Morgunblaðið - 18.08.1983, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 1983
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . .
Dýr viögerd
Kagnar Halldórsson hringdi:
Fyrir nokkru setti ég vasadiskó-
tæki af Sanyo-gerð í viðgerð hjá
Gunnari Ásgeirssyni hf., en tækið,
sem er nýtt, hafði ég keypt er-
lendis. Seinna hringdi ég og for-
vitnaðist um hvað viðgerðin kost-
aði. Brá mér heldur betur í brún,
því allt sem þurfti að gera var að
setja innstungu á snúruna úr
heyrnartækjunum, sem er sett í
samband við segulbandið. Inn-
stungan kostaði kr. 50, en viðgerð-
in hljóðaði upp á kr. 495. Vil ég því
benda fólki á að kynna sér verð
áður en svona tæki eru sett í við-
gerð.
„Hækkað
verð“ í bíó
Jón Jóh. hringdi:
Ágæti Velvakandi!
Mig hefur lengi langað til að
vita hvenær kvikmyndahús hér í
bæ mega auglýsa hækkað verð á
sýningar. Ef maður athugar aug-
lýsingar frá þeim dagblöðum virð-
ist ekki vera nein regla fyrir því
hvenær verð er hækkað. Ekki fer
það eftir lengd myndarinnar, því
oft eru myndir sýndar kl. 5, 7, 9 og
11, en þá er myndin um tveggja
klukkustunda löng, sem verður að
teljast venjulegur sýningartími,
en samt er hún auglýst með hækk-
uðu verði.
Ef einhver sem vit hefur á vildi
vera svo vænn að svara þessu, þá
gæti sá hinn sami ef til vill einnig
sagt mér, hvort „hækkað verð“
geti verið mismunandi mikið
hækkað.
Ökumenn breyti
umferðarmáta sínum
Jóna Stína skrifar
íslendingum eru ferðalög í blóð
borin. Lengi vel þótti það heldur
lákúrulegt ferðalag ef ekki var
hoppað upp í flugvél og haldið til
heitari landa. Sem betur fer hefur
slíkur hugsunarháttur breyst og
erum við íslendingar farnir að
meta landið okkar sem skyldi,
enda getum við státað okkur af
einhverri fegurstu náttúru í
heimi.
Flest ferðumst við landleiðina
staða á milli og þá oftast í eigin
bílum. Reyndar hættir mörgum til
að vera um of óþreyjufullir við að
komast á áfangastað og sjá þá
jafnvel lítið af því umhverfi sem
þeir þeysa framhjá, langt yfir há-
markshraða. Er þessháttar ferða-
máti nokkuð sem ég ekki skil, því
menn hljóta að koma öllu þreytt-
ari úr ferðalaginu en þeir fóru í
það. En svo verður hver að ferðast
sem hann vill.
Nú í sumar hef ég ferðast tölu-
vert um landið, heimsótt Austfirð-
ina, Suðurlandsundirlendið og
Snæfellsnesið. Alls staðar hafa
margir ferðamenn, innlendir sem
erlendir, orðið á vegi mínum. Hef
ég jafnvel lent í langri bílalest frá
Reykjavík á föstudagskvöldum,
þrátt fyrir ausandi rigningu. Það
er útaf fyrir sig ánægjulegt að sjá
hvað fólk er duglegt við að drífa
sig af stað, þegar veðrið er eins og
það er búið að vera í allt sumar, í
stað þess að halda sig innandyra
heilu helgarnar.
Ég minntist á langar bílalestir
og ausandi rigningu. Hefði ég nú
haldið að við slík skilyrði reyndu
ökumenn að halda sig innan leyfi-
legra hraðamarka og sýna lipurð í
umferðinni, en sú er raunin alls
ekki og eru bersýnilega margir
„Jónasar" á ferð. Menn virðast
aldrei þurfa að flýta sér meira en
þegar ekið er á blautu og hálu
malbiki, nema ef væri í rykmekki
og annarskonar slæmum skilyrð-
um. Bílstjórar eru að reyna að
taka fram úr öðrum bílum og það
sem verra er, skeyta oft ekki um
að láta vita af sér með því að
flauta eða blikka ljósum. Nokkuð
sem kostar litla fyrirhöfn, en get-
ur bjargað mannslífum.
Ekki á ég lausn á þessu vanda-
máli, sem óþreyjufullir, hugsun-
arlitlir ökumenn eru. Þarf að
koma til mikið breyttur hugsunar-
háttur og sameiginlegt átak allra
landsmanna. Umferðarráð hefur í
mörg ár unnið mikið og gott starf,
en ekki virðist sem það dugi til og
nú þurfa allir landsmenn að taka
sig á og breyta ökumáta sínum.
flpf pLLi cpA />..■
svartsýnina GÆTUM TUNGUNNAR
Sýnishorn af
matseöli kvöldsins
Rækjuterta meö dillsósu og grænu salati
Gljáö ali-önd meö appelsínusósu
eða
heilsteikt, fersk rauðspretta meö rækjum, ristuöum i hvitlauki
Innbakaöur appelsinuís
Hvíldarstaður í hádeginu
Höll aö kvöldi
Velkomin
ARTiARHÓLL
Á horni Ingólfsstrætis og Hverfisgötu.
Boröapantanir í síma 18833.
. —ai^íTiii
Njótið kvöldsins
umboróífíán
Nú kitlum vid hragðlaukana með nýjum réttum.
Kvöldverður
Kvöldverður 18. ágúst 1983
Sæsniglar í hvítlauksmjöri
meö ostabrauöi
— O —
Lundapaté meö portvínshlaupi
— O —
Heilsteikt rauöspretta
fyllt meö humar, rækjum og svepp-
um í humarsósu
— O —
Gratineraö lamafille
meö koníaksrjómasósu, sveppum og
W' sellery
— O —
Fersk jarðarber meö flórsykri
og rjóma
ilÞ Aðeins það besta er nógu gott .
fyrir gesti okkar.
HBH
OqN Skólavördustíg 12, sími 10848
Rún, Hafnarfirði, hringdi:
Ég var að lesa í Velvakanda bréf
frá Sigrúnu, þar sem hún talar um
svartsýni unga fólksins okkar.
Vitnar Sigrún í sýningu Stúdenta-
leikhússins „Reykjavíkurblús".
Ég held að Sigrún hljóti að vera
mjög svartsýn kona sjálf, því mér
finnst einmitt bjartsýni og kraft-
ur einkenna alla starfsemi þessa
leikhúss. Ég sá Reykjavíkurblús
og hafði mikið gaman af og gat
hvergi séð þetta svartsýnisvið-
horf. Sama get ég sagt um Lorca-
dagskrána og tónlistarkvöld sem
Stúdentaleikhúsið hélt nýlega.
Þarna hefur tekist að skapa
ánægjulega stemmningu og á
þann hátt sem ég hélt að væri ekki
til. Það þarf enginn að kvíða því
að heimurinn sé á hraðri leið til
glötunar, eins og Sigrún orðar það,
þegar við eigum jafn duglegt ungt
fólk og það sem starfar í anda
Stúdentaleikhússins.
Sagt var: Þessir tveir flokkar fengu sinnhvorn mann-
inn.
Rétt væri:... fengu sinn manninn hvor.
SIGGA V/öGA S \/LVtRAU
ÞHÐ
TÆKI
BÖRURNRR
VERR