Morgunblaðið - 09.09.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.09.1983, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1983 Noregur: Kreppan afstaðin hjá skreiðar- framleiðendum Ósk'i, 8. srplrmbrr. Frá frétUriUra MorgunbliAsins, Jan Krik Lauré. I>EIRRI miklu kreppu, sem ríkt hefur í norskri skreiðarframleiöslu, er nú lokið með því, að ríkið og norskir fiskútflytjendur hafa náð samkomulagi um að kaupa birgðir skreiðarframleiðenda, en þsr nema Flýðu til V-Berlínar Beriín, 8. september. AP. TVEIR austur-þýzkir hermenn flýðu í gsr yfir Berlínarmúrinn til Vestur- Berlínar og tókst þannig að fram- kvsma flóttatilraun, sem þeir höfðu undirbúið vandlega í heilt ár. Not- uðu mennirnir tskifsrið, er þeir voru saman á vakt í varðturni og flýðu vestur yfir, eftir að austur- þýzkur varðflokkur hafði farið fram- hjá í venjulegri eftirlitsferð. Ekki hefur verið skýrt frá nöfnum mann- anna af varúðarástsöum. Annan september sl. skýrðu vestur-þýzkir landamæraverðir frá því, að tveimur ungum mönnum hefði tekizt að komast frá A-Þýzkalandi yfir „dauðaræm- una“ í skjóli myrkurs og síðan flú- ið til V-Þýzkalands. Sjónarvottar telja sig hafa séð, hvar þriðji mað- urinn varð fyrir fimm skotum frá austur-þýzkum landamæravörð- um, sem síðan hirtu upp líflausan líkama hans og settu inn í herbif- reið. nú 6000—7000 tonnum. Eramleið- endur hafa setið uppi með þessar birgðir í langan tíma og margir þeirra hafa beðið gjaldþrot vegna þess, að ekki var hsgt að selja þsr. Með þessu gera menn sér vonir um, að skreiðarframleiðendur séu lausir undan þeirri fjárhags- byrði, sem síðustu 12 mánuði hef- ur virzt ætla að stöðva allan rekstur hjá hundruðum af smærri fiskframleiðslufyrirtækj- um í Norður-Noregi. Þessir samningar nú náðust sökum þess að ríkið veitti útflytj- endum vaxtalaust lán, sem gerir þeim kleift að yfirtaka birgðir skreiðarframleiðenda, enda þótt útflytjendur hafi átt birgðir frá því áður, sem námu 10.000—12.000 tonnum. „Við telj- um það heppilegt, að birgðirnar safnist á svo fáar hendur, sem unnt er. Það eru ennfremur út- flytjendurnir, sem eru í sam- bandi við hugsanlega kaupendur — og þá fyrst og fremst í Níg- eríu,“ var haft eftir Leiv Grönnvedt, ráðuneytisstjóra í norska sjávarútvegsmálaráðu- neytinu, í dag. Hann bætti því við, að nú ríkti „varkár bjart- sýni“, að þvi er snerti aukna sölu á skreið til Nígeríu. Efnahagur þar í Iandi færi batnandi fyrst og fremst sökum vaxandi olíufram- leiðslu. Rússar neita aðstoð frá Dönum Sovéskt olíuskip strandaði á Eyrarsundi á miðvikudag, en skipstjóri olíuskipsins neitaöi aðstoð Dana við að losa skipið. Yfirvöld í Moskvu sendu Dönum skeyti þess efnis að 3 önnur olíuskip væru á leið til aðstoðar strandaða skipinu, ásamt dráttarbáti. Danskt varðskip og þyrla buðust til að losa skipið, meðan verið var að athuga hvort nokkur olíuleki kæmi frá skipinu, en það boð var afþakkað. Olíufiutningaskipið reyndist dældað, en það lak ekki. Scargill gagnrýnir Samstöðu í Póllandi Blackpool, 8. september. AP. ARTHUR Scargill, hinn vinstri sinnaði leiðtogi brezkra námu- verkamanna, hélt í dag ræðu á árs- þingi brezka verkalýðssambandsins (TUC) í Blackpool, þar sem hann varði gagnrýni sína á Samstöðu, samtök frjálsu verkalýðsfélaganna í Weinberger heim- sækir Honduras Tegurigaipa, Honduras, 8. september. AP. CASPAR Weinberger, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, feröaðist um Honduras í dag, en þar hyggst hann fylgjast með umfangsmestu heræfingum Bandaríkjamanna, sem nokkru sinni hafa farið fram í þess- um heimshluta. Jafnframt mun Weinberger ræða við Roberto Suazo Cordova forseta og verða viðstaddur athöfn, þar sem fyrstu hermennirnir, er bandarískir hernaðarfræðingar hafa þjálfað, verða útskrifaðir. Weinberger kom til Honduras frá E1 Salvador, þar sem tveir menn á flokksskrifstofu hægri sinnaðs stjórnmálaflokks voru drepnir af leyniskyttum í dag. Ekki er talið, að þessi skotárás hafi staðið í neinum tengslum við heimsókn Weinbergers til lands- ins. Fyrirliggjandi í birgðastöð STANGAÁL (ALM9Si 0,5) Seltuþolið. Fjölbreyttar stærðir og þykktir. ÁLPRÓFÍLAR Q □□ VINKILAL Lllll SINDRA FLATAL SÍVALT ÁL Póllandi, sem nú hafa verið bönn- uð. „Það er skoðun mín, að Sam- staða sé and-sósíalísk. Það þýðir ekki það sama og að ég sé andvígur tilveru Samstöðu, heldur hitt aö hún er ekki sósíalísk stofnun og sannarlega ekki byggð upp með sama hætti og brezka verkalýðs- sambandið,1* sagði Scargill. Scargill hefur að undanförnu sætt mikilli gagnrýni í brezkum blöðum, ekki hvað sízt fyrir árásir sínar á Samstöðu í Póllandi. Það er þó ekki nýtt, að það sé storma- samt í kringum Scargill, sem var eitt sinn kommúnisti, en var kjör- inn forseti Sambands brezkra námuverkamanna fyrir Vh ári. Á fundi, sem var haldinn í Moskvu í síðasta mánuði, for- dæmdi Scargill frú Margaret Thatcher forsætisráðherra og Ronald Reagan Bandaríkjaforseta sem mestu friðarspilla heimsins. í síðustu viku neitaði hann svo að taka undir yfirlýsingar þeirra, sem fordæmdu Sovétmenn fyrir að skjóta niður suður-kóreönsku farþegaþotuna með 269 manns innanborðs og bar það fyrir sig, að hann þyrfti á „frekari upplýsing- um“ að halda. Blaðið Daily Mirror, sem styður brezka verkamannaflokkinn ákaft sagði í dag: „Sá dagur mun koma, að Scargill eyðileggur sjálfan sig og sá dagur getur ekki komið of fljótt.“ Reagan notar heyrnartæki Wa.shington. 8. september. AP. HEYRNARDEYFÐ hefur hrjáð forseta Bandaríkjanna, Ronald Reagan, í auknum mæli sl. ár. Forsetinn notaði heyrnartæki á hægra eyra í fyrsta skipti opin- berlega á fundi með framá- mönnum í mennta- og viðskipta- málum þjóðarinnar fyrr í vik- unni. Hinn 72 ára gamli forseti notaði heyrnartækið í fyrsta skipti opinberlega sl. þriðju- dag, þrátt fyrir að hann hefði verið látinn máta það í heyrn- armælingum sem hann gekkst undir í Kaliforníu í síðasta mánuði. Forsetinn hefur látið uppi að orsök heyrnardeyfðar sinnar sé að rekja til þess er hann hleypti af skoti úr byssu, of nálægt höfði sínu, í kvikmynd sem hann lék í fyrir mörgum árum síðan. Tilraunir með greiningu AIDS New York, 8. Heptember. AP. VERIÐ ER að reyna nýjar tilraunir með greiningu sjúkdómsins áunninnar ónæmisbæklunar (AIDS), með blóðprófum hjá fólki sem hugsanlega gæti verið komið með þennan banvæna sjúkdóm. Ekki er um að ræða lækningu á sjúkdómnum, heldur aðeins greiningu á tilraunastigi. Blóðprófin, sem mæla sérstaka séu framkvæmdar nema á full- STALHF Borgartúni 31 sími 27222 tegund af efninu interferon í blóði manna, geta hjálpað læknum að greina frumstig sjúkdómsins í fólki sem virðist alheilbrigt, og ber engin útvortis einkenni um sjúkdóminn, en hefur samt smit- ast. Rannsóknir hafa leitt f ljós, að áður en einkenni AIDS koma greinilega í ljós, er mikið magn af þessari tegund interferons í blóði sjúklinganna. Þeir læknar sem vinna að greiningartilraununum segja að meiri reynsla þurfi að koma á tilraunir þeirra, áður en blóðprófin verða notuð á almenn- ing, og vara við því að tilraunirnar komnustu rannsóknarstofum. Rannsóknarmennirnir eru ekki vissir á því hvers vegna líkami AIDS-sjúklinga virðist framleiða interferonið í svo miklum mæli, en það gæti orðið vísbending um upp- runa sjúkdómsins, sem talinn er vera einhvers konar vírus. Takmark rannsóknanna er, að sögn læknanna, að finna þá sem eru í smithættu, vegna þess að ónæmiskerfi þeirra starfar ekki rétt, greina blóð þeirra og búa til hormónameðferð sem byggir upp ónæmiskerfi þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.