Morgunblaðið - 09.09.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1983
5
Húsavík:
Nýi miðbærinn
í útjaðri bæjarins
Húsavík 1. september.
Á HÚSAVÍK er unnið að skipulagsm-
álum bæjarins eins og annarsstaðar
og þykir þar sitt hverjum.
Nýjasta verkefni hugmynda-
fræðinga er nýr miðbær — en ekki
þó í miðri byggð — heldur alveg
nyrst í bænum, en bærinn hefur að
undanförnu mest byggst til suðurs
og mun svo verða á næstu árum.
Nyrst í þessum nýja „miðbæ"
eru svo hugmyndir uppi um það, að
staðsetja skrifstofu sýslumanns og
bæjarfógeta. Norðan við skrifstof-
una yrði ekkert íbúðarhús eða
þjónustufyrirtæki en íþróttavöll-
urinn yrði í næsta nágrenni.
Raufarhöfn og Þórshöfn eru í
sama lögsagnarumdæmi og Húsa-
vík og með nefndri staðsetningu
yrði sýsluskrifstofan nyrsta húsið
austan þjóðvegarins til þeirra
staða, en varla verður „nýi miðb-
ærinn“ skipulagður með tilliti til
þess.
Mér þykja það fráleitar hug-
myndir að tala um nýjan miðbæ í
útjaðri byggðarinnar og staðsetn-
ing sýsluskrifstofu nyrst í þeim
reit. Fréttaritari
FERÐ Á BYGGINGASÝNINGU
(Byggeri for milliarder)
I BELLA CENTER
í Kaupmannahöfn 21.—27. okt. 1983
Verð frá kr. 13.610,00
Innifalið: Flug, gisting á Hótel
Hebron í tvíbýli með morgun-
verði. Aukagjald fyrir eins-
mannsherbergi: kr. 1.300,00.
Austurstræti 17, sími 26611.
Akureyri, Hafnarstræti 98, sími 22911.
Ferðaskrifstofan
ÚTSÝN
Leikrit Ásu
Sólveigar sýnt
á Norðurlöndum
LEIKRIT Ásu Sólveigar, „Nauðug
/viljug" sem frumsýnt verður í ís-
lenzka sjónvarpinu í nóvember,
hefur verið valið til sýninga á
Norðurlöndum. Fyrir skömmu
héldu deildarstjórar leiklistar-
deilda sjónvarpsstöðvanna á
Norðurlöndum með sér fund í
Þrándheimi, og var þá ákvörðun
tekin um sýningu á leikriti Ásu
Sólveigar. Viðar Vikingsson er
leikstjóri.
Þrjú norræn leikrit voru valin
til sýninga hér á landi, frá Dan-
mörku, Svíþjóð og Noregi en
ákvörðun hefur enn ekki verið tek-
in um sýningu á finnsku verki í
vetur.
Mengunarrann-
sóknir á
Grundartanga
TVEIR MENN frá Vinnueftirliti
Ríkisins eru nú að störfum við
mengunarrannsóknir f járnblendi-
verksmiðjunni við Grundartanga og
verða það fram að vikulokum, en
þeir hófu rannsóknarstörf í byrjun
vikunnar. Er hér um venjulegt eftir-
lit með rykmengun lofts I verksmiðj-
unni að ræða í samráði við for-
svarsmenn hennar og launþega.
Svipaðar rannsóknir hafa áður
verið framkvæmdar í Kísiliðjunni
og Álverinu. Einnig fóru slíkar
rannsóknir fram á vegum Elkem,
er það gerðist hluthafi að verk-
smiðjunni.
Rukkunarhefti
tapaðist
BLAÐBERI hjá Morgunblaðinu
tapaði rukkunarhefti í Kópavogi.
Fór í strætisvagn frá Víðihvammi
að Snælandsskóla og aftur til
baka á miðvikudagskvöld. Finn-
andi vinsamlega hafi samband við
skrifstofu Morgunblaðsins, sími
10100.
Okkartnenn
íKaupntanna-
••••■• ■...................
Síminn er
90451185455
(ef þú hringir beint)
Hafskip hf. hefurfluttstarfsemi markaðs-
deildar sinnar að verulegu leyti til
stærstu samgönguhafna erlendis.
Hagræðið er ótvírætt. Þú getur verið í
beinu sambandi við þann stað sem þér
hentar þegar þér hentar.
Okkar menn hafa sérþekkingu á flutn-
ingum hver á sínu svæði. Það sparar
tíma og eykur öryggi. Slíkt er ómetanlegt
því tíminn í vöruflutningum er dýrmæt-
ur. Þá er ekki síður mikilvægt að vita að
íslenskir aðilar gæta íslenskra hags-
muna erlendis.
Þurfir þú að afla þér nákvæmra upplýs-
inga samstundis um vöruflutninga milli
staða á meginlandi Evrópu og til áfram-
haldandi flutninga heim til íslands (eða
öfugt) er einfaldast og áhrifaríkast að
nýta sér símatæknina og ofangreinda
þjónustu Hafskips.
Starfsfólk Kaupmannahafnarskrif-
stofunnar þau Árni Árnason, Sólklar
Haraldsson, Svend Skriver, Morentsa
Poulsen og HólmfríðurGunnarsdóttir
munu svara og leysa strax úr erindi þínu.
Viljirðu frekar nota telex, er númerið
19745.
Þessi þjónusta er til þæginda fyrir þig.
Notfærðu þér hana.
Okkor modur, - þinn moður.
SS HAFSKIP HF.