Morgunblaðið - 07.09.1983, Side 19

Morgunblaðið - 07.09.1983, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1983 19 íslenskt poppminjasafn? EINS og ýmsum mun þegar kunnugt, er í bígerð að setja saman bók um hljómsveitina Stuðmenn. Auk þess að fjalla í smáatriðum um ýmsa meðlimi hljómsveitarinnar, er einnig ætl- unin að bregða birtu á tónlistar- lega fortíð hljómsveitarinnar. Komið hefur í ljós að Stuðmenn hafa komið svo víða við á ferli sínum, að enginn einn maður hefur nægilega góða yfirsýn eða þau gögn undir höndum sem nauðsynleg eru þegar vanda á til vinnubragða, segir í fréttatil- kynningu frá hljómsveitinni. Þess vegna heita Stuðmenn á alla þá sem kunna að eiga eitt- hvað sem tengst getur Stuð- mönnum í gegnum tíðina, hvað sem vera kann, ljósmyndir, högg- myndir, dagbókarslitur eða alla skapaða hluti að senda slíkt til: Svipmynda, Hverfisgötu 18 (gegnt Þjóðleikhúsinu). Ef heimtur verða góðar verður með þessu efni lagður grunnur að íslenska poppminjasafninu, en það verður nánar skýrt þegar fram líða stundir. Bruninn í Brimnesi: Talið að kviknað hafi í rafali SJÓPRÓF fóru fram í Ólafsvík síðdegis á föstudag vegna brunans í Brimnesinu frá ólafsvík undan Jökli. Talið er að kviknað hafi í rafali í vélarrúmi bátsins. Skip- verjar komust nauðuglega í björg- unarbát og var bjargað af Sax- hamri frá Rifi. „Firefox“ í Austurbæjarbíó Austurbæjarbíó hefur nú hafið sýningar á myndinni Firefox, og segir i tilkynningu frá Austurbæj- arbíó að þar sé á ferðinni ný æsi- spennandi bandarísk litmynd, tek- in í Panavision og Dolby Stereo. Myndin er framleidd af Clint Eastwood sem jafnframt er leik- stjóri og aðalleikari. Aðrir helstu leikarar eru Freddie Jones, David Huffman, Warren Clarke og Ron- ald Lacey. Söguþráður myndarinnar er á þá leið að aðalsöguhetjan, Mitch- ell Gant, fær það verkefni að kom- ast til Sovétríkjanna og ná þaðan nýrri fullkominni herflugvél sem Sovétmenn hafa smíðað og nefnd er Firefox. Þegar Gant kemur til Sovétríkjanna, þá kemst hann fljótlega að því að KGB veit allt um hann. Hann kemst undan og nær að komast til flugvélarinnar og koma henni á loft. KGB hefur þegar eftirför og hefst tvísýnn elt- ingarleikur sem ekki verður nánar sagt frá hér. héraðslæknir var á Síðu. Bjarni Jensson læknir gegndi því emb- ætti þá. Bjarni sá, sem von var, að of mikið yrði færst í fang fyrir hann einan og áhaldalítinn að ganga til verks, enda naumast til nægilegar sáraumbúðir til svo stórkostlegra skurðlækninga, sem nauðsynlegar voru, og því var það að hann gerði Þorgrími Þórðar- syni boð um að koma á vettvang sér til aðstoðar, en Þorgrímur var einmitt orðlagður skurðlæknir og fyrir aðgerðir sínar á útvortis meinum. Þegar Þorgrímur læknir fékk boðin, ásamt lýsingu af því verki, sem fyrir höndum var, lét hann hendur standa fram úr ermum. Hestar voru söðlaðir og ferðaföt tekin fram. Einn hestur bar ekki annað en sáralín, áhöld og lyf og síðan var haldið af stað sem leið liggur vestur sanda. Læknanna tveggja beið mikil barátta og erf- iðar aðstæður. Nú myndi reyna á kunnáttu þeirra og sálarþrek. í skýrslu sinni til iandlæknis getur Þorgrímur þess, að hann hafi haft meðferðis þýska handbók um skurðlækningar. Þegar Þorgrímur læknir var kominn vestur heilu og höldnu, yf- ir torfærulandslag um hávetur, var látið til skarar skríða. Um sjúkrahús eða þjálfað að- stoðarfólk, sem nú þykir nauð- synlegt, var ekki að ræða, og urðu því leikir að aðstoða læknana tvo við störf þeirra. Svo sem við hafði verið búist, voru strandmenn of illa leiknir af kalinu til þess að þeir mættu halda limum sínum óskertum, en til þess að fara fljótt yfir sögu, þá lýsir stuttur kafli í bréfi frá Guðlaugi Guðmundssyni sýslumanni til Þorleifs Jónssonar í Hólum ástandinu hvað best, en bréf þetta ritar Guðlaugur sýslu- maður Þorleifi í Hólum í mars- mánuði sama ár. Hljóðar bréfkaflinn á þessa leið: „Þorgrímur er kominn langt með að „aflima" strandmennina, og það hefur alit heppnast prýð- isvel að þessu og verður svo von- andi framúr, en ekki var það árennilegt í fyrstu. Hann hefur tjóðrað mig á þeim blóðvelli alla daga og látið mig hafa þá virð- ulegu(!) atvinnu að „halda fótun- um“ og kann ég honum enga þökk fyrir.“ Svo mörg eru þau orð, og sýslu- maður grípur til gamanseminnar til að skýra vini sínum frá við- burðum, sem hann sjálfur hefur ekki komist hjá að taka þátt í nauðugur viljugur. í Fjallkonunni 12. apríl segir svo í fréttagrein: „Þorgrímur læknir er fyrir skömmu kominn heim til sín vest- an af Síðu. Hann hefur verið þar yfir þýskum mönnum af „Fried- rich Albert" frá Getsemunde, sem strandaði á Svínafellsfjöru 19. janúar síðastliðinn og er búinn að taka af þeim fimm mönnum, sem kól, átta fætur og allar tær af tveim fótum. Þeir eru nú að mestu grónir og líður vel, eru allfrískir og kátir." Hér hafa verið raktir fáeinir þættir í mikilli sögu; aðeins fáein- ir þættir. Ekki til þess eins að minna á nær sextíu ára gamlan harmleik, heldur til að leggja lít- inn stein í minnisvörðu um óeig- ingjarnt starf hinna nafnlausu landa vorra, sem hafa frá fyrstu tíð dregið menn úr strandi, gefið þeim húsaskjól og fatnað, og að lokum skotið undir þá hesti í kaupfar. Við sjáum í anda mörgum vik- um síðar, þegar hinir fótalausu skipverjar af Friedrich Albert frá Getsemunde snúa sér við á hnakknum og horfa í síðasta sinn yfir sandauðnina miklu, mjóa grastorfuna og hrikaleg fjöllin. Um veika líkamina fer alda djúpra tilfinninga, þakklæti og endur- minning um mikinn sársauka, bata og vináttu. Þegar strandmennirnir náðu til Þýskalands, rak þýska lækna í rogastans. Gat það verið satt, að íslenskir sveitalæknar ynnu slíkt afreksverk í skurðlækningum? Svo snilldarlega hafði tekist, að engu var við að bæta. En læknarn- ir tveir voru sæmdir hinni prússn- esku, rauðu arnarorðu fyrir afrek- ið. — Strandmennirnir sjálfir voru mjög þakklátir og skrifuðu læknum sínum bréf og sögðu af högum sínum, en þess verður ekki getið hér.“ Við þessa sögu er ekki miklu að bæta, og yfir hana eigum við ekki að moka, — ef annað er hægt, heldur draga þetta járnhnoðaða minnismerki um afrek, mannúð og atvinnu til sjávar á ný. HAUST- og VETRARFATNAÐUR tekinn upp DAGLEGA!! Meö hverjum deginum eykst úrvalið af glæsilegum haust- og vetrarfatnaöi Sjón er sögu ríkari Ekki er úr vegi þegar sólin (loks- ins!) skín í heiði að minna á bata- merki okkar. Júní: íslensk spjör. betri kjör. Júlí: Með bros á vör Ágúst: íslensk iðn Kjölfesta komandi kynslóð- ar. Og umboðsmenn um allt land: í Reykjavík: Austurstræti 22 — Laugavegi 20 — Laugavegi 66 — Glæsibæ. úti á landi: Epliö ísafiröi — Eyjabær Vestmannaeyjum — Fataval Keflavík — Álfhóll Siglufiröi — Nína Akranesi — Ram Húsavík — Bakhúsiö Hafnarfiröi — Austurbær Reyöarfiröi — Kaupfél. Rangæinga Hvolsvelli — Sparta Sauðárkróki — Skógar Egils- stööum — ísbjörninn Borgarnesi — Lea Ólafsvík — Lindin Selfossi — Paloma Vopnaf- irði — Patróna Patreksfirði — Báran Grindavík — Þórshamar Stykkishólmi — Hornab- ær Höfn Hornafiröi — Aþena Blönduósi — Nesbær Neskaupsstaö — Versl. Magnúsar Rögnvaldssonar Búðardal.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.