Morgunblaðið - 09.09.1983, Side 13

Morgunblaðið - 09.09.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1983 13 Dómkirkjan. Bygging hennar hófst 1287 og tók a.m.k. 148 ir. Stfllinn er gotneskur og eru turnarnir 118 metra háir. boðsbæklingum rignir yfir okkur í hverri viku og við höfum auðvitað notað okkur þessa hluti eins og aðrir og miðað matarinnkaupin við tilboðin. Annars söknum við mest að fá ekki ferskan fisk. Slíkt er fáséður hlutur hér og dýr. D: Mér dettur nú í hug í sam- bandi við verslunina hér hvað þjónustan er öll aðgengilegri vegna langs opnunartíma. Allar matarverslanir eru opnar til 19 virka daga og sumar til kl. 21. Það er einnig opið í sömu verslunum á laugardögum og sunnudögum, yf- irleitt frá kl. 10—16. Það er hægt að fá bensín á hvaða tíma sólar- hrings sem er, þökk sé bensín- sjálfsölunum. Við höfum aldrei séð fleiri en 1—2 afgreiðslumenn á hverri bensínstöð, og eru þær nú ekkert smáar í sniðum. Pósturinn gegnir miklu stærra hlutverki hér en heima. Mun fleiri útibú eru hér og þess vegna er alls staðar stutt á póstinn. Pósturinn hefur eigin banka og veitir þ.a.l. miklu meiri þjónustu en hinir bankarnir vegna þess að hann er opinn alla daga til kl. 18 og á laug- ardögum til kl. 12. Það er furðu- legt hvað pósturinn heima veitir lélega þjónustu miðað við „kollega sinn“ hér. Knattspyrnan S: Svo við snúum okkur aftur að fótboltanum, Daníel. Hvað ertu búinn að spila marga leiki með Sirius? D: Ég hef nú ekki tölu á þeim en þetta er þriðja tímabil mitt hjá félaginu. Ætli það séu ekki um 160—170 leikir. í ár hef ég spilað 27 leiki með liðinu og erum við án taps ennþá. S: Hvar eruð þið á stigatöfl- unni? D: Við höfum spilað 10 leiki í deildinni, unnið 6, gert 4 jafntefli og erum í 2. sæti eða 2 stigum á eftir efsta liðinu, en við höfum spilað tveimur leikjum minna. Við erum komnir í 16 liða úrslit í bik- arnum og eina liðið frá Uppland, sem er eftir i bikarkeppninni. Annars erum við staðráðnir í að vinna deildina. S: Hvernig stendur á því að ekk- ert lið frá Uppsölum, sem telur um 150.000 íbúa, leikur í Allsvenskan? D: Ætli það sé ekki aðallega vegna þess að það er svo mikið af stúdentum hérna, sem stoppa stutt við rétt á meðan á námi stendur og svo er erfitt fyrir þá að fá vinnu hér í Uppsölum eftir nám. Einnig er borgarstjórnin ekki sérlega hliðholl íþróttafélög- unum hér eins og annars staðar í landinu. Það má segja að íþrótta- pólitíkinni svipi svolítið til þess sem gerist i vinabæ Uppsala, Hafnarfirði, hvað snertir styrk- veitingar til íþróttafélaganna þar. : S: Attu þá við FH og Hauka? D: Já. S: Hvaða skoðun hefur þú, Daní- el, á fréttaflutningi og fréttamati fjölmiðla hér um íþróttir? D: Svíar eru ansi uppteknir af sjálfum sér og íþróttafréttir eru mjög einhliða um afrek þeirra sjálfra. Það er auðvitað eðlilegt að greint sé ítarlega frá afrekum sinna manna, en þegar maður fréttir eingöngu í gegnum dag- blöðin heiman að að stór afrek hafa verið unnin á hinum Norður- löndunum, þá er einhver staðar pottur brotinn í sænskum frétta- flutningi. Pressan hér segir yfir- leitt illa frá einstaka íþróttavið- burðum og kappleikjum. Oftast virðast íþróttafréttaritarar hér vera mest uppteknir við að koma á framfæri viðtölum við þjálfara eða leikmenn í stað þess að lýsa hlutlaust sjálfum leiknum og ein- staka atvikum sem gerast i leik. Höldutn heim S: Ætlið þið að setjast hér að eftir að náminu er lokið? H: Nei, við búumst ekki við að setjast hér að. D: Það getur hins vegar verið að við verðum hér eitthvað áfram tímabundið eftir að ég hef klárað námið, þ.e.a.s. ef ég fæ ekki strax starf heima. Okkur líst í.þ.m. ekk- ert of vel á ástandið heima, yfir 140% verðbólga í maí/júní sl. og ekkert öruggt húsnæði að hverfa i. Svo er nú veðrið heima ekki til að auka heimþrána. Eiginlega eru það bara fjölskyldur okkar og vin- ir, sem draga okkur heim. S: Hefurðu hlerað atvinnuhorf- ur heima fyrir lyfjafræðinga? D: Nei, en ég hef ekki orðið var við annað en að þeir lyfjafræð- ingar, sem fóru heim í vor, hafi allir verið búnir að ráða sig í stöð- ur áður en þeir lögðu af stað. Ég hef þess vegna ekki ástæðu til annars en að vera bjartsýnn með atvinnuhorfur. Undirritaður þakkar Daniel og Hrefnu kærlega fyrir skýr og greinargóð svör. Endurmenntun fyrir háskólamenn í HAUST hefst á vegum Háskóla íslands og fleiri aðila endurmenntun fyrir háskólamenntað fólk, segir í fréttatilkynningu frá Háskóla ís- lands. Um síðustu áramót gerðu Há- skóli íslands, Tækniskóli íslands, Bandalag háskólamanna, Verkfræð- ingaféjag íslands, Tæknifræðingafé- lag íslands og Hið íslenska Kennarafélag samning um samstarf á sviði endurmenntunar fyrir ís- lenska háskólamenn. Sérstök endurmenntunarnefnd, sem i eiga sæti fulltrúar allra samningsaðila, hefur á hendi val á námskeiðum m.a. eftir beiðnum frá félögum BHM og auk þess um- sjón með endurmenntunarstarf- seminni. í nefndinni eiga sæti Guðmundur Magnússon háskóla- rektor, Guðbrandur Steinþórsson deildarstjóri TÍ, Guðríður Þor- steinsdóttir lögfræðingur, Loftur Þorsteinsson verkfræðingur, Arn- laugur Guðmundsson tæknifræð- ingur og Þorsteinn Helgason kennari. í sumar var Margrét S. Björns- dóttir þjóðfélagsfræðingur ráðin starfsmaður nefndarinnar og hef- ur hún aðsetur í húsnæði Háskóla íslands í Nóatúni 17. Fyrirhugað er að standa fyrir fjölbreyttri viðbótar- og endur- menntun fyrir háskólamenn og aðra, sem áhuga hafa, í samvinnu við deildir Háskólans, Tækniskól- ans og fleiri aðila. Auk þess er fyrirhugað að kynna það úr al- mennu kennsluframboði HÍ og TÍ sem hentað getur sem endur- menntun, og veita upplýsingar um endurmenntun erlendis einkum á Norðurlöndum. Fyrsta námskeiðið, Tölvur og gagnavinnsla, hefst í lok septemb- er. Það er byrjendanámskeið þar sem kynnt verða helstu hugtök, aðferðir og tæki, sem notuð eru við sjálfvirka gagnavinnslu. Auk þess verður kynntur tölvukostur Háskóla íslands og framhaldsmenntunarmöguleikar þar. í október verður m.a. námskeið um: Tölvur og notkun þeirra í iðn- aði, og í nóvember námskeiðið Lj ósleiðaratækni. Kjúklingar .50 pr. kg. , .Lamba Hamborgara hryggur .00 AÐEINS 128 pr.kg. VERÐAÐUR 195 oo SUMIR VERSLA DÝRT - AÐRIR VERSLA HJÁ OKKUR Frampartar niðursagaðir 71 85 / Pr- kg. VERÐ AÐUR 91.95 Læri og Hryggir .10 pr. kg. VERÐAÐUR 127.30 Lambalifur Opið á morgun /CÖ.00 laugardag fra vO pr k«- kl. 9-12 AUSTURSTRÆT117 STARMYRI 2 kjöt ÚTSALA Heilir skrokkar 7050 niðursagaðir / >r pr kg VERÐAÐURKR. 101.20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.