Morgunblaðið - 18.08.1983, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983
27
Sýning á indverskum
myndum og munum
Aðstandendur sýningarinnar: Rúnar Hreinsson, Jóhann Árnason og Oddur
Sveinsson.
„Somewhere in
Time“ í Laugarásbíói
LAUGARÁSBÍÓ hefur í dag sýn-
ingar á kvikmyndinni „Some-
where in Time“ sem gerð er eftir
bók Richard Matheson „Bid Time
Return." Fjallar myndin um leik-
ritaskáldið Richard, sem notar
kenningar prófessors nokkurs um
ferðir mannsandans fram og aftur
í tíma. Kemst hann þannig í kynni
við leikkonu sem dó árið 1912, en
hana sá hann fyrst á mynd 1980.
Helstu leikendur eru Christoph-
er Reeve og Jane Seymor.
Ljósmyndasýning
VopnafjörAur, 14. ápíst.
FIMMTUDAGINN 18. ágúst var
opnuð Ijósmyndasvning í barnaskól-
anum hér á Vopnafirði. Þeir sem að
sýningunni standa eru þeir Jóhann
Arnason, Rúnar Hreinsson og
Oddur Sveinsson, en þeir hafa allir
fengist við Ijósmyndun og framköll-
un um nokkurt skeið.
Að sögn þeirra félaga er á sýn-
ingunni um að ræða þverskurð af
því sem þeir hafa verið að fást við
á undanförnum árum, alls um 120
myndir aðallega svart-hvítar," en
þó nokkrar litmyndir inn á milli.
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
sýning sem þessi er haldin hér og
að áliti undirritaðs er hér um að
ræða mjög athyglisvert framtak
og uppsetning og frágangur allur
þeim félögum til mikils sóma.
Sýningin verður opin fimmtudag-
inn 18. ágúst og föstudaginn 19.
ágúst frá kl. 20—22, laugardaginn
20. frá kl. 16—23 og sunnudaginn
21. frá kl. 14-17.
Hér kem ur
Kalmar
Fundi um lyfjanotkun
aldraðra lauk í gær
FUNDI sérfræðinga Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar (WHO) um
lyfjameðferð aldraðra lauk í Reykja-
vík í gær. Markmið fundarins var að
Ijúka gerð handbókar fyrir lækna og
aðra starfsmenn í heilbrigðisþjón-
ustunni, þar sem greint er frá sér-
stökum varúðarráðstöfunum, sem
þarf að viðhafa við lyfjameðferð hjá
öldruðum.
I fréttatilkynningu frá Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu segir m.a. að ellilífeyris-
þegar í Evrópu og Norður-Amer-
íku noti allt að þriðjungi meira af
lyfjum en aðrir aldurshópar.
Vandinn við lyfjameðferð hjá
öldruðum er fyrst og fremst sá, að
við öldrun verða ýmsar breytingar
á líkamsstarfsemi, sem hvetja til
sérstakrar aðgæslu við lyfjagjöf.
Sum lyf eru þeirrar náttúru að
auka verður skammtinn hjá öld-
ruðum og önnur lyf hafa öflugri
verkun hjá þessum aldurshópi.
Jafnframt eru aldraðir sérstak-
lega næmir fyrir aukaverkunum
lyfja.
Auk þessara læknisfræðilegu
atriða eiga aldraðir við ýmis önn-
ur vandamál að stríða vegna lyfja-
töku, t.d. að opna lyfjaglös, lesa
skriflegar leiðbeiningar á lyfja-
glösum eða muna munnlegar leið-
beiningar. Þetta eru atriði sem
heilbrigðisstéttir þurfa að gefa
sérstakan gaum.
Þátttakendur fundarins eru sér-
fræðingar í læknisfræði, lyfja-
fræði og hjúkrun með sérstaka
þekkingu á lyfjameðferð hjá öldr-
uðum. Hinir erlendu þátttakendur
eru frá Bretlandi, Vestur-Þýska-
landi, Noregi, Spáni, Tékkóslóv-
akíu, Ástralíu, Bandaríkjunum,
Egyptalandi og Indlandi. 6 manna
starfslið frá Alþjóðaheilbrigðis-
stofnuninni og nokkrir Islend-
ingar tóku einnig þátt í fundinum.
í DAG, á afmælisdegi Reykjavíkur-
borgar, hefst sýning á munum og
myndum frá Indlandi að Fríkirkju-
vegi 11. Það eru Indlandsvinir sem
standa fyrir sýningunni og verður
hún opin til 25. ágúst.
Erindi verða flutt daglega eða
rithöfundar, sem ritað hafa um
Indland, lesa úr verkum sínum.
Meðal þeirra sem fram koma eru:
þau Geir Ágústsson, ljósmyndari,
Gísli Þór Guðmundsson, Guð-
mundur Sveinsson, skólastjóri,
Gunnar Dal, rithöfundur, Harald-
ur Ólafsson, lektor, Karl Sigurðs-
son, kennari, Sigurður A. Magn-
ússon, rithöfundur, Sigvaldi
Hjálmarsson, rithöfundur, Þór-
halla Björnsdóttir, félagsráðgjafi,
og Ævar Kvaran, rithöfundur.
Sýningin verður opin alla daga
frá kl. 20.30 nema laugardaga og
sunnudaga frá kl. 17. Aðgangur er
ókeypis og kaffiveitingar verða á
staðnum.
Ekið á kyrr-
stæða bifreið
ÞRIÐJUDAGINN 16. ágúst var
ekið á kyrrstæða rauða Lada-
bifreið 1500 station, á bilastæðinu
viðað Lágmúla 7 fyrir framan
Sjónvarpsbúðina. Atburðurinn
átti sér stað á tímabilinu 6—6.30 í
eftirmiðdag. Ökumaður bifreiðar-
innar sem tjóninu olli eða vitni að
atburðinum eru vinsamlegast beð-
in um að gefa sig fram í síma
31499.
Nú geta allir eignast Kalmar-eldhús á viðráðan-
legu verði og fengið það afgreitt og uppsett á
stuttum tíma.
í nýja Kalmar-eldhúsinu sameinast nútíma þæg-
indi, skemmtileg hönnun og síðast en ekki síst
hagstætt verð.
Líttu við í sýningarsal okkar eða fáðu heimsend-
an bækling.
Kalmar
SKEIFAN 8 - 108 REYKJAVlK - SlMI 82011
Opíð í kvöld til kl. 21
HAGKAUP
Skeifunni15