Morgunblaðið - 18.08.1983, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983
Jóhanni Haukssyni tókst aó sigra kvennaveklH) i eMra llokki unglinga og situr hann hestinn Giæsi. Nsst honum er
Anný B. Sigfúsdóttir á Hálegg, þá nsst Valgerður Gunnarsdóttir á Flaumi, Hlín Pétursdóttir á Kyndli og lengst til
hsgri er svo Lilja Þorvaldsdóttir á Vini.
Nei, þetta eru ekki gangnamenn að leggja upp f leitir, heldur eru þetta
áhugasamir hestamenn á leið með hryssur sínar á kynbótasýningu. Þegar
mest rigndi var mönnum ekki ststt á öðru en galla sig upp ef þeir ekki vildu
verða eins og hundar dregnir af sundi.
Stórmótið á Hellu:
Rigningin var ótvíræður sigurvegari
þrátt fyrir góð tilþrif knapa og hesta
Hestar
Valdimar Kristinsson
Þá er farið að hilla undir lok á
keppnistímabili hestamanna, því um
síðustu helgi var haldið síðasta
meiriháttar hestamótið, nefnilega
Stórmót sunnlenskra hestamanna.
Eins og á flestum mótum sumarsins
var rigningin í aðalhlutverki. Bar
mótssvsðið þess óneitanlega merki
að mikið hefur rignt undanfarnar
vikur því segja má að völlurinn hafi
verið umflotinn vatni meira og
minna. Þrátt fyrir öll þessi ósköp
tókst mótið með ágstum og var
margt skemmtilegt á að horfa.
B-flokkshestar í
háum gæðaflokki
Það sem mesta athygli vakti var
hversu góðir klárhestarnir reynd-
ust og voru fjórir efstu með ein-
kunn 8,30 og þar yfir, sem verður
að teljast góður árangur. Bestur
af þeim var að sjálfsögðu hestur í
fyrsta sæti, en það er nýja stjarn-
an Snjall frá Gerðum í Landeyj-
um. Þessi hestur skaust upp á
stjörnuhimininn á nýafstöðnu
íslandsmóti í hestaíþróttum á
Faxaborg. Snjall er aðeins fimm
vetra gamall undan ófeigi 882 frá
Flugumýri og er óhætt að spá
þessum efnilega hesti miklum
frama ef þess verður gætt að hon-
um verði ekki ofgert. Eins og þeir
vita sem til þekkja er mikil hætta
á slíku með unga og viljuga hesta
sem búa yfir mikilli getu. í A-
flokki voru einnig góð hross í sýn-
ingu þótt ekki stæðu þau klárhest-
unum á sporði í gæðum. Efst var
Perla, Hafsteins Steindórssonar,
og er það alltaf ánægjulegt þegar
menn af gamla skólanum skjótast
á toppinn, en það virðist alltaf
gerast öðru hvoru. í unglinga-
keppninni voru stúlkurnar nokkuð
atkvæðamiklar og af þeim tíu
unglingum sem verðlaun fengu
voru sjö þeirra kvenkyns. Sér-
staka athygli vakti Steinn Skúla-
son sem keppti á Hlýju frá Eyrar-
bakka, en hann varð efstur í yngri
flokki unglinga auk þess sem þau
urðu í fjórða sæti í A-flokki gæð-
inga. Góður árangur hjá tólf ára
unglingi.
Yfir eitt hundrað
hross í kynbótasýningu
Á stórmótum sem haldin hafa
verið á Hellu í gegnum tíðina hef-
ur aldrei verið framkvæmd for-
skoðun og þar af leiðandi hefur
þátttaka í kynbótasýningu ávallt
verið mikil en þó aldrei eins og nú.
Lengi vel var þetta að miklum
hluta „dót“ eins og hrossaræktar-
ráðunautur kallaði það á sínum
tíma, en hefur farið stig batnandi
síðan. Eigi að síður má segja að að
minnsta kosti 14 hluti af hrossun-
um sem nú voru sýnd hefðu mátt
heima sitja.
Leistur frá Keldudal og Aðalsteinn sigruðu í 150 metra skeiðinu með nokkr-
um yfirburðum og virðist Leistur vera í algjörum sérflokki á þessari vega-
lengd.
Einn stóðhestur var sýndur með
afkvæmum, Bylur 892 frá Kolku-
ósi. Bylur sem sjálfur er klár-
hestur með tölti virðist gefa að
mestum hluta skeiðlaus hross ef
marka má þau hross sem sýnd
voru með honum og þegar skeiðið
vantar eru möguleikar á háum
einkunnum litlir. Að skeiðinu
slepptu má segja að útkoman hafi
verið nokkuð góð, hann virðist
gefa myndarleg klárhross með
tölti og góða fætur. Af þeim hryss-
um sem sýndar voru náði engin
fyrstu verðlaunum en meirihlut-
inn komst í ættbók. Eftir að hafa
horft á þessa sýningu finnst
manni orðið tímabært að hækka
lágmarkseinkunn inn í ættbók.
Það er 7,50 í dag en mætti að skað-
lausu hækka í 7,60 því eins og
flestir vita hafa orðið stórstígar
framfarir í hrossaræktinni á und-
anförnum árum og eigum við því
að vera vandir að virðingu okkar
og setja markið hátt.
Kappreiðarhrossin
fleyttu kerlingar
á pollunum
Ágætis tímar náðust á kapp-
reiðunum þrátt fyrir rigningu og
„stöðuvötn" hér og þar á hlaupa-
brautinni. Bestum árangri náði
Leistur frá Keldudal í 150 metra
skeiði en eins og menn muna setti
hann nýtt íslandsmet á Faxaborg
helgina áður. Þó má geta þess að
eftir er að staðfesta þennan
árangur og því kannski óþarfa
bráðlæti að tala um íslandsmet að
svo komnu máli. Tími hans nú var
14,2 sek. sem er mjög góður árang-
ur. Villingur sigraði í 250 metrun-
um eins og svo oft áður. Reiknað
var með í upphafi keppnistíma-
bilsins að hann myndi slá núgild-
andi Islandsmet sem er 21,6 sek.
en nú virðist útséð um það. Á
Faxaborg náði hann að jafna met-
ið en herslumuninn vantaði. Ann-
ars má segja að úrslit í þessum
kappreiðum hafi farið svona nokk-
uð eftir formúlunni.-þ.e.a.s. engin
óvænt úrslit.
Framkvæmd mótsins
í góöu lagi
Eins og kunnugt er af fréttum
hefur Hella orðið fyrir valinu sem
næsti landsmótsstaður. Mega því
forráðamenn móta á Hellu á
næstu árum búast við því að vera
undir smásjánni hvað varðar
framkvæmd móta og einnig má
búast við að fylgst verði með upp-
byggingu staðarins af miklum
áhuga. Framkvæmd stórmótsins
gekk ágætlega fyrir sig að þessu
sinni, að vísu tókst ekki alveg að
halda áætlun en litlu munaði.
Mótssvæðið er fyrir löngu búið að
sanna ágæti sitt í þurru veðri og
nú sannaðist að svæðið virðist
geta tekið við mikilli rigningu án
þess að verða eitt forað. Á sunnu-
Ljósmyndir Valdimar Kristiiuwon.
Sigurvegarinn í A-flokki gæðinga, Perla. Það er eigandinn sjálfur, Hafsteinn
Steindórsson sem situr Perlu.
dag var völlurinn valtaður og var
hann mjög góður þrátt fyrir mikla
bleytu. Virðist hann geta hleypt
miklu vatni í gegnum sig án þess
að sporast mikið. Mikil aðsókn var
að mótinu og fór vel um mótsgesti,
hluti þeirra sat í bílum sinum en
aðrir voru ýmist inni í veitinga-
húsinu góða, sem byggt var fyrir
nokkrum árum, eða þá á pallinum
fyrir framan húsið, verönd getum
við kallað það. Sem sagt ágætis-
mót í misheppnuðu veðri.
En úrslit Stór-
mótsins urðu annars
sem hér segir:
Stóðhestur með afkvæmum:
Bylur 892 frá Kolkuósi. F: Stíg-
andi 625. M: Perla frá Kolkuósi,
eigandi Sæmundur Holgeirsson,
Hvolsvelli. Einkunn fyrir bygg-
ingu afkvæma 7,85 og hæfileika
7,49, meðaleinkunn 7,67. Dómsorð:
Bylur gefur virkjamikil, fönguleg
og heldur viljug klárhross með
tölti. Bylur hlýtur önnur verðlaun
fyrir afkvæmi.
Hryssur sex vetra og eldri:
1. Terna frá Kirkjubæ. F: Hlynur
865. M: Pálma-Skjóna, eigandi Jó-
hanna Sigurjónsdóttir, einkunn
fyrir byggingu 7,75 og hæfileika
8,08, meðaleinkunn 7,92.
2. Hula frá Langholtskoti. F:
Kolbakur 730. M: Kengála 3018,
eigandi Unnsteinn Hermannsson,
einkunn fyrir byggingu 7,80 og
fyrir hæfileika 7,98.
3. Perla frá Kjartansstöðum. F:
Fengur. M: Brúnka frá Teigi, eig-
andi Lára Ágústsdóttir, Kjart-
ansstöðum, einkunn fyrir bygg-
ingu 7,64 og fyrir hæfileika 8,07,
meðaleinkunn 7,86.
Hryssur fjögurra og fimm vetra:
1. Harpa frá Kúskerpi. F: Kuldi
frá Borgarhóli. M: Brúnsokkótt
frá Kúskerpi, eigandi Þormar
Andrésson, Hvolsvelli, einkunn
fyrir byggingu 7,76 og fyrir hæfi-
leika 8,07, meðaleinkunn 7,92.
2. Hera frá Gerðum. F: Ófeigur
882. M: Gerpla, eigandi Benedikt
Karlsson, einkunn fyrir byggingu
7,76 og fyrir hæfileika 7,97, meðal-
einkunn 7,87.
3. Molda frá Kletti. F: Gustur 923.
M: Lipurtá frá Kletti, eigandi
Bjöm V. Sæmundsson, Vík, ein-
kunn fyrir byggingu 7,88 og fyrir
hæfileika 7,80, meðaleinkunn 7,84.