Morgunblaðið - 07.09.1983, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1983
17
Sjálfboðaliðar í heyskap:
Fyrir liggja 20 hjálparbeiðnir sem
ekki hefur verið hægt að verða við
— segir Sigurður Magnússon hjá Rauða krossi íslands
„JÚ, VIÐ höfum sem betur
fer getað orftið vift allmörg-
um hjálparbeiðnum frá
bændum hér á Suðurlandi,
en vift höfum enn ekki getaft
hjálpað bændum á Snæfells-
nesi og í Borgarfírði, en þar
er einnig vífta þörf á aðstoft",
sagfti Sigurður Magnússon
fulltrúi hjá Raufta Krossi ís-
lands í samtali viö Mbl. í
gærkvöldi er hann var spurft-
ur að því hvort það hjálp-
arstarf sem Raufti Krossinn
setti nýlega í gang meft því að
Ánægjuleg tilbreyting
frá daglega starfínu
— segir Jakob Hálfdánarson sjálfboðaliði á Böðmóðsstöðum
„Ég gaf mig fram við Rauða
krossinn vegna þess að þeir
auglýstu eftir sjálfboftaliðum
til hjálparstarfa en þetta er
einnig ánægjuleg tilbreyting
frá því aft teikna brýr sem er
starf mitt dags daglega," sagfti
Jakob Hálfdánarson tækni-
fræðingur úr Reykjavík sem
mættur var ásamt börnum sín-
um í heyskapinn hjá Árna
bónda Guðmundssyni á Böft-
móftsstöðum í Laugardals-
hreppi.
„Já, það er gaman að þessu en
ég er þó fyrst og fremst að reyna
að gera eitthvert gagn,“ sagði
Jakob, „til þess er ég kominn, og
við erum þegar búin að tína
bagga á einn vagn. Ég tók krakk-
ana mína með, við drifum okkur
hingað austur eftir að þau voru
búin í skóla og vinnu enda er
þetta ekki síður gert fyrir þau.
Ég er í sumarfríi og get líka
komið hingað á morgun ef þörf
verður á en mér skilst að þetta
klárist í dag.“
Arni Guðmundsson á Böð-
móðsstöðum sagði að sumarið
væri búið að vera erfitt heyskap-
arsumar og hefði óvanalegur
kuldi einkennt það. Benti hann á
Heklu og sagðist aldrei hafa séð
hana svona hvíta á þessum tíma
áður. Sagðist hann vera að hirða
af síðasta stykkinu, hörkuþurrk-
ur væri og næði hann að hirða af
því fyrir kvöldið með aðstoð
sjálfboðaliðanna. Sagði hann að
mikilsvert hefði verið að fá
þessa aðstoð, það væri virð-
ingarvert hjá Rauða krossinum
að fara út í þetta hjálparstarf.
Það kæmi sér líka vel þar sem
víða væri orðið fáliðað, sumar-
fólkið að mestu farið í skólana.
Jakob sagði að ágætt væri að
vera kominn í sveitina. Hann
væri fæddur og uppalinn í
Reykjavík en hefði verið eitt
sumar í sveit hjá Einari á Jarð-
langsstöðum í Borgarfirði þegar
hann var 13 ára gamall. Það
hefði einmitt verið rigninga-
sumarið mikla 1955, sem nú væri
orðið rigningasumarið næst-
mesta á eftir þessu sumri sem nú
væri að líða. Sagðist hann því
ekki vera allsendis óvanur
þurrkleysinu.
Morgunblaðiö/Friöþjófur
Það þarf talsverð átök við að koma bagga upp á fullhlaðinn vagn eins og
sjá má á Jakobi Hálfdánarsyni tæknifræðingi úr Reykjavík þar sem hann
var að aðstoða heimilisfólkið á Böðmóðsstöðum í Laugardalshreppi í gær.
Gaman í sveitinni. Jakob ásamt börnum sínum sem eru frá vinstri á myndinni: Þórný Björk, Hlynur Sveinn og
Jón Víðis.
senda sjálfboftaliöa til aft-
stoðar bændum á óþurrka-
svæðunum í heyskap.
Sigurður sagði einnig:
„Við erum mjög þakklát
öllum þeim sem veitt hafa
hjálp að undanförnu, en
þegar ég hætti störfum í
kvöld lágu fyrir beiðnir um
hjálp frá 20 sveitabæjum á
óþurrkasvæðunum sem við
gátum ekki liðsinnt. Þess
vegna er okkur nú bráð-
nauðsynlegt að Morgun-
blaðið skili því til góðvilj-
aðra iesenda sinna að
okkur er nú brýn þörf á að
fá hjálp frá sjálfboðaliðum,
einkum þeim sem hafa yfir
bifreiðum að ráða. Þetta á
jafnt við þó nú fari ef til
vill að rigna aftur, því
nauðsynlegt er að hafa
handbær nöfn sjálfboðaliða
þegar styttir upp aftur,"
sagði Sigurður Magnússon.
Bjarni ásamt Skúla og Guðmundi Norðdahl á Úlfarsfelli að fesU hey-
klóna betur á ámokstursgálga dráttarvélarinnar.
Mæli óhikað með
þessu við félagana
— segir Bjarni S. Einarsson sjálfboðaliði
„ÉG GAF mig fram við Raufta
krossinn um helgina og í morg-
un var svo hringt í mig og ég
beftinn að hjálpa til hérna í dag
og ef til vill á morgun ef á þarf
að halda. Maður verður að
reyna að gera eitthvað gagn
fyrir þjóðfélagiö,“ sagði Bjarni
S. Halldórsson, 19 ára Hafn-
fírftingur, er vift hittum hann
að máli úti á túni á Úlfarsfelli í
Mosfellssveit þar sem hann
var aft hjálpa til við heyskap-
inn.
Grímur Norðdahl er bóndi á
Úlfarsfelli en synir hans þrír,
Skúli, Guðmundur og Guðjón
voru allir heima í heyskapnum.
Þeir vinna allir í Álafossverk-
smiðjunni og fengu ýmist frí til
að fara í heyskapinn eða voru á
þannig vöktum að þeir gátu
komið því við að hjálpa til
heima. Skúli sagði, að farið
væri að sjá fyrir endann á
heyskapnum sem gengið hefði
með eindæmum illa í sumar.
Sagði hann heyin verða orðin
sæmilega þurr og næðist því
talsvert inn á stuttum tíma
meðan þurrt væri.
Bjarni S. Einarsson sagðist
hafa verið í sveit eitt sumar
þegar hann var 5 ára. „Það er
gaman að kynnast þessu. Mig
hefur alltaf langað í sveit en
aldrei fengið tækifæri til þess.“
Sagðist hann hafa tekið sér frí í
Flensborgarskóla því skólinn
hefði verið byrjaður en engin af
skólafélögum hans hafði haft
tíma til þess að fara með hon-
um. Hann myndi þó óhikað
hvetja þá til að taka þátt í þessu
Bjarni S. Einarsson tók sér frí úr
skólanum til að geta hjálpað til við
heyskapinn á Ulfarsfelli í Mos-
fellssveit.
þegar hann færi aftur í skólann.
Sagði Bjarni að þessi dagur
reiknaðist sem fjarvist í skólan-
um og fannst honum það órétt-
látt því hann væri að hjálpa
fólki sem væri í nauðum statt.
„Það er þrælgaman að þessu,"
sagði Bjarni. „Mér iíkar þetta
mjög vel. Ég vann í mengaða
loftinu í Álverinu í sumar og ég
finn því greinilega hvað það er
miklu heilnæmara að koma
hérna út í náttúruna."