Morgunblaðið - 18.08.1983, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983 29
„Post-Painting“
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Hugmyndafræðin blómstrar
ennþá í margri mynd þótt hún
hafi brevtt um svipmót um
stund. I Nýlistasafninu við
Vatnsstíg, þar sem er að finna
mestu blómstrun í íslenzkri
myndlist, ef trúa má fullyrðing-
um þeirra er þar leggja hönd á
plóginn, stendur nú yfir all sér-
stæð sýning. Sérstæð fyrir það,
að þetta er ekki sýning í venju-
legum skilningi, heldur eftirlík-
ingar myndverka annarra og
heimskunnra myndlistarmanna.
Allt virðist gjaldgengt nú á tím-
um fylgi því einhverjar sérstæð-
ar hugmyndafræðilegar útlist-
anir, „manifest".
Listamennirnir Bergljót R. og
Elraer, sem hér eiga hlut að máli
útskýra listmiðlun sína á eftir-
farandi hátt:
„Post-Painting hófst vorið 1981,
sem eins konar tákn um heimsku
listarinnar. Magnþrota gagnvart
tilþrifum listarinnar reyndist
Post-Painting eina hugsanlega úr-
ræðið. Post-Painting er uppgjöf,
tómagangur. Post-Painting er bein
stæling á umheiminum."
Hér virðist um sýningar-
starfsemi að ræða, frekar en
listsköpun og jafnframt dreif-
ingu fáránlega altækra fullyrð-
inga, — og slíkar eru dæmar til
að falla um sjálfar sig svo sem
dæmið sannar í allri saman-
lagðri listasögunni. Að sjálf-
sögðu verða þessir listamenn
komnir með nýjar og altækar
hugmyndir innan fárra ára, —
fullkomlega óskeikular.
Fyrirbærið er þannig fjarri
því að vera nýtt og jafnan er
mögulegt að nálgast allar við-
teknar staðreyndir frá nýju
sjónarhorni. Sjálfir gerendurnir
lýsa því yfir að aðferðin hefjist á
fjórða þrepi við tilraunir til
stælinga og eru þau því máski
fullsnemmt á ferðinni. Því að
sýningin vekur óhjákvæmilega
öðru fremur upp spurninguna
hvernig þriðja og annað þrepið
koma til með að verða, — að því
fyrsta ógleymdu. Gerendurnir
útiloka með öllu hvers konar
skapandi listbrögð. Eftirlíking
skal það vera, dýrkun tóma-
rúmsins og upphafning þess í
listinni. Hinar heimspekilegu
hugleiðingar er fylgja sýning-
unni á vélrituðum blöðum, og
eiga að réttlæta framleiðsluna,
eiga heima í myndrænum um-
ræðum og útlistunum lærðra
listsagnfræðinga frekar en í al-
mennum listdómi og skal því
staðar numið. Allir þeir, sem
áhuga hafa á slíkum tiltektum -
munu ábyggilega rata á þessa
sýningu.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Húsaviðgerðir —
Pípulagnir
Lagfaerum leka á vatns-, skólp-
og hitalögnum. Sklptum um gler
— hurólr — glugga — skápa og
margt fl. Smíöum handrlö á sval-
ir — útitröppur — gangstíga og
stéttir. Fagmenn simi 31760 —
72273.
Húsnæöi óskast
Stór ibúö óskast á leigu í miö-
eöa vesturbæ. Uppl. í síma
16434 á kvöldln.
Húsnæði óskast
Læknanema og tónlistarnema
vantar ibúö til leigu. Heitum
reglusemi. Fyrirframgreiösla ef
óskaö er. Uppl. í síma 96-43168
eöa 19967 eftir kl. 18.00.
Akureyri
3ja herb. íbúö tll leigu. Roskin
hjón ganga fyrir. 3ja mánaöa
fyrirframgreiösla. Uppl. í sima
23159 Akureyri næstu daga.
Rafmagnsþilofnar
tH sölu. Upplýsingar í síma
92-3076 eftir kl. 8.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 og 19533.
Helgarferðir
19.—21. ógúst
1. Kerlingarfjöll — lllahraun —
Gljúfurleit. Gist í tjöldum.
2. Þórsmörk. Gist í Skag-
fjörösskála í Langadal.
3. Landmannalaugar — Eldgjá.
Gist í sæluhúsi í Laugum.
4. Hveravellir. Uppselt.
5. Álftavatn — Hattfell (909 m).
Giat í sæluhúsi viö Álftavatn.
í helgarferöum er tíminn noteö-
ur til gönguferöa í nágrenni
gististaöar. Allar upplýsingar
um feröirnar er aö fá á skrif-
stofu FÍ, Öldugötu 3.
Feröafélag islands.
e
ÚTIVISTARFERÐIR
Helgarferöir
19.—21. ágúst.
1. Þórsmörk. Gist í Ufivisfarskál-
j anum i friösælum Básum.
Gönguferöir viö allra hæfí.
2. Hóimsárbotnar — Strútslaug
— Emstrur. Hús og tjöld.
3. Lakagígar — Eldgjá — Laug-
ar. Svefnpokagisting Upplýs-
ingar og farmiöar á skrifstofunni
Lækjargötu 6a, simi 14606 (sím-
svari). Sjáumstl
Útivlst.
Vegurinn
Almenn samkoma veröur i kvöld
kl. 20.30 í Síðumúla 8.
Allir velkomnir.
Hörgshlíð
Samkoma í kvöld, miövikudag
kl. 8.
Grensáskirkja
Almenn samkoma veröur haldin
i safnaöarheimilinu i kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir.
Séra Halldór S. Gröndal.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Dagsferðir
Ferðafélagsins
Laugardaginn 20. ágúst kl. 09:
Uxahryggir — Línuvegurinn —
Gullfoss. Verö kr. 500.
Sunnudaginn 21. ágúst kl. 08:
Kaldbaksfjall — Hrunakrókur.
Ekiö upp Hrunamannahrepp aö
Kaldbak og gengiö þaöan á
Kaldbaksfjall (ca. 400 m). Verö
kr. 500.
Sunnudaginn 21. ágúst kl. 13:
Djúpavatn — Vigdísarvellir í
Reykjanesfólkvangi. Verö kr.
250.
Brottför frá Umferöarmiðstöö-
inni, austanmegin. Farmiöar viö
bil. Fritt fyrir börn í fylgd fullorö-
inna.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma i kvöld kl.
20.30. Ræöumaóur Gunnar
Bjarnason.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Hjálpræöisherinn
í kvöld kl. 20.30, lofgjöröar-
samkoma. Mikill söngur og
hljóöfærasláttur. Allir hjartan-
lega velkomnir.
handmenntaskólinn
91 - 2 76 44
ftio KYNNINGARRIT SKÚLANS SENT HEIM ,
fomhjclp
Samkoma aö Hverfisgötu 42 í
kvöld kl. 20.30. Söngur og vitn-
isburöir. Ræöumaöur Óli Ag-
ústsson. Allir velkomnir.
Samhjálp.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
tilkynningar
Lögtök
Aö kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjald-
heimtunnar í Reykjavík og samkvæmt fóg-
etaúrskurði, uppkveðnum 16. þ.m. verða lög-
tök látin fara fram fyrir vangreiddum opin-
berum gjöldum álögðum skv. 98. gr., sbr.
109. og 110. gr. laga nr. 75/1981.
Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, eignarskatt-
ur, lífeyristr.gjald atvr. skv. 20. gr., slysa-
tryggingagj. atvr. skv. 36. gr., kirkjugarös-
gjald, vinnueftirlitsgjald, sóknargjald, sjúkra-
tryggingargjald, gjald í framkv.sjóð aldr-
aöara, útsvar, aðstöðugjald, atvinnuleysis-
tryggingagjald, iðnlánasjóðsgj. og iðnaðar-
málagj., sérst. skattur á skrst. og verslunar-
húsn., slysatrygg. v/heimilis.
Ennfremur nær úrskurðurinn til hverskonar
gjaldhækkana og til skatta, sem innheimta
ber skv. norðurlandasamningi sbr. nr. 111/
1972.
Lögtök fyrir framangreindum sköttum og
gjöldum, ásamt dráttarvöxtum og kostnaöi,
verða látin fram fara að 8 dögum liðnum frá
birtingu þessarar auglýsingar, verði þau eigi
að fullu greidd innan þess tíma.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavík.
16. ágúst 1983.
Barnafataverslun
Til sölu barnafataverslun í hjarta borgarinn-
ar. Mjög þekkt vörumerki, góð umboð. Fal-
legar innréttingar. Tilboö sendist auglýsinga-
deild Mbl. merkt: „Barnafataverslun 8945“
fyrir 24. þ.m.
húsnæöi óskast
Heildsölufyrirtæki
Höfum verið beðnir að útvega ca 100—150
fm húsnæði fyrir heildsölufyrirtæki. Inn-
keyrsludyr æskilegar.
Atvinnuhúsnæöi óskast.
Óskum eftir vörugeymsluhúsnæði á leigu.
450—550 fm, þarf að vera meö einhverju
útisvæöi. Upplýsingar um leigukjör og stað-
setningu sendist afgr. blaösins merkt: „D-
3543 — Vörugeymsla" fyrir 15. september
1983.
__________lögtök___________
Lögtaksúrskurður
Hér meö úrskuröast að lögtak geti fariö fram
fyrir gjaldföllnum en ógreiddum þinggjöldum
ársins 1983 álögðum í Hafnarfirði, Garða-
kaupstaö, Seltjarnarnesi og Kjósarsýslu, en
þau eru: Tekjuskattur, eignaskattur, sóknar-
gjald, slysatryggingagjald v/heimilisstarfa,
iðnlánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, slysa-
tryggingagjald atvinnurekenda skv. 20. gr„
atvinnuleysistryggingagjald, vinnueftirlits-
gjald, launaskattur, kirkjugarðsgjald, sjúkra-
tryggingagjald, gjald í framkvæmdasjóð aldr-
aðra og skattur af skrifstofu- og verslunar-
húsnæði. Einnig fyrir aðflutningsgjaldi, skipa-
skoðunargjaldi, lestargjaldi og vitagjaldi, bif-
reiðaskatti, skoðunargjaldi bifreiða og slysa-
tryggingagjaldi ökumanna 1983, áföllnum og
ógreiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi,
söluskatti af skemmtunum, vörugjaldi af inn-
lendri framleiðslu sbr. lög 65/1975, gjöldum
af innlendum tollvörutegundum, matvæla-
eftirlitsgjaldi og gjaldi til styrktarsjóðs fatl-
aðra, skipulagsgjaldi af nýbyggingum, sýslu-
vegaskatti skv. 23. gr. laga nr. 6/1977, sölu-
skatti sem í eindaga er fallinn, svo og fyrir
viðbótar- og aukaálagningum söluskatts
vegna fyrri tímabila.
Verða lögtökin látin fara fram án frekari fyrir-
vara á kostnað gjaldenda, en á ábyrgð ríkis-
sjóðs, að 8 dögum liðnum frá birtingu úr-
skurðar þessa, ef full skil hafa ekki verið
gerð.
Bæjarfógetinn í Hafnarfiröi, Garöa-
kaupstaö og á Seltjarnarnesi.
Sýslumaöurinn í Kjósarsýslu
16. ágúst 1983.