Morgunblaðið - 09.09.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.09.1983, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1983 Orkuverð til stóriðju í Noregi — eftir Birgi ísl. Gunnarsson I umræðum um stóriðju hér á landi er oft vitnað til orkuverðs í öðrum löndum, þegar reynt er að meta, hvernig við getum verðlagt þá orku, sem við seljum til stór- iðju. Reyndar er allur slíkur samanburður mjög erfiður, því að taka verður tillit til margra at- riða, sem mönnum sést oft yfir eða liggja ekki á lausu. Dæmi um slík atriði eru skattar, kaupskylda stóriðjufyrirtækja á rafmagni, af- hendingaröryggi o.fl. Stefna norska Stórþingsins Tilgangur þessarar greinar er að varpa ljósi á hvernig þessum málum er háttað í Noregi, en Norðmenn eru hvort tveggja í senn, samkeppnisaðilar við okkur á orkumarkaðnum svo og sam- starfsaðilar vegna eignaraðildar þeirra að Járnblendiverksmiðj- unni á Grundartanga. Á sl. vori markaði norska Stórþingið nýja stefnu varðandi verðlagningu á raforku til stjóriðju. Fyrir nokkr- um árum var sú stefna ríkjandi í Noregi að taka bæri til endurskoð- unar alla gamla raforkusamninga vegna stóriðju og hækka verðið upp í það, sem raforka úr nýjum virkjunum kostaði. Hin nýja stefna Stórþingsins gekk í þveröf- uga átt, þ.e. að eldri samningar um sölu rafmagns til stóriðju verði óbreyttir, þar til samnings- tíminn rennur út á tímabilinu 1996-2011. Norðmenn búa við gamalt og flókið kerfi að því er snertir verð- lagningu á raforku til stóriðju. Samningarnir eru frá ýmsum tím- um. Sum fyrirtæki kaupa rafmagn frá norsku ríkisveitunum, en önn- ur fá rafmagn frá eigin virkjun- um. Þá er ríkið smám saman að eignast virkjanir, sem upphaflega voru byggðar af stóriðjufyrirtækj- um og þarf þá að verðleggja orkuna, sem þá er venjulega keypt af fyrri eigendum virkjunarinnar. Þá er lagður sérstakur orkuskatt- ur á rafmagn tíl stóriðju, sem get- ur verið misjafn, því að stundum er veittur afsláttur og auk þess greiða stóriðjufyrirtækin fyrir flutning raforkunnar og er sá kostnaður mismunandi eftir vega- lengdum. Þá er oft sérstakt gjald tekið fyrir að breyta spennunni. Frá þessu öllu er rækilega greint í ítarlegri greinargerð með ofangreindri þingsályktunartil- lögu svo og í nefndaráliti orku- og iðnaðarnefndar norska Stórþings- ins. Verður hér reynt að gefa stutt yfirlit yfir það verð, sem stóriðju- fyrirtæki í Noregi greiða fyrir rafmagn. Fjórir flokkar samninga Norðmenn skipta stóriðjusamn- ingum sínum í grófum dráttum í 4 flokka. í fyrsta flokknum eru svokallaðir 1950-samningar, en þeir voru gerðir á sjötta áratugn- um og yfirleitt til 50 ára. Heildar- orka skv. þessum samningum er 3,8 Twh (3800 Gwh). Með skatti, flutningskostnaði og kostnaði veg- na háspennu er meðalverð til ál- vera sk. þessum samningum 5,5 mills. (Reiknað er með að 1 norsk- ur eyrir sé 1.348 mills.) Stóriðju- fyrirtækin verða að kaupa 75% af umsömdu rafmagni. Verð til ann- arrar stóriðju en áivera er nokkuð hærra. Annar flokkur stjóriðjusamn- inga eru 1960-samningurinn, en það eru 9 samningar, sem gerðir voru á sjöunda áratugnum, sam- tals að orku 3,6 Twh. Þessir samn- ingar eru yfirleitt til 40 ára. Kaup- skylda 75%. Verð til álvera er að meðaltali 9,57 mills og verð til annarrar stjóriðju lítið eitt hærra. Þriðji flokkurinn eru fjórir samningar, sem gerðir voru fyrir 1976, samtals að orku 2,2 Twh. Þessir samningar voru mjög hag- stæðir stóriðju og renna út 1996—2011. Verðið er undir með- alverði. Birgir fsl. Gunnarsson „Ef reynt er að gera sér grein fyrir því meöai- verði, sem áliðnaöur í Noregi greiðir fyrir rafmagn frá ríkisveitun- um og teknir samningar samtals af orku 6,8 Twh, þá er grunnveröið 4,32 norskir aurar pr Kwh eða 5,8 mills og þegar við bætist flutn- ingsgjald og skattur, greiða álfyrirtækin að meöaltali 7,0 norska aura eða 9,43 mills/* Fjórði flokkurinn eru samning- ar gerðir 1976 og síðar, samtals 13 samningar að orku 2,5 Twh. Þeir samningar eru gerðir til 20 ára. Kaupskylda er 100%. Verð sam- kvæmt þessum samningum er á bilinu 13,9 mills til 16,1 mills. Nýir samningar Þá var í þingsályktunartillögu norska Stórþingsins ákvæði um verð á orku til nýrrar stóriðju. Með flutningsgjaldi og skatti var það ákveðið frá 1. janúar 1983 tæplega 20 mills. f augnablikinu, virðast ekki vera á ferðinni áætl- anir um ný stóriðjufyrirtæki í Noregi. Ef reynt er að gera sér grein fyrir því meðalverði, sem áliðnað- ur í Noregi greiðir fyrir rafmagn frá ríkisveitunum, og teknir samningar samtals að orku 6,8 Twh, þá er grunnverðið 4,32 norskir aurar pr. Kwh eða 5,8 mills og þegar við bætist flutn- ingsgjald og skattur, greiða álfyr- irtækin að meðaltali 7,0 norska aura eða 9,43 mills. Álverin taka rúmlega helming þess rafmagns, sem ríkisveiturnar selja til stór- iðju. Grein þessi er fyrst og fremst tekin saman til að skýra á hlut- lausan hátt orkuverð til stóriðju, einkum áliðnaðar í Noregi. Nauð- synlegt er fyrir okkur að fylgjast vel með því, sem gerist á þessu sviði, þar í landi, enda Norðmenn samkeppnisaðili á orkusviði eins og fyrr segir. Birgir fsl. Gunnarsson er alþingis- maður fyrir Sjálfstæðisílokkinn í Rejkjavík og formaður stóriðju- nefndar. Fiskeldi í Noregi - fískeldi á íslandi — eftir Pétur Bjarnason Daganna 22.-25. ágúst sl. var haldin fiskeldissýning í Þránd- heimi í Noregi. f tengslum við þessa sýningu var svo haldin ráðstefna, þar sem helstu sérfræð- ingar Norðmanna báru saman bækur sínar um hinar ýmsu hliðar fiskeldismála. Mér gafst, ásamt nokkrum öðrum íslendingum, kostur á að sjá þessa sýningu, og sitja ráðstefnuna. Ég taldi mig þekkja nokkuð vel til mála á þessu sviði, enda ekki nema rúmlega þrjú ár síðan ég var við fiskeldis- nám í Noregi. Þó kom mér það á óvart, hve framfarirnar hafa orðið miklar, og hve gífurleg fram- leiðsluaukning hefur orðið, og er fyrirséð á laxi og laxfiskum. Það kom fram, að árið 1985 verður lax- eldi stærra að umfangi en nokkur einstök grein sjávarútvegs í Nor- egi, ogjafnframt, að miðað við nú- verandi verðlag á afurðunum, þá er þénusta hverrar eldisstöðvar, sem hefur meðal-framleiðslu- kostnað, 25 norskar krónur á kíló af laxi. Og eftir því sem helst var talið, þá var ekki fyrirséð í allra nánustu framtíð nein verðlækkun á afurðunum. Þvert á móti sáu menn möguleika á ýmsum mörk- uðum, sem ekki eru nýttir í dag. Það er því ekki furða, að eins kon- ar gullgrafara-stemmning ríki meðal norskra fiskeldismanna núna. Það er fróðlegt, en jafnframt sorglegt að bera saman þá bjart- sýni og atorku, sem einkennir norskt fiskeldi, og þá stöðnun og úrtölustarfsemi, sem íslenskt fisk- eldi. Þetta er kannski nokkuð sterkt sagt, en við skulum hafa það í huga, að ekki eru nema 12—14 ár síðan norskt og íslenskt fiskeldi stóðu í sömu sporum. Ég hygg, að ekki sé of stórt upp í sig tekið að fullyrða, að Norðmenn séu nú þessum 12—14 árum á und- an okkur. Og það sama gildir um frændur okkar, Færeyinga, sem kunnir eru að atorku. Fyrir þrem- ur til fjórum árum var færeyskt fiskeldi nánast ekki til, en þeir eru komnir þessum þremur -til fjórum árum á undan okkur núna. Fram- leiðsla Færeyinga á eldislaxi mun á næstu tveimur árum komast upp í einhverjar þúsundir tonna. Og hvar stöndum við íslend- ingar svo í þessum málum? Jú, við getum lesið um það í blöðum öðru hverju, að árangur í fiskrækt sl. þrjátíu árin eða svo hafi komið heildarlaxaframleiðslu á fslandi úr ca. 100 tonnum á ári í 200—250 tonn. Þessum árangri náum við, meðan Norðmenn auka sitt fisk- eldi úr 100 tonnun árið 1971 upp í ca. 16.000 tonn nú í ár. Og viðbúið er að framleiðsla Norðmanna auk- ist á allra næstu árum upp 1 40—45.000 tonn á ári. Það er eftir- tektarvert, að framleiðsla Norð- manna á eldislaxi er nú þegar orð- in meiri en sem nemur heildar- veiði á villtum Atlantshafslaxi í heiminum. En hvers vegna stöndum við svona aðgerðarlítil í þessum mál- um. Hvaða úrtölur úrtölumanna eru svona áhrifamiklar? Við skul- um líta á nokkrar þeirra: 1. úrtala: Norðmenn standa bet- ur að vígi á mörkuðum. Þeir eru svo nálægt þeim, og geta flutt lax- inn ferskan á markaðina með bíl- um. Hver hefur ekki heyrt eitthvað þessu líkt? Og fljótt á litið virðist þetta nokkuð trúverðugt. Ég a.m.k. sá í þessu talsverðan sann- leika lengi vel. En hvað hefur svo gerst? Jú, einn góðan veðurdag fóru Norðmenn að fljúga með tugi tonna af laxi á viku hverri yfir hausunum á okkur á markað í Bandaríkjunum. Bandaríkin hafa það sem af er þessu ári verið ann- ar stærsti markaðurinn fyrir norskan eldislax. Og þegar svo er komið, hvað stendur eftir af þess- ari áhrifamiklu úrtölu? 2. úrtala: Aðstæður til eldis eru miklu betri í Noregi en hér á landi. Þessi er nokkuð gamalkunn, en hvernig halda menn eiginlega að laxeldi hafi byrjað í Noregi. Halda menn að Norðmenn hafi bara horft út á hafið bláa hafið og sagt einn góðan veðurdag: „Nú hefjum við laxeldi," og þar með hafi þeim undirbúningi verið lokið. Nei, síð- ur en svo. Norðmenn þurftu, alveg eins og við þurfum að gera, að finna og þróa það form, sem best hentaði þeim aðstæðum, sem þeir búa við. Jafnframt þurftu þeir að kynbæta laxinn sinn, svo hann gæfi sem mest af sér. Og þetta starf er ekki þess eðlis að það sé unnið einu sinni og.svo endanlega Pétur Bjarnason „Þaö er fróðlegt, en jafnframt sorglegt aö bera saman þá bjartsýni og atorku, sem einkenn- ir norskt fiskeldi, og þá stöönun og úrtölustarf- semi, sem einkennir ís- lenskt fiskeldi.“ búið. Þvert á móti eru þeir enn að, og öll þessi mál eru í stöðugri þróun og framför. Eini verulegi munurinn á þeim og okkur er sá, að þeir hafa hafið þetta verk, og náð árangri, en við erum rétt að byrja. 3. úrtala: Norðmenn hafa svo miklu meira fjármagn að setja í svona en við. Úrtala af þessu tagi er reyndar notuð til þess að stöðva öll fram- faramál á íslandi, en skyldi vera eitthvað til í þessu? Ég er þess fullviss, að fyrir andvirði tíunda parts úr skuttogara má gera stór- virki í fiskeldismálum, og það er öllum ljóst, sem lifa með bæði augun opin, að við eigum 20—30 skuttogurum of mikið. Spurningin er því kannski ekki fyrst og fremst hvort peningarnir séu, eða hafi verið til, heldur hvort skynsemin til að nýta þá hafi verið næg. Raunar væri hægt að tína fleiri úrtölur til, en það verður ekki gert að sinni. Þessi grein er öðru frem- ur skrifuð til þess að fá útrás fyrir þau áhrif, sem ég hef orðið fyrir við að kynnast upp á nýtt um- hverfi, þar sem bjartsýni, reynsla og atorka hefur náð að kveða virka dragbíta á framfarir í kút- inn. Ég er fullkomlega sannfærður um, að möguleikar íslendinga á sviði fiskeldis eru miklir. Ég er líka sannfærður um, að við eigum að nýta okkur það hagstæða verð- lag, sem nú er á laxi, til þess að koma undir okkur fótunum. Við þurfum að sjálfsögðu að gera okkur grein fyrir því að einhverjar fórnir þurfum við að færa áður en fiskeldi kemst á umtalsverðan legg hér á landi. Það er hæpið að reikna með því, að nýr atvinnu- vegur komist á legg alveg án skakkafalla. Sumir segja að við getum ekki reiknað með neinni umtalsverðri búbót af fiskeldi hérna megin aldamóta. Svo svartsýnn er ég ekki. Hitt er hins vegar alveg ljóst, að sá tími, sem líður þar til við förum að fá tekjur af fiskeldi, hann styttist ekkert, ef við bara bíðum með hendur í skauti. Sá tími fer ekki að styttast fyrr en við hefjumst handa við raunhæfar aðgerðir. Pétur Bjarnason er sjávarútvegs- fræðingur frá háskólanum í Tromsö og er nú kennari í fiskeldi við llólaskóla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.