Morgunblaðið - 07.09.1983, Side 5

Morgunblaðið - 07.09.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1983 Sveifla er ord kvöldsins „Hinir átta stóru“ í Gamla bíói SVEIFLA er orð kvöldsins, því klukkan níu í kvöld hefjast jazzhljómleikar „Hinna átta stóru“ í Gamla bíói og er áreið- anlegt að þar verður í hávegum höfð hin trausta og gróna sveifla sem reis hæst um miðbik aldar- innar í Bandaríkjunum. „Hinir átta stóru“ áttu allir sinn þátt í að efla þann mikia seið og virðist hann hafa haft góð áhrif á þá, því þeir eru enn í fullu fjöri, þrátt fyrir allháan aldur. Þessir átta sveiflugerðarmenn eru: Teddy Wilson, píanóleikari; Tal Farlow, gítarleikari; Sam Woodyard, trommuleikari; Slam Stewart, bassaleikari; Buddy Tate, tenór- saxófónleikari; Bilíy Butterfield, trompetleikari; Johnny Mince, klarinettuleikari og Red Norvo, víbrafónleikari. Allt eru þetta stórstjörnur sveiflutímabilsins sem leikið hafa með heilli runu af öðrum stór- stjörnum, kannski enn frægari. Fólki eins og Duke Ellington, Benny Goodman, Count Basie, Glen Miller, Billie Holliday og þannig mætti lengi telja. Hér fer á eftir dálftil kynning á „Hinum átta stóru“, hverjum fyrir sig. Teddy Wilson er fæddur árið 1912 í Austin í Texas. Hóf ungur tónlistarnám og lærði fyrst á fiðlu. Hann flutti síðar til Detroit og þaðan til Chicago þar sem hann lék m.a. með Louis Armstrong á fyrstu árum fjórða áratugarins. Síðan lá leið hans til New York þar sem hann vakti fyrst verulega at- hygli fyrir leik sinn á plötu með saxófónleikaranum Benny Cart- er og árið 1935 komst hann á spjöld sögunnar vestan hafs með því að ganga í tríó Benny Goodmans, þar sem Gene Krupa var þriðji maður. Þetta var sögulegt, vegna þess að með tilkomu Teddys varð tríóið fyrsta hljómsveit sveiflutima- bilsins, þar sem bæði léku hvítir og svartir. Á árunum eftir stríð fékkst hann nær eingöngu við kennslu, plötuupptökur og út- varpsupptökur, en sást sjaldan opinberlega. Eftir að hann lék í kvikmyndinni „the Benny Good- man Story" árið 1956 varð mikil eftirspurn eftir að sjá hann og heyra og það varð til þess að hann stofnaði eigið tríó, sem hann ferðaðist með víða um Bandaríkin í mörg ár. Hann hefur iðulega leikið með Benny Goodman á tónleikum, plötum og við önnur sérstök tækifæri hin síðari ár. Tal Farlow fæddist í Norður- Karólínu árið 1921 og starfaði Teddy Wilson upphaflega sem skiltamálari en hóf að leika á gítar á stríðsár- unum, vegna hrifningar á Charlie Christian. Hann hélt til New York laust fyrir 1950 og lék þar næstu ár með De Franco, Red Norvo, Artie Shaw og fleir- um. Árið 1955 settist hann að mestu í helgan stein og lét að- eins stöku sinnum til sín heyra opinberlega, þar til á síðustu ár- um, og þess má geta að í síðustu gagnrýnendakosningum tónlist- artímaritsins Downbeat, varð hann í þriðja sæti á eftir Jim Hall og Joe Pass. Er því ljóst að hann á ennþá heilmikið erindi við jazzunnendur og aðra tón- elska menn. Sam Woodyard er þekktastur fyrir að hafa verið trommuleik- ari í stórsveit Ellingtons um langt skeið, en hann er fæddur árið 1925 í New Jersey og er því yngstur hinna átta. Áður en hann gekk til liðs við Ellington hafði hann m.a. leikið með Roy Eldridge og Milt Buckner. Slam Stewart, syngjaandi kontrabassaleikarinn, fæddist árið 1914 í New Jersey og sló í gegn í dúóinu „Slim & Slam“ með gítaristanum Slim Gaillard árið 1938 með laginu „Flat Foot Floogee", sem margir kannast við. Hann lék í tríói Art Tatums á árunum 1943—4 og síðar í hljómsveit Benny Goodmans. Hann öðlaðist snemma frægð fyrir þann sérstæða hátt sinn að syngja sóló sín um leið og hann lék þau með boganum á konstrabassann. Auk fyrr- nefndra jazzgoða hefur Slam Stewart m.a. leikið inn á plötur með Erroll Garner, Lionel Hampton og Dizzy Gillespie. Buddy Tate er fæddur í Texas GOÐ VARA GOTT VERÐ VERÐ KR.: 850,- árið 1915 og lék lengi í stórsveit Count Basies, reyndar allan fjórða áratuginn og gott betur. Buddy Tate kom hingað til lands og blés með hljómsveit Benny Goodmans á Listahátíð- artónleikum í Laugardalshöll sumarið 1976. Billy Butterfield fæddist árið 1917 í Ohio. Hann lék í sveitum Bob Crosbys, Artie Shaws og Benny Goodmans á árunum í kringum 1940. Mestan hluta sjötta áratugarins vann hann við plötuupptökur í New York auk þess sem hann stýrði eigin hljómsveit. Á síðustu árum hef- ur hann leikið á trompetinn sinn í „The World’s Greatest Jazzband". Johnny Mince var sautján ára farinn að. leika með hljómsveit Joe Haymes, en fæddur er hann árið 1912 í Illinois. Hann lék í hljómsveit Tommy Dorseys og var talinn einn besti klarinettu- leikari sveiflutímabilsins. Árið 1974 lék hann hér á landi með dixielandhljómsveitinni Kings of Jazz. Red Norvo er elsti maðurinn í hljómsveitinni og er hann fædd- „Hinir átta stóru“, Teddy Wilson, Slam Stewart, Johnny Mince, Billy Butt- erfíeld, Buddy Tate, Sam Woodyard, Tal Farlow, Red Norvo. ur árið 1908 í Illinois. Hann lærði á píanó í bernsku, en tók síðan að leika á xýlófón og hélt til Chicago um miðjan þriðja áratuginn á vit jazzins. Þar kynntist hann fyrri konu sinni, jazzsöngkonunni sálugu Mildred Bailey, og héldu þau til New York snemma á fjórða ára- tugnum. Frá 1934 stjórnaði hann eigin hljómsveitum af ýmsum stærðum og gerðum fram til ársins 1944 og var þá farinn að leika á víbrafón. Hann gekk þá til liðs við Benny Goodman og síðar Woody Her- man. Eftir nokkur ár í Kali- forníu sneri Norvo aftur til New York árið 1949 og tók á ný að stýra eigin sveitum. Hann stofnaði eigið tríó með þeim Tal Farlow og Charlie Mingus árið eftir, en síðar tóku þeir Jimmy Raney og Red Mitschell við sæt- um þeirra. „Hinir átta stóru" komu að- eins saman nú til að leika inn á plötu og fara í tónleikaferð til Evrópu og gera þar sjónvarps- þátt fyrir svissneska sjónvarp- ið. Þetta er því einstakt tæki- færi til að heyra nokkra helstu fulltrúa sveiflutímabilsins taka lagið saman. Tónleikarnir í Gamla bíói hefjast sem fyrr segir klukkan níu í kvöld og verða óseldir miðar til sölu við ínnganginn. — SIB HAUSTTILBOÐ FRA SHARP Sy.t.m 31H Q Hj|« E>g Jtft \WUCÉ □□ DÍDLBV SYSTENA SHARP System 15 Ein al fáum hljómtækjasamstæðum, þar sem einnig er gert ráð fyrir kassettugeymslu. Magnari,2X20 rms W. Plötuspilari. Fullsjálfvirkur með beinum tónarmi. Kassettutæki. Lagaleitari, Dolby-kerfi. Metal. Útvarp FM (stereo), LW og AM. Hátalarar. Bassa-endurkast. 40 W (music). Skápur, b. 433. h. 804. d. 365. KR. 29.925.00 SHARP System 31 Samræmis HI-FI gæðakröfum. (Din 45500). Magnari. 2X35 rms W. Plötuspilari. Hálfsjálfvirkur, með beinum tónarmi og „strobo scope". Kassettu- tæki. Snertirofar. Lagaleitari. Dolby-kerfi og Metal. Útvarp. FM (stereo). LW. AM. LED-mælar. Hátalarar Bassa-endurkast. 75 W (music). KR. 33345.00 HLJOMBÆR ___________________________ pffnp— — HUÐM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI g^^fgg010 103

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.