Morgunblaðið - 07.09.1983, Side 18

Morgunblaðið - 07.09.1983, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1983 Morgunblaðid/Steingrfmur. Kveikt í sögufrægu húsi í Siglufirði Siglunrði, 3. september. SÖGUFRÆGT hús var brennt hér á Siglufirði í dag. í tíð Óskars Hall- dórssonar, sfidarsaltanda og útgerð- armanns, var húsið notað sem ver- búð og skrifstofuhúsnæði vegna tug- þúsunda tunna sfldarsöltunar og annarrar fiskvinnslu hjá Frystihús- inu Bakka, sem enn stendur aðeins norðar, en bryggjurnar eru löngu horfnar. Ekki hafði verið búði í húsinu í nokkur ár og fékk slökkviliðið á Siglufirði húsið til æfingar. Eftir að kveikt hafði verið í húsinu æfði slökkviliðið reykköfun, leit að fólki og beint slökkvistarf. Að- spurður sagðist slökkviliðsstjór- inn, Kristinn Georgsson, vera mjög ánægður með árangurinn af æfingunni. „Húsið var stórt og í þvi mikið af rangölum og skúma- skotum, auk þess sem húsið stóð afsíðis. Mannskapurinn sýndi að hann er í góðri þjálfun og veður var hagstætt, þannig að reykur sté að mestu leyti beint til himins," sagði Kristinn. — S.K. Kanadískur akkoreon- leikari staddur hér á landi UNGUR kanadískur akkordeonleikari er nú staddur hér á landi á vegum Tónskóla Emils Adólfssonar og mun hann halda tónleika í Norræna húsinu þann 7. september nk. kl. 20.30. Leonard Turnevicius er fæddur í Hamilton, Ontario, Kanada, árið 1960. Hefur hann um langt skeið verið nemandi hjá Boris Borgstrom og unnið meðal annars keppnina „Championship of the Americas" í New York. Stundaði hann nám við Tónlistarháskólann í Toronto og hefur tvívegis tekið þátt í heims- keppninni. Árið 1978 varð hann í fjórða sæti i heimskeppninni sem þá var haldin í Lodz í Póllandi og árið 1980 í öðru sæti í heimskeppn- inni sem haldin var í Cannes í Frakklandi. Árið 1982 lauk hann burtfararprófi frá tónlistar- háskólanum í Toronto með ágætis- einkunn. Stundar hann nú nám við einleikaradeild Konunglega tónlist- arháskólans í Kaupmannahöfn undir handleiðslu Mogens Elle- gaard. Leonard Turnevicius íslenska sveitin sigursæl Á NÝAFSTÖÐNU Evrópumeistaramóti eigenda íslenskra hesta, sem fram fór í Vestur-Þýskalandi, urftu íslendingar mjög sigursælir, svo sem áftur hefur verift frá skýrt í fréttum Morgunblaðsins. Úrslit í hinum einstöku keppnisgreinum urðu sem hér segir: Gæftingaskeið: stig 1. Aðalsteinn Aðalsteinsson Islandi á Baldri 104 2. Reynir Aðalsteinsson íslandi á Sprota 86 3. Jóhannes Pucher Austurríki á Bjarka 75,50 4. Eyjólfur Isólfsson íslandi á Krák 65 5.—6. Els Dutilh Hollandi á Mána 64 5.-6. Alexander Sbustav Austurríki á Dróma 64 Tölt (einkunnir úr forkeppni) stig 1. Hans Georg Gundlach Þýskalandi á Skolla 102 2. Andreas Trappe Þýskal. á stóðhestinum Thor 104 3. Daniela Stein Þýskalandi á Seifi 86 4. Joris van Grimsver Hollandi á Rauðdreka 89 5. Walter Feldman Þýskalandi á Magnúsi 91 Fjórgangur: stig 1. Hans Georg Gundlach Þýskalandi á Skolla 56,95 2. Andreas Trappe Þýskalandi á Thor 57,80 3. Walter Feldman Þýskalandi á Magnúsi 56,95 4. Daniela Stein Þýskalandi á Seifi 51,00 5. Joris van Grimsver Hollandi á Rauðdreka 48,45 Fimmgangur: stig 1. Aðalsteinn Aðalsteinsson á Baldri 51 2. Tómas Ragnarsson á Fjölni 60 3.-4. Reynir Aðalsteinsson á Sprota 54 3.-4. Piet Hoyos Austurríki á Sóta 54 Hlýðniæfingar: stig 1. Walter Feldman Þýskalandi á Magnúsi 49,47 2. Sylvia Dubs Sviss á hryssunni Skollu 42,27 3. Thomas Haag Sviss á Skugga 40,67 4. Heidi Nielsen Noregi á Heru 46,15 Víftavangshlaup: stig 1. Heidi Nielsen Noregi á Heru 50 2. Mathieu Dischinger Frakklandi á Kóp 48,92 3. Arild Oterholt á Fífli 48 4. Thomas Haag Sviss á Skugga 46,84 250 metra skeift: sek. 1. Tómas Ragnarsson á Fjölni 126 stig 21,7 2. Reynir Aðalsteinsson á Sprota 120 stig 22,0 3. Aðalsteinn AðalsteinSson á Baldri 106 stig 22,7 4. Christ. Dhriltiarindeaur Sviss á Valsa 86 stig 23,7 5. Hannes Diebolt Þýskalandi á Fjölni 78 stig 24,1 Er Friedrich Albert ekki lflka gullskip? — eftirJónas Guðmundsson Það þarf ekki að fara mörgum orðum um þau vonbrigði, sem urðu, er mönnum varft það Ijóst, að „gullskipið“ á Skeiðarársandi, reyndist „aðeins vera togari", eins og einhver orftaði það. Og nú munu björgunarmenn hafa í hyggju að taka upp sín stálþil, og gröfin mun þá lokast og sandurinn umlykja hið þjáða skip Friedrich Albert öðru sinni. Það skal að vísu fúslega viður- kennt, að á því er nokkur munur, hvort menn finna gullskip, hollenskt Indíafar, ellegar togara, en á hinn bóginn tel ég það alls ekki sjálfgef- ið, að eigi svari það kostnaði að bjarga þessu skipi, ef hægt er, kostn- aðarins vegna, og liggja til þess margar ástæður. Þyngst vegur lík- lega sú, að raér er ekki kunnugt um að svo gamall og heill togari sé til f víðri veröld og svo er það hitt, að saga þessa togara er fræg. Hún er saga mannrauna og um þaft, hvernig sjómenn voru heimtir úr helju. Þama um borð eru, vonandi vel varðveitt, allskyns vélar og tæki, er notuð voru fyrir heilli öld, þar á meðal vélbúnaður, þ.e. gufuvél og ketill, ásarat mörgu öðru. Er ég þess viss, að þetta eru nú mikil söguleg verðmæti — og peningaleg líka. Þess vegna eiga menn nú að reikna sig fram, og kanna hvort ekki sé nú rétt að færa togarann til strandar og gjöra hann sjófæran á ný. Friedrich Albert Það er þó ef til vill nauðsynlegt að rifja ofurlítið upp sögu þessa þýska togara, vegna þeirra, er hana þekkja ekki, og leyfi ég mér að grípa hér ofan í grein er ég ritaði um þennan atburð fyrir tveim áratugum, eða svo, en þar stendur á þessa leið: „Það var árið 1903, eða nánar tiltekið 19. janúar það ár, sem þýski togarinn Friedrich Albert frá Getsemúnde strandaði á svonefndri Svínafellsfjöru, sem liggur milli Skeiðarárósa að aust- an, og Hvalsíkis að vestan. Það mun hafa verið um 10-leyt- ið um kvöldið, sem togarinn kenndi grunns í brimgarðinum. Flestir skipverja voru í fasta- svefni, nema þeir, sem voru á verði. Úti á grunninu helltust brotsjóirnir yfir skipið, og fyrr en varði hálffyllti það af sjó. Þannig barst leikurinn gegnum brimgarð- inn, uns það hafnaði undir sand- bökkunum. Þó undarlegt sé, sakaði engan skipverja né tók fyrir borð, meðan brimsjóirnir steyptu sér látlaust yfir Friedrich Albert frá Getse- múnde og klukkan fjögur um morguninn hafði fjarað það undan skipinu, að áhöfnin komst á land — lifandi. Það er auðvelt að geta sér til um það, hvað efst var í huga þeirra 12 þýsku sjómanna, sem á kaldri janúarnótt stóðu votir inn að skinni á ókunnri strðnd, umluktir myrkri. Að baki þeirra lá togarinn í brimlöðrinu. Um þetta segir í Fjallkonunni 17. febrúar 1903: „Sem von var, varð veslings mönnunum fyrst fyrir að fara að leita mannabyggða. Þeir fóru víðs vegar um sandinn og gerðu ýmsar atrennur til að vaða vötnin, bæði uppi undir jökli og niðri við sjó, en alls staðar var óvætt. Þeir komust sem sé að þeirri ömurlegu stað- reynd, að þeir voru innilokaðir í gildru." Um strandstaðinn er það að segja, að hann var einn hinn versti, sem þarna var að finna, og um hann segir í sama blaði Fjall- konunnar: „Þar eystra eru margar land- tökur ekki góðar, en þessi staður er þó langvoðalegastur þeirra allra. Þaðan eru nálega 5 mílur upp að jöklinum, þar sem sumar- vegurinn liggur, en þó enn lengra til mannabyggða, hvort sem farið er austur eða vestur og ófær vötn báðum megin. Skeiðarársandarnir að austan, en Hvalsíki að vestan, og þarna eru engar mannaferðir, nema þá sjaldan menn fara þang- að á fjörur, og má nærri geta, hvað oft það er farið um hávetur- inn, þegar öll vötn eru auð, eins og nú var, því þangað er sögð 4—5 stunda reið frá næstu bæjum, þó allan vatnaflákann megi skeiðríða á ísum.“ Það var því ekki glæsileg til- vera, sem blasti við þeim mönnum, sem í svörtu náttmyrkri leituðu bæja eftir að hafa brotist af hálfsokknum togara upp á ströndina. Og manni verður hugs- að til orða þjóðskáldsins, þó við annan stað sé átt: „Þau Héraðsvötn eru háskaspil og hvað þá, er enginn sér handaski! og vakir í vök hverri dauðinn." (Matth. Joch.) Vatnsflæmi Og það átti ekki fyrir skip- brotsmönnum að liggja að losna úr prísundinni í bráð. Samt gerðu þeir árangurslausar tilraunir til að vaða ófærurnar í vestri og austri, og sólarhringum saman urðu þeir að láta fyrirberast á sandinum. Um það segir Fjallkon- an á þessa leið: „Á þessum ferðum þraut þá oft dag og urðu þá að liggja úti á bersvæði og stundum á ísum. En skýli höfðu þeir smám saman gert sér úr tunnum og rusli, sem úr skipinu rak, breitt yfir segl og mokað að sandi. En einar þrjár nætur voru þeir í skýlinu, því óttinn við að verða að deyja þar úr hungri rak þá sífellt af stað. Á þessu vonleysiseigri voru þeir í átta sólarhringa, og 28. janúar lagði stýrimaður af stað og ætlaði að reyna að komast vestur yfir vötnin einn síns liðs, en til hans hefur ekki spurst síðan, hefur annaðhvort drukknað eða helfros- ið. Þann 29. leggja þeir enn af stað og höfðu þá rekið saman eitthvert flekaskrifli, sem þeir ætluðu að reyna að fljóta á yfir dýpstu álana og drógu það með sér vestur að síki. Þeir sjá þá menn á fjörunni fyrir vestan, en með engu móti gátu þeir vakið athygli þeirra. Vegurinn milli þeirra var lengri en svo. En svo leggja þeir þó á fremsta hlunn og komast þá loks yfir vatnsflæmið, en tvo félaga sína urðu þeir að skilja eftir hel- frosna. Þeir fylgdu svo braut fjörumanna og komust loks að Orrustustöðum á Brunasandi næsta morgun, en lúrðu undir skipsflaki á fjörunni um nóttina. Þeir höfðu þá verið að hrökklast um sandinn nær fjóra sólar- hringa. Þeir voru þá eftir níu og þrír lítið kalnir, en sex mikið og þrír þeirra mikið skemmdir, mest á höndum og fótum." Þó vafalaust hefði mátt skrifa um stríð mannanna á sandinum, verður það ekki gert hér. Það er þó raunar ástæðulaust, því hver og einn getur gert sér í hugarlund það, sem á vantar. Að lokum segir svo í Fjallkon- unni, að þá hafi á Orrustustöðum Jónas Guðmundsson búið fótalaus einyrki, og hafi hann unnið þeim allan greiða, sem hann mátti, en sýslumaður sá þeim síð- ar fyrir læknishjálp og öðrum nauðsynjum. Gert að sárum Það kemur hér síðar í ljós, að það var undarleg tiiviljun, að það verður til þess „fótalaus einyrki" að skjóta fyrstur manna skjóls- húsi yfir hina níu skipverja, sem eftir lifðu af Friedrich Albert, og gengu í hlað á Orrustustöðum að morgni hins 30. janúar árið 1903. Eftir að hafa þá verið í rúmlega 10 sólarhringa á „vonleysiseigri" aft- ur og fram um eyðisanda að leita mannabyggða. Þó ærnar mann- raunir væru fyrir, var ekki öllu lokið enn, því nú fóru í hönd dagar veikinda, kvala og hugarangurs, því þeir voru „mikið skemmdir" og kalsárin höfðust illa við í fyrst- unni. Vafalaust hafa strandmennirn- ir, sem drógust á tilfinninga- lausum ganglimunum í hlaðið á Orrustustöðum, talið sig hólpna. Og það var á vissan hátt rétt, en nú fóru í hönd tímar sársauka, sálarstríðs og mikillar karl- mennsku. Þeir voru í einu orði sagt hryllilega leiknir líkamlega. Læknismálum íslensku sveit- anna hafði þokað það áleiðis, að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.