Morgunblaðið - 18.08.1983, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983
fclk f
fréttum
Vill verða
leikkona
+ Þessi föngulega stúlka hefur
vakiö á sér allnokkra athygli í
London að undanförnu en hún hef-
ur þaö jafnan fyrir siö aö láta sig
ekki vanta þar sem frægt fólk er á
feröinni. Með fettum og brettum
og öörum hreyfingum reynir hún
þá aö koma fólki í skilning um, aö
þótt eitthvað kunni aö vanta uþþ á
guösgáfurnar hefur náttúran veriö
rausnarleg viö hana aö öðru leyti.
Þaö fylgir ekki sögunnl hvaö stúlk-
an heitir en eitt er víst, aö leikkona
viU hún verða.
Trúlofun tilkynnt
+ Elizabeth Taylor og lögfræöingurinn Victor Gonzales hafa ákveðiö
að ganga í þaö heilaga fyrir árslok, aö því er þau skötuhjúin skýröu
frá í New York nú nýlega. Þaö mun þá veröa í áttunda sinn, sem Liz
Taylor heitir manni aö vera honum trú og trygg til æviloka.
+ Jú, þetta er englnn annar en
Mick Jagger, rollingurinn, sem
ekkert gefur eftir þótt kominn só
á fimmtugsaldurinn. Höfundur
myndarinnar heitir John Som-
erville og þykir honum hafa tekist
merkilega vel aö gæöa steininn
því lífi, sem einkennir fyrirmynd-
ina.
COSPER
Það er ekkert getiö um þetta atriöi í leikskránni.
Gaf barninu
brjóst við
upptökurnar
— og var rekin
fyrir vikiö
+ Leikkonan Lynn Redgrave hefur
átt dálítiö erfitt uppdráttar í Holly-
wood aö undanförnu eöa síöan hún
var rekin úr sjónvarpsþáttunum
„Stofugangur".
Brottreksturinn stafaöi af því, aö
Lynn heimtaöi aö fá aö hafa nýfætt
barn sitt meö í upptökunum sem
hún og geröi og gaf því svo brjóst á
milli atrlöa. Á þetta vildu stjórnend-
urnir ekki fallast og sögöu henni upp
vistinni.
Lynn, sem er orölögö skapmann-
eskja, átti lengi vel eftir þetta erfltt
meö aö fá eitthvað aö gera en nú
hefur þó ræst úr fyrir henni. Stórfyr-
irtækiö .Weight Watchers*, sem
hefur þaö aö sérgrein sinni aö berj-
ast gegn aukakílóunum, hefur ráöiö
Lynn til aö auglýsa fyrlr sig í sjón-
varpi.
DÆMALAUST
ÚRVAL AF BORÐUM OG STÓLUM
Jú, viö höfum alveg dæma-
laust úrval af allskonar
boröum og stólum á hag-
stæöu veröi og eins og þú
veist eru greiöslukjör okkar
sérstaklega góö.
líttu inn. Það borgar sig
HVS6AGNAHÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410