Morgunblaðið - 09.09.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1983
23
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Þremur stjórnmála-
flokkum í Tyrklandi
leyft að bjóða fram
Kenan Evren
Turgut Ozal
FJÓRTÁN stjórnmálasamtök í Tyrklandi reyndu aö fá samþykki
herstjórnar Kenans Evren til að bjóða fram við kosningarnar í Tyrk-
landi þann 6. nóvember næstkomandi. En niðurstaðan er sú, að
einungis þrír flokkar hlutu leyfi til framboða. Kenan Evren hafði
tilkynnt að hann væri andsnúinn þvi, að margir flokkar byðu fram,
það myndi aðeins verða til að atkvæði dreifðust og erfiðara yrði að
mynda starfhæfa ríkisstjórn.
Samkvæmt hinni nýju
stjórnarskrá átti ekki að
vera sérlega erfitt fyrir
stjórnmálasamtök að bjóða
fram, en þegar til átti að taka
reyndist ýmislegt vera í veg-
inum fyrir því. Ekki var
myndaður mið eða mið-
vinstriflokkur eins og mun
hafa verið reynt. Af flokkun-
um þremur sem heimild hafa
til að bjóða fram eru tveir
íhaldsflokkar, sem munu að
öllum líkindum vera hliðholl-
ir þeirri stefnu, sem herfor-
ingjastjórnin hefur fylgt á
valdatíma sínum. Þriðji
flokkurinn er samtök „al-
þýðusinna" og mætti sjálf-
sagt telja þá skylda sósíal-
demókrötum. Þessi flokkur
kallar sig Fósturjarðarflokk.
Þessi samtök eru ekki að svo
komnu talin hafa mikla
möguleika gagnvart hinum
tveimur flokkunum, en ekki
er vafi á því, hvar stuðningur
stjórnvalda í Tyrklandi er.
Það var um tíma talið vafa-
samt að flokkurinn fengi leyfi
til að bjóða fram. En miklu
hefur ugglaust ráðið að í
fyrirsvari þessa „alþýðu-
flokks" eru Turgut Ozal,
fyrrverandi aðstoðarráðherra
og efnahagsráðgjafi, bæði í
tíð fyrrverandi ríkisstjórnar
og eftir að Evren tók við. Ozal
fékk þá frjálsar hendur um
aðgerðir í efnahagsmálum og
náðist á skömmum tíma ótrú-
legur árangur, þó svo að
eitthvað hafi þessi bati hægt
á sér nú. Innan þessara sam-
taka eru sagðir vera kaup-
sýslumenn og tæknimenntað-
ir menn í meirihluta. Sem
stendur eru menn á því að í
kosningabaráttunni, sem
senn fer í hönd muni Ozal
vera í eins konar löglegri
„stjórnarandstöðubaráttu".
Eins og fram kom var reynt
að koma á laggirnar fleiri
flokkum, en til að þeir mættu
bjóða fram þurftu þeir að
uppfylla allströng skilyrði
sem ekki tókst. Meðal þeirra
var flokkur undir stjórn Erd-
an Inönu, sem er sonur fyrr-
verandi forseta Tyrklands.
Hann nefndi flokkinn Þjóðar-
öryggisráðið og sagði að hann
byggði á meginreglum sósíal-
demókratískra flokka. Til
þess að fá að bjóða fram
þurfti herstjórnin að sam-
þykkja þrjátíu stofnfélaga. í
flokk Inönu var rösklega átt-
ræður maður, þekktur sam-
starfsmaður Kemals Ata-
tiirks og vakti það mikla at-
hygli að honum var hafnað.
Það virðist ljóst að „eftir-
lætisflokkur" herforingjanna
mun vera íhaldssama Lýð-
ræðisbandalagið. Undir
merkjum þess munu meðal
annars bjóða sig fram Ulusu,
fyrrverandi hershöfðingi og
núverandi forsætisráðherra,
og ýmsir aðrir úr ríkisstjórn-
inni. Stjórnmálaskýrendur
segja að flokkur Ozals muni
vinna í samráði við herfor-
ingjastjórnina en „tekur ekki
skipanir frá henni". Tals-
menn flokksins hafa sagt að
flokkurinn sé íhaldssamur í
pólitískum málefnum, frjáls-
lyndur í efnahagsmálum og
sósíaldemókratísk-sinnaður
þegar félagsmál eru annars
vegar.
Ymsir halda því fram að
hershöfðingjarnir muni telja
viturlegt að halda sig í hæfi-
legri fjarlægð frá þeim flokki
sem muni taka við stjórninni
næsta kjörtímabil, þar sem
framundan séu erfiðir tímar
á efnahagssviðinu. Verðbólga
og atvinnuleysi og samdrátt-
ur í framleiðslu ætlar lengi
að verða fylgifiskur Tyrkja.
En Evren forseti hefur sagt,
að til þess að leysa vandamál-
in þurfi líka að skapa nýja
tegund stjórnmálamanns,
sem enginn tengsl hafi við
stjórnmálaflokka sem hafi
áður starfað í landinu. Þann
21. september munu talsmenn
flokkanna þriggja kynna
stefnumál sín í þinghúsinu og
reynist eitthvað útásetn-
ingarvert fá þeir tvo daga til
að kippa því í lag og fá end-
anlega blessun stjórnarinnar
við framboðið.
Sem fyrr halda herforingj-
arnir býsna fast um stjórn-
artaumana. Ritfrelsi er tak-
markaðra en það hefur verið
og nokkur blöð hafa verið
bönnuð á síðustu vikum. Trú-
legt er að enn meiri gaumur
verði gefinn að skrifum blaða
á næstu vikum. Erlendir fjöl-
miðlar halda uppi stöðugri
gagnrýni á alræði herfor-
ingjastjórnarinnar fyrir
fangelsanir og pyndingar,
sem sagt er að viðgangist þar
í landi. Stjórnvöld neita þess-
um ásökunum alfarið, og það
hefur raunar orðið raunin, að
þær sakir, sem eru bornar á
Tyrki af erlendum blöðum,
hafa orðið til að Tyrkir hafa
þjappað sér meira en kannski
annars saman um herfor-
ingjastjórnina. Það hefur líka
vakið gremju margra að á
Vesturlöndum gefa menn lítið
fyrir kosningarnar og segja
þær skrípaleik. Vinsældir
herforingjastjórnarinnar
hvort sem mönnum líkar það
betur eða verr — þýðir þó
ekki að draga í efa. En á hinn
bóginn er nauðsynlegt að
Tyrkir spreyti sig nú á því að
búa við lýðræðisskipulag eftir
þriggja ára hlé.
■ j i 111 i1
KYNNTU ÞÉR
VÖRUMARKAÐSVERÐ
Ódýrar kommóður
•
V |.
1 t
V
:S
w
*■ *
§ P
:
ii,iinMi.fr ■ * G t
..r Furulíki
6 skúffur kr. 1.964,-
r 4 skúffur kr. 1.547.-
8 skúffur kr. 2.297.-
Fura - brúnbæsaöar eöa
hvítlakkaöar 2 breiddir
V ! , 6 skúffur frá kr. 3.328.-
4 skúffur frá kr. 2.472.-
Svefnbekkur
m/skrifborði
Verð kr. 8.687.-
Skrifborð m/hillum og
korktöflu. Stærð 120x55
cm. Hæð 188 cm.
Verð kr. 5.570.-
SENDIIM UM LAND ALLT
Opið til kl. 10 föstudag, og
til hádegis laugardaga.
Vörumarkaðurinnhf.
sími 86112.
I i í f í l
• U l J 1 J i' !U
1 vhJii) a yit ; i i í