Morgunblaðið - 07.09.1983, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 07.09.1983, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1983 Hljóðritanir á samtölum soveskra flugmanna er grönduðu kóreönsku farþegaþotunni: Þotan blikkaði ljósum og fékk enga viðvörun Tókýó, Washinjfton, 6. september. AP. JAPANIR BIRTU í dag afrit af upptökum á samtölum sovézka orrustuflug- mannsins, sem grandaði kóreönsku farþegaþotunni, við stjórnstöð í Sovét- ríkjunum. Þar kemur fram að flugmaðurinn sá flugmennina blikka siglinga- Ijósum. Helzti talsmaður stjórnarinnar í Tókýó sagði að af upptökunum mætti ráða að sovézki flugmaðurinn hefði ekki reynt að ná sambandi við farþegaþotuna og vara hana við. Rússar hefðu því virt alþjóðasamþykktir að vettugi og sýnt mikið mannúðarleysi er þeir grönduðu þotunni. Framferði af þessu tagi væri með öllu óþolandi og yrði ekki látið afskiptalaust. 1 afritunum kemur fram að flugmaðurinn talaði við stjórnstöð á eðlilegri rússnesku, en ekki dulmáli. Þýðingarmesti hluti sam- talanna fer hér á eftir, og er tími viðmiðunartími Greenwich: 18:21,25: Skotmarkið blikkar siglingaljósum. Innan við tveir kílómetrar á milli okkar og skot- marksins. 18:25,11: Ætla að fara nær skotmarkinu. Hef það í miði. Fjar- lægð átta kílómetrar. ERLENT 18:25,16: Höfum opnað eld- flaugarofann. 18:25,20: Höfum hleypt af. 18:25,21: Skotmarki hefur verið grandað 18:38: Skotmark að fullu eyði- lagt. Farþegaþotan fór í loftið í Anchorage klukkan 14 að Green- wich-tíma, og klukkan 16 birtist hún á ratsjám Sovétmanna. Orrustuþotur voru þá sendar til móts við þotuna, og komu til móts við hana yfir eyjaklasa austur af Kamtsj atka-skaga. Síðan var það klukkan 18:12 sem orrustuþotur frá Sakhalín-eyju, sem sendar voru til móts við far- þegaþotuna, tilkynna að þær hafi þotuna í sjónmáli. Á sama augna- bliki sézt stór hvítur blettur aust- ur af Sakhalín á ratsjám í flugstöð í Japan, en þar var talið að hér væri sovézk flugvél á ferðinni. Klukkan 18:15 óskar flugstjóri farþegaþotunnar eftir heimild til að hækka flugið úr 33 þúsund fet- um í 35 þúsund fet, samkvæmt venju á flugleiðinni, og fær hann heimild til þess klukkan 18:20. Á sömu mínútu birtast þrjár sovézk- ar orrustuþotur á ratsjám í jap- önsku flugstöðinni. Flugstjórinn segir síðan hækkun lokið klukkan 18:23, en eins og fram kemur að framan kom sovézk orrustuþota upp að farþegaþotunni klukkan 18:21,35. Sovézki flugmaðurinn tilkynnir klukkan 18:25,21 að skotmarkið hafi verið hæft og á næstu mínútu heyrðist upphaf kalls frá kór- eönsku þotunni, en miklar truflan- ir gerðu það ólæsilegt, einungis hægt að skilja kallmerki hennar. Gerði þá flugstjórnarmiðstöðin í Tókýó árangurslausar tilraunir til að ná sambandi við þotuna á ýms- um fjarskiptatíðnum og tilkynnti nokkrum mínútum síðar að þot- unnar væri saknað. Klukkan 18:29 hvarf þotan af ratsjárskerminum í japönsku flugstöðinni í norðurhluta lands- ins, og um klukkan 18:30 heyrðu japanskir fiskimenn við Moner- on-eyju sprengingar og leiftur- blossa, sem talið er að hafi verið frá þotunni. Rússneskur diplómat í Tókýó sagði eftir að afrit af hljóðritun- qro-ko LITAÐ v STÁL v ER FRAMTÍÐIN Nú bjóðum við þak og veggklæðningar úr stáli með inn- brenndum litum, hvítt, brúnt, rautt, grátt blátt og svart. i Plöturnar eru 1.07 m á breidd. Lengd að óskum kaupanda allt að 10 m. klæðningarbreidd er 1 m. Klæðningsstálið er auðvelt í uppsetningu og hefur viðurkennda yfir- borðsáferð. Við afgreiðum alla fylgihlutit.d. við glugga, hurðir, horn, enda- samskeyti og kyli á þök. Afgreiðum pantanir á 2 dögum. Verðið er með því ódýrasta sem þekkist á þessu sviði. Leitið nánari upplýsinga í síma 33331. • BYGGINGAVÖRLTR HE SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331. unum voru birtar, að þær væru tilbúningur. Talsmaður japanska utanríkisráðuneytisins sagði emb- ættismenn hafa fundað í dag um hugsanlegar refsiaðgerðir vegna árásarinnar á þotuna, en engin ákvörðun hefði verið tekin. Að sögn Kyodo-fréttastofunnar er bú- ist við að farið verði að fordæmi Bandaríkjamanna og lendingar flugvéla Aeroflots bannaðar um tíma. Einnig að samskipti við Rússa á sviði menningarmála verði heft, og fyrirhuguðum við- skiptaviðræðum í október aflýst eða frestað. Leitt hefur verið í ljós að ýmsir munir, sem fundust fljótandi norður af Moneron-eyju, séu ekki úr kóreönsku farþegaþotunni, eins og í fyrstu var talið. Eftirlitsflugvélin löngu lent Starfsmenn bandaríska varn- armálaráðuneytisins sögðu nánast útilokað að Rússar hafi talið sig vera að gera árás á bandaríska eftirlitsflugvél er þeir grönduðu kóreönsku Júmbó-þotunni með 269 manns innanborðs. Eftirlitsflug- vélin, sem verið hefði á svipuðum slóðum og farþegaþotan, hefði lent Rússnesku hershöfðingjarnir, sem taldir eru hafa ákveðiö að kóre- önsku farþegaþotunni, með 269 manns innanborðs, skyldi grandað, marskálkarnir Aleksander Koldu- nov (t.v.) og Pavel Kutakhov. Kuta- khov er yfirmaður lofthers Sovét- ríkjanna og aðstoðarvarnarmálaráð- herra, en Koldunov yfirmaður loft- varna Sovétríkjanna. Æðri þeim Kutakhov og Koldunov eru Nikolai Ogarkoo yfirmaður alls herafla Sov- étríkjanna, Dmitry Ustinov varnar- málaráðherra og Yuri Andropov. í bækistöð sinni í Anchorage í Al- asaka rúmlega klukkustund áður en farþegaþotan var skotin niður. Hefði eftirlitsflugvélinni verið veitt eftirför af sovézkum orrustu- þotum, en hún jafnan haldið sig utan sovézkrar lofthelgi. Rússar hefðu um tíma veitt báðum flug- vélunum samtímis eftirför og því vitað um ferðir beggja. Þá væri farþegaþotan talsvert stærri og öðru vísi í útliti en eftirlitsflugvél- in. Tveir franskir brynvagnar á norðurleið til útvirkisins Salal, 470 km frá N’djamena, höfuðborg Chad. Ólíkar fréttir af ástandinu í Chad Ndjamena, (’had, 6. september. AP. FRETTIR um loftárás Líbýumanna á framvarðarstöð stjórnarhersins í Chad í Oum Chalouba stangast mik- ið á og ber fulltrúum stjórnarinnar og vestrænum heimildum ekki sam- an. Að sögm Soumaila, upplýsinga- fulltrúa Chad-stjórnar, gerðu margar líbýskar sprengjuþotur loftárásir a Cum Chalouba og ollu miklum skemmdum og mannfalli, en vestrænar leyniþjónustuheim- ildir, sem þykja áreiðanlegar, segja, að aðeins ein flugvél hafi varpað sprengjum úr mikilli hæð, og þær hafi lent í eyðimörkinni öllum að skaðlausu. Stjórnvöld í Chad skýrðu seint í dag frá mikilli sókn skæruliða að Oum Chalouba og sögðu þau að rúmlega 3000 manns studdir skriðdrekum, brynvögnum og stórskotaliði tækju þátt í sókn- inni. Vestrænir leyniþjónustu- menn draga þessar fréttir í efa eins og þær fyrri. Niksic: Spassky tapaði Niksic, Júgóslavíu, 6. scptcmber. AP. YASSER Seirawan frá Bandaríkjun- um vann skák sína við Boris Spassky, fyrrum heimsmeistara, í gær og er þeíta fyrsti ósigur Spassk- ys á mótinu. í fyrri umferðum móts- ins vann hann t.d. Garri Kasparov, sem er efstur og líklegastur sigur- vegari. Úrslitin í 10. umferð urðu þessi: Gligoric og Nikolic gerðu jafn- tefli; Seirawan vann Spassky; Petrosjan og Larsen gerðu jafn- tefli; Ivanovic vann Sax; Portisch og Ljubojevic gerðu jafntefli; Kasparov og Tal gerðu jafntefli; Timman og Miies gerðu jafntefli og Anderson sat hjá. Staðan er nú þessi: Kasparov 8 v.; Larsen 6; Spassky, Anderson, Timman 5; Miles, Portisch, Ivan- ovic 4 '/2; Tal 4 (eina biðskák); Gligoric, Petrosjan, Seirawan, Ljubojevic 4; Sax 3‘A og Nikolic 3.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.