Morgunblaðið - 21.10.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1983
13
Bjartmar Pétursson og Trausti Eiríksson, sem hannaði kerfið. f baksýn má sjá saltið sáldrast úr skammtaranum
til hægri og til vinstri sést hluti umsöltunargáma og saltfæribandsins.
Nýtt söltunarkerfi frá Traust hf.:
Lætur nærri að það út-
rými erfiðisvinnunni
— segir Bjartmar Pétursson, sem fest hefur kaup á einu kerfanna
„ÞAÐ LÆTUR nærri að þetta sölt-
unarkerfi spari um 15% vinnu, en
það er meira virði, að það léttir
vinnuna verulega. Það lætur nærri
að kerfið útrými erfiðisvinnunni.
Það er því Ijóst að sparnaður er af
þessu og líklega lætur nærri að
samstæðan borgi sig upp á einu ári
miðað við að söltuð séu 500 tonn,“
sagði Bjartmar Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Útvers hf. á Bakka-
firði, í samtali við Morgunblaðið,
er kvnnt var hjá saltfiskverkun
BIJR nýtt söltunarkerfi frá Traust
hf., sem hann hefur nú fest kaup á.
„í dag er fyrst saltað í kar,
síðan rifið upp úr því með hönd-
unum og saltað í stakka og loks
eru stakkarnir rifnir upp og
saltfiskinum staflað á bretti, þar
sem hann bíður pökkunar. Við
þetta fer mikið af salti á gólfið,
sem síðan þarf að hreinsa upp.
Þá er allt saltað með höndum og
er hvort tveggja talsvert erfiði.
Með þessari nýju aðferð er fisk-
urinn saltaður í gámi með þrem-
ur hliðum. Sjálfvirkur salt-
skammtari stráir saltinu yfir
fiskinn, hvert lag fyrir sig. Þegar
millisaltað er, er fiskurinn tek-
inn úr einum gám og færður yfir
í annan og saltið hrist úr fiskin-
um niður á færiband á milli
gámanna. Færibandið flytur
saltið síðan í þar til gerðan poka,
svo moksturinn er að mestu úr
sögunni. Með þessu fer fiskurinn
aldrei á gólfið og söltun verður
miklu nákvæmari," sagði Bjart-
mar Pétursson ennfremur.
Eins og áður sagði er það fyr-
irtækið Traust hf., sem hannað
hefur þetta nýja söltunarkerfi.
Tvö kerfi hafa þegar verið smíð-
uð og annað selt til Bakkafjarðar
en hitt til Nýfundnalands, þar
sem það hefur þegar verið tekið í
notkun. Samkvæmt upplýsing-
um Trausts hf. er talið að kerfið
geti sparað 20 til 25% af vinnu-
afli við saltfiskverkun og geti
það numið talsverðum upphæð-
um á ári, en kerfið afkasti 5 til
10 tonnum af salti á klukku-
stund. Verð á búnaði þessum er í
dag um 600.000 krónur og til-
heyrandi gámar kosta um 2.000
krónur stykkið.
Greiðsluerfiðleikar Föroya Fiskasöla vegna birgðasöfnunar:
Verðmæti birgða vestra er
nú um 600 milljónir króna
FÖROYA Fiskasöla, sem selur fryst-
ar fiskafurðir Færeyinga á markað í
Bandaríkjunum gegnum Coldwater,
hefur að undanfórnu átt í nokkrum
greiðsluerfiðleikum vegna birgða-
söfnunar vestra. Hefur fyrirtækið
þvi átt í erfiðleikum með að greiða
fiskseljendum í Færeyjum.
Framkvæmdastjóri Fiskasöl-
unnar, Birgir Danielsen, segir í
samtali við færeysk blöð, að vonir
standi til að þessu verði kippt í
liðinn í þessari viku. Fyrirtækið
eigi nú birgðir vestra að verðmæti
rúmlega 600 millj. ísl. kr., en
venjulega nemi verðmæti birgða
þar um 150 til 180 milljónum
króna. Því hafi Fiskasölan þurft
að brúa bil, sem nemur rúmum
400 milljónum króna til að geta
Siglufjörður:
Mokfiskirí
á rækjunni
SigluílrAi 12. október.
MOKFISKIRl hefur verið hér á
rækju að undanförnu. Hafa bátarnir
aflað vel norður í „kanti". Sænes EA
kom inn í morgun með 6 lestir og
Áskell ÞH var væntanlegur inn í dag
með um 10 lestir. Þá kom togarinn
Stálvík inn með 70 lestir af fiski í
dag.
greitt seljendum við afskipun.
Vegna reglna um færeysk banka-
viðskipti sé ekki leyfilegt að fjár-
magna þennan mismun innan-
lands og því sé verið að leita hóf-
anna með erlend lán.
Birgir Danielsen segir ennfrem-
ur, að hluti þessa vanda stafi af
mikilli aukingu veiða við Færeyj-
ar. Lögð hafi verið áherzla á fram-
leiðslu í fimm punda pakkningar,
þar sem þær hafi gefið mestan
hagnað, salan hafi hins vegar
brugðist vegna mikils framboðs á
Bandaríkjamarkaði. Mikil ásókn
sé á hann vegna hins háa gengis
dollarsins. Samkeppnin standi að-
allega við Kanadamenn og bendir
hann á að verð á færeyskum
þorski sé 55 sentum hærra en á
kanadískum. Það hafi hins vegar
enga þýðingu að lækka verðið, því
þá lækki Kanadamenn sitt verð í
samræmi við það.
Loðnuleit gengur vel
Niðurstaðna að vænta í lok mánaðarins
Loðnuleitarleiðangrar rannsókna-
skipanna Bjarna Sæmundssonar,
Áma Friðrikssonar og G.O. Sars
ganga nú nokkuð vel að sögn Jakobs
Jakobssonar, fiskifræðings. Leið-
angrarnir hófust í upphafi mánaðar-
ins og er áætlað að þeim Ijúki í lok
hans. Loðnuveiðar á þessu ári byggj-
ast að miklu leyti á niðurstööu leitar-
innar, en stjórnvöld hafa gert ráð
fyrir um 250.000 lesta veiði á þessu
ári og taka þau endanlega ákvörðun
um veiði.
Jakob Jakobsson, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að Bjarni og
G.O. Sars hefðu hafið rannsóknir
sínar nyrst á svæðinu, norðvestur
af Jan Mayen og hefðu unnið sig
suður eftir með ísröndinni og síð-
an austur á bóginn, milli Græn-
lands og Jan Mayen. Hefðu þau
fengið gott veður og ís ekki verið
til trafala þannig að verkið hefði
gengið nokkuð vel. Árni Friðriks-
son hefði hins vegar verið í því að
kanna suðurjaðar loðnusvæðisins
út af Vestfjörðum. Þar hefði að
vísu verið miklu verra veður, norð-
austan strengur og blindhríð á
köflum. Þeir hefðu þó nokkurn
veginn fundið suðurmörk stofns-
ins. Ekki vildi Jakob tjá sig um
hve mikið hefði fundizt af loðnu,
sagði yfirlýsingar verða að bíða
þar til niðurstaðan væri endan-
lega ljós.
Nýja safnplatan meö David Bowie, sem var í 10. sæti á síöasta
DV-lista (14. okt.).
Ný plata frá Guömundi Rúnari Lúövíkssyni, sem landsfrægur er
oröinn fyrir lögin „Súrmjólk" og „Háseti vantar á bát."
Kenny Rogers hefur hór fengiö til liös viö sig Barry Gibb. sem
stjórnar upptöku plötunnar. Og ekki nóg meö þaö. Kenny hefur
líka fengiö Dolly Parton til aö syngja meö sér eitt lag, „Island In
The Stream", sem nú er komiö í 3. sæti bandaríska vinsældalist-
ans.
Aðrar nýjar plötur:
Kiss — Lick It Up
Loboxers — Just Got Lucky
Spyro Gyra — City Kids
Cluture Club — Colour By Numbers
Rás 3 (ný safnplata, sem inniheldur
m.a. Safety Dance, Red Red Wine.
Karma Chameleon, Dolce Vita o.fl.
lög).
Merry Christmas Mr. Lawrence
(Kvikmyndatónllst)
Black Sabbath — Born Again
Men Without Hats — Rhytm Of Youth
Hálft í hvoru — ný plata
Genesis — Mama.
Litlar plötur:
Paul McCartney — Say Say Say 12"
Madness — Wings Of A Dove (+12")
Men Without Hats — Safety Dance
Tomas Ledin — What Are You Dolng
Tonight
Howard Jones — New Song
Musical Youth — Tell Me Why?
State of Crace — That’s When We'll
Be Free
State Of Grace — Touching The Times
The Technos — Foreign Lands o.fl.
o.fl. o.fl.
Vorum aó fá nýja sendingu af T-bolum
meó Culture Club, Duran Duran, o.fl.
SENDUMI POSTKRÖFU S. 11508
simi 29575/29544
— Fréttaritari.