá okkur og auk þess höfum
við tekið við afla af þremur stórum
bátum og mörgum smærri auk þess,
sem við eigum hlut í togara í Ólafs-
vík. Þetta er því verulegt áfall bæði
fyrir fyrirtækið og byggðarlagið.
Eldsins varð vart um 10-leytið. Ég
var þá að tala við verkstjóra í síma
og varð hann þá reyksins var. Hann
fór til að athuga þetta betur og
augnabliki síðar blossaði eldurinn
upp. Hann hefur líklega komið upp í
vélasal í austurenda hússins og
breiðzt mjög hratt út undan sunnan-
vindinum, sem var í morgun. Það var
nánast ekkert hægt að gera, sagði
Ólafur Rögnvaldsson.
Ómar
Ólafur Rögnvaldsson á þaki frystihússins. Ri