Morgunblaðið - 30.08.1983, Page 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
196. tbl. 70. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Menachem Begin heldur
ísraelsmönnum í óvissu
Begin heilsað
Lögreglumaður heilsar Begin
forsætisráðherra þegar hann
fer frá heimili sínu til að sitja
ríkisstjórnarfund þar sem
ræða átti endanlega ákvörð-
un hans um afsögn.
Jerusalem, 29. ágúst. AP.
MENACHEM BEGIN forsætisráðherra hélt ísraelsmönnum í óvissu í
dag með því að fresta fyrirhugaðri afsögn sinni í annað skipti, en hann
lofaði að skýra frá lokaákvörðun sinni á ríkisstjórnarfundi á þriðju-
dagsmorgun.
Þingmaðurinn Ehud Olmert
sagði eftir fund með Begin að
hann væri mjög rólegur og hefði
ekkert sagt sem breytti þeirri
skoðun sinni að hann væri stað-
ráðinn í að segja af sér. En Ronnie
Milo, tengdasonur Begins, taldi
jafnmiklar líkur á því að Begin
héldi áfram og að hann hætti.
Um 50 stuðningsmenn söfnuð-
ust saman við heimili Begins og
hrópuðu: „Begin, konungur ís-
Shultz ræðir
við Gromyko
Washington, 29. áffúst. AP.
GEORGE P. Shultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, ræðir
við Andrei Gromyko, utanríkis-
ráðherra Rússa, í Madrid í næstu
viku og þetta ætti að verða „all-
mikilvægur fundur" að því er tals-
maður bandaríska utanríkisráðu-
neytisins tilkynnti í dag.
raels, lifir." Þeir veifuðu spjöldum
með áskorunum um að hann segði
ekki af sér. Á einu spjaldinu stóð:
„Begin, yfirgefðu okkur ekki á erf-
iðum tímum."
Leiðtogar stjórnarflokkanna
reyndu að fá Begin til að skipta
um skoðun á þriggja tíma fundi.
Yitzhak Shamir utanríkisráð-
herra er talinn líklegasti eftir-
maður Begins, en David Levy
varaforsætisráðherra nýtur einn-
ig mikils stuðnings. Hugsanlegt er
talið að fljótlega verði efnt til
nýrra kosninga, e.t.v. í nóvember.
Allt er á huldu um ástæðurnar
fyrir áformum Begins, en þó sagði
hann samráðherrum sínum að
þær væru persónulegar.
Begin ber til baka að hann hafi
fengið sig fullsaddan á stjórninni,
sem gengur erfiðlega í baráttunni
við verðbólguna og er sjálfri sér
sundurþykk. Begin neitar því líka
að hann sé of heilsuveill til að
stjórna landinu á tímum póli-
tískra og efnahagslegra erfiðleika.
Flugvélarræningjarnir aem hótuðu að sprengja upp þotu Air France með
17 gíslum innanborðs í Teheran virtust vera orðnir slæmir á taugum á
þriðja degi flugránsins í gær. Viðræðum við þá er haldið áfram.
A myndinni sést einn flugvélarræninginn fara úr flugvélinni til við-
ræðna.
Frakkar reyna ný
„leynivopn“ í Chad
N’djamena, 29. ágúst. AP.
FRANSKA herliðið í Chad er búið ýmsum áður óþekktum og fullkomn-
um vopnum, sem eru svo kröftug að Líbýumenn verða varnarlausir gegn
þeim ef til átaka kemur að sögn vestrænna sérfræðinga.
Þessi „leynivopn" voru send til
Chad til að veita frönskum her'-
mönnum reynslu í notkun þeirra
og til að halda Líbýumönnum í
skefjum. Jafnframt er líbýski
flugherinn sagður hafa beitt áður
óþekktum vopnum, sem Rússar
hafa smíðað, í tilraunaskyni í
árásinni á Faya-Largeau 10.
ágúst. Eitt þessara vopna var fall-
hlífasprengja sem skýtur kröftug-
Uppsveiflu spáð víða
um heim á næsta ári
New York, 29. ágúst. AP.
EFNAHAGSBATINN í Bandaríkj
unum mun halda áfram af fullum
krafti á næsta ári og uppsveifla verð-
ur í efnahagsmálum í stórum hluta
heims segir í skýrslu rannsóknar-
nefndar bandarískra fyrirtækja.
Stöðugir vextir í Bandaríkjun-
um eru nauðsynleg forsenda var-
anlegs efnahagsbata segir í
skýrslunni. „Ef vextir hækka ekki
að ráði mun árið 1984 marka upp-
haf hægrar þróunar í þá átt að
velsæid taki við á ný um allan
heim,“ segir einn af höfundum
skýrslunnar, Michael E. Levy.
Þótt batinn sé örastur í Banda-
ríkjunum verður mestur uppgang-
ur í Asiu á næsta ári, einkum í
Singapore, þar sem hagvöxturinn
verður 8%, og í Kóreu, þar sem
hann verður 7%. Spáð er 4% hag-
vexti í Bandaríkjunum 1984, en i
ár mun hann verða 3%. í fyrra
var 1,8% samdráttur.
í Japan verður hagvöxturinn
4,2%, í Vestur-Þýzkalandi, Italíu
og Kanada 2,5% og í Frakklandi
1,2%.
Bata er einnig spáð 1984 í Róm-
önsku Ameríku, sem er illa á vegi
stödd. í Brazilíu er gert ráð fyrir
3,5% hagvexti, i Argentínu og
Chile 3%, Venezúela 1% og Mex-
íkó 2%.
í stað 5% samdráttar í Saudi-
Arabíu verður 3% hagvöxtur og í
stað 1% samdráttar í Nígeríu
verður 2% hagvöxtur.
Af öðrum spám má nefna:
• Olíuverð verður stöðugt, eða um
29 dalir, á næsta ári.
• Verðbólgan í heiminum eykst
litillega 1984 þar sem verð á hrá-
efnum mun hækka.
• Gengi doilarans mun lækka lít-
illega, sumpart vegna þess að
viðskiptajöfnuður Bandaríkjanna
mun halda áfram að versna, en
annarra þjóða batna.
• Vextir verða stöðugir 1984 i
Bandaríkjunum en lækka nokkuð i
flestum öðrum löndum.
byssu, sem er sögð kröftugasta
vopnið sem franski landherinn
noti.
um flugskeytum lárétt þegar hún
er í nokkurra feta hæð.
Þannig virðast báðir aðilar nota
Chad fyrir svæði til tilrauna með
nýjustu vopn sín. Frönsku vopn-
unum hefur þó ekki enn verið
beitt.
Franska herliðið er búið nýju
ratsjártæki sem útilokar með öllu
að nokkur geti laumazt í gegnum
600 km langa víglínu þess. Öll tólf
virki Frakka á víglínunni eru
tengd saman með þessum full-
komna búnaði. Svipuðum búnaði
hefur verið komið fyrir meðfram
„Sandmúrnum" í Marokkó til að
bægja burtu skæruliðum Polisar-
io.
Eitt kröftugasta nýja vopnið er
gagnskriðdrekaflaugin Apilas,
sem er búin „laser-auga“, sögð
100% nákvæm og dregur 1200
metra. Einn hermaður getur hald-
ið á Apilas-flauginni, sem getur
rofið hvaða brynvörn sem er. Hún
er fjórum sinnum kröftugri en all-
ar aðrar tegundir af gagnskrið-
drekaflaugum í heiminum.
Stórskotaliðsdeild kom til Chad
í síðustu viku með nákvæma
20 mm fallbyssu sem hægt er að
flytja með flugvélum og nota til
loftvarna eða í aðgerðum gegn
skriðdrekum. Herdeildin er einnig
búin sprengjuvörpu sem dregur 14
km og kúlu sem springur í níu
metra hæð. í ráði er að frönsku
hermennirnir fái 155 mm fall-
Bandarísk
hefndarárás
í Líbanon
Beirút, 29. ágúst. AP.
BANDARÍSKIR landgönguliðar
héldu uppi stórskotaliðsárásum á
vígi vopnaóra sveita Múhameðstrú-
armanna í suóurúthverfum Beirút í
dag og vopnaðir Shítar lögðu undir
sig stöð ríkissjónvarpsins í hverfi
Múhameðstrúarmanna í höfuð-
borginni.
Árás landgönguliðanna á vígin
í suðurúthverfunum var gerð til
að hefna þess að tveir landgöngu-
liðar voru felldir í víðtækum
bardögum sem geisað hafa og
hafa fært Líbanon frám á barm
nýrrar borgarastyrjaldar. Átta
landgönguliðar særðust.
Herflokkur, sem gætti sjón-
varpsbyggingarinnar, var sendur
þaðan skömmu áður en árásin á
hana var gerð til að taka þátt í
bardögum gegn Shítum annars
staðar í suðurúthverfunum. Shít-
arnir hóta að kveikja í bygging-
unni ef kristnir menn hætta ekki
bardögum.
Árásarmennirnir sökuðu líb-
anska herinn um brot á vopna-
hléssamningi sem var gerður í
morgun og sögðu að 10.000 her-
mönnum hefði verið skipað að
setjast um vígi Shíta í suður-
hverfunum.