Morgunblaðið - 09.09.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.09.1983, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1983 Innlánsreikn- ingar Átaks liðlega 320 MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá Átaki: Tvö ár eru liðin frá því að Átaks-hugsjónin varð að veru- leika, með samstarfi við Útvegs- banka íslands. Átak sem slíkt er ekki formlegt félag með sérstökum félagslögum né heldur fyrirtæki, skráð hjá firmaskrárritara. Átak er félags- skapur hugsjónamanna og kvenna, sem vilja láta gott af sér leiða, til hjálpar þeim fjölmörgu einstaklingum sem eiga um sárt að binda í þjóðfélaginu og þurfa á sérstakri aðstoð að halda vegna sjúkdóms eða annarra erfiðleika. Þeir eru fleiri en marga grunar, sem horfið hafa frá eðlilegu lífi í samfélaginu, um lengri eða skemmri tíma. Þessir einstakl- ingar eiga oft erfiða leið til baka, til nýs lífs, hversu einlægur og ákveðinn sem ásetningur þeirra er. Oftast eru það fjárhagsörðug- leikar sem reynast þeim fjötur um fót. Þar til Átaks-deildin var stofnuð hafði engu líknar- eða mannúðarfélagi látið sér til hugar koma að ávaxta fé sitt á þann hátt að það mætti verða til þess að auka lánslíkur þessara fjölmörgu hrjáðu einstaklinga. Margir þeirra sem hér um ræðir teljast ekki Lágt fisk- verö erlendis Sjö íslenzk fiskiskip seldu afla sinn í Englandi og Þýzkalandi í síöustu viku. Fengu þau mjög misjafnt verð fyrir hann, en yfirleitt í lægri kantin- um. Þá er fyrirhugað að 5 skip selji í þessum löndum nú í vikunni. Á mánudag seldi Engey RE 254,6 lestir af karfa í Bremerhaven. Heildarverð var 4.410.600 krónur, meðalverð 17,32. Á þriðjudag seldi Fróði SH 51,2 lestir í Grimsby. Heildarverð var 605.600 krónur, meðalverð 11,82. Sama dag seldi Dagfari ÞH 54,4 lestir í Hull. Heild- arverð var 677.400 krónur, meðal- verð 12,45. Þá seldi Hrafn Svein- bjarnarson II GK 59,4 lestir í Hull á þriðjudag. Heildarverð var 1.453.700 krónur, meðalverð 24,47. Á miðvikudag seldi Júpiter RE 101 lest í Hull. Heildarverð var 1.891.400 krónur, meðalverð 18,89. Sama dag seldi Snorri Sturluson RE 246,3 lestir í Cuxhaven. Heild- arverð var 4.177.800 krónur, meðal- verð 16,96. Að lokum seldi Hrafn Sveinbjarnarson III GK 58,5 lestir í Hull. Heildarverð var 1.345.200 krónur, meðalverð 23,02. lánshæfir skv. gildandi starfsregl- um bankanna, þeir hafa yfirleitt engar tryggingar að bjóða aðra en eigin atorku. Megintilgangur Átaksdeildar- innar er þessi: Að starfrækja sérstaka upplýs- inga- og ráðgjafarþjónustu fyrir þá sem erfiðlega gengur að ná átt- um í fjármálakerfi nútíma þjóð- félags (t.d. aldraða og sjúka). Að lána fé til hinna ýmsu aðila, sem berjast við áfengisvandamál- ið. Að lána fé til einstaklinga, sem alkahólismi og sjúkdómar hafa leikið illa, í þvi skyni að hraða þeim til sjálfsbjargar á ný. Að veita námslán þeim, er stunda nám og huga að störfum við áfengisvandamálið. Að veita lánafyrirgreiðslu í því skyni að fjölga atvinnutækifærum fyrir alkóhólista og aðra sjúkl- inga. Þannig hljóðaði boðskapur þeirra hugsjónamanna og kvenna, sem að Átaki stóðu í upphafi og eftir honum hefur verið reynt að fara. Frá því að Átak hóf starfsemi sína fyrir um það bil tveimur ár- um í samstarfi við Útvegsbanka íslands hafa innstæður í Átaks- deild bankans þrefaldast og þann- ig haldið vel í við verðbólguna. Innlánsreikningar viðskiptavina Átaks-deildarinnar eru nú 320; verðtryggðir sparireikningar, sparisjóðsbækur og tékka- reikningar. Útlán í þessum lána- flokki hafa verið nokkuð hærri en nemur innstæðum, samtals hafa 350 einstaklingar fengið lánafyr- irgreiðslu á vegum Átaks. Átak er ætlað að safna í sjóð fé allra þeirra sem vilja ljá þessum góða málstað lið. Tryggja þeim ör- ugga og arðsama varðveislu fjár- ins jafnframt því að sjóðurinn sé nýttur til hjálpar þeim, sem eiga um sárt að binda og til átaks á öllum þeim sviðum sem talin eru hér að framan. í stjórn Átaks voru í upphafi kosnir þeir Guðmundur Þórar- insson, formaður, Guðmundur J. Guðmundsson, Ewald Bendsen, Jóhanna Sigurðardóttir, Aðalheið- ur Bjarnfreðsdóttir og Gerður G. Bjarklind. Á þessum aðalfundi voru eftirtalin kosin í stjórn fyrir næsta starfstímabil: ólafur Frið- finnsson, formaður, Guðmundur J. Guðmundsson, Aðalheiður Bjarn- freðsdóttir, Ewald Bendtsen, Þorsteinn Guðmundsson, Helena Albertsdóttir og Grétar Berg- mann. 25 Ljósm. Mbl. — GBerg. Stjórnarmenn í Gúmmívinnslunni hf. í anddyri nýja húsnæðisins á Rangárvöllum, talið frá vinstri: Pétur Rafnsson, framkvæmdastjóri Bandag hf., Jan Lensman, framkvæmdastjóri og eigandi JLP-Products, Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar, og Þórarinn Kristjánsson, frarakvæmdastjóri Gúmmívinnslunnar. Gúmmívinnslan hf. á Akureyri: Sólun hjólbarða hefst innan 2—3 mánaða Sænskt fyrirtæki meðeigandi og leggur fram einkaleyfi á nýrri framleiðsluaðferð við vinnslu á gúmmíaffalli Akureyri, 2. september. „VIÐ stefnum að því að vinnsla við sólun á stærri gerðum hjólbarða geti hafist hjá okkur innan 2—3 mánaöa,“ sagði Þórarinn Kristjánsson, fram- kvæmdastjórí Gúmmívinnslunnar hf. á Akureyri, nýs fyrirtækis, sem stofnað var 8. júní sl. og sagt hefur verið frá í Mbl. áður. Hér á landi er nú staddur Jan Lensman, framkvæmdastjóri og eigandi fyrirtækisins JLP-Pro- ducts í Svíþjóð, en það fyrirtæki hefur á undanförnum árum þróað og fengið einkaleyfi fyir sérstakri vinnsluaðferð á gúmmíaffalli, sem myndast við afskurð á hjólbörðum áður en þeir eru teknir til sólunar. Með því að blanda saman við af- fallið ákveðnum kemiskum efnum verður til gúmmíkvoða, sem hent- ar ákaflega vel til framleiðslu á gúmmígólfdúk og ýmsum fleiri hlutum úr gúmmíi; svo sem ýms- um umferðarmerkjum, umferðar- hindrunum, slitlagi á hlaupa- brautir og fleira. Að sögn Jans Lensman bindur fyrtæki hans í Svíþjóð miklar vonir við að hægt verði að frámleiða ýmsar vöruteg- undir, svo sem bobbinga og fleira viðkomandi sjávarútvegi, og telur hann mikla framtíðarmöguleika á því sviði. Jan gat þess einnig, að fyrirtæki hans hefði nú veitt Gúmmívinnslunni hf. einkaleyfi á íslandi fyrir framleiðslu sam- kvæmt vinnsluaðferð fyrirtækis síns. Þegar hafa verið ráðnir 4 menn í atvinnu hjá Gúmmívinnslunni og eins og áður segir hefst sólun hjólbarða innan 2—3 mánaða og síðan framleiðsla samkvæmt einkaleyfinu sænska væntanlega fyrir næstu áramót. Hluthafar í Gúmmívinnslunni hf. eru: Þórarinn Kristjánsson, Akureyri, sem jafnframt verður framkvæmdastjóri fyrirtækisins, hann á 50% hlutafjár, Iðnþróun- arfélag Eyjafjarðar, sem aðstoðað hefur við undirbúning að stofnun fyrirtækisins, leggur fram 10%, Birgir Eiríksson 10%, Möl og sandur hf. 10%, Bandag hf. í Reykjavík 10%, Dreki hf., Akur- eyri, 3% og Jóhann Andersen 2%. Þá bendir allt til þess að sænska fyrirtækið JLP-Products leggi fram 5% og verði þar með eignar- aðili að Gúmmívinnslunni. Finnbogi Jónsson, fram- kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar, sagði að félagið byndi miklar vonir við hið nýja fyrirtæki og hefði ákveðið að leggja fram 10% hlutafjár. Stefna Iðnþróunarfélagsins væri sú, að aðstoða við stofnun fyrirtækja og jafnvel að eiga í þeim hlut fyrstu árin á meðan væri verið að koma þeim á rekspöl, en síðan, ef vel gengi, myndi félagið selja sinn hlut í viðkomandi fyrirtækjum og þannig myndi koma til fjármagn, sem nota mætti til aðstoðar við stofnun nýrra fyrirtækja, sem Iðnþóunarfélagið teldi ástæðu til að styrkja. Gúmmívinnslan hf. hefur fest kaup á húsnæði undir stafsemi sína. Keypt var húsnæði á Rang- árvöllum, sem Ræktunarfélag Norðurlands átti og mun framtíð- arrekstur fyrirtækisins verða þar til húsa, en þar er landrými gott og stækkunarmöguleikar fyrir- tækisins tryggðir, ef vel gengur. G.Berg. VAXTAR LAG ER EKKERT ANDA VERTU (TAKT VIÐ TfMANN! VI0 EIGUM FÖT Á FLESTA 0G SÉRSAUMUM Á ALLA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.