Morgunblaðið - 18.08.1983, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983
Sýning á
námsgögnum
framlengd
DAGANA 20.—24. júní sl. var hald-
in aö Klúðum ráðstefna stærðfræði-
kennara frá Norðurlöndum og sóttu
hana rúmlega 30 kennarar frá
Danmörku, Finnlandi, Svíþjóð og ís-
landi.
f tengslum við ráðstefnuna var
haldin sýning á náms- og hjálp-
argögnum í stærðfræðikennslu í
kennslumiðstöð Námsgagnastofn-
unar á Laugavegi 166 í Reykjavík.
Ákveðið hefur verið að framlengja
sýninguna til 2. september. Verður
hún opin mánudaga til föstudaga
frá kl. 13.00—18.00 og á öðrum
tímum eftir samkomulagi.
©
INNLENT
Þessi mynd var tekin um níuleytið á þriðjudagskvöldið, en þá var hlaupið í Súlu í hámarki. Brúin heitir Súlubrú, en undir henni koma saman árnar Súla og
Núpsá. Sunnan megin brúarinnar er áin nefnd Núpsvötn. Morgiinbiaaia/KAx.
Hlaupið í Súlu um garð gengið
HLAUPIÐ í Súlu á Skeiðarársandi,
sem hófst á þriðjudagsmorgun,
sjatnaði mikið í gær og er nú að
Sumarhátíð
Æskulýðsráðs
FIMMTUDAGINN 18. ágúst kl.
19.30 verður sumarhátíð fyrir börn
sem tekið hafa þátt í sumarstarfi
/Kskulýðsráðs Reykjavíkur, segir í
fréttatilkynningu frá sumarstarfi
Æskulýðsráðs Reykjavíkur.
Hátíðin sem er einnig fyrir for-
eldrana verður haldin í Menning-
armiðstöðinni við Gerðuberg. En
fyrir þau sem ekki vita hvar hún
er þá er hún beint á móti sundlaug
Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Strætisvagn númer 12 stoppar
beint fyrir utan. Skemmtunin
hefst kl. 19.30 eins og áður sagði
og meðal skemmtiatriða verður
hinn eldhressi Tóti trúður, Hjalli
töframaður, fjöldasöngur og
skemmtiatriði frá félagsmiðstöðv-
unum. Hægt verður að kaupa kaffi
og annað góðgæti á staðnum.
Skemmtunin er í tengslum við
Reykjavíkurviku og aðgangur er
ókeypis.
mestu leyti um garð gengið. Að sögn
Sigurjóns Rist, vatnamælingamanns,
var hlaupið nú mjög í anda þeirra
sem átt hafa sér stað undanfarin ár,
en þau hafa verið frekar lítil. Engar
skemmdir urðu á mannvirkjum og
sagði Sigurjón að einu afleiðingar
hlaupsins væru þær að ekki væri
bílfært inn með Lómagnúpi að aust-
an og verður sennilega ekki fyrr en
á mánudaginn í fyrsta lagi.
Hlaupið stafar af því að þver-
dalur, sem liggur upp með Skeið-
arárjökli að vestan, fyllist smám
saman af vatni og myndar lón sem
nefnt er Grænalón. Þegar vatns-
magnið er orðið nægilega mikið í
lóninu, lyftir það jöklinum, rennur
undir hann og hleypur niður sand-
ana. Jökullinn er hins vegar orð-
inn svo ræfilslegur að vatnsborðið
i lóninu þarf ekki ð ná meira en 20
metra hæð til að geta hafið hann
upp. Áður fyrr þurfti vatnsyfir-
borðið stundum að ná 200 metra
hæð áður en jökullinn lyftist og
Reykjavíkurmót barnanna 1983:
Skalla-bolti og snú-snú
— meðal keppnisgreina
Reykjavíkurmót barnanna verður
haldið næstkomandi sunnudag f
Hljómskálagarðinum. Eins og þið
vafalaust munið var það haldið í
fyrsta skipti í fyrra og tókst þá al-
veg feikilega vel. Skátafélagið
Árbúar skipuleggur mótið núna
eins og þá og hefur undirbúningur
verið í fullum gangi að undanförnu.
Á Reykjavíkurmóti barnanna verð-
ur keppt í 10 íþróttagreinum, sem
flest allir krakkar hafa mikla þjálf-
un í. Þær eru: 1. að sippa, 2. í
snú—snú, 3. að skjóta bolta í mark,
4. að úlla, 5. í reiðhjólakvartmílu-
keppni, 6. í hundrað metra hlaupi,
7. í kassabflarallý, 8. að skaila bolta
á milli, 9. að labba á grindverki, 10.
að halda bolta á lofti.
Keppt er í tveim flokkum í öll-
um greinum. Yngri flokkur á
aldrinum 7—9 ára og eldri flokk-
ur 10—12 ára. Öllum er heimil
þátttaka á mótinu og er hún
ókeypis. Auk keppnisgreinanna
verður skemmtileg fimmtarþraut
og tugþraut, víðavangsleikir, sigl-
ingar á tjðrninni, hæfileika-
keppni og flugdrekaflug. Hljóm-
sveitir slá á létta strengi,
skemmtiatriði verða og margt,
margt fleira.
Öllum er veikomið að mæta
með báta, skútur, flugdreka eða
hvað annað sem gæti orðið til
skemmtunar. Og ef rignir þá er
bara vera við því búin og klæða
sig vel. Krakkar, nú er um að
gera að nota tíman fram á sunnu-
dag til að æfa sig.
Þessa mynd tók Emelía á Reykjavíkurmóti barnanna í fyrra.
gátu hlaupin þá orðið gífurleg.
Sigurjón sagðist ekki vita ná-
kvæmlega hve mikið hefði lækkað
í lóninu við hlaupið, það hefði ekki
verið mælt, en giskaði á 8 til 20
metra.
Meðfylgjandi mynd tók Ragnar
Axelsson, ljósmyndari Morgun-
blaðsins, úr lofti um níuleytið á
þriðjudagskvöld, en þá var hlaupið
í hámarki. Á myndinni kemur vel
fram mikilvægt hlutverk leiði-
garðanna norðan og vestan við
brúna. Innan þeirra myndast lón,
sem gerir það að verkum að ekki
mæðir eins mikið á brúnni. Slíkir
varnargarðar eru við allar brýrn-
ar þrjár á Skeiðarársandi og hafa
gefið mjög góða raun, að sögn Sig-
urjóns.
Norræna húsið:
Opid hús í kvöld
f OPNU húsi í dag kl. 20.30 verður
Eyþór Einarsson grasafræðingur
með erindi um íslensku flóruna og
sýnir hann litskyggnur máli sínu til
skýringar.
Eftir kaffihlé um kl. 22 verða
sýndar tvær kvikmyndir Osvalds
Knudsens, sem lýsa íslensku flór-
unni, en það eru kvikmyndirnar
„Smávinir fagrir" og „Þórsmörk".
Aðgangur er ókeypis. Þetta er
næstsíðasta Opna húsið á þessu
í sýningarsölum í kjallara
standa nú yfir sýningar frá Græn-
landi, sem fjalla um norrænt land-
nám og búsetu á Grænlandi til
forna. Sýningin er opin daglega kl.
14—19 til 28. ágúst.
í anddyri er sýning á pastel- og
vatnslitamyndum eftir græn-
lensku listakonuna Kistat Lund.
Þeirri sýningu lýkur nk. sunnu-
dag.
Reykjavíkurmynd
frá 1862 gefin út
n/tl/ IL'I/DIUM 1 AT ■ n - - . , - , „r
BÓKASKEMMAN hefur gefið út
mynd af Reykjavík eftir málverki
frá 1862. Myndin er í litum. Mynd-
flötur er 33 x 51,5 sm.
Myndin er gerð eftir málverki
A.W. Fowles árið 1862, en hann
virðist hafa verið í för með
skemmtisnekkjunni URANIA, er
kom til Reykjavíkur í júlí 1862.
Urania var 160 tonna snekkja og
eigandi hennar W. Wise.
í Þjóðólfi segir svo 30. júlí 1862.
„Þá kom og írskr eðalmaður
stórríkr, Weisse að nafni, á
skemmtisnekkju sinni, er nefnist
Urania. Hann ferðaðist til Geysis
og fór aptr héðan 26. þ.m. Snekkja
hans var einhver hin fríðasta og
kostulegasta, sem hér hefur
nokkru sinni komið til lands."
Poltergeist“ frumsýnd
99
NÝJA BÍÓ frumsýnir kl. 17.00 í
dag mynd Steven Spielberg „Polt-
ergeist". Myndin segir frá banda-
rískri fjölskyldu sem verður fyrir
því að óvæntir hlutir taka að ger-
ast á heimilinu.
Með aðalhlutverk fara þau
Craig T. Nelson, Jobeth Williams,
og Beatrice Straight ásamt fleir-
um.
Myndin er gerð eftir sögu Spiel-
berg en leikstjóri er Tobe Hooper
og höfundur tónlistar Jerry
Goldsmith.