Morgunblaðið - 09.09.1983, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1983
Fjárlagagerðin;
Samdráttur í
launaútgjöldum
ekki lækkun launa
í MORGUNBLAÐINU í gær var
frá því skýrt, að við fjárlagagerð
ríkisins fyrir árið 1984 væri stefnt
að því að draga úr launaútgjöldum
ríkissjóðs, sem næmi 2,5%. Þessi
frétt hefur verið misskilin á þann
veg, að stefnt væri að 2,5% lækkun
launa opinberra starfsmanna.
Þetta er að sjálfsögðu rangur
skilningur á fréttinni. Um er að
ræða tillögur um 2,5% samdrátt í
heildarútgjöldum ríkissjóðs vegna
launagreiðslna.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins er ætlun fjár-
málaráðherra að ná þessum
sparnaði að hluta til með því að
ráða ekki í störf hjá ríkinu, sem
losna, en með því næst fram
nokkur sparnaður og að nokkru
leyti með því að ráða menn ekki
til starfa í stað þeirra, sem eru í
auka orloíi eða löngu orlofi held-
ur draga úr þjónustu að ein-
hverju leyti yfir sumarleyfistím-
ann, eins og víða þekkist bæði í
opinberum rekstri og einka-
rekstri.
Morffunblaftiö/Abbi.
Hraunsréttir í Aöaldal:
Fyrstu reglulegu
réttir haustsins
Straumnesi, Aðaldal, 8. september.
FYRSTU reglulegu réttirnar í
haust voru hér í Aðaldal, það
voru Hraunsréttir. Eru þær viku
fyrr en venja er vegna ofbeitar á
afréttinum. Á fimmta þúsund
fjár var réttað í blíðuveðri, sól
og blankalogni. Þeistareykja-
land og Reykjaheiði var smalað
en eftir viku verður réttað aftur í
Hraunsrétt, fé úr heimalöndum
og það sem eftir hefur orðið í
afréttinum. Fé virðist ekki vænt.
Lömb eru misjöfn, nokkuð hold-
góð en smá, þannig að líklegt er
að meðalþungi verði í rýrara
lagi.
S.Sk.
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að bílastæði eru alltof fá í miðbænum. Lögreglan hafði í nógu að snúast í gær
í Vonarstrætinu. Þar hafði 10 bifreiðum verið lagt ólöglega og á allar voru settir sektarmiðar.
Áhugamenn um úrbætur í húsnæðismálum:
Gagnlegar viðræður
við fjármálaráðherra
„VIÐ HÖFUM unnið að því undan-
farna daga að kynna ráðherrum
okkar kröfur og málefni húsakaup-
enda og húsbyggjenda og við áttum
fund með Albert Guðmundssyni
fjármálaráðherra í gær og fóru þar
fram mjög gagnlegar viðræður og
fengum við mjög hreinskilin svör um
að það væru litlir peningar til,“ sagði
Pétur J. Eiríksson, einn forsvars-
manna Áhugamanna um úrbætur í
húsnæðismálum í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
„Fjármálaráðherra undirstrik-
aði það mjög fastlega að það væri
mikill og góður vilji innan ríkis-
stjórnarinnar og í hans ráðuneyti
til þess að reyna að leysa úr vand-
ræðum þessa fólks, húsbyggjenda
og -kaupenda. Okkur er kunnugt
um það að félagsmálaráðherra og
hans aðstoðarmaður hafa unnið
mjög ötullega í þessu máli, en hins
vegar hefur ekkert komið út úr
þessu ennþá, en við reiknum með
því að það verði einhvern næstu
daga. Eins væntum við þess að
þegar samþykkt verða ný lög um
húsnæðismálastofnun, sem taka
eiga gildi um næstu áramót, verði
þar að finna eitthvað fyrir þá sem
byggðu undanfarin 3 ár og eru að
byggja núna.“
Þrjú kanadísk fiskvinnslufyrirtæki undir stjórn skiptaráðanda;
Hugmyndir uppi um verð-
lækkun í Bandaríkjunum
ÞRJÚ STÓR fiskvinnslu- og útgerð-
arfyrirtæki á Atlanthafsströnd
Kanada hafa nú verið sett undir
stjórn skiptaráðanda í kjölfar fjár-
*
Yta niður
50 m snar-
bratta hlíð
ÝTA FRÁ Patreksfirði lenti út
af þjóðveginum í Sniðnum á
Kleifaheiði fyrir nokkru er hún
var að mæta bfl, fór fram af
veginum og niður snarbratta
hlíð, yfir 50 metra háa.
Ýtustjórinn Bjarni Sigur-
björnsson á Patreksfirði sagði
í samtali við Mbl. að hann
hefði verið að leysa ýtustjór-
ann af og hefði hann verið
óvanur þessari gerð af ýtu.
Hann hefði verið að snúa
henni út í vegarkantinn og
ætlað að stoppa á meðan bíll-
inn færi framhjá en gert mis-
tök, sett á fullt í stað þess að
stoppa og síðan hefði kantur-
inn gefið sig. Sagðist hann
hafa snúið undan brekkunni,
og farið niður, ekki hefði verið
annað að gera og hefði þetta
ekkert mál orðið ef ýtan hefði
ekki bilað þegar hann var
kominn langleiðina niður og
hann orðið að stoppa þar og
skilja ýtuna eftir.
hagsörðugleika þeirra. Skiptaráó-
andinn hefur í huga að selja fisk-
birgðir fyrirtækjanna til Bandaríkj-
anna á niðursettu verði í þeim til-
gangi að bæta lausafjarstöðu fyrir-
tækjanna. Telja ráðamenn á Ný-
fundnalandi og í Nova Scotia þetta
undirboð á bandaríska markaðinum
geti leitt til gjaldþrots hundruða
smárra fiskvinnslufyrirtækja á Atl-
antshafsströnd Kanada.
Þetta kemur fram í kanadíska
blaðinu The Chronicle Herald,
sem gefið er út í Halifax í Nova
Scotia. Þessi fyrirtæki eru Fish-
eries Products Ltd., Lake Group
Ltd. og John Penny and Sons Ltd.
á Nýfundnalandi, og á vegum
þeirra starfa um 7.000 manns á 60
togurum, í 15 frystihúsum og á
„ÞAÐ HEFUR verið mikið að gera
hjá okkur að undanförnu, bæði í
frystihúsinu og rækjuvinnslunni.
Það vantar nú um 20 manns í frysti-
húsið og 6 til 8 í rækjuvinnsluna. Við
höfum því verið að hugleiða að flytja
fólk á staðinn," sagði Sæmundur
Árelíusson, framkvæmdastjóri
Þormóðs ramma í Siglufirði í sam-
tali við Morgunblaðið.
„Skýring þess, að fólk vantar nú
öðrum vettvangi. Um 90.000
manns vinna við fiskvinnslu og út-
gerð á Atlantshafsströnd Kanada,
en einkum á Nýfundnalandi og í
Nova Scotia. Eru fyrirtæki í sjáv-
arútvegi á þessum slóðum tæplega
400 og flest smá í sniðum.
Morgunblaðið bar þessa frétt
undir Vilhjálm Júlíusson, sem
starfað hefur við sjávarútveg í
Kanada í rúmlega áratug. Sagði
hann, að vissulega væri staðan
erfið, einkum á Nýfundnalandi,
þar sem þorskafli hefði að undan-
förnu dregist saman. Því ættu ým-
is fyrirtæki erfitt uppdráttar þar.
Þá mætti reikna með því að hugs-
anleg undirboð skiptaráðanda
þessara þriggja fyrirtækja hefðu
einhver framboð á Bandaríkja-
markaði.
í vinnu, er aðallega brotthvarf
skólafólksins, en einnig hefur hrá-
efni borist nokkuð jafnt og þétt
að, bæði til rækjuvinnslu hjá
Siglósíld og í frystihúsið. Vegna
þessa ástands höfum við orðið að
vinna á laugardögum í frystihús-
inu, en að öðru leyti er ekki unnin
mikil yfirvinna," sagði Sæmundur
Árelíusson.
Vantar tæplega
30 manns í vinnu